Þjóðviljinn - 28.05.1987, Blaðsíða 15
Frakkland
ÍÞRÓTTIR
Evrópukeppni
Jafnt hjá
Bordeaux
Bordeaux gerði jafntefli gegn
2. deildarliðinu Ales í undanúr-
slitum frönsku bikarkeppninnar,
2-2.
Philippe Vercruysse og Jean-
Marc Ferreri skoruðu mörk Bor-
deaux, en öll fjögur mörkin
komu á síðustu 20 mínútum
leiksins.
Mörk frá Francois Brisson og
Eric Benoit tryggðu Marseille
sigur gegn Reims, 2-0 á heima-
velli.
-ibe
Ogþetta
ííka...
Hollendingar
hafa nú loks fundið völl fyrir úr-
slitaleik bikarkeppninnar, en
geta ekki ákveðið dagsetningu.
Borgarstjórinn í Eindhofen hefur
gefið leyfi fyrir því að leikurinn
fari þar fram, en ekki 3. júní eins
og áætlað var. Talsmaður hol-
lenska knattspyrnusambandsins
sagði að ef Eindhofen hefði ekki
tekið leikinn þá hefði hann þurft
að fara fram fyrir luktum dyrum.
Ajax og Den Haag, sem leika
til úrslita, eru þekkt fyrir ólæti
áhangenda sinna.
Sanngjam sigur Porto
Tvö mörk á þremur mínútum
Paulo Futre var maðurinn á bakvið sigur Porto.
Tvö mörk Porto á þremur mín-
útum tryggðu þeim sanngjarnan
sigur, 2-1 gegn Bayern Múnchen í
skemmtiiegum úrslitaleik Evr-
ópukeppni Meistaraliða.
Porto liðið sýndi mikla baráttu
og þrátt fyrir að vera lengst af
einu marki undir, gáfust þeir
aldrei upp.
Ludwig Kögl náði forsystunni
fyrir Bayern á 24. mínútu. Pflúgl-
er tók innkast, varnarmaður
skallaði boltann sem barst til
Kögl og hann kastaði sér fram og
skoraði hjá Jozef Mlynarczyk,
markverði Porto, sem var illa
staðsettur. Fyrsta mark Kögl á
keppnistímabilinu.
Leikurinn var nokkuð fjörugur
og bæði liðin fengu þokkaleg
færi. Hinir eldsnöggu framherjar
Porto sköpuðu oft hættu við
mark Bayern. Þjóðverjarnir voru
rólegri og byggðu spil sitt upp
mjög yfirvegað. Þeir áttu þó
þokkaleg færi. Lothar Mattháus,
sem stjórnaði spili þeirra, átti
þrumuskot úr aukaspyrnu sem
Mlynarczyk varði- vel.
Fyrri hálfleikurinnn var grófur
og nokkuð um ljót brot.
f sfðari hálfleik blómstraði lið
Porto. Þeir léku hratt og
skemmtilega, en gekk lengst af
illa að komast í gegnum þunga
vörn Bayern. Paulo Futre fór á
kostum í liði Porto og hann Iék
einn í gegnum alla vörnina, en
skot hans frá markteigshorni fór
rétt framhjá.
Það var loks á 78. mínútu að
Porto tókst að jafna. Juary Filho,
nýkominn inná sem varamaður,
komst í gegnum vöm Bayern og
gaf á Radah Madjer sem var á
markteig og skoraði með laglegri
hælspyrnu.
Þremur mínútum síðar náði
Porto forystunni og það voru
sömu mennirnir á bakvið það
mark. Madjer lék upp kantinn og
gaf góða sendingu fyrir á Filho
sem kom á fullri ferð og skoraði
með skoti í þaknetið.
Eftir mörkin voru möguleikar
Bayern úr sögunni. Þeir áttu
aldrei möguleika á að jafna og
Porto sótti meira á lokamínútun-
um.
Það var Paulo Futre sem var
maðurinn á bakvið þennan sigur
Porto. Ótrúleg tækni hans og út-
sjónarsemi skapaðí oft hættu við
þýska markið og greinilegt að
hann lagði línurnar í leik' liðsins.
Sigur Porto varsanngjarn. Lið-
ið lagði aldrei árar í bát og sýndi
að það hefur innanborðs góða
leikmenn og leikur skemmtilega
knattspyrnu. _|be
Xie Yuxin
heitin kínverskur knattspyrnu-
maður sem nú nýlega skrifaði
undir tveggja ára samning við
Hollenska liðið Pec Zwollw.
Hann er aðeins 18 ára.
Tvö mörk
Mjólkurbikarinn
Markaregn í 1. umferð
á tíu mínútum tryggðu Braselíu
sigurgegn Skotum í vináttulands-
leik í Glasgow, 2-0. Rai og Valdo
skoruðu mörk gestanna snemma
í síðari hálfleik.
Tyrkneska liðinu
Konyaspor tókst ekki að vinna sér inn
sæti í 1. deildinni þrátt fyrir stórsigur í
síðasta leik. Áhangendur liðsins voru
ekki ýkja hrifnir af þvi og gengu ber-
serksgang um bæinn, brutu rúður,
kveiktu í bílum og róðust á lögreglu-
menn. 29 manns slösuðust þar af
tveir lögreglumenn.
Atvinnusparkarar
á Grikklandi eru farnir í verkfall. Þeir
vilja að sjálfsögðu hærri laun, en auk
þess tekjur af getraunum og breyting-
ar á sölukerfi leikmanna. Tólf af sex-
tán liðum taka þátt i þessu verkfalli.
Valery Lobaovski
þjálfari sovéska landsliðsins í knatt-
spyrnu vill að fleiri leikmenn fái tæki-
færi til að leika á erlendri grund. Hann
hefur eins og við íslendingar mikinn
áhuga á landkynningu og telur að
leikmenn eins og Oleg Blokhin og Ri-
nat Dasayev ættu að fá að leika með
erlendum liðum.
Nils Lidholm
mun taka við ítalska liðinu Roma í
þriðja sinn samkvæmt fréttum í ítölsk-
um sportblöðum. Hann kemur í stað
landa síns Sven Görans Eriksson,
sem sagði af sér fyrir nokkru.
Breiðablik úr leik. Stórsigrar hjá Leiftri og Leikni
Það var svo sannarlega mark-
aregn í fyrstu leikjum 1. umferð-
ar Mjólkurbikarkeppnninnar.
Alls voru skoruð 73 mörk í 12
leikjum, sem gerir að meðaltali
rúmlega sex mörk í leik.
Breiðablik, sem leikur í 2.
deild, féll úr 1. umferð í Mjólkur-
bikarkeppninni. Þeir töpuðu
gegn Þrótti, 1-3 á gervigrasinu í
Laugardal.
Daði Harðarson náði foryst-
unni fyrir Þrótt á 10. mínútu.
Ragnar Rögnvaldsson jafnaði
fyrir Breiðablik, en Ásmundur
Helgason kom Þrótti yfir að nýju
eftir laglegt spil Þróttara.
Ásmundur gulltryggði svo sig-
urinn á 65. mínútu er hann
skoraði sitt annað mark, eftir að
hafa komist einn í gegnum vörn
Breiðabliks.
ívar Guðmundsson skoraði öll
fimm mörk Reynis Sandgerði í
stórsigri gegn Árvakri. Reynis-
menn röðuðu inn fimm mörkum
gegn aðeins einu marki gestanna.
Hann var frekar ójafn leikur
Leifturs og Neista. Leiftursmenn
sigraðu 10-0! Óskar Ingimundar-
son skoraði fjögur af mörkum
Leifturs, Guðmundur Sigurðsson
2 og Steinar Ingimundarson,
Ólafur Björnsson, Róbert Gunn-
arsson og Hafsteinn Jakobsson
eitt hver.
En tíu marka munur Leifturs var
ekki sá mesti. Leiknir sigraði Létti,
11-0! Jóhann Viðarsson skoraði
fernu, Atli Þór Þorvaldsson tvö og
Ragnar Baldursson, Magnús Boga-
son, Jóhannes Bárðarson, Gunn-
laugur Sigurbjörnsson og Kjartan
Guðmundsson markvörður eitt hver.
Það var aðeins í einum leik sem
kom til vítaspyrnukeppni. Njarðvík
og Afturelding skildu jöfn, 2-2.
Afturelding sigraði í vítaspyrnu-
keppninni, 5-4, skoruðu úr öllum vít-
um sínum.
Það var Sigurður ísleifsson sem
skoraði bæði mörk Njarðvíkur.
Auganblik sigraði Hafnir á Kópa-
vogsvelli, 3-1. Sigurður Halldórsson
skoraði tvö marka Augnabliks og
Viðar Gunnarsson eitt. Mark Hafna
skoraði Guðmundur F. Jónasson.
KS sigraði Tindastól á útivelli 3-1.
Ólafur Agnarsson skoraði tvö marka
Siglfirðinga og Jónas Björnsson eitt.
Guðbrandur Guðbrandsson skoraði
mark Tindastóls.
Skallagrímur sigraði Snæfell 3-2 í
jöfnum leik. Snæbjörn Óttarsson og
Ilafþór Hallsson skoruðu mörk Skall-
agríms, en Snæfellingar gerðu einnig
eitt sjálfsmark. Lárus Jónsson og
Baldur Þorleifsson skoruðu fyrir
Snæfell.
Huginn sigraði Austra, 2-1. Jóhann
Stefánsson og Þórir Ólafsson skoruðu
fyrir Huginn og Sigurjón Kristjáns-
son skoraði mark Austra.
Þá sigraði Grótta Hveragerði 1-2 á
útivelli. Páll Guðjónsson náði foryst-
unni fyrir Hveragerði í fyrri hálfleik,
en Gróttumenn skoraðu tvö mörk í
þeim síðari og tryggðu sér sigur.
Þróttur Neskaupstað vann öruggan
sigur gegn Hrafnkel. Marteinn Guð-
geirsson skoraði þrennu og Magnús
Jónsson eitt fyrir Þrótt. Jón Sveinsson
skoraði mark Hrafnkels.
Jóhann Sigurðsson skoraði þrennu
þegar Höttur sigraði Val Reyðarfirði
á útivelli, 1-4. Gauti Marínósson
skoraði mark Vals.
í dag verða svo síðustu leikirnir í
fyrstu umferð. Víkingar og Haukar
mætast á gervigrasinu kl. 14, Ármann
og Víkverji kl. 17. og fR og ÍK kl. 20.
-Ibe
Mjólkurbikarinn fyrsta umferð:
Hveragerði-Grótta 1-2
Augnabllk-Hafnir 3-1
Skallagrímur-Snæfell 3-2
Njarðvik-Aftureldlng 6-7
ReynlrS-Árvakur 5-1
Þróttur R-UBK 3-1
Leiknlr R-Léttir .11-0
Tindastóll-KS
Lelftur-Neisti
Valur Rf-Höttur 1-4
Huginn-Austri
brrStiur N-Hrafnkell
Jónason svffur eins og súpermann eftir að hafa verið brugðið. Mynd: E.OI
Fimmtudagur 28. maí 1967 ÞJÚOVIUMN - 8ÍOA 75