Þjóðviljinn - 05.07.1985, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 05.07.1985, Blaðsíða 16
Aðalsími: 81333. Kvöldsími: 81348. Helgarsími: 81663. Föstudagur 5. júlí 1985 150. tölublað 50. örgangur ríkisstjórninni og fleiri aðilum sem þessi mál snerta og er sagður vera trúnaðarmál í Morgunblað- mu. -pv Keila Fom- Egyptar spiluðu keilu Þjóðviljinn kíkti inn í Keiluhöllina og virtifyrir sér kúlukastarana. Þessi íþrótt er sennilega vinsael- ust vestur í Ameríkunni, en þetta er ekkert sér amerískt fyrir- bæri eða bóla. Keiiuspii hefur verið stundað frá örófi alda og segja gamlar sagnir frá Forn-Eg- yptum í keilu,“ sagði Friðgeir Jónsson yfirmaður tækjadeildar í Keiluhöllinni þegar Þjóðviljinn kíkti þar við. „Það er mikil aðsókn í keilu- spilið, og er hún mest á kvöldin og um helgar. Erlendis eru keppnir á milli fyrirtækja í keilu- spili og væri gaman að koma slíku á hér. Keiluspilið er mjög einfalt og hefur reynslan sýnt að fólk nær tökum á kúlunni eftir einn til tvo leiki. Starfsmennirnir hér eru til að leiðbeina gestum. Undanfarið höfum við verið í viðræðum við Æskulýðsráð um að þeir taki þátt í námskeiðahaldi með okkur, fyrir unglinga. Það hlýtur að vera grundvöllur fyrir inniíþróttir hér á landi, því það viðrar ekki nema nokkra mánuði á ári fyrir útiíþróttirnar. Við stefnum að því að opna veitingahús og stækka keilusalinn um 6 brautir í lok ársins,“ sagði Friðgeir að lokum. Ég hitti Ragnar Sigurbjörns- son, 14 ára Reykvíking, og sagði hann að það væri æðislega gaman að kasta kúlunni. „Þetta er alls ekkert erfitt, og maður kemst upp á lag með kúluna eftir nokk- ur köst, þú sérð að þetta er bara annað skiptið sem ég kem hing- að. Mér finst keilan alls ekki dýr, leikurinn kostar 100 krónur og svo þarf maður að leigja skó á 25 krónur. Ég er svona 1 Vi tíma með hvern Ieik,“ sagði Ragnar Sigur- björnsson og hljóp eftir keilu- brautinni einbeittur á svip með kúluí hendi. -sp skaðann en ekki hinn nýi eigandi. Landsvirkjun. Þetta ákvæði gild- ir um Kröflu og Bjarnarflag. í 7. grein samningsins segir m.a.: „Verði jarðhræringar, elds- umbrot eða aðrar náttúruham- farir á Kröflusvæðinu er valda verulegu tjóni á Kröfluvirkjun eðaeinstökum hlutum hennar, skuldbindur ríkið sig til að greiða Landsvirkjun allan kostnað sem leiðir af tjóninu og þeirri röskun á rekstri virkjunarinnar sem því er samfara". Ragnar kastar kúlunni einbeittur á svip. Mynd E.ÓI. Listahátíð kvenna 100 konur sendu inn verk Guðrún Erla Geirsdóttir: „Kraftmikil verk ogfjölbreyttu. Verk 30 kvenna valin úr á sýningu á Kjarvalsstöðum í haust. Undirtektirnar voru yndislegar og það er stórkastlegt að sjá hvað verk þessara kvenna eru kraftmikil og fjölbreytt“, sagði Guðrún Erla Geirsdóttir mynd- listarmaður í gær, en þá sat 5 manna dómnefnd á Kjarvalsstöð- um og lauk við að velja verk á sýningu þar í haust. Sýningin sem hefst 21. sept- ember er þáttur í Listahátíð kvenna og liður í aðgerðum ’85 nefndarinnar vegna loka kvenna- áratugarins. Auglýst var eftir myndverkum frá konum fyrr í vor og sendu um 100 konur inn verk sín, málverk, grafík, skúlptúr, textíl, vídeó og raunar allt sem nöfnum tjáir að nefna. í dóm- nefndinni sitja 2 listfræðingar og 3 myndlistarkonur og sagði Erla að valið væri mjög vandasamt en tæplega 30 konur hefðu þegar verið valdar úr. Þær sýndu allar mjög persónuleg verk og ættu það þar að auki sameiginlegt að vera fremur ungar. „Þær hafa komið út úr skólanum 1975 og síðar," sagði Erla, „en þá var ein- mitt í upphafi Kvennaáratugar haldin sýning á myndverkum kvenna í Norræna húsinu. Það er greinilegt að mikil gróska hefur verið í myndsköpun íslenskra kvenna þessi 10 ár,“ sagði hún. Þess má geta að fleiri sýningar á myndlist kvenna eru í bígerð með haustinu, m.a. nýlist, al- þýðulist og sýning á verkum frumkvöðlanna í íslenskri mynd- list. -ÁI DJOÐVIUINN Kröflusalan Rfldð borgi skaðann I leyniplagginu umKröflusöluna sem liggurfyrir ríkisstjórninni eru ákvœði um að ríkið greiði Landsvirkjun hugsanlegan kostnað aftjóni vegna náttúruhamfara. Samninganefndin sem hefur fjallað um kaup Landsvirkj- unar á Kröfluvirkjun hefur lagt til að ríkissjóður yfirtaki 2,2 milj- arða af 3,4 miljarða skuld Kröflu. Landsvirkjun tekur síðan að sér afganginn, um 1,2 miljarð króna. En það eru fleiri hliðar á þess- um kaupum. í skýrslu samning- anefndarinnar er ákvæði sem kveður á um að ef tjón verði af völdum náttúruhamfara eða jarðumbrota þá beri ríkið Útvarp Síríus Dulbúnar auglýsingar? Styrktaraðilum boðið að kynna starfsemi sína í Hundadagastöðinni áAkureyri Jú það er rétt, að við höfum boðið fyrirtækjum og vcrslun- um, sem styðja Útvarp Síríus, að senda mann í viðtal í útvarpinu og því er ekki að ncita, að nafn við- komandi fyrirtækis eða verslunar myndi koma fram í slíku viðtali og þetta yrði þá nokkurs konar kynning á fyrirtækinu, sagði Ólafur H. Torfason útvarpsstjóri Útvarps Síríus á Akureyri, er blaðið haiði samband við hann, en útvarp þetta er rckið í tengsl- um við Hundadagahátíð þeirra Akureyringadagana 5.-14. júlí. Þjóðviljinn hefur fengið fregn- ir af því, að hringt hafi verið á auglýsingastofur í Reykjavík og þar hafi verið falboðin „óbein" auglýsing á verðinu 5-15 þúsund krónur í Útvarpi Síríus, einmitt í því formi sem Olafur lýsir hér að ofan. Auk þessara „kynninga" mun Útvarp Síríus verða með ýmis- konar dagskrá sem tengist dag- skrá hátíðarinnar, það mun flytja svæðisfréttir og leyfa mönnum að rífast urn bæjarmál. Margir þaulreyndir starfsmenn RÚVAK verða dagskrárgerðar- menn hjá Síríusi. -gg Skaftamálið Óvíst um viðbrögð lögreglu Lögreglustjóri: Get ekkert sagt fyrr en ég hef kynnt mér dóm Hœstaréttar Við erum varla búnir að fá dóm Hæstaréttar í hcndur. Ég get því ekkert um hann sagt fyrr en ég hef kynnt mér forsendur dóms- ins og ráðfært mig við dómsmálaráðuneytið, sagði Sig- urjón Sigurðsson lögreglustjóri þegar Þjóðviljinn spurði hann hvort dómur Hæstaréttar í Skaftamálinu myndi hafa einhver áhrif innan lögreglunnar. Eins og fram hefur komið í fréttum sýknaði Hæstiréttur tvo af lögregluþjónum sem kærðir voru vegna handtöku Skafta Jónssonar blaðamanns í Þjóð- leikhúskjallaranum á sínum tíma. Sá þriðji var dæmdur til að greiða sekt til ríkissjóðs og skaða- og miskabætur til Skafta. Engum þeirra þremenninga var vikið úr starfi meðan rannsókn málsins stóð yfir eða það var til meðferð- ar fyrir dómstólum. „Við rædd- um við ráðuneytið um það hvern- ig bregðast bæri við en það var ekki talin ástæða til að víkja þeim úr starfi. Þeir eru allir þrír í starfi enn,“ sagði Sigurjón. -ÞH

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.