Þjóðviljinn - 25.10.1984, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 25.10.1984, Blaðsíða 5
UMSJÓN: GUÐJÓN FRIÐRIKSSON Flmmtudagur 25. október 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍDA 5 „íslensk áhrif sóttu á mig í Finnlandi" Guðný Magnúsdóttir sýnir leirskúlptúra og teikningar í Listmunahúsinu Undanfarið hefur staðið yfir í Listmunahúsinu við Lækjargötu sýning á leirverkum Guðnýjar Magnúsdóttur ásamt nokkrum kola- og pastelteikningum. Guðný hefur síðastliðin 3 ár verið við nám og störf í Finnlandi. Sýn- ingu hennar lýkur á sunnudags- kvöld og fara því að verða síðustu forvöð að sjá hana. Guðný sagði í samtali við Þjóð- viljann að hún væri seniiilega fyrsti ísienski listamaðurinn, ef arkitektar eru ekki taldir með, sem fer til langrar dvalar í Finn- landi. Hún sagðist hafa þekkt lítið til finnskrar listar en þó vitað að þar væri margt spennandi að gerast og hún hefði svo sannar- lega ekki orðið fyrir vonbrigðum. Guðný fékk styrk frá finnska menntamálaráðuneytinu og starfaði um tíma með mjög þekktri finnskri listakonu, Önnu- Maríu Osipow. Lengst af hafði hún vinnuaðstöðu í Pot Viapori á Sveaborg og sótti ennfremur framhaldsmenntunarnámskeið Listiðnaðarskólans í Helsinki. - Eru þá finnsk áhrif í verkum þínum? - Ég held ekki. Pau koma kannski frekar eftir á. Pað voru miklu frekar áhrif frá íslandi sem sóttu á mig meðan ég var í Finn- landi, hinir björtu og andstæðu litir í íslenskri náttúru og fjöllum. En listin er samt alþjóðleg. Guðný er fædd 1953 og stund- aði nám í Myndlista- og handíða- skóla íslands 1970-1974 og starf- aði siðan í Reykjavík, m.a. með Langbrókum, þar til hún hélt til Finnlands. Hún hefur tekið þátt í fjölda samsýninga heima og er- lendis m.a. einum fjórum í Finn- landi. Guðný hélt einkasýningu í Djúpinu 1980, í Helsinki í Artisa- ani 1982 og Kluvin galleríi í aprfl á þessu ári. Á sýningu ber mest á leir- skúlptúrum sem flestir eru unnir í hábrenndan steinleir eða jarð- leir, brenndir í rafmagnsofni. í flestum þeirra er glerjungur lítið notaður en litur greiptur í leirinn eða borinn á hann rakan, þurran eða brenndan. Flest verkanna eru tvíbrennd en nokkur oftar. Leitast er við að fella saman þrí- víð form og grafíska áferð efnis- ins. Sýning Guðnýjar er sannarlega þess verð að sjá hana en hún er opin virka daga kl. 10-18 og um helgina kl. 14-18. - GFr. Norræna húsið í Reykjavík og Norræna félagið á íslandi efna til norrænnar viku á Sauðárkróki dagana 27. október til 4. nóvem- ber n.k. í samvinnu við félags- deild Norræna félagsins á staðn- um og Safnahúsið á Sauðárkróki. Laugardaginn 27. október verður opnuð í Safnahúsinu sýn- ing á grafíkmyndum eftir finnska myndlistarmanninn Simo Hann- ula, en myndir hans hafa verið sýndar í Norræna húsinu að und- anförnu. Við það tækifæri verður einnig flutt sérstök kynning á Norræna húsinu og starfscmi þess og á störfum Norræna félagsins. Þórdís Þorvaldsdóttir, bókavörð- ur, mun annast kynningu á Nor- ræna húsinu en Karl Jeppesen, gjaldkeri Norræna félagsins, kynnir félagið. Myndlistarsýningin verður svo í Safnahúsinu alla næstu viku. Jafnhliða verður haldin sýning á bókum og blöðum, sem Nor- ræna félagið gefur út, svo og á kynningarritum og bæklingum um norræna samvinnu. í kjölfar sýningarinnar og fram í desember munu stjórnarmenn Norræna félagsins svo heimsækja félagsdeildir, skóla og stofnanir á Norðurlandi vestra til þess að kynna norrænt samstarf og Nor- rænu félögin. Um síðustu helgi var opnuð vatnslitasýning Katrínar H. Ágústsdóttur á Kjarvalsstöðum og eru á henni 62 verk. Opið er daglega kl. 14-22 og lýkur sýningu á sunnudagskvöld. Jakob sýnir í Listasafni ASI Þeir sem lentu í því að opna málverkasýningu meðan á fjöl- miðlaverkfalli stóð hafa átt býsna erfitt með að koma boðum út um sýningar sínar. Einn af þeim er Jakob Jónsson sem opnaði sýn- ingu 6. október og átti henni að vera lokið en nú hefur henni ver- ið framlengt til nk. sunnudags. Sýningin er í Listasafni ASÍ. Öll verk Jakobs eru unnin með olíulit á striga eða olíupastel á pappír og eru gerð á tímabilinu 1979-1984. Jakob stundaði nám í Kaupmannahöfn á árunum 1965- 1971 og hefur haldið tvær einka- sýningar áður í Reykjavík. Þessi sýning er helguð bróður lista- mannsins, Birni Jónssyni, sem lést á síðasta ári. Opið er daglega kl. 14 - 22. - GFr. Arkitektúr Lokaverkefni f Ásmundarsal Arkitektafélag íslands heldur þessa dagana sýningu í húsi sínu, Ásmundarsal við Freyjugötu, á lokaverkefnum 15 ungra arki- tekta, sem lokið hafa námi frá mismunandi skólum í Evrópu og Ameríku á sl. 2 árum. Verkin eru bæði skipulags- verkefni og byggingarverkefni, mörg tengd íslenskum aðstæð- um. Samhliða sýningunni eru verk- in kynnt og verður síðasta kynningar- og umræðukvöld nk. föstudagskvöld, kl. 20.30, 26. okt. Aðgangur er ókeypis. Sýningin er opin daglega frá kl. 13-22 út þennan mánuð. Gallerí íslensk list= Norrœn vika á Sauðárkróki Hafsteinn Austmann sýnir vatnslita- myndir Hafsteinn Austmann hefur að undanförnu verið með sýningu á Kjarvalsstöðum sem vafalaust hefur farið fyrir ofan garð og neð- an hjá mörgum vegna fjölmiðla- leysis. Þó er enn möguleiki að sjá hana og sömuleiðis vatnslita- myndasýningu Hafsteins í Gallerí íslensk list að Vesturgötu 17 en hún er opin á virkum dögum kl. 9-18 og um helgina verður hún opin kl. 14-18 en henni lýkur á sunnudag. Hafstein ætti að vera óþarfi að kynna en hann er fæddur árið 1934 og lærði myndlist hér heima og í París en hefur farið í fjöl- margar námsferðir til erlendra stórborga. Fyrstu sjálfstæðu einkasýningu sína hélt hann hér heima í Listamannaskálanum 1956 og vakti hann þá þegar mikla athygli. Hann hefur ávallt haldið sig við afstraktformið. - GFr. Hafsteinn Austmann hefur verið trúr afstraktlistinni.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.