Þjóðviljinn - 02.07.1986, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 02.07.1986, Blaðsíða 6
MINNING Kennara vantar Við skólann eru lausar kennarastöður. Með- al kennslugreina eru íslenska og líffræði í eldri deildum svo og íþróttakennsla. Skólinn starfar í nýju húsnæði og er vinnuaðstaða kennaratil fyrirmyndar. (búðarhúsnæði verð- ur útvegað og einnig kemur greiðsla flutn- ingsstyrks til greina. Nánari upplýsingar gef- ur skólastjóri í síma 97-6182. Skólanefnd ESKIFjOflÐOR Tæknifræðingur eða verkfræðingur óskast til að gegna störfum byggingarfulltrúa á Eskifirði. Nánari upplýsingar á bæjarskrifstofunni í síma 97-6175. Umsóknum með upplýsingum um fyrri störf og menntun skal skila fyrir 20. júlí n.k. Bæjarstjórinn á Eskifirði Hafnfirðingar Fastir viðtalstímar bæjarstjóra, Guðmundar Árna Stefánssonar, eru á þriðjudögum og miðvikudögum frá kl. 10-12. Aðrir viðtalstímar eftir samkomulagi. Bæjarstjórinn Hafnarfirði. Laxaseiði til sölu Nokkurt magn af sumaröldu laxaseiði til sölu. Nánari uppl. í síma 94-2003 eða 94-2027 á kvöld- in. Klak- og eldisstöðin Seftjörn. Viðgerða- og ráðgjafarþjónusta leysiröll vandamál húseigenda. Sér- hæföir á sviöi þéttinga og fl. Almenn verktaka. Greiöslukjör. Fljót og góð þjónusta. Sími 50439 eftir kl. 7 á kvöldin. Á mölinni mætumst með bros á vör — ef bensíngjöfin er tempruð. UMFEROAR RÁÐ Sumariína Dagbjört Jónsdóttir Fœdd 23. ágúst 1900 - Dáinn 23. júní 1986 Hún Lína amma er dáin. Tveimur mánuðum áður en hún hefði orðið 86 ára og nokkrum vikum eftir að afi birtist henni í draumi og sagði: Lína, nú bíð ég ekki lengur. Hvert sem hún fór og hvort sem afi tók á móti henni, vona ég að umhverfið sé fallegt. Ekki síðra en Fljótin í Skagafirði, sem héldu henni í átthagafjötrum allt frá því hún kom til Reykja- víkur um tvítugt. Einhvern tímann mun ég kom- ast í Fljótin, amma mín og hugsa til þín með söknuði og þakklæti fyrir þær skemmtilegu stundir sem við áttum saman. Pegar búið var að ræða um hvernig hin og þessi hefðu það - og öllum leið vel, var farið út í aðra sálma. Stjórnmál, trúmál, jafnréttismál, hvað sem var en alltaf var samtal- ið fléttað ljóðum. Heilu erindin, þulurnar, vísurnar og stökurnar. Allt fram á síðasta dag var minnið óbrigðult. „Ásdís á Bjargi" eftir Jakob Thorarensen var síðasta ljóðið sem ég heyrði hana fara með, orðrétt eins og hjá barni, sem er tilbúið í próf. Þegar ég sagði henni að mér þættu ljóðin hennar of rómantísk og trega- bundin fyrir minn smekk, fór hún yfir í Stein Steinarr og kímdi. Hún kenndi mér að meta ljóð og skáldskap. Strax sem barni, fannst mér Lína amma ekki vera þessi dæmi- gerða amma í hugum krakka þeirra tíma, þegar þær voru þybbnar með fléttur og knúsuðu mann á milli stroffanna á sokkun- um eða vettlingunum, sem þær voru að prjóna, gáfu kandís og höfðu svo fátt að segja, nema eitthvað um mannasiði. Lína amma var öðruvísi. Hún talaði börn til ábyrgðar og umhugs- unar. Spurði um nám og hvað var verið að læra hverju sinni. Fátt gladdi hana eins mikið og þegar eitthvert af barnabörnum hennar stóð sig vel í skóla. Sjálf- sagt komið til af því að hún þráði að komast til mennta sjálf, eins og það var kallað, en aðstæður leyfðu það ekki. Hún sagði mér að aðeins einu sinni á æfinni hefði hún stolið. Það var á bernsku- slóðum um 10 ára aldur þegar hún tók bók í leyfisleysi á næsta bæ, vegna þess að hún var búin að lesa allt heima mörgum sinnum. Hvort sem hún hefur fundið til samkenndar með snærisþjófnum Jóni Hreggviðssyni í sögunni um íslandsklukkuna vegna þessa, veit ég ekki en hún hélt mikið upp á þá sögu. Það hefur eflaust gilt það sama með börn um alda- mótin og ómaga á tímum Jóns Hreggviðssonar, að á hvorugt var hlustað. Allt frá þeim tíma hafa bækur verið hennar líf og yndi. Sjálf skrifaði hún bækur undir nafninu Dagbjört Dagsdóttir og var með eina í vinnslu, þegar sjónin gaf sig fyrir nokkrum árum. Ferða- sögur, smásögur og ljóð skrifaði hún einnig og ekkert gat stöðvað hana í að njóta góðra bóka og afla sér þekkingar. í skáldsögum hennar kemur fram þessi sterka réttlætiskennd, sem einkenndi hana. Réttlæti fyrir þá sem minna mega sín í lífs- baráttunni og sem órétti voru beittir, enda sósíalisti alla tíð. Það sem einkenndi hana líka var rómantík, sem í dag mundi vart teljast jarðnesk og alltaf var söknuður í öllum lögum, ljóðum og öðru sem hún unni. Það væri ekki rétt að segja að lífið hafi klappað henni ömmu minni, þessari stoltu norðan- konu. Hún kynntist baslinu og harðri baráttu við það að fá að njóta þess að skapa, að hlusta á sitt innra sjálf og að þurfa að standa sig sem móðir á þeim tím- um þegar staða konunnar var bágbornari en í dag og vinnu- stundirnar fleiri. Ólgusjór í hjónabandi, þó lygnt hafi að lok- um. Hún lifði í tveimur heimum og þegar sá harði var of aðgangs- frekur, flýði hún í sinn eiginn og kom sterkari til baka. Hvernig hafðir þú tíma, sem fjögurra barna móðir, sauma- skapur og önnur búsýsla án nú- tíma þæginda? spurði ég hana einu sinni. Nóttin, svaraði hún. Þú gleymir nóttunum. Þá er kyrrð, þá eru álfar á sveimi. Svona var amma. Ef hún talaði ekki í Ijóðum þá talaði hún í gát- um og alltaf var stutt í spaugið. Enginn sofnaði af leiðindum hjá henni. Amma mín, næst þeg- ar ég fer norður, þá kem ég við þar serft vötnin eru tærari og fjöll- in blárri. Ég ætla að sjá, það sem ég hef hingað til aðeins heyrt um. Dagbjört Erla Magnúsdóttir. Alþýðubandalagið Norðurlandi eystra Sumarhátíð Sumarhátíð Alþýðubandalagsins í Norðurlandskjördæmi eystra verður haldin í landi Birningsstaða í Laxárdai í S-Þingeyjarsýslu dagana 4.-6. júií n.k. Dagskrá: Föstudagur 4. júlí: Mótsgestir safnast saman og tjalda. Laugardagur 5. júlí: Eftir hádegi verður farið í skoðunarferð um Laxárdal með leiðsögn (farið á einkabílum). Endað við Laxárvirkjun og mannvirkin skoðuð. (Gönguferð á Geitafellshnjúk ef tími og veður leyfir). Um kl. 18.00 verður kveikt á útigrilli og kvöldvaka á eftir þar sem þingeyskir sagnaþulir segja m.a. frá Laxárdeilum. Söngur og skemmtun. Sunnudagur 6. júií: Stutt gönguferð um nágrennið fyrir hádegið. Skoðunarferð með leiðsögn um byggðasafnið á Grenjaðar- stað á heimleið. Mótið er öllum opið. Gestir úr öðrum kjördæmum sérlega velkomnir. Mætum öll og tökum með okkur leikföng, hljóðfæri, söngbækur, hlý föt og gott skap. Kjördæmisráð 6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 2. júlí 1986

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.