Þjóðviljinn - 02.04.1986, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 02.04.1986, Blaðsíða 2
ÍÞRÓTTIR Ingigerður Júlíusdóttir meö sigurlaunin í svigi kvenna. Til vinstri er Tinna Traustadóttir sem varð önnur en til hægri Guðrún H. Kristjánsdóttir sem varð þriðja. Vestur-Pýskaland Islendingaliðin illstöðvandi Brákað rifbein aftraði ekkiÁsgeiri. Stuttgartog Uerdingen sigra, óbreytt á toppnum Frá Agli Eiðssyni fréttamanni Þjóðviljans í V.Þýskalandi: íslendingaliðin í knattspyrn- unni hér eru illviðráðanleg um þessar mundir. Stuttgart og Bay- er Uerdingen hal'a unnið góða sigra að undanförnu og sitja í 4. og 7. sæti Bundesligunnar. Auk þess er Uerdingen komið í undan- úrslit Evrópukeppni bikarhafa og Stuttgart í úrslit vestur-þýska bikarsins. Uerdingen hélt uppteknum hætti á laugardaginn og vann Le- verkusen nokkuð sannfærandi, 2- 1. Funkel og Schafer komu Uer- dingen í 2-0 en Screier svaraði fyrir Leverkusen rétt fyrir leiks- lok. Schafer kom inná fyrir Lárus Guðmundsson í seinni hálfleik en Atli Eðvaldsson lék ekki með að þessu sinni. Leikmenn Uerding- en eru hvíldir til skiptis, skipt um þrjá menn í hverjum leik vegna hins mikla álags sem er á liðinu þessar vikurnar. Atli skoraði hinsvegar gott mark í 3-1 sigri á Kaiserslautern í síðustu viku. Asgeir Sigurvinsson, með brákað rifbein, lék vel þegar Stuttgart vann 2-0 í Bochum. Reichert og Wolff skoruðu mörk- in á síðustu 11 mínútunum. As- geir lét ekki heldur meiðslin aftra sér á skírdag þegar Stuttgart vann Dortmund 4-1 í undanúrslitum bikarkeppninnar. „Maður slepp- ir ekki svona leik“, var haft eftir Ásgeiri í einu blaðanna hérlendis og þar var bent á að Ásgeir hefði haft ærna ástæðu til að leika — þjálfari Dortmund er Pal Csern- ai, sá hinn sami og lék hann svo grátt er báðir voru hjá Bayern Munchen! Urslit í Bundesligunni um helgina: Dusseldorf-Hannover..............2-2 Uerdingen-Leverkusen........... 2-1 Bochum-Slutfgart.................0-2 Köln-HamburgerSV.................1-1 Nurnberg-Saarbrucken.............2-0 Mannheim-Schalke.................3-0 Kaiserslaufern-Gladbach......... 1-1 Frankfurl-Bayern Munchen.........2-2 Dortmund-WerderBremen............1-1 Staðan á toppnum er óbreytt, jafntefli hjá þremur efstu liðun- um. Bremen gerði jafntefli í Dortmund í fyrradag, Wolter skoraði eftir 4 mínútur en Zorc jafnaði fyrir heimaliðið korteri síðar úr umdeildri vftaspyrnu. Frá Agli Eiðssyni, fréttamanni Þjóðviljans í V.Þýskalandi: Kiel, lið Jóhanns Inga Gunn- arssonar, féll naumlega útúr Evr- ópukeppninni í handknattleik um helgina. Kiel tapaði þá 23-18 fyrir Zrenjanin í Júgóslavíu. Kiel hafði unnið fyrri leikinn 31-26, marka- talan var því jöfn en Júgóslavarn- ir komast áfram á fleiri mörkum á útivelli. Kiel vann hinsvegar Lemgo 21- Leikmenn Bayern ætluðu sér um of í Frankfurt, sóttu látlaust í fyrri hálfleik en Frankfurt skoraði tvisvar úr skyndisóknum, Falk- enmayer og Svensson. Hoeness og Wohlfarth svöruðu síðan fyrir Frankfurt í seinni hálfleik, 2-2. Gladbach var heppið að ná í stig í Kaiserslautern Staða efstu liða í Bundeslig- unni: Bremen........29 19 7 3 76-37 45 Bayern........29 18 5 6 68-31 41 Gladbach......28 13 11 4 58-38 37 Stuttgart.....28 13 6 9 57-39 32 Leverkusen...28 12 8 8 53-41 32 Hamburger.....28 13 5 9 43-28 31 Uerdingen.....26 13 5 8 44-52 31 Mannheim......27 10 8 9 37-34 28 Bochum........28 11 4 13 47-47 26 Nurnberg......29 10 5 14 42-44 25 16 í Bundesligunni sl. miðviku- dag. Um helgina vann Essen Handewitt 21-19 á útivelli og gerði Alfreð Gíslason 5 mörk fyrir Essen. Páll Ólafsson skoraði 5 fyrir Dankersen sem tapaði 25- 22 í Dusseldorf. Kristján Arason skoraði 9 mörk fyrir Hameln sem vann Lichtenrade 30-21 í 2. deild og Bjarni Guðmundsson gerði 8 mörk fyrir Wanne-Eickel í tap- leik gegn Fredenbeck, 22-24, á útivelli. Vestur-Pýskaland Kiel úr leik íslendingar skora grimmt Fyrstu verðlaunahafarnir í samhliða svigi í karlaflokki hér á landi: Guðjón Ólafsson (þriðji), Örnólfur Valdimarsson (fyrstur) og Guðmundur Jóhannsson (annar). Bikarmeistarar í framhaldi af verðlaunaafhendingu fyrir Skíðamót íslands voru kunngerð úrslit í bik- arkeppni SKÍ. Bikarmót eru haldin víðsveg- ar um landið og ræður samanlagður árangur keppenda úrsliturn. I göngu karla varð Haukur Eiríksson, Ak- ureyri, bikarmeistari og Stella Hjaltadóttir, ísafirði, sigraði í kvennaflokki. Bjarni Gunn- arsson, ísafírði, sigraði í flokki 17-19 ára karla. í alpagreinum karla sigraði Danícl Hilmarsson, Dalvík, en hann skaust uppfyrir Guðmund Jóhannsson, ísafírði, með sigri í svigkeppninni á laugardaginn. I kvenna- flokki varð sigurvegari Anna María Malmquist, Akureyri, og var það vissulega ánægjulegt eftir falí hennar úr svigkeppninni í Bláfjöllum. 10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 2. apríl 1986 ÍÞRÓTTIR Feðgar á verðlaunapallil: Ólafur Björnsson og Björn Þór Ólafsson með sigurvegarann, Þorvald Jónsson á milli sín. Auðvitað Ólafsfirðingar, allir saman, enda greinin skíðastökk. Verðlaunin ísfirðinqar m CD a* langfle íst gu iii gult silfur brons ísfírðingar urðu ótvíræðir ísafjörður .... 10 8 6 sigurvegarar í keppni milli Reykjavík .... 4 4 0 héraða. Munaði þar mestu að Dalvík .... 4 0 0 þeir sigruðu í öllum greinum Ólafsfjörður .... 2 2 4 skíðagöngu. Skipting verð- Akureyri .... 0 6 7 launa varð annars þessi: Siglufjörður 0 0 3 Skíðamót íslands Myndir og texti: Guðmundur Stefán Skíðalandsmótið Einar Ólafsson frá ísafirði kemur í mark í 30 km göngunni. Gott mót í góðu veðri Einar Ólafsson og Bjarni Gunnarssonfjórfaldirmeistarar, Daníel Hilmarsson þrefaldur. Jafnari keppni stúlknanna, Stella sigursœlust Það er ekki oft sem hægt er að halda allri áætlun á Skíðamóti íslands. Ó- sjaldan þarf að fresta keppnisgrein- um vegna dyntóttra veðurguða sem eiga til að skella á páskahreti um páska. Svo var þó ekki að þessu sinni og þegar Skíðamót íslands 1986 var haldið í Bláfjöllum um páskanna, sáu góðviljaðir veðurguðir ásamt hörku- duglegum mótshöldurum til þess að mótið gekk vel fyrir sig og var vel heppnað. Það var aðeins fyrsta daginn sem veðurguðirnir öngruðu skíðafólk í Bláfjöllum með allhvössum vindi. Það var á skírdag og eftir það var sannkölluð sólskins blíða. Norrænar greinar Á skírdag gengu stúlkur 3,5 km. drengir 17-19 ára gengu 10 km. og karlar 15 km. Ekki var keppt í kvennaflokki. Aðeins einn keppandi hafði skráð sig til leiks, Áuður Yngvadóttir Isafirði, en hún fékk ekki að ganga því keppni var felld niður. f stúlknaflokki braut Auður Ebenesardóttir á bak aftur veldi Stellu Hjaltadóttirogsigraði. Úrslitin urðu þannig: mín 1. Auður Ebenesardóttir 1.......11,32:74 2. Stella Hjaltadóttir I........11,45:05 3. Ósk Ebenesardóttir 1.........12,21:98 Þess má geta að þær Auður og Ósk eru tvíburasystur og í fjórða sæti varð tvíburasystir Stellu Málfríður Hjalta- dóttir. 10 km. ganga pilta 17-19 ára. 1. Bjarni Gunnarsson 1..29,17:50 mín 2. Rögnvaldurlngþórson 1.30,09:21 mín 3. Baldur Hermannsson S..31,30:48 min í 15 km. göngu karla hafði Einar Ólafsson mikla yfirburði. Keppt var með frjálsri aðferð og kom þar að góðum notum sú þjálfun sem hann hefur fengið í að skauta. Ekki urðu miklar breytingar á úr- slitum í keppni í lengri vegalengdum. Þá var keppt með hefðbundinni að- ferð og náði þá Stella Hjaltadóttir að vinna Auði, Bjarni vann sinn flokk og Einar vann 30 km. gönguna. Yfir- burðir hans voru þó ekki eins miklir og í 15 km. göngunni er leifð var frjáls aðferð. Úrslitin urðu þessi: Stúlkur 5,0 km.: min 1. Stella Hjaltadóttir I......15,45:44 2. Auður Ebenesardottir (.....16,53:71 3. Ósk Ebenesardóttir í.......17,07:49 Piltar 17-19 ára, 15 km.: 1. Bjami Gunnarsson 1.........44,51:07 2. Rögnvaldur Ingþórsson 1....46,40:20 3. Baldur Hermannsson S.......47,11:78 Karlar, 30 km.: 1. EinarÓlafsson I............86,28:18 2. Þröstur Jóhannessonl...:...88,53:67 3. Haukur Eiríksson A ........90,24:93 Norrœn tvíkeppni Nú var í fyrsta sinn keppt nieð svonefndri „Gundersen-aðferð". Þessi aðferð gengur út á það að eftir stökkkeppnina eru stigin umreiknuð í mínútur og keppendur látnir starta með því millibili sem úrslit stökksins sögðu fyrir um. Þannig startar sigur- vegarinn í stökkinu fyrstur og fær ákveðið forskot og sá sem fyrstur kemur í mark í göngunni er sigurveg- ari í keppninni. Það var markmaðurinn í knatt- spyrnu, knattspyrnuþjálfarinn, skíð- astökkvarinn og göngugarpurinn Þorvaldur Jónsson O sem hélt upp- tekknum hætti og sigraði fimmta árið í röð. Hann á þó enn langt í að ná Birni Þór Ólafssyni sem hefur sigrað 11 sinnum og er enn að og lenti í 3ja sæti á eftir Þorvaldi og syni sínum Birni. Úrslit: stig 1. Þorvaldur Jónsson O..............460,7 (stökk 240,7 Ganga 220,0) 2. Ólafur Björnsson Ó...............403,8 (stökk 215,3 Ganga 188,5) 3. Bjöm Þór Ólafsson Ó..............379,2 (stökk 185,9 ganga 193,3) Boðganga ísfirðingar unnu öruggan sigur í boðgöngu karla. Gengnir voru 3x10 km. og í sveitinni voru þeir Bjarni Gunnarsson, Einar Ólafsson og Þröstur Jóhannesson. Gengu þeir á 80,08:83 mín. Aðrir urðu Akur- eyringar á 83,22:60 mín. og þriðja varð sveit Ólafsfjarðar á 83,33:72 mín. Stökk Á laugardeginum var keppt í stökki og í fimmta sinn á jafn mörgum árum var það Þorvaldur Jónsson Ó. sem bar sigur úr býtum, og átti hann jafn- framt lengsta stökkið eða 48,5m. Úrslitin urðu þessi: stig 1. Þorvaldur JónssonÓ..282,4.48,5m 2. Ólafur Björnsson Ó..240,1.43,5m 3. Haukur Hilmarsson Ó.236,9.43,5m Gamla kempan Björn Þór Ólafs- son kom svo næstur og gefur lítið eftir. Göngutvíkeppni. Þeir félagar Einar Ólafsson og Bjarni Gunnarsson bættu enn einu gulli í safnið með sigri í tví- keppni. Úrslitin urðu þessi: Stúlkur 1. Stella Hjaltadóttir I 1,78 stig 2. Auöur Ebeneserdóttir I 7,22 stig 3. ÓskEbeneserdóttirl 15,79 stig Piltar 17-19 ára: 1. Bjarni Gunnarsson I 0,00 stig 2. Rögnvaldur Ingþórsson I 7,00 stig 3. BaldurHermannssonS. 12,80stig Karlar: 1. EinarÓlafssoní 0,00 stig 2. Haukur Eiríksson A 17,17 stig 3. ÞrösturJóhannesson I 19,52 stig Alpagreinar Á skírdag var keppt í stórsvigi. í kvennaflokki hafði Snædís Öl- riksdóttir R bestan tíma eftir fyrri ferð og Tinna Traustadóttir R var Önnur. Tinna keyrði mjög vel í seinni ferðinni og tryggði sér sigur. Úrslitin urðu þessi: I.TinnaTraustadóttirR 1,43:10mín. 2. Snaedís Ulriksdóttir R 1,43:53 mín. 3. GuðrúnH. Kristjánsdóttir A 1,44:62min. Stórsvig kurlu Eftir að Guðmundur Jóhanns- son I. íslandsmeistari í stórsvigi 3 s.l. ár, keyrði út úr brautinni í fyrri ferð var enginn sem gat ógn- að Daníel Hilmarssyni, seni sigr- aði með yfirburðum. Úrslit. 1. Daníel Hilmarsson D 1,36:40 mín. 2. EinarÚlfsson R 1,38:99 mín. 3. Guömundur Sigurjónsson A 1,39:22 mín. Svig kvennu í svigi kvenna skeði það leiðinda atvik að ekki náðist tími af 2 keppendum í seinni ferð. Það voru þær Anna María Malmquist A, sem hafði besta brautartím- ann eftir fyrri ferð og Ingigerður Júlíusdóttir D, sem var önnur. Menn greinir á hvort þær hafi far- ið undir geisla þann sem stöðvar klukkuna er hann er rofinn, eða að sólin hafi truflað mælitækin. Hver sem orsökin var, þá þurftu stúlkurnar að fara aftur og jiá datt Anna María og missti þar af möguleika á sigri, en Ingigerður keyrði vel og tryggði sér sigur. Úrslitin: 1. IngigeröurJuliusdóttirD 1,51:86mín. 2. TinnaTraustadóttir R 1,52:40mín. 3. Guörún H. Kristjánsdóttir A 1,52:55 mín. Svig karla Daníel Hilmarsson sigraði með sérstökum yfirburðum í svigi karla. Það er sjaldgæft að sigur- vegari fari á 3 sek. skemmri tíma en sá sem næstur er. Björn Brynj- ar Gíslason A náði mjög góðri keyrslu í seinni ferð og skaust úr fjórða sæti upp í annað og við það féll Guðmundur Jóhannsson nið- ur j það þriðja. Úrslit: 1. DanielHilmarssonD 1,34:82 min. 2. Björn BrynjarGíslason A 1,37:83 mín. 3. Guðmundur Jóhannsson I 1,38:39 min. Alputvíkeppni Tinna Traustadóttir og Daníel Hilmarsson urðu öruggir sigur- vegarar í alpatvíkeppni, en úrslit- in urðu þessi: Konur 1. TinnaTraustadóttirR 3,76 stig 2. GuörúnH. Kristjánsdóttir A 16,21 stig 3. Guðrún Jóna Magnúsdóttir A 43,61 stig Karlar 1. Daníel Hilmarsson D 0,00 stig 2. Guömundur Sigurjónsson A 56,35 stig 3. BjörnBrynjarGíslasonA 66,09 stig Samhliða svig Sú nýbreytni var tekin upp á Skíðamóti íslands að keppa ekki í flokkasvigi að þessu sinni heldur var keppt í svokölluðu samhliða svigi. I samhliða svigi er keppt með útsláttarfyrirkoniulagi. Tveir keppendur fara niður sam- hliða brautir sem reynt er qð hafa eins. Farnar eru tvær umferðir og samanlagður árangur ræður úr- sliturn. Ekki var annað að sjá en áhorfendur kynnu vel að meta þetta keppnisfyrirkomuiag og voru margar viðureignirnar mjög skemmtiiegar. Þegar kom að undanúrslitum voru þeir eftir, Örnólfur Valdimarsson R, Guðj- ón Ólafsson í, Guðmundur Jó- hannsson í og Guðmundur Sigur- jónsson A. Örnólfur og Guð- mundur komust í úrslit og sigraði Örnólfur og varð þar með fyrsti íslandsmeistari karla í samhliða svigi. I kvennaflokki sigraði Snædís Úlriksdóttir R eftir harða viður- eign við Tinnu Traustadóttur. Úrslit: Samhliða svig kvenna: 1. Snædís Úlriksdóttir R 2. Tinna Traustadóttir R 3. Bryndís Ýr Viggósdóttir A Samhliða svig karla: 1. Örnóltur Valdimarsson R 2. Guðmundur Jóhannssön I 3. Guðjón Ólafsson I Miðvikudagur 2. apríl 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.