Þjóðviljinn - 22.03.1985, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 22.03.1985, Blaðsíða 1
ÞJÓÐMÁL GLÆTAN UM HELGINA Ragnhildur Helgadóttir vék Heimi Pálssyni cand mag úr úthlutunarnefnd bókmennta- verðlauna Norðurlandaráðs. Sveinn Einarsson fyrrum Þjóðleikhússtjóri skipaður ístaðinn. Jóhann Hjálmarsson bókmenntagagnrýnandi Morgunblaðsins hélt sœti sínu Sveinn Einarsson fyrrum Þjóð- leikhússtjóri hefur verið skipaður í stað Heimis. Hér er greinilega um pólitískar hefndarráðstafanir að ræða, því Heimir Pálsson er mjög virkur í kjaradeilu kennara sem nú stend- ur yfir og hélt hann fræga ræðu sl. sunnudag á fundi kennara sem margir telja að hafi endanlega ráðið úrslitum um ákvörðun menntamálaráðherra. „Það má vel vera að ræðan sé ástæðan, en sjálfsagt er margt fleira hjá mér sem menntamála- ráðherra fellur illa,“ sagði Heimir í samtali við Þjóðviljann í gær. Heimir sagði að sér hefði enn ekki verið tilkynnt þetta form- lega, en Árni Gunnarsson deildarstjóri í menntamálaráðu- neytinu hefði sagt sér að aðeins annar þeirra sem fyrir var hefði verið endurskipaður. Sami Árni sagði síðan Jóhanni að hann hefði verið skipaður. Kristinn Hallsson í menntamálaráðuneytinu stað- festi svo í gær síðdegis, að Sveinn Einarsson hefði verið skipaður í stað Heimis. -S.dór Sjá bls. 3 Heimi Pálssyni cand mag hefur verið vikið úr úthlutunarnefnd bók- menntaverðlauna Norðurlandaráðs í hefndarskyni fyrir þann mótþróa sem hann með starfsbræðrum sínum hef- ur sýnt yfirvöldum. Heimir til vinstri á myndinni sagði að „margt hjá mér fellur menntamálaráðherra illa“. Til hægri er Gunnlaugur Ástgeirsson varaformaður HÍK. Ljósm. eik. Ragnhildur Helgadóttir menntamálaráðherra hefur ákveðið að Heimir Pálsson cand mag, sem nú á í kjaradeilu eins og aðrir kennarar HÍK, verði ekki áfram fulltrúi íslands í úthlutun- arnefnd bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs, en hann og Jó- hann Hjálmarsson bók- menntagagnrýnandi Morgun- blaðsins hafa verið fuUtrúar ís- lands í nefndinni undanfarið. Menntamálaráðherra Pólitísk hefndarráðstöfun Afundinum í landbúnaðar- ráðuneytinu, þegar undan- þága til innflutnings á kjúklinga- fóðri með efninu nítróvín var veitt, óskaði Jónas í Sveinbjarn- argerði eftir því að fjölmiðlum yrði ekki skýrt frá málinu. Menn eru minnugir þess þegar sagt var frá salmonelluveiki í kjúklingum fyrir norðan, þá datt sala á kjúk- lingum í landinu niður. Þetta sagði Pétur Björnsson hjá KFK fóðursölunni í samtali við Þjóðviljann í gær, en hann annast innflutning á kjúklinga- fóðrinu fyrir fyrirtækið. Pétur sagði að þeir fjórir sem á fundin- um voru hefðu verið samála um að óæskilegt væri að fjölmiðlar fréttu af undanþágunni. Pétur taldi efnið, eins og hann kallar nítróvín, ekki lyf, algerlega skaðlaust og sé notað allsstaðar í kjúklingafóðri í Evrópu. -S.dór Sjá bls. 2 bil. Segir Hjálmar að hann eigi von á þvi að byrjunarkvóti Is- lendinga verði 500 þúsund lestir, en til samanburðar var byrjunar- kvótinn aðeins um 200 þúsund lestir á vertíðinni í haust er leið, sem síðan var stækkaður þrisvar sinnum. Hjálmar segir ennfremur að við seiðarannsóknir í fyrrasumar hafi komið í ljós að þau voru mjög smá, sem gæti bent til þess að nýliðun í fyrra hafi ekki tekist sem skyldi. Þó bendir hann á að útkoma seiðarannsókna sé ekki alltaf marktæk um stærð 3ja ára hrygningarloðnu. Aftur á móti verði hægt að segja með meiri vissu um ástandið að loknum rannsóknum næsta sumar. -S.dór Sjá Sjávarútvegsblað Svalbarðsströnd Fulltmi bitinn Fjárnámsferðin end- aði illa. Hundur gerð- arþola beit fulltrúann að bar til tíðinda á Sval- barðsströnd á dögunum er fulltrúi sýslumanns Þingeyinga var þar á ferð til að gera fjárnám að hundur eins gerðarþola gerði sér lítið fyrir og beit fulltrúa sýslumanns. Varð að fara með fulltrúann undir læknishendur en sem betur fer var bitið ekki alvar- legt. Víkurblaðið á Húsavík skýrir frá þessum atburði og getur þess í leiðinni að þessi atburður sé enn ein sönnunin fyrir því að hundur- inn sé besti vinur mannsins, jafnvel betri en eiginkonan. „Því hver hefur heyrt um konu sem reynt hefur að varna fjárnámi hjá eiginmanni með því einfaldlega að bíta útsendara lögregluyfir- valda,“ segir Víkurblaðið. -*g- Aflahorfur Mikil loðnanæsta haust Hjálmar Vilhjálmsson fiskifrœðingur: Byrjunarkvótinn lík- lega 500 þúsund lestir Íaukablaði um sjávarútvegs- dag, segir Hjálmar Vilhjálmsson haust sé búist við sterkasta loðn- mál, sem fylgir Þjóðviljanum í flskifræðingur frá því að næsta ustofni hér við land um langt ára- Kjúklingafóðrið Átti að fara leynt Pétur Björnsson hjá KFK fóðursölunni: Engum til góðs að fjölmiðlar skýri frá þessari tilraun

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.