Þjóðviljinn - 01.03.1985, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 01.03.1985, Blaðsíða 1
UM HELGINA FURÐUR GLÆTAN LANDBÚNAÐUR Framhaldsskólakennarar VIÐ ERUM HÆTTIR! Yfirgnœfandi meirihluti samþykkir að hætta kennslu í dag. 229 með 49 á móti. Mikill einhugur á fundinum. Hvað gerir Ragnhildur? Það var ekki hægt að ráða af máli Ragnhildar Helgadótt- ur menntamálaráðherra að hún hygðist beita sér sérstak- lega til að leysa kennaradeil- una, þegar tíðindamaður Þjóðviljans ræddi stuttlega við hana í þinghúsinu í gær. „Ég hef unnið óskaplega mikið í þessu máli“ sagði Ragnhildur, en ég er nú ekki í samninganefndinni. Þetta heyrir ekki undir mig. - Er samt ekki hægt að ætlast til að þú sem æðsti yfirmaður menntamála reynir að liðka fyrir samningum til að leysa deiluna? „Ég er nú alltaf að reyna að liðka fyrir og mun halda því áfrarn". - Má þá ekki búast við neinu sérstöku frumkvæði af þinni hálfu til að leysa deiluna áður en kennarar ganga út? „Ég vona bara það takist að íeysa þessa deilu sem fyrst og ég vinn að því“ sagði Ragn- hildur og vatt sér brosandi inn í þingsal. Meðal kennara ríkir mikil reiði yfir aðgerðarleysi Ragn- hildar sem hefur ekkert gert til að leysa kennaradeiluna. -ÖS Fjölmennur fundur framhaldsskólakennara samþykkti í gærkvöldi áskorun til allra þeirra kennara sem sagt hafa upp störfum frá 1. mars að standa við uppsögnina og mæta ekki til kennslu í dag. Var tillagan sam- þykkt með 229 at- kvæðum. Mótatkvæði voru 49 og auðir seðlar voru 13. „Ég vænti þess að þótt allir hafi ekki greitt tillögunni atkvæði, þá muni allir þeir sem sagt hafa upp störfum fara að vilja fundarins“, sagði Kristján Thorlaci- us formaður Hins ís- lenska kennarafélags í lok fundarins. Mikill ein- hugur ríkti á fundinum og er greinilegt að mikil samstaða hefur þegar myndast meðal kennara. í upphafi fundarins var dreift „drögum að fundarsamþykkt“ frá fulltrúaráði HÍK, þar sem ítrekað er að upp- sagnir kennara taki gildi 1. mars, en viðkomandi kennarar eru jafnframt hvattir til þess að ráða sig ekki í aðra vinnu meðan ekki er gengið í þau kennslustörf sem þeir höfðu með höndum. Heldur skuli menn bíða eftir samninganiður- stöðu HÍK. Viðbótartil- laga þess efnis að kenn- arar stæðu við uppsögn- ina en „gæfu ríkinu vinnu sína“ til 6. mars kom ekki til atlívæða þar sem ofangreind áskorun um útgöngu var samþykkt með yfirgnæfandi meiri- hluta. -ólg. Sjá bls. 3 Laxakynbœtur Fima góð fjárfesting Erlendar rannsóknir sýna, að kynbætur á eldisfiski eru með arðbærustu fjárfestingum, sem völ er á, segir dr. Stefán Aðal- steinsson í viðtali hér í blaðinu. Talið er að reikna megi með 20% raunvöxtum af fjármagni, sem lagt er í kynbætur á eldisfiski. Hér þarf að byggja upp aðstöðu til þess að stunda kynbætur á hvorutveggja, eldisfiski og haf- beitarlaxi og hefjast handa um kynbótastarfið sem allra fyrst. -mhg Sjá bls. 9 Kennaradeilan Ragnhildur aðgerðarlaus

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.