Þjóðviljinn - 02.08.1986, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 02.08.1986, Blaðsíða 3
FRÉTTIR Hvalfjarðarstrandarhreppur Yfirgangur og ögrun Afskiptum Bandaríkjastjórnar afhval- veiðimálum harðlega mótmælt. Lagt að ríkisstjórn að endurskoða „varnar- samninginn“ ogfríðindi Bandaríkja- hers í Hvalfirði Hreppsnefndin telur að hótanir Bandaríkjamanna um við- skiptaþvinganir beri vott um drottnunargirni og yfirgang gagnvart smáþjóð og sé bein ögr- un við sjálfstæði og sjálfsákvörð- unarrétt íslendinga, segir í álykt- un sem hreppsnefnd Hvalljarðar- strandarhrepps hefur sent frá sér vegna afskipta Bandaríkjamanna af hvalveiðum íslendinga. í ályktuninni segir að það geti ekki verið háð lögsögu Banda- ríkjamanna eða á valdsviði þeirra að ákveða hvernig íslendingar nýta auðlindir sínar, né hvaða vísindarannsóknir þeir stunda innan fiskveiðilandhelginnar og hverjum þeir selja afurðir sínar. Skorar hreppsnefndin á ríkis- stjórnina að mótmæla yfirgangi Bandaríkjamanna harðlega og taka til athugunar samvinnu og samskipti fslands við Bandaríkin, þar á meðal varnarsamninginn. “Þá minnir hreppsnefndin á, að Atlantshafsbandalagið á hern- aðarmannvirki og verulegar fast- eignir í Hvalfirði og hefur lagt undir sig jörð til þeirra hluta. Af þessum fasteignum eru engin gjöld greidd til hreppsins, og nýt- ur Atlantshafsbandalagið þannig sérréttinda hér í hreppnum. Þar sem Bandaríkin ætla nú að leggja aðalatvinnuveg hreppsins í rúst, er óverjandi að líða slík sér- réttindi lengur. Skorar hrepps- pefndin á ríkisstjórnina að gera ríkisstjórn Bandaríkjanna grein fyrir þessu og taka þessi mál til endurskoðunar og úrbóta," segir í lok ályktunarinnar sem sam- þykkt var einróma í hreppsnefnd- inni. ->g- Reykjavík 200 ára Víðtæk hátfðarhöld Forseti Islands heiðursgestur. Skúli fógeti á Arnarhóli, 200 metra terta í Austur- strœti og 2 viðamiklar sýningar Afmælisnefnd Reykjavíkur- borgar vegna 200 ára afmælis kaupstaðarins 18. ágúst nk. er nú að leggja lokahönd á umfangs- mikla afmælis- og hátíðardag- skrá. Aðalhátíðin verður á sjálf- an afmælisdaginn mánudaginn 18. ágúst og hafa borgaryfirvöld óskað eftir því að borgarbúum verði gefið frí frá störfum eftir hádegi þann dag til að þeir geti tekið þátt í hátíðinni. Forseti íslands, Vigdís Finn- bogadóttir kemur í opinbera heimsókn til Reykjavíkur á af- mælisdaginn. Hún mun sitja há- tíðarfund borgarstjórnar um morguninn og fara víða um borg- ina um daginn. Um kvöldið flytur Vigdís ávarp á hátíðardagskrá við Arnarhól en þar verður sungið og dansað og flutt nýtt leikverk eftir Kjartan Ragnarsson um Skúla fógeta og upphaf Reykjavíkur. Dagskránni við Arnarhól lýkur með flugeldasýningu á miðnætti. Fyrr um daginn verða ýmsar uppákomur í miðborginni, barn- askemmtanir og fjölskylduhátíð- ir auk þess sem borgarbúum og öðrum afmælisgestum verður boðið að bragða á 200 metra langri afmælistertu sem verður komið fyrir í Austurstræti. í tilefni afmælisins verða opn- aðar tvær viðamiklar sýningar. Á Kjarvalsstöðum verður sögusýn- ing sem sýnir vöxt og breytingu Reykjavíkur frá kaupstað til borgar. Þar verða sýnd ýmis líkön frá fyrri öldunt og brugðið upp mynd af mannlífi og bæjarbrag í 200 ára sögu Reykjavíkur. í nýju Borgarleikhúsinu í Mjóddinni verður opnuð viðamikil tækni- sýning, þar sem m.a. verður kynnt starfsemi ýmissa stofnana borgarinnar. SUMARTILBOÐ Viö hvetjum húseigendur og sumarbústaöaeigendurtil þess að __ nota sumariö vel og búa fasteignir sínar af kostgæfni undir veturinn._ Viö erum austast og vestast í bænum. BYGGINGAVÖRUR Stórhöfða, simi 671100- Hringbraut 120, simi 28600

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.