Þjóðviljinn - 02.03.1985, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 02.03.1985, Blaðsíða 4
LEIÐARI Arás Jóns Baldvins á Anker í Alþýöublaöinu í gær sýnir Jón Baldvin Hannibalsson, formaöur Alþýðuflokksins, nýja og óvænta hliö á þeirri jafnaöarmennsku sem hann hefur keppst viö aö boöa um landið meö skallann sveittan. Þar leggst hann nefnilega í víking út fyrir landsteinana og bregður brandi sínum á óvanalega harkalegan hátt aö „skoöanabróöur" sínum, Anker Jörgensen, for- manni danska jafnaðarmannaflokksins. Tilefn- ið er, aö Anker Jörgensen hefur gerst sekur um þá ósvinnu að vilja aöstoöa íslendinga viö aö stofna samtök um kjarnorkuvopnalaust ísland! Tildrög málsins eru aö á sunnudaginn veröa1 slík samtök stofnuð og félagi Anker mun halda stutt erindi á stofnfundinum. En einsog aörir réttsýnir kratar er hann einkar hliðhollur því aö öll Noröurlöndin veröi gerð að kjarnorkulausu svæöi. Þessi drengilega viöleitni Ankers Jörgensens til að bægja vá kjarnorkunnar frá dyrum nor- rænna þjóöa hefur greinilega verkaö á formann Alþýðufiokksins einsog rauð dula á baldinn bola. í Alþýöublaöinu kemur nefnilega fram að Jón Baldvin hefur þegar haft samband viö dan- ska jafnaðarmenn og „gagnrýnt áætluð afskipti Ankers Jörgensens af málinu“. Fyrr má nú vera umburðarlyndið! Hefur Ank- er Jörgensen ekki leyfi til aö hafa þær skoðanir sem hann vill? Má hann ekki mæta á fundi á Hótel Borg án þess að formaður Alþýðu - flokksinsfái fyrir hjartaö og leggistíkvörtunar- símtöl til útlanda? Máliö er auðvitað það, að hér er um stórpólit- ísk tíöindi að ræða. Hvarvetna á Noröurlöndum hafa jafnaðarmenn veriö framarlega í barátt- unni fyrir því að Norðurlöndin verði lýst kjarnorkuvopnalaust svæöi. Meira aö segja hafa samtök hægri manna á Norðurlöndum samþykkt aö koma til ráöstefnu sem verður haldin að hausti um málið. Jón Baldvin Hannibalsson, formaöur Alþýöu- flokksins uppi á íslandi, er hins vegar á allt ööru máli. Þar meö er hann greinilega líka á allt ööru máli en mjög stór hluti íslendinga, sem vill kjarn- orkuvopnalaus Norðurlönd. Af klögunum formannsins til Danmerkur má líka ráða aö hann er álíka viökvæmur í þessu máli og Geir Hallgrímsson utanríkisráöherra, sem sagði á fundi um ratsjárstöðvar á Þórshöfn, aö yrði tillaga Steingríms Sigfússonar gegn rat- sjárstöðvunum samþykkt, þá myndi hann segja af sér. Þetta sýnir auðvitað sorglega vel, á hvaöa braut Jón Baldvin er að draga Alþýðuflokkinn. Aðgerðaiieysi Ragnhildar í fyrradag samþykktu framhaldsskólakennar- ar á mjög fjölmennum fundi aö hætta störfum sökum hraklegra launa. Samstaöa meöal þeirra er alger, 229 greiddu atkvæöi meö út- göngunni, en þeir 49 sem ekki veittu henni fylgi vildu einungis fresta vinnustöðvuninni fram yfir helgi, ekki hætta viö hana. Abyrgöarleysið sem menntamálaráðherra hefur sýnt í málinu frá upphafi er ótrúlegt. Eina frumkvæði ráðherrans í málinu er að hann mun hafa boðið samninganefnd kennara upp á fisk- máltíð í Ráðherrabústaðnum og síöan reynt aö telja þá á að falla frá vinnustöðvuninni! Það var allt og sumt. Ráðherra hefur ekkert annað frum- ó-Áur kvæði haft að því að leysa deiluna farsællega. Þetta kemur raunar vel fram í stuttu samtali hennar við Þjóðviljann í gær. „Ég er ekki í samn- inganefndinni - þetta heyrir ekki undir mig“. Hvers konar afstaða er þetta eiginlega? Er ekki réttmæt krafa að æðsti yfirmaður menntamála í landinu beiti sér til að leysa þessa erfiðu deilu, sem ekki snertir einungis kennara og ríkið, held- ur líka þúsundir unglinga og fjölskyldur þeirra? Aðgerðarleysi Ragnhildar er sama og ábyrgðarleysi. Hún virðist einfaldlega ekki fær um að axla þá ábyrgð sem fylgir æðstu stjórn menntamála á íslandi. -ÖS Velkominn til landsins litli dúllí gúllí hringanóri! Ertu kominn til þess að heilsa upp á fiskinn minn? DMVIUINN Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis og verkalýðsfireyfingar Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans. Ritstjórar: Árni Bergmann, össur Skarphóðinsson. Ritstjórnarfulltrúi: Oskar Guðmundsson. Fréttastjóri: Valþór Hlöðversson. Blaðamenn: Aðalbjörg Óskarsdóttir, Álfheiður Ingadóttir, Guðjón Friðriksson, Helgi Guðmundsson, Lúðvík Geirsson, Magnús H. Gísla- son, Mörður Árnason, Ólafur Gíslason, Sigurdór Sigurdórsson, Víðir Sigurðsson (íþróttir). Ljóamyndlr: Einar Ólason, Einar Karlsson. Útlit og hönnun: Filip Franksson, Þröstur Haraldsson. Handrita- og prófaricalestur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar. Framkvæmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir. Skrifstofustjóri: Jóhannes Harðarson. Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Magnús Loftsson. Útbreiðslustjóri: Sigríður Pótursdóttir. Auglýsinga8tjóri: Ragnheiður Óladóttir. Auglýsingar: Anna Guðjónsdóttir, Ásdís Kristinsdóttir, Hreiðar Sigtryggsson. Afgreiðslustjóri: Baldur Jónasson. Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pótursdóttir. Sfmavarsla: Margrót Guðmundsdóttir, Sigríður Kristjánsdóttir. HÚ8mæður: Bergljót Guðjónsdóttir, Ólöf Húnfjörð. innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Ólafur Björnsson. Bílstjóri: Ólöf Sigurðardóttir. Útkeyrsla, afgreiðsia, auglýsingar, ritstjórn: Síðumúla 6, Roykjavík, sími 81333. Umbrot og setnlng: Prentsmlðja ÞJóðviljans hf. Prentun: Blaðaprent hf. Verð í lausasölu: 30 kr. Sunnudagsverð: 35 kr. Áskriftarverð á mánuði: 330 kr. Afgreiðsla blaðsins er opin á laugardögum frá kl. 9 til 12, beinn sími: 81663. 4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 2. mars 1985

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.