Þjóðviljinn - 19.10.1985, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 19.10.1985, Blaðsíða 9
MENNING Valkyrjur Þjódleikhúslð flytur VALKYRJUR eftlr Huldu Ólafsdóttur. Það er ekki alveg vitlaus hug- mynd að prófa nýja texta með leiklestri eins og gert var við þennan á kjallarasviði Þjóð- leikhússins, en samt hlýtur þessi aðferð í rauninni alltaf að fela í sér þá þöglu umsögn leikhússins að textinn sé í rauninni ekki þess virði að setja hann á svið með fullkomnum hætti og er þess vegnavafasöm. í þessu tilviki reyndist mat leikhússins rétt, þessi texti er afar frumstæður og langt frá því að vera sýningarhæfur. Hann ber með sér mjög greinilega byrj- endagalla, en einnig marga kosti. Höfundi er mikið niðri fyrir að koma skoðunum á framfæri, svo SVERRIR HÓLMARSSON Þorvaldur Guðmundsson við Lífshlaupið, eitt verka á sýningu Kjarvalsverka í eigu hans í Háholti. Aldarminning Kjarval, Kjarval, Kjarval Um 550 Kjarvalsmyndir sýndar á fjórum stöðum á höfuðborgarsvœðinu Tvær nýjar Kjarvalssýningar staða og einstaklinga, opin frá hefjast nú um helgina til viðbótar tvö til tíu. þeim tveimur sem áður voru mikið að hann skýtur á málfundi á sviðinu um hríð og rekur gang kvennabaráttunnar síðastliðin 15 ár. Þetta tekur langan tíma og er ógnarlega leiðinlegt. í leikhúsi á ekki að kenna heldur dramatís- era. En Hulda Ólafsdóttir hefur gott eyra fyrir samtölum og skrif- ar víða eðlilega og hnyttna re- plikku. Ög hún hefur ýmsar góð- ar hugmyndir, þannig að hún gæti eflaust skrifað miklu betra verk. En til þess hefði hún þurft tilsögn og gagnrýni á því stigi sem ekki á að birtast í blöðum heldur innan- húss í leikhúsinu. Með þessu hef- ur leikhúsið í reynd brugðist höfundinum. En leikhúsinu er vorkunn að því leyti að það hefur ekki á að skipa sérhæfðum manni til verksins. Þess skal að lokum getið að leikararnir gerðu allir ágætlega. Sverrir Hólmarsson Bók kemur út: Þessi mynd er af bók sem kemur út og telur útgefandinn að hér hafi í fyrsta skipti tekist að festa á filmu sjálft útgáfuaugnablik íslenskrar bókar. Höfundur bókarinnar er einnig á myndinni. Útkoma Þórarinn margsaga! Miðvikudaginn sextánda októ- ber síðastliðinn gaf bókaútgáfan Gullbringa út fyrstu bók sína, Margsaga, smásagnasafn eftir Þórarin Eldjárn. 1 fréttatilkynningu frá for- laginu segir meðal annars að sögurnar í bókinni séu fjölbreyti- legar að efni og stfl, gerist flestar í nútímanum og allar innan hálfs mannsaldurs frá deginum í dag (þ.e. 16. október) í báðar áttir. I útjaðri sumra sagr.anna segir bókaútgáfan að greina megi drög að óskráðri harmsögu Kjögx- ættarinnar, en að öðru leyti teng- ist sögumar ekki innbyrðis ef undan er skilið að Ég er atkvæða- mikill í mörgum þeirra, að vísu sjaldnast samur við sig. Margsaga er sjöunda bók Þór- arins og annað smásagnasafn hans. Hið fyrra hét Ofsögum sagt. Með hinum nýju smásögum sínum hefur Þórarinn til vegs og virðingar ýmsar persónur sem hingaðtil hefur verið ofhljótt um í íslenskum bókmenntaheimi. Þar má nefna skáldið Braga Kjögx, prestinn Hörð Jósefsdalín, Rósu Þormóðsdóttur kvenfræðing, gagnrýnandann Egilluga, Þröst Haðarson prófarkalesara, að ó- gleymdum rithöfundinum Skúla W. Skíðdal, höfuðpersónu sög- unnar Maðurinn er það sem hann væri. Bók Þórarins er einkar eigu- legur gripur. Þar má finna ein- hverjar mögnuðustu skírskotanir sem sést hafa í íslenskum bók- menntum, og með hinum nýju sögum sínum hefur hann loksins bilað kynslóðirnar. Segja má að bókin Margsaga marki í raun og veru endurreisn efnishyggjunnar í íslenskum skáldskap. -m J hafnar og eru nú um það bil 550 verk eftir meistarann til sýnis, sum þeirra í fyrsta sinn. Kjarval 100 ára heitir sýning í Hafnarborg, menningar- og list- astofnun Hafnarfjarðar. Á henni eru 50 myndir úr eigu hafnfirðinga, hin elsta frá 1914, hin yngsta frá 1965. Hafnarborg er á Strandgötu 14, 2. hæð. Sýn- ingin verður opnuð í dag um fimmleytið og stendur til 3. nóv- ember. Hún er opin daglega frá tvö til sjö. Meistari Kjarval 100 ára er heiti afmælissýningar með mynd- um úr eigu Þorvalds Guðmunds- sonar (Þorvalds í Sfld og fisk). Sýningin er í Háholti í Hafnar- firði, við Reykjanesbraut. Þar eru 155 verk, elst jólakort frá 1905, en meginhlutinn frá árun- um 1910-30. Margar myndanna eru nú sýndar fyrsta sinni. Meðal verka er Lífshlaup meistarans, málað veggfóðrið úr vinnustofu Kjarvals í Austurstræti. Þorvald- ur hefur gefið út vandaða sýning- arskrá með fjölda litmynda og texta eftir Gylfa Gislason og Að- alstein Ingólfsson. Sýningin í Há- holti er opin daglega frá tvö til sjö. Kjarval í Listasafni íslands: 130 myndir í þjóðareigu Lista- safnsins. Sýningin er opin frá hálf tvö til tíu. Vegleg sýningarskrá hefur verið gefin út um Lista- safnsverkin, og auk þess í henni yfirlit um ævi Kjarvals, sýningar hans, rit um hann og eftir hann. Á Kjarvalsstöðum eru loks sýnd 215 verk úr eigu Kjarvals- GM □PEL m ISUZU VETRARSKOÐUN - 1985 Gildistími 10. okt. - 1. des. 1. Mótorþvottur 2. Viftureim athuguð 3. Hleðsla og rafgeymir mæld 4. Rafgeymasambönd hreinsuð 5. Skipt um kerti 6. Skipt um platínur 7. Loftsía athuguð 8. Skipt um bensínsíu 9. Mótor- stilling 10. Kælikerfi athugaðH. Frostþol mælt12.Ljós yfirfarin og stillt 13. Rúðuþurrkur athugaðar- settur á frostvari 14. Hemlar reyndir. VERÐ: (m/söluskatti) 4 cyl. 2.598,- 6 cyl. 3.352,- 8 cyl. 3.882,- 2 D 3 O * c . D 'o ^ o' 6 c) ,< 0 D &■. . 'Á o 0 Æ INNIFALIÐ í VERÐI: Vinna Kerti Platínur Bensínsía Frostvari fyrir rúðusprautu BILVANGURsf HÖFÐABAKKA 9 5ÍMI 687300

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.