Þjóðviljinn - 21.03.1985, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 21.03.1985, Blaðsíða 1
ATVINNUUF VIÐHORF HEIMURINN MENNING Útvarpslögin Nemendur Hertóku ráðuneytið Lögreglan beitti hörku í gcer Lögreglan kæfði Maistjörn- semsettustífjármálaráðuneytiðí ur frá lögreglumönnum á sjötta varðstjóra og nemenda um að una, sem nemendur sungu í fjár- gær til að fylgja eftir kröfum um tímanum í gær, sem hófu að flytja hætta ofbeldinu. Sjá frásögn málaráðuneytinu í gær með tafarlausa samninga ríkisvaldsins nemendur út með valdi. Lög- nemenda á bls. 3. harkalegum bætti. Nemendur viðkennara.fenguóblíðarkveðj- regiumenn urðu ekki við beiðni Einn ámóti! Dregst afgreiðsla málsins fram til hausts? Stefán Valgeirsson, þingmaður Framsóknarflokksins, greiddi einn atkvæði gegn því að útvarps- lagafrumvarpinu yrði vísað til þriðju umræðu í neðri deild í gær. Allar breytingatillögur frá minnihlutaflokkunum sem komu til atkvæða í gær voru felldar, en fjölmargar tillögur bíða þriðju umræðu, m.a. tillaga Friðriks Sófussonar um auglýsingarnar. Vart er búist við því að þriðja umræða geti farið fram fyrr en eftir páskahlé. Tveir nefndar- menn í menntamálanefnd, þeir Jón Baldvin Hannbalsson og Ólafur f>. Þórðarson eru erlendis og verða utan þings í hálfan mán- uð. Halldór Blöndal, formaður nefndarinnar sagði í samtali við Þjóðviljann í gær að öll efnisat- riði nema fjármálahliðin, væri út- rædd í nefndinni, þannig að hún ætti í sjálfu sér ekki að þurfa langa tíma milli umræðna. Hins vegar vildi hann engu spá um hvenær málið kæmi til þriðju um- ræðu. Að henni lokinni á efri deild eftir að fjalla um það og velta menn því nú fyrir sér hvort frumvarpið bíði næsta hausts. -ÁI Sjá bls. 2 LyfjaMandað fóour Landbúnaðarráðuneytið gaf undanþágu fyrir lyfjablönduðu kjúklingafóðri sem er bannað með lögum hér á landi. Fóðureftirlitsmaður andvígur undanþágunni. Þingmenn Framsóknarflokksins í Norðurlandi eystra þrýstu á ráðuneytið. Landbúnaðarráðuneytið veitti fyrir skömmu undanþágu fyrir því að kjúklingafóður, blandað lyflnu nítróvín, væri landað hér á landi og notað á kjúklingabúinu að Sveinbjarn- argerði í Svalbarðsstrandar- hreppi. Hér er um lögbrot að ræða, því lögum samkvæmt er bannað að blanda lyfjum í kjúkl- ingafóður. Hér var um að ræða 185 lestir af lyfjablönduðu fóðri. „Því miður er þetta rétt og ég gerði það sem í mínu valdi stóð til að koma í veg fyrir þetta“, sagði Gunnar Sigurðsson fóðureftir- litsmaður, en hann gefur innf- lutningsleyfí fyrir kjúklingafóðri. Þjóðviljinn hefur fyrir því ör- uggar heimildir að eigandi kjúkl- ingabúsins fyrir norðan hafi beitt fyrir sig þingmönnum Framsókn- arflokksins í málinu og landbún- aðarráðuneytið látið undan. Það fylgdi undanþágunni að fóðrið yrði aðeins notað á þessu eina búi undir handleiðslu dýralæknis. En Þjóðviljinn hefur einnig heimild- ir fyrir því að hluti fóðursins hafi verið fluttur með bifreiðum suður. Forsaga þessa máls er sú að Gunnar Sigurðsson fóðureftir- litsmaður var á ferð í Danmörku og kom í fóðurblönduna hjá fóð- urframleiðandanum. Hann fór ekki á skrifstofuna heldur beint til verkamannanna og fékk að sjá uppskriftina að fóðurblöndunni og kom þetta þá í ljós. Þetta er í þriðja sinn sem Gunnar hefur komist að því að lyfjum væri blandað í fóður sem flutt er til íslands. f hin tvö skiptin var sagt að um mistök væri að ræða, það gerði innflytjandi. Það sama sagði hann að þessu sinni. f hin tvö skiptin var fóðrið ekki sent til baka. Þess má geta að innflytjandi fóðursins lagði á það ofurkapp að málið færi ekki í fjölmiðla, vildi reyna að þagga það niður. -S.dór Jón Páll Keppnisbann yfirvofandi Kraftlyftingamenn ekki lengur innan ÍSI Jón Páll Sigmarsson, lyftinga- og vaxtarræktarmaður og sterk- asti maður heims, á yfír höfði sér tveggja ára keppnisbann í grein- um sem heyra undir íþróttasam- band Íslands. Jón Páll var einn af þrettán íþróttamönnum sem boðaðir voru í lyfjapróf fyrir rúmum mán- uði en þá var hann staddur er- lendis. Þegar hann var kominn heim neitaði formaður nýstofn- aðs sambands kraftlyftinga- manna, Ólafur Sigurgeirsson, að boða hann í próf á þeim forsend- um að kraftlyftingamenn heyrðu ekki lengur undir ÍSÍ. ____________________________- VS Sjá bls. 15

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.