Þjóðviljinn - 01.11.1986, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 01.11.1986, Blaðsíða 6
IÞROTTIR Ómar Torfason „Sagan um týnda soninn“ Lönggrein íSportumferil Ómars Torfasonarhjá Luzern, ogskjótanframa hans síðustu vikurnar Ómar Torfason, lengst til hægri, sækir að marki Grasshoppers í leik með Luzern. „Ómar Torfason og Luzern, eða sagan um týnda soninn. Hann kom frá Reykjavík fyrir ári síðan, nýkrýndur markakóngur en samt fyrst og fremst varnartengiliður. Akvörðun Friedels Rausch þjálf- ara um að gera þennan 26 ára kaupmann að atvinnumanni f Sviss kom eins og þruma úr heið- skíru lofti.“ Með þessum orðum hefst Iöng grein um knattspyrnu- manninn Ómar Torfason í svissneska blaðinu Sport í síðustu viku. Áfram með greinina: „Þegar var fyrir einn íslendingur hjá Luzern, Sigi Grétarsson, sem i hafði þegar unnið hug og hjörtu ! aðdáenda félagsins með snilli sinni og markheppni. En til hvers að fá annan útlending til að leika sem varnartengiliður? Áhangendur óvinveittir Fyrsti leikur Ómars var erfið- ur. Tap gegn Xamax, 2-7, en strax í næsta leik skoraði hann mark er Luzem vann Zurich. En þar með var það búið, nýliðinn átti erfitt uppdráttar eftir það. Áhangendur liðsins snerust gegn honum. En þó þjálfarinn væri greinilega ekki ánægður með kaup sín lét hann íslendinginn yfirleitt spila og hann þakkaði fyrir sig með því að skora sigur- markið gegn Sion í lok keppnist- ímabilsins og tryggði með því Luzem sæti í UMFA-keppninni. Ekkert pláss Hann hafði launað fyrir sig og var kyrr hjá félaginu. En Luzern keypti Vestur-Þjóðverjann Jurg- en Mohr og þar með var ekkert pláss lengur fyrir Ómar. Tveir út- lendingar mega leika, og þeir vom nú Mohr og Sigi Grétarsson. En þó Sigi meiddist og Mohr missti af mörgum leikjum sat Ómar á varamannabekknum. Hann æfði af krafti og lék með íslenska landsliðinu undir stjórn Sigi Held. Tvisvar þrjú mörk Sjúkralisti Luzern lengdist óðum og loks í 7. umferð fékk Ómar tækifæri, gegn Young Boys, en varð að fara af leikvelli, meiddur á höfði. En í næsta leik, gegn Chaux-de-Fonds, skoraði týndi sonurinn 3 mörk og á svip- stundu vann hann sér hylli aðdá- enda liðsins og samherjanna. Síðasta sunnudag skoraði hann svo 3 mörk í 4-0 sigri á Sursee í bikarkeppninni. En þjálfarinn lætur markheppni hans ekki blekkja sig, hann veit hvar Ómar kann best við sig. Leikur aftar- lega á miðjunni en tekur virkan þátt í sókninni þegar við á.“ Greinin er skrifuð fyrir leik Luzem og Xamax um síðustu helgi. Sagt er að sá leikur sé mikilvægur fyrir Ómar og hann hafi slæmar minningar frá 2-7 tapinu gegn Xamax í sínum fyrsta leik með Luzern. En í þessum leik ættu hæfileikar Ómars, sér- staklega góð skallatækni, að njóta sín - og hann sé nú kominn í forystuhlutverk í liðinu. Og hvað kom ekki á daginn? Luzem vann leikinn 2-1 og það var enginn annar en Ómar Torfason sem skoraði sigurmarkið rétt fyrir leikslok! -VSfþýtt og endursagt) Knattspyrna Spánn Evrópu- meistari Vann í vítakeppni Spánn varð Evrópumeistari í knattspyrnu, undir 21 árs, eftir sigur á ítölum í siðari úrslitaleik þjóðanna í Valladolid á miðviku- dagskvöldið. Italir höfðu unnið fyrri leikinn 2-1 en eftir venjulegan leiktíma í Valladolid stóð 2-1 fyrir Spán. Ekkert var skorað í framlengingu en í vítaspyrnukeppni skomðu lt- alir ekki eitt einasta mark, Spán- verjar skomðu þrisvar á meðan og höfðu þar með tryggt sér titil- inn. Eloy Oyala og Roberto Fem- andez gerðu mörk Spánar í leiknum en Giovanni Francini svaraði fyrir ítali. ísland og Spánn börðust á síðasta ári um sigur í undanriðli keppninnar og Spánverjar unnu báða leikina naumlega, 1-0. -VS/Reuter Körfubolti Dómara- námskeið Körfuknattleikssamband íslands og dómaranefnd KKÍ gangast fyrir dómaranámskeiði dagana 15.-16. nóvember. Leiðbeinendur verða Jón Otti Ólafsson og Sigurður Valur Hall- dórsson. Þátttökutilkynningum skal skllað til skrífstofu KKÍ í síma 83377 og 685949 fyrír 10. nóvember. Þátt- tökugjaldi verður haldið í algeru lág- marki. Quðrfður Quðjónsdóttlr skoraði 10 gegn Portúgal í gær. Körfubolti Petrovic til Real Spænska félagið Real Madrid hefur náð samningum við einn besta körfuknattleiksmann heims, Júgóslavann Drazen Petr- ovic, um að hann leiki með fé- laginu að loknum Ólympíuleik- unum í Seoul 1988. Petrovic er aðeins 22 ára gam- all og þurfti sérstakt leyfi frá júg- óslavneskum yfirvöldum til að fara til Spánar. Reglur þar í landi segja að leikmenn verði að vera orðnir 28 ára til að fá að leika með erlendum félögum. Petrovic fær fjögurra ára samning sem er tal- inn vera tveggja miljón dollara (80 miljón ísl. kr.) virði. Hann leikur með Cibona Zabreb, einu besta körfuknattleiksliði í Evr- ópu, í heimalandi sínu. -VS/Reuter HM kvenna Stórieikur Koibrúnar ísland vann Portúgal 21 -16. Guðríður skoraði 10 mörk ísland sigraði Portúgal 21-16 í fyrsta leik sínum í C- heimsmeistarakeppni kvenna í handknattleik sem hófst á Spáni i gær. Leikið var í bænum Burri- ana, skammt frá Valencia, og að sögn Helgu Magnúsdóttur farar- stjóra voru áhorfendur mjög hlið- hollir íslenska liðinu. „Við vorum á heimavelli, þetta var í höllinni þar sem við fengum skellinn gegn Spánverjum f fyrri vináttu- leiknum í þessari viku,“ sagði Helga. ísland skoraði fyrsta markið en portúgölsku stúlkumar svöruðu með fimm mörkum, staðan skyndilega 1-5. En íslenska liðið lét þetta ekki brjóta sig niður, seig á hægt og bítandi og var kom- ið með forystu, 9-8, þegar flautað var til leikhlés. Seinni hálfleikur var jafn fram- anaf og staðan 14-14 um hann miðjan. Þá kom besti kafli ís- lenska liðsins - það skoraði fimm Sund Dómara- námskeið Dómaranámskeið f sundi verður baldið laugardaginn 8. nóvember kl. 13-19 í Reykjavík. Þar er um bóklegt nám að ræða. Verklegi þáttur nám- skeiðsins er fyrirhugaður við bikar- keppni 2. deildar í Sundhöll Hafnar- fjarðar 15.-16. nóvember og bikar- keppni 1. deUdar í SundhöU Reykja- vfkur 29.-30. nóvember. Þátttaka tU- kynnist á skrífstofu SSÍ, sími 83377, fýrir kl. 16 þann 7. nóvember. mörk í röð, 19-14, og gerði útum leikinn. Liðin skoruðu síðan til skiptis í lokin og lokatölur 21-16. Áð sögn Helgu átti Kolbrún Jóhannsdóttir stórleik í íslenska markinu. Hún varði 16 skot þannig að ísland fékk boltann, auk annarra. Guðríður Guðjóns- dóttir átti góðan leik, gerði 10 mörk, og Eiríka Ásgrímsdóttir kom á óvart í nýrri stöðu, í hom- inu. Mörk íslands: Guðríður Guðj- ónsdóttir 10(3v), Erla Rafnsdótt- ir 4, Ema Lúðvíksdóttir 3, Eiríka Blak HK efst HK tók forystu í karlaflokki f blaki f fyrrakvöld með því að sigra HSK 3-0 á Laugarvatni. Hrinurnar enduðu 15-11, 15-11 og 15-13. HK hefur 4 stig eftir 2 leiki og Þróttur Reykjavík er einnig með 4 stig. HK tapaði 0-3 fyrir Víkingi í kvennadeildinni á miðvikudags- kvöldið. Yfirburðir Víkings vom miklir og hrinurnar enduðu 15-2, 15-5 og 15-1. f dag fara þrír leikir fram í Hagaskóla. Kl. 14 leika ÍS og Fram í karlaflokki og kl. 15.15 Víkingur og KA. Kl. 16.30 hefst síðan kvennaleikur Víkings og KA. Á sunnudag leika ÍS og KA, bæði í karla- og kvennaflokki, í íþróttahúsi Háskólans. Karla- leikurinn hefst kl. 13.30 en kvennaleikurinn að honum lokn- um. -VS Ásgrímsdóttir 2, Arna Steinsen 1, Björg Gilsdóttir 1. í hinum leik riðilsins í gær vann Austurríki 15 marka sigur á Finn- um. Dönsku stúlkurnar sátu hjá en íslenska liðið mætir þeim ann- að kvöld, sunnudagskvöld. Tvö lið komast áfram úr riðlinum. -VS Úrvalsdeildin UMFN vann UMFN sigraði Fram 79-65 í úr- valsdeildinni í körfuknattleik f gærkvöldi en leikurinn fór fram f Njarðvík. Nánar verður sagt frá honum í þriðjudagsblaðinu. Á sunnudag eru tveir leikir í deildinni, Haukar-ÍBK í HSfnar- firði kl. 14 og Valur-KR f Selja- skóla kl. 20. -VS Kópavogur Aðalfundur hjá UBK Aðalfundur knattspyrnudeildar Breiðabliks verður haldinn laugar- daginn 8. nóvember kl. 14 í Þinghóls- skóla f Kópavogi. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf. Um kvöldið verður sfðan árshátfð Breiðabliks f Skútunni í Hafnarfirði. Uppskeruhá- tfð deildarinnar verður sfðan á sunn- udaginn kl. 15 f Þinghólsskóla og verða þar veittar viðurkenningar til einstaklinga og flokka. 6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 1. nóvember 1986

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.