Þjóðviljinn - 09.11.1984, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 09.11.1984, Blaðsíða 9
UM HELGINA Sr. Gunnar Björnsson sellóleikari og David Knowles píanóleikari. Egilsstaðir Tónleikar fyrir selló og píanó Á laugardag kl. 5 síðdegis verða tónleikar þeirra Gunnars Björnssonar sellóleikara og David Knowles píanóleikara í Vala- skjálfí á Egilsstöðum. Á efnisskrá eru verk eftir Bach, Beethoven og Schubert og auk þess eitt Islenskt verk: Úr dagbók hafmeyjunnar fyrir selló og píanó eftir Sigurð Egil Garðarsson. David Knowles er fæddur árið 1958 á Englandi og lauk prófi frá Royal Northern College of Music í Manchester árið 1980 og vann þá til verðlauna er fólu í sér náms- styrk til framhaldsnáms í með- leik. Hann hefur leikið með mörgum góðum tónlistar- mönnum svo sem Peter Pears og Elisabet Schwarzkopf. Frá árinu 1982 hefur hann verið kennari Tónlistarskóla Fljótsdalshéraðs. Séra Gunnar Bjömsson Frí- kirkjuprestur erfæddur 1944 og á sér langt nám að baki í sellóleik. Hann lauk einleikaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík 1967 og stundaði síðan fram- haldsnám hjá þekktum kennur- um erlendis. Hann hefur haldið tónleika víða um land. - GFr Amór Benónýsson sem Pound og Viðar Eggertsson sem Williams. Skjaldbakan í Nýlistasafni í kvöld frumsýnir Egg- leikhúsið leikritið Skjaldbakan kemst þangað líka, nýtt íslenskt leikrit eftir Áma Ibsen, í Nýlist- asafninu við Vatnsstíg. Höfundur er sjálfur leikstjóri en með hlut- verkin tvö fara þeir Viðar Egg- ertsson og Amór Benónýsson. Leikritið fjallar um samskipti bandarísku skáldanna Ezra Po- und og W.C. Williams. Önnur sýning verður á sunnu- dag og síðan verður sýnt á hverju kvöldi út vikuna. Sýningamar hefjast kl. 21. Haustmáluð Ijóð Á morgun, laugardaginn 10. nóvember kl. 15 opna Vaigarður Gunnarsson og Böðvar Björnsson sýningu í vestursai Kjarvalss- taða. Sýnd verða átján handmál- uð Uóð eftir Böðvar, unnin I sam- vinnu þeirra Valgarðs og Böðv- ars. Auk þess sýnir Valgarður u.þ.b. fjömtíu myndir unnar í ýmis efni, svosem olíu, vatnslit og gouache. Valgarður Gunnarsson stund- aði nám við Myndlista- og hand- íðaskóla íslands 1975-79, og Em- pire State College í New York 1979-81. Böðvar og Valgarður Kjarvalsstaðir Fyrsta einkasýning Guttorms Jónssonar Þú og ég við byrjuðum eins. Ein fruma og til varð ég, önnur fruma og til varð tré. Svo byrjar hugleiðing um tré í sýningarskrá Guttorms Jóns- sonar en hann opnar nú um helg- ina sýningu á skúlptúrverkum að Kjarvalsstöðum en flest verk hans em unnin úr íslensku tré eða 18 af 29 á sýningunni. Hin em unnin í stein og trefja- steinsteypu. Guttormur Jónsson er fæddur og uppalinn í Laugardalnum í Reykjavík, sonur Jóns Bjöms- sonar málarameistara og Gretu Bjömsson sem bæði em þekktir iistamenn m.a. fyrir kirkju- skreytingar. Faðir Gretuvar Axel Erdman, þekktur sænskur im- pressjónisti. Guttormur er hús- gagnasmiður að mennt en stund- aði síðan höggmyndanám í Myndlistarskólanum í Reykjavík á áranum 1978-1981. Hann hefur sýnt nokkmm sinnum á samsýn- ingum en í ársbyrjun 1984 hlaut hann starfslaun í fjóra mánuði frá Menningasjóði Akraness en þar er hann búsettur og starfar við Byggðasafn Akraness. Þetta er fyrsta einkasýning Guttorms og verður hún opin I daglega kl. 14-22 frá 10.-25. nóv- ember. -GFr Guttormur við tvö verk á sýningunni sem basði eru unnin í fyrra. Skúlptúrinn til vinstri heitir Glíman við fjárlagagatið en til hægri Samruni. Nemendaleikhúsið Lindarbæ sýnir Grænfjöðrung föstudaginn 9. nóvember, sunnudaginn 11. nóvember og mánudaginn 12. nóvember kl. 20.00. Græn- fjöðrungur er ævintýraleikur fullur af kímni og fantasíu, veröld þar sem allt getur gerst. Kvenfélag Karlakórs Reykjavíkur heldur hinn árlega basar sinn, kökusölu og flóamarkað að Hallveigarstöðum á morgun laugardaginn 10. nóvember kl. 14. Glæsilegt úrval muna, jólaföndur og skreytingar og aldrei meira úrval af kökum. Dómkirkjukórinn syngur og leikur m.a. Dauðadans eftir H. Distler og fer Gunnar Eyjólfsson með hlutverk dauðans Tónlistardagar Dómkirkjunnar Mikið um að vera um hetgina Tónlistardögum Dómkirkj- unnar, sem hófust sl. miðviku- dag, verður fram haldið nú um helgina. Gestur á Tónlistardögunum er danski organleikarinn Jörgen Ernst Hansen og verða orgeltón- leikar hans laugardaginn 10. nóv. kl. 17.00. Sunnudaginn 11. nóv. verður hátíðarmessa, þar sem sérstak- lega er vandað til alls tónlistar- flutnings. Sr. Hjalti Guðmunds- son predikar. Sama dag kl. 17.00 verða loka- tónleikar Tónlistardaganna. Þar mun Kór Dómkirkjunnar flytja verk eftir norska tónskáldið K. Nystedt „De profundis" - Úr djúpinu ákalla ég þig, - áhrifa- mikið ákall með grátsöngvum, fagnaðarópum, tali og hvísli, „Lofið Guð í helgidómi hans“ eftir Þorkel Sigurbjömsson og „Dauðadans“ eftir H. Distler. Gunnar Eyjólfsson leikari fer með hlutverk dauðans og kórfé- lagar með smærri hlutverk. ís- lenska þýðingu á Dauðadansin- um gerði Hjörtur Kristmunds- son. Milli kórlaga leikur Orthulf Pmnner, organisti við Háteigs- kirkju einleik á orgel Föstudagur 9. nóvember 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.