Þjóðviljinn - 07.01.1986, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 07.01.1986, Blaðsíða 16
Aðalsími: 681333. Kvöldsími: 681348. Helgarsími: 81663. DJÓÐlflUINIt Priðjudagur 7. janúar 1985 4. tölublað 51. órgangur. Vari Starfsmenn Vara segja að samningur við VR hafi verið kynntur áfölskumforsendum. Birgir Ómarsson: VR hefur logið að okkur íþessu máli. Elís Adolfsson VR: Þetta er algjör misskilningur hefur komið mjög illa fram í þessu máli. Það hefur ver- ið logið að okkur og þegar við gerum athugascmdir við það er okkur hótað brottrekstri af hálfu verkalýðsfélagsins, sagði Birgir Ómarsson starfsmaður Vara í samtali við Þjóðviljann í gær, en hann ásamt fleiri starfsmönnum fyrirtækisins telur að starfsmenn hafi verið látnir skrifa undir kjar- asamning Vcrslunarmannafélags Reykjavíkur og Vara á fölskum forsendum. Starfsmenn telja að samning- urinn sem gerður var fyrir nokkru hafi í för með sér nokkra launa- hækkun þrátt fyrir orð starfs- manna VR um að hann væri sambærilegur við samning Dagsbrúnar við Securitas frá í haust. Þjóðviljinn hefur það eftir starfsmönnum Vara að samning- urinn hafi verið kynntur sem vilj- ayfirlýsing, en þegar á reyndi var samningurinn bindandi og hefur þegar tekið gildi. Starfsmenn fengu útborgað samkvæmt hon- um um áramótin og gilti þá einu hvort þeir eru í VR eða Dagsbrún sem eins og kunnugt er hefur ver- ið að reyna að ná samkomulagi við eiganda Vara. Birgir er einn af þremur starfs- mönnum Vara sem ekki skrifuðu undir samninginn og segir að þeg- ar þeir fóru á fund EIís Adólfs- sonar hjá Verslunarmannafélag- inu til að leita nánari útskýringa á nokkrum atriðum hafi þeim verið hótað brottrekstri ef þeir ekki skrifuðu undir innan tíðar! „Það er algjör misskilningur að þetta hafi ekki verið kynnt sem samningur," sagði Elís Adólfsson hjá VR þegar blaðið bar þetta undir hann í gær. „Ég hef ekki sannreynt annað en að þessi samningur sé sambærilegur samningi Dagsbrúnar og Securit- as.“ Þegar Elís var inntur eftir hótun um brottrekstur sagði hann: „Mín orð voru þau að ekki væri hægt að líða að fólk úr öðr- um stéttarfélögum gengi inn í störf sem Verslunarmannafé- lagið hefur samið um.“ -gg Halastjarnan sýnileg íslendingum Embœttisveiting Vilji HÍ hunsaður ,Jú, það er rétt. Halley hala- stjárnan sást héðan fyrir ára- mótin með bcrum augum, en undanfarna daga hefur verið of skýjað. Hún er eins og þoku - kenndur blettur á suð- vesturhimninum og sést ágætlega með handkíki ef skyggni er gott. Síðar í mánuðinum hverfur hún svo sjónum okkar,“ sagði Þor- steinn Sæmundsson, en fyrir ára- mótin þóttust menn hafa séð hal- astjörnuna frægu, Halley, frá Is- landi en hún er aðcins sýnileg á 76 ára fresti. 1. janúar var stjarnan 19° yfir sjóndeildarhring í suðvestri við dagsetur í Reykjavík, en eftir miðjan mánuðinn fer tunglskin að spilla athugunarskilyrðum auk þess sem halastjarnan er þá kom- in mjög nærri sól og hverfur brátt í sólarbirtuna. Halinn verður meira áberandi eftir því sem stjarnan nálgast sólina og lækkar á lofti. Halastjarna Halleys er þekkt- ust allra halastjarna vegna þess að hún var sú fyrsta sem sannað var að kæmi aftur og aftur með reglubundu millibili segir í Alm- anaki Háskóla íslands. Það var enski stjörnufræðingurinn Ed- mond Halley sem fyrstur reiknaði braut hennar árið 1696. Hann hafði séð hana árið 1682 og spáði því að hún myndi sjást aftur 1758. Sá spádómur reyndist rétt- ur, þótt Halley lifði ekki að sjá tilgátu sína sannast. Frásagnir eru til um Halley stjörnuna allt frá því árið 87 f. Kr. -ÞS Mosfellssveit Banaslys í fyrrinótt Banaslys varð í Mosfellssveit í fyrrinótt á mótum Vesturlands- vegar, Þverholts og Reykjavegar þegar bíll lenti þar út af vcginum. I bílnum var fertugur maður á leið frá Reykjavík. Bíllinn lenti upp á umferðareyju og kastaðist þaðan á Ijósastaur. Maðurinn var einn í bflnum og mun hafa látist samstundis. IH Ráðherra skipar Matthías Viðar Sœmundsson lektor í íslensku. Helga Kress fékk meðmæli dómnefndar og yfirgnœfandi stuðning deildarráðs. Helga Kress: Þetta er klár kvenfyrirlitning Sverrir Hermannsson mennta- málaráðherra hefur skipað Matthías Viðar Sæntundsson í stöðu lektors í íslensku við heimspekideild Háskólans þvert ofan í vilja dómnefndar deildar- innar og deildarráð þar sem Helga Kress lektor í almennum bókmcnntum fékk 27 atkvæði, Örn Ólafsson bókmenntafræð- ingur 7 atkvæði en Matthías Viðar aðeins 4 atkvæði. „Ég get ekki séð annað í þess- ari stöðuveitingu ráðherra, en klára kvenfyrirlitningu og það er ekki aðeins verið að hafna mér vegna þess að ég er kona heldur ekki síður rannsóknum mínum og þessu fagi sem kvennarann- sóknir eru,“ sagði Helga Kress í samtali við Þjóðviljann í gær. Mikil og almenn reiði er meðal stúdenta í íslensku vegna þessar- ar embættisveitingar og hefur Mímir félags íslenskustúdenta boðað til almenns fundar þar sem ákvörðun ráðherra verður rædd. „Ég hef áþreifanlega orðið vör við hug nemenda í þessu máli. Meirihluti stúdenta í íslensku eru konur og það er mjög mikil þörf á konu til leiðbeininga. Það er nóg af karlmönnum fyrir í deildinni og hefur alltaf verið en það er eins og þarna inn megi kona ekki komast,“ sagði Helga Kress. -lg- Stólaskipatamál Geir fastur í stjóminni Ekki staðið við loforðiðfrá þvííhaustum að Geir hœtti um áramótin. Óánægja með fjármálaráðherrann. Sjálfstœðismenn íhuga kosningar. Óttast átök á vinnumarkaði Nokkur hreyfing er komin upp innan Sjálfstæðisflokksins um að halda Geir Iiallgrímssyni innan ríkisstjórnarinnar, - og blandast reiði vegna skattglcði Þorsteins Pálssonar inní þessa af- stöðu. Þorsteinn tilkynnti við stólaskiptin í haust, að Geir Hall- grímsson viki úr ríkisstjórninni um áramótin, en af því hefur ekki orðið. Samkvæmt heimildum Þjóð- viljans í Sjálfstæðisflokknum er mikil óánægja með þróunina í ríkisstjórninni. Þorsteinn þykir ekki hafa staðið sig jafn vel og þingmenn höfðu vonast til og litið sé til Geirs sem „klóka" mannsins sem staðið geti, en mætti refskap Framsóknarráðherrana, betur en aðrir ráðherrar Sjálfstæðisflokks- ins. Þá er ekki útilokað, að Sjálf- stæðisflokkurinn vilji nota tæki- færið áður en kemur til átaka á vinnumarkaði, sem ríkisstjórnin réði ekki við, til að rjúfa stjórn- arsamstarfið og boða tii kosn- inga. -óg/ÖS Vetrarvertíð er hafin og margir bátar hófu róðra strax 2. janúar. Bátar á Snæfellsnesi hófu róðra strax uppúr áramótunum flestir hverjir og róa nær allir með línu. Aflinn úr fyrstu róðrunum lofar góðu, bátar, sem lönduöu í Rifi voru með þetta 3-7 tonn á línu. Aflinn var nokkuð misjafn, smáfiskur nokkur en líka allt uppí rígaþorsk, eins og sjá má hér á myndinni sem tekin var sl. laugardag verstur á Hellisandi. Þór Aðalsteinsson starfsmaður Jökuls h.f. á Hellissandi heldur þarna á 28 kg. þorski. Hann sagði það ekki algengt að svona stórir þorskar veiddust núorðið, en það kæmi þó fyrir öðru hvoru og stærri og þyngri þorsk sagðist hann hafa séð. (Ljósm. S.dór) Samið á fölskum forsendum?

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.