Þjóðviljinn - 30.12.1986, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 30.12.1986, Blaðsíða 16
Aðalsími 681333 Kvöldsími 681348 Hplgarsími 681663 blÓÐVILllNN brlAil iH/im ir QO HacomKnr 1 DQA OOX IAIi iKlnA Amnnm ir Þriðjudagur 30. desember 1986 296. tölublað 51. örgangur SPJALDHAGI allar upplýsingar á einum stað SAMVINNUBANKI ÍSLANDS HF. Skipbrotsmönnum af Suðurlandi var vel fagnað af ættingjum og vinum við komuna til landsins á laugardaginn. Mynd E.ÓI. Suðurlandsslysið Orsakir ókunnar Fimm skipverjar komust lífs af. Sex létust. Sjópróffarafram 5. janúar Það er ákaflega erfitt að gera sér grein fyrir því hvers vegna skipið sökk, en það er hugsanlegt að sjór hafi komist í framskipið, sagði Guðjón Armann Einarsson rekstrarstjóri Nesskips, sem átti flutningaskipið Suðurland, í sam- tali við Þjóðviljann í gær. Sex skipverja á Suðurlandinu létust þegar skipið sökk í hafinu milli Islands og Noregs á jóla- dagsnótt, en fimm komust lífs af. Engin vissa hefur fengist fyrir orsökum slyssins. Ýmsar getgát- ur hafa komið fram, en sjópróf fara fram mánudaginn 5. janúar næst komandi. Suðurland fékk á sig brotsjó í vonskuveðri, þar sem það var á leið til Murmansk í Sovétríkjun- um með saltsíld. Mikil slagsíða komst á skipið og að stuttum tíma liðnum sökk það. Skipverjar tóku þá eftir að skipið lá mjög djúpt að framan og styrkir það þá skoðun manna að sjór hafi kom- ist í framskipið. Átta skipverjar komust í björg- unarbáta, en þrír þeirra létust í bátunum. Hinir fimm höfðust við í björgunarbát á elleftu klukku- stund við erfiðar aðstæður, þar til þyrla frá danska varðskipinu Vædderen kom þeim til bjargar. Mennirnir sem létust voru Haf- steinn Böðvarsson matsveinn, Hlöðver Einarsson yfirvélstjóri, Sigurður Ölvir Bragason háseti, Sigurður Sigurjónsson skipstjóri, Sigurður L. Þorgeirsson 2. stýri- maður og Svanur Rögnvaldsson bátsmaður. Þeir sem komust af voru Jón Snæbjörnsson 1. stýrimaður, Halldór Gunnarsson 1. vélstjóri, Kristinn Harðarson háseti, Júlíus Guðnason háseti og Anton Sig- þórsson viðgerðarmaður í vél.gg Syneta Allir skipverjar létust Ekki vitað hvað olli slysinu Sjópróf sem haldin voru á Eski- firði í gær vcgna sjóslyssins við Skrúð í mynni Fáskrúðsfjarð- ar á jóladag urðu í fáu til þess að útskýra orsakir slyssins. Enska tankskipið Syneta strandaði og sökk við Skrúð skömmu fyrir miðnætti á jóladag með þeim afleiðingum að allir skipverjar, sem voru tólf að tölu, létust. BjörgunarsiAitir voru kallaðar út og voru komnar á staðinn skömmu eftir miðnætti. Fyrsta líkið fannst á þriðja tíman- um um nóttina, en síðan hvert af öðru, utan lík þriggja manna. Syneta var á leið til Eskifjarðar til að sækja lýsi. Skipið var 1,260 tonn að stærð, enskt, en skráð í Gíbraltar. í sjóprófum koin fram að þegar skipverjar sendu fyrst út neyðarkall, töldu þeir sig strand- aða við Seley. Auk þess sem skip- verjar voru illa klæddir, munu björgunarvesti hafa verið þannig á þeim að þeir höfðu höfuðið í kafi. Einn skipverja var með lífs- marki þegar hann fannst, en maðurinn var meðvitundarlaus og reyndust lífgunartilraunir ár- angurslausar. -gg Sveitarfélögin Aforma hækkun útsvars Sveitarstjórnarmenn taka áskorunforseta ASÍum lœkkun útsvars illa. Hafnarfjörður, Seltjarnarnes og Garðabœr stefna að hœkkun. Eg mæli ekki með því að sveitarfélög lækki útsvarsp- rósentur sínar. Sveitarfélög víða út um landið eiga í miklum fjár- hagskröggum og þrjú þeirra hafa farið fram á aðstoð ríkisvaldsins vegna þessara erfiðleika, sagði Björn Friðfinnsson formaður Samtaka sveitarfélaga í samtali við Þjóðviljann í gær. Ásmundur Stefánsson forseti ASÍ hefur lýst þeirri skoðun sinni að sveitarfélög eigi að lækka út- svarsprósentu í kjölfar minni verðbólgu, en sveitarstjórnar- menn hafa tekið þeirri hugmynd illa. Raunar stefna a.m.k. þrjú sveitarfélög, Garðabær, Hafnar- fjörður og Seltjarnarnes, að því að hækka þetta hlutfall, en önnur virðast ætla að halda í horfinu. í Garðabæ var útsvarið á þessu ári 9,8%, en áformað er að hækka það í 10,2%. Miklar líkur eru til þess að Hafnarfjarðarbær hækki útsvar sitt úr 9,9% í 10,2%. Á Seltjarnarnesi er ráð- gert að útsvarið hækki úr 9,6% í 10%. í Reykjavík, Kópavogi, á Ak- Snoni Hjartarson látinn Snorri Hjartarson, skáld, er látinn. Hann iést á Borgarspít- alanum laugardaginn 27. des- ember, áttræður að aldri. Snorri Hjartarson fæddist 22. apríl 1906 að Hvanneyri í Borgar- firði. Hann fór til Kaupmanna- hafnar árið 1930 í listnám og það- an til Osló ári seinna. Fyrsta skáldverk Snorra var skáldsagan Höit flyver ravnen, sem hann skrifaði á norsku og kom út í Osló árið 1934. Vakti sú skáldsaga töluverða athygli í Noregi á sín- um tíma, en hefur ekki verið gef- in út í íslenskri þýðingu. Sr.orri Hjartarson er þekktast- ur fyrir ljóðabækur sínar og hafa þær skipað honum á bekk með bestu ljóðskáldum íslenskrar tungu. Ljóðabækur hans eru fjór- ar að tölu, Kvæði, sem kom út árið 1944 og var endurútgefin 1960, aukin og bætt. Á Gnita- heiði 1952, Lauf og stjörnur 1966 og Hauströkkrið yfir mér 1979. Snorri Hjartarson hlaut bók- menntaverðlaun Norðurlanda- ráðs árið 1981 fyrir ljóðabókina Hauströkkrið yfir mér. Snorri var bókavörður á Borg- arbókasafninu frá 1939-1943 en þá varð hann yfirbókavörður og gegndi því starfi til 1966. Hann var í stjórn Rithöfundafélags ís- lands 1945-1950. Hann var forseti Bandalags íslenskra listamanna 1957-1959. Snorri sótti yrkisefni sitt í nátt- úru íslands, sögu og þjóðlíf. Ein- læg og lágvær rödd hans, þar sem engu orði er ofaukið, mun lifa með þjóðinni. Snorri var svarinn andstæðingur hernámsins og tals- maður þeirra sem minna máttu sín í þjóðfélaginu. Hann greip ekki til stóru orðanna en þess þyngra vógu orð hans. -Sáf ureyri, á Akranesi, ísafirði og Neskaupsstað eru líkur á að út- svarsprósentan haldist óbreytt, en hún er á þessum stöðum frá 10,2% uppí 10,4%. Sveitarstjórnarmenn segja engin rök fyrir lækkun útsvars. Þeir benda á máli sínu til stuðn- ings lækkun ýmissa annarra tekjustofna, m.a. verulegan niðurskurð á framlagi ríkisins til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga. Þá er bent á mjög erfiða fjárhags - stöðu ýmissa sveitarfélaga. „Aðalatriði þess sem ég hef sagt er það að sé miðað við óbreytta útsvarsprósentu aukast útsvarstekjur sveitarfélaga um 35% á milli áranna 1986 og 1987, en á meðan er áætlað að tekjur almennings hækki um 20%. Ut- svarið hækkar þannig að raun- virði, sem þýðir að skattheimta eykst, verði útsvarsprósentan ekki lækkuð. Það er hægt að nota það aukna svigrúm sem skapast hefur vegna lækkunar verðbólgu til þess að bæta upp tap liðinna ára, en það er einnig hægt að nota það til þess að létta byrðar á almenningi," sagði Ásmundur Stefánsson um þetta. -gg

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.