Þjóðviljinn - 19.02.1985, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 19.02.1985, Blaðsíða 16
Aðalsími: 81333. Kvöldsími: 81348. Helgarsími: 81663. Þrlðjudagur 19. lebrúar 1985 41. tölublað 50. árgangur ÞJÚÐVIUINN Kjararánið Lægri laun en í haust Björn Björnsson hagfrœðingur ASÍ: Kaupmáttur launa mun rýrna um V2-I % á mánuði verði ekkert að gert Nú er svo komið að launamenn búa við lakari kaupmátt en hann var fyrir kjarasamningana sl. haust. Ef hinsvegar er tekið með í reikninginn að laun eiga eftir að hækka um 2.4% tvívegis fram á vorið, þá mun kaupmátt- urinn haldast í jafnvægi næstu mánuðina. Frá og með sumar- byrjun eða svo mun svo kaupmátturinn rýrna um '/2-!% á hverjum mánuði, verði ekkert að gert. Þetta sagði Björn Björns- son hagfræðingur ASI í samtali við Þjóðviljann í gær. Nokkur skriður er nú kominn á undirbúning að gerð nýs kjara- samnings milli félaga innan Al- þýðusambandsins við atvinnu- rekendur. Fulltrúar Alþýðus- ambandsins og VSÍ hafa haldið nokkra fundi að undanförnu til að undirbúa samningaviðræður. Þegar samningar voru gerðir á sl. hausti var gert ráð fyrir því að hægt yrði að framlengja heildar- samninginn með samkomulagi milli Alþýðusambandsins og Vinnuveitendasambandsins ef nýrir samningar tækjust fyrir 25. júní. „Við höfum haldið þrjá undir- búningsfundi með fulltrúum Vinnuveitendasambandsins, þar af tvo í síðustu viku og er ætlunin að fjórði fundurinn verði nú í vik- unn“, sagði Björn. „Eðli málsins samkvæmt er fullt tilefni til að ræða atvinnumál, skattamál, húsnæðismál, vexti og verðtrygg- inguna svo eitthvað sé nefnt“. Verða gerðir heildarsamning- ar? „Það mál er alveg órætt innan verkalýðshreyfingarinnar. og allir möguleikar opnir í því efni, vegna þess að Alþýðusambands- þing tók ákvörðun um að fram- lengja ekki samningana sam- eiginlega. Einstök félög eða sam- bönd geta þess vegna gert sína sérsamninga bæði fyrir og eftir 25. júní.“ hágé. Kjaradómur Aukinn ójöfnuöur Ásmundur Stefánsson: Stefnt til öfugrar áttar í Kjaradómsúr- skurði um BHM. Áhrif á kröfugerð á almennum vinnu- markaði Það er auðvitað alveg ljóst, sagði Ásmundur Stefánsson forseti ASÍ, að af þessari launatöflu í úrskurði Kjara- dóms verður ekki dregin nein endanleg ályktun um niður- stöðu þeirra sérkjarasamn- inga sem framundan eru. Það er hinsvegar einsýnt þegar þessi launatafla er athuguð að það er verið að stefna í aukinn ójöfnuð milli háskólamanna innbyrðis og aukinn ójöfnuð í samfélaginu í heild. Hér er stefnt til öflugrar áttar, sagði Ásmundur. „Mamma er meistari!" Hin 10 mánaða gamla Hólmfríður Samúelsdóttir klæddist Breiðabliksbúningnum í Laugadalshöllinni um helg- ina. Það reyndist happadrjúgt - móðir hennar, Ásta B. Gunnlaugsdóttir, varð Islandsmeistari í innanhússknattspyrnu með Breiðabliki eftir sigur á ÍA eftir vítaspyrnukeppni í úrslitaleiknum. Erla Rafnsdóttir er vínstra megin, Sigríður Jóhannsdóttir fyrirliði Breiðabliks hægra megin. Mynd: - eik. Húsnœðismálin: Sjá bls. 9-12 Alexander vísar öllu á Hann sagði að það sem nú gerðist í málefnum háskóla- manna hlyti að hafa áhrif á kröfu- gerð og samninga á almennum vinnumarkaði á árinu. „Það er mín skoðun að þá hljóti menn að snúa til hinnar áttarinnar og lyfta þeim sem lægstir eru“, sagði for- seti ASÍ að lokum. — m Húsnæöisstofnun vantar nú 185 miljónir til að standa í skilum við þá sem áttu fullan rétt á lánum á síðasta ári. Alexander Stefáns- son félagsmálaráðherra sagði á þingi í gær að hann gæti ekki svarað því hvenær þetta fé yrði af hendi reitt. Það lægi nú í fjár- málaráðuneytinu til ákvörðunar. Svavar Gestsson rifjaði upp kosningaloforð ríkisstjórnarinn- ar í húsnæðismálum og sagði fé- Drengirnir sem fórust í brunanum í Hafnarfirði aðfararnótt sl. laugardags, Fannar Karl og Brynjar Freyr. Bræður fómst í eldsvoða Tveir ungir bræður létu lífið í bruna í Hafnarfirði aðfaranótt laugardags. Drengirnir hétu Fannar Karl Guðmundsson, fæddur 1976 og Brynjar Freyr Guðmundsson, fæddur 1980. Föðurbróðir þeirra sem þeir dvöldu hjá þessa nótt var hætt kominn við að bjarga þeirn en er nú talinn úr lífshættu. Það var klukkan rúmlega fimm aðfaranótt laugardags sem slökkviliðið í Hafnarfirði kom að íbúðarhúsinu Arnarhrauni 42 þar í bæ. Logaði þá eldur á neðri hæð hússins. Húsmóðurinni hafði tek- ist að forða sér ásamt ungabarni en við leit fannst heimilisfaðirinn og bræðurnir tveir meðvitundar- lausir á efri hæð hússins. Þegar á sjúkrahús var komið voru dreng- irnir úrskurðaðir látnir en hús- ráðandinn komst til meðvitundar um hádegi á sunnudag. Að sögn Rannsóknarlögreglu ríkisins eru eldsupptök ókunn. Albert lagsmálaráðherra hafa gott lag á því að tryggja útgjöldin og lofa gulli og grænum skógum. Hins vegar gleymdi hann því, að það væri líka verkefni ráðherra að tryggja tekjurnar: Ráðherrar ættu ekki að gefa stærri loforð en þeir gætu staðið við. Þá sagði Svavar útilokað að fél- agsmálaráðherra kæmist upp með það aftur og aftur að vísa á fjármálaráðherra í umræðum um húsnæðismálin. Það var Jón Baldvin Hanni- balsson sem hóf utandagskrár- umræður í neðri deild í gær vegna neyðarkalls Byggung til alþingis, en félagið telur sig eiga inni 44 miljónir hjá Húsnæðisstofnun. Umræðan tók allan tíma deildar- innar í gær og verður fram haldið á miðvikudag. -ÁI Sjá bls. 3.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.