Þjóðviljinn - 25.03.1986, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 25.03.1986, Blaðsíða 1
Spjót Lineker leikmaður ársins Framlínumaður Everton, Gary Lineker, var í gær útnefnd- ur lcikmaður ársins í enska bolt- anum í kosningum meðal leik- manna í ensku deildakeppninni. Næstur honum kom Paul McGrath, Manchester Unitcd, og þriðji Mark Lawrenson, Liver- pool. Everton keypti Lineker í sumar til að styrkja framlínuna og hefur kapp- inn staðið sig með stakri prýði, fellur vel inní liðið og er markahæstur í deildinni, skoraði 24 mörk, mcira en þriðjung marka Everton. Hann hefur verið valinn í lið Englands gegn So- vétríkjunum nú á miðvikudag. Gott hjá Sigurði Sigurður Einarsson kastaði spjóti 75,86 metra í móti í Ala- bama Bandaríkjunum nú um helgina. Keppt var með nýja spjótinu, en með því eru köst ekki jafnlöng og hinu eldra. Er kast Sigurðar talið jafngilda 85 metrum með venjulega spjótinu. Arangur Sigurðar er langt yfir háskólamótslágmörkum þar vestra. England Samúel Örn Erlingsson blakmeistari og íþróttafréttaritari fagnar meistaratitlin um ásamt félögum sínum (myndir E.CDI.). Blak Þróttur meistari Þróttur blakmeistari 6. áriðíröð, vanníSmeð þremur hrinusigrum gegn tveimur Þróttur vann síðari úrslita- leikinn gegn Stúdentum á föstu- V-Þýskaland Kiel vann Frá Agli Eiðssyni, Köln: THW Kiel sem Jóhann Ingi Gunn- arsson þjálfar vann Prolctar Zrenj- amin frá Júgóslavíu 31-26 á sunnu- daginn í 8-liða úrslitum Evrópu- keppninnar. Kiel var betra liðið og hefði átt skilið stærri sigur. Seinni leikurinn verður á miðvikudagskvöld í Júgóslavíu. Helstu úrslit í deildinni: Essen- Darmstadt 23-15, Alfreð skoraði fjögur mörk. Lemgo-Gunzburg 16- 16, Sigurður kom inná til að taka víti og skoraði úr öllum fimm. Dankersen-Handewitt 23-22, Páll Ólafsson lék mjög vel og skoraði sex mörk. Efstu lið í deildinni eru Grosswaldstadt með 28 stig, Essen og Schwabing með 25, Gummersbach 20 stig. Reinickend situr á botninum með 8 stig, Hofweier og Lemgo hafa 9, Gunzburg 11, Dankersen 12. dagskvöld og varð þarmeð Is- landsmeistari sjötta árið í röð. Átta mínútur vantaði uppá að leiktíminn yrði tveir tímar. Þróttarar töpuðu fyrstu hrin- unni 5-15, og stúdentar virtust ætla að knýja fram þriðja leikinn þegar önnur hrinan var búin með sigri þeirra, 15-9. Þróttur vann svo þriðju hrinuna mjög naum- lega, 15-13, ogfjórðu líka, 15-8. í úrslitahrinunni kom leikreynslan JÞrótti að góðu gagni, unnu 15-10 og þar með titilinn. England Howe vill hætla hjá Arsenal Don Howe framkvæmdastjóri Arsenal-liðsins sagði á blaða- mannafundi á laugardag að hann óskaði eftir að vera leystur strax frá störfum hjá félaginu. Fyrr í vikunni höfðu forráða- menn Arsenal viðurkennt að þeir hefðu beðið framkvæmdastjóra Barcelona, Terry Venables, að taka að sér framkvæmdastjóra- starfið. A blaðamannafundinum eftir 3-0 sigur Arsenal yfir Co- ventry var Howe spurður um ást- æðu fyrir ósk sinni, og hann svar- aði: „Hvað haldið þið?“. Stjórnarformaður Arsenal, Ken Friar, sagði síðar um daginn að stjórnin mundi taka ákvörðun næstu daga. V-Þýskaland Bayer Uerdingen í formi Lárus skoraði. Werder Bremen fipast hvergi Lárus Guðmundsson skoraði fyrsta markið í leik Uerdingen gegn Hamborg í þýska boltanum um helgina, - Uerdingen vann góðan sigur og virðist í formi þessa daga. Efsta liðið, Werder Bremen, vann sinn leik, Bayern Miinchen líka. Frá Agli Eiðssyni í Köln: Hamborg-Bayer Uerdingen 1-4 Uerdingen hélt áfram þarsem frá var horfið gegn Dresden á miðvikudaginn. Lárus Guð- mundsson kom Uerdingen á bragðið með góðu marki frá markteigshorni eftir sendingu frá Feilzer. Herget skoraði síðan mark helgarinnar í Þýskalandi skömmu fyrir leikhlé. Hann sá að markvörður Hamborgar stóð framarlega og skaut á markið af 48 metra færi og inn fór tuðran. 2-0 í hálfleik. í síðari hálfleik bættu Raschid og Loontiens síð- an tveimur mörkum við fyrir Uerdingen. Von Heesen minnkaði muninn á síðustu mín- útunum. Öruggur sigur gegn lé- legu Hamborgarliði. Atli lék með Uerdingen að nýju og stóð sig sæmilega. Lárus var tekinn útaf í seinni hálfleik, - þeir eru tveir til þrír nokkuð jafnir í stöðunni og látnir skiptast á. Stuttgart - Waldhof Mannheim 3-1 Stuttgart vann þriðja leik sinn í röð eftir að þjálfarinn var rekinn, markatalan 13-2 í þessum leikjum. Lofar góðu fyrir undan- úrslitaleikinn í bikarkeppninni gegn Dortmund á miðvikudaginn kemur. Stuttgart átti ekki í neinum vandræðum með lið Waldhof á laugardaginn. Allgöwer skoraði fyrsta mark Stuttgart eftir 20 mínútur og tíu mínútum síðar Pasic annað mark- ið. 2-0 í hálfleik, - Buhrer minnkaði muninn fyrir Mann- heim á 60. mínútu, og Allgöwer tryggði síðan sigurinn fyrir Stutt- gart skömmu síðar. Asgeir lék með og átti heldur slakan dag. Werder Bremen - Kaiserslautern 2-0 Efsta lið deildarinnar átti löngum í erfiðleikum með bar- áttuglatt lið Kaiserslautern. Það var ekki fyrren í síðari hálfleik að Bremen fann leiðina að marki gestanna. Brugsmuller sló bolt- ann með hendinni úr höndum markvarðar Kaiserslautern og skoraði síðan einsog vera ber með fætinum. Dómari sá ekkert athugavert og dæmdi markið gilt, en brotið var greinilegt á sjón- varpsmyndum. Schaaf skoraði síðan annað mark Bremen skömmu fyrir leikslok. Bayern Múnchen - Bochum 6-1 Bayern hafði algera yfirburði gegn Bochum á Ólympíuleik- vanginum í Munchen. I fyrri hálf- leik skoruðu Rumenigge og Ler- by fyrir bæjara, Willmer, Matt- háus, Wohlfart og Augenthaler skoruðu í seinni hálfleik og Wiel- ert lagaði stöðuna fyrir Bochum. Sárabót fyrir Bayern eftir Anderlecht-leikinn í síðustu viku. Schalke - Dusseldorf 1-1 Aðalmaður Schalke var að öllum öðrum ólöstuðum Klepp- inger, - hann skoraði fyrst sjálfs- mark í fyrri hálfleik, og í síðari hálfleik bætti Kleppinger síðan fyrir mistökin og skoraði annað mark sitt í leiknum, nú réttu megin. Gladbach-Frankfurt 1-1 Lélegur leikur í Gladbach og heimamenn heppnir að ná öðru stiginu. Sievers skoraði fyrir Frankfurt í fyrri hálfleik, Rahm jafnaði síðan fyrir Gladbach tveimur mínútum fyrir leikslok. Saarbrúcken - Köln 1-2 Saarbrúcken tapaði tveimur dýrmætum stigum í fallbarátt- unni. Voru óheppnir að skora ekki í fyrri hálfleik. Kölnarar voru sterkari í seinni hálfleik og unnu sanngjarnan sigur, annan útisigur sinn á keppnistímabilinu. Mörk Kölnar skoruðu Bein og Lárus skoraöi fyrsta mark Uerdingen gegn Hamborg. Lihnhoff en Jusufi fyrir heima- menn. Leverkusen - Dortmund 2- 1 Leverkusen vann sanngjarnan sigur á Dortmund. Fyrsta markið skoraði Tfscha fyrir Leverkusen á 10. mínútu. Á 25. jafnaði Weg- mann. Schreier skoraði síðan sigurmark Leverkusen á síðustu mínútu fyrri hálfleiks. Hanover - Núrnberg 0-2 Áttunda tap Hanover í röð og er staða liðsins orðin vonlítil í deildinni. Grahammer og Ecks- tein skoruðu mörk Núrnberg. Umsjón: Möröur Árnason Þriðjudagur 25. mars 1986 ÞJÖÐVIUINN - SÍÐA 9

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.