Þjóðviljinn - 17.06.1987, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 17.06.1987, Blaðsíða 9
Árbæjarsafn Margar nýjungar í sumar Fjórar nýjar sýningar í gangi og Reykjavíkurmynd Lofts Guðmundssonarfrá 1944 sýnd um helgar Ragnheiður Þórarinsdóttir borgarminjavörður: Safnið er alltaf að stækka og starfsemin að aukast og er vonandi góð heimild um sögu borgarinnar. Samkvæmisfatnaður frá stríðsárunum og grammófónninn góði. Nú í sumar sem undanfarið er Árbæjarsafn opið öllum þeim sem skoða vilja og kynnast þeim minjum og munum sem þar eru til sýnis. Á safninu er að finna hús og minjar sem varða byggingar- sögu og uppbyggingu Reykjavík- urborgar auk þess sem ýmislegt er þar að finna um mannlíf og bæjarbrag frá fyrri árum. Árbæjarsafn stækkar stöðugt, húsum fjölgar og gripum í eigu safnsins og á hverju vori þegar safnið opnar er þar eitthvað nýtt að sjá og skoða. í ár er engin undantekning frá þessu og af því tilefni gerði Þjóð- viljinn sér ferð í Árbæjarsafn til að kynnast þeim nýjungum sem safnið býður upp á í vor. Ragn- heiður Þórarinsdóttir borgarm- injavörður gekk með okkur um safnið og sýndi okkur fjórar nýjar sýningar sem opnuðu í vor. Hún byrjar á að fara með okk- ur í Prófessorsbústaðinn frá Kleppi sem er stórt og reisulegt hús efst í safninu og var opnað í fyrravor eftir miklar viðgerðir en húsið var flutt í Árbæjarsafn árið 1978. Þegar húsið var opnað voru settar þar upp sýningar á tveim aðalhæðum þess á neðstu hæðinni eru stofur frá ýmsum tímum og í einni stofunni er fatn- aður frá stríðsárunum, glæsikjól- ar og reiðföt ásamt grammófón með feiknarlegum lúðri og eru engar ýkjur að segja að hann taki yfir hálft herbergið. Á efri hæð- inni er sýning á ýmsum munum, útsaumi og postulíni svo og barn- aleikföngum frá ýmsum tímum. Kennir þar margra grasa og eru dúkkurnar, bílarnir og dúkku- vagnarnir heldur öðruvísi en börnin okkar í dag eiga að venj- ast. En Ragnheiður segir hrifn- ingu barnanna yfir þessum Ieik- föngum síst minni en yfir ný- tískudóti sem útbúið er ýms- uni tæknigræjum. Líkön og fornleifar Á efstu hæð Prófessorshússins, eða réttara sagt í risinu er svo ný sýning á fjórum líkönum af Reykjavíkurborg. Fyrsta líkanið er af Reykjavík árið 1786, - þá standa nokkur hús við Aðalstrætið og þar um kring, annars bara tún og móar. Ragnheiður leggur lóf- ann á mitt líkanið og segir: „Austurvöllurinn er svona um það bil hérna, en þetta svæði allt hlýtur á þessum tíma að hafa orðið ein forarvilpa þegar lækurinn stíflað- ist, sem gerðist víst nokkuð oft. Svo eru hér tvö líkön sem gerð voru í fyrra, annað er af allri Reykjavík árið 1887, en hitt bara Grjótaþorpið frá sama tíma. Fjórða líkanið á sýningunni er af Kvosinni frá árunum milli 1930 og 1944 en á líkaninu sjást bæði Hótel Borg og Hótel ísland. Þetta líkan fylgir ekki alveg ströngustu kröf- um um hlutföll og gerð en þetta er skemmtilegt líkan og gefur mynd af þessum hluta borgarinnar á þessum tíma.“ Ragnheiður sýnir okkur síðan aðra sýningu í safninu sem nýlega var sett upp f húsinu Þingholtss- træti 9. Er þetta sýning á myndum og munum frá fornleifauppgreft- rum í Reykjavík. Þarna er fjallað um uppgröftinn í Aðalstræti sem fram fór á árunum 1971-74 undir stjórn Else Nordahl, uppgröftinn í Suðurgötu 7 árið 1983 undir stjórn Kristínar Huldar Sigurðardóttur og einnig eru þarna sýni frá upp- greftrinum í Viðey sem nú stendur yfir undir stjórn Mjallar Snæsdótt- ur. „Þetta er nú mjög lítil sýning,“ segir Ragnheiður, „enda húsnæð- ið fyrir hana ekki stórt. Þetta er svona rétt til að drepa á að þetta hafi verið gert og hér er til dæmis einungis lítill hluti af mununum sem fundust í Aðalstrætinu. Stær- sti hluti þeirra er enn erlendis, en allir gripirnir voru sendir út til hreinsunar og forvörsiu og eru ekki komnir til baka.“ Við rengjum ekki Ragnheiði um stærð salarkynna í Þingholtss- træti 7, það er með minnstu hús- um. En sýningin er ákaflega skemmtileg engu að síður þó ekki sé hún stór. Þarna eru brot úr skartgripum og áhöldum frá ní- undu öld og síðar, ljósmyndir af vinnu við uppgröft og bæjarstæð- um sem fundist hafa, skýrt og skemmtilega upp sett. Slökkvibílarnir „Stærsta sýningin sem við opn- uðum nú í vor er sýning á gömlum slökkvibflum hérna í Eimreiðar- skemmunni,“ segir Ragnheiður um leið og hún opnar og kveikir ljós í skemmunni. Og það kveður við nýjan tón í skemmunni þar sem áður var bara eimreiðin og götuvaltarinn Briet. Nú er skemman full af gömlum slökkvi- bflum og tækjum viðkomandi slökkvistarfi og brunavörnum. „Vesalings eimreiðin er eigin- lega borin ofurliði hérna núna,“ segir Ragnheiður, „en þessir slökkvibflar eru skemmtilegir. Þessi hérna,“ og hún bendir á þann bflinn sem stendur í miðju húsinu, „hann er módel 1932 og var lengi aðalbfll slökkviliðsins og hefur verið í öllum helstu stór- brunum í borginni En það sem mér finnst merkilegast í sambandi við hann er það að hann hefur ver- ið varabfll allt fram til þessa árs og þess vegna höfum við ekki fengið hann fyrr. Hann fór síðast í útkall 1983, þá rúmlega fimmtugur, en hefur síðan verið til taks þegar nýi körfubfllinn hefur verið í viðgerð. Við hengdum hérna upp ljósmynd af nýja körfubflnum til saman- burðar að gamni okkar, þetta er svo merkilegt. Ég hugsa að gamli bfllinn sé orðinn þyngdar sinnar virði í gulli.“ Uppi á bílnum stendur slökkvi- liðsmaður í fullum skrúða tilbúinn í slaginn, númerið er meira að segja enn á bflnum, svo nýr er hann sem safngripur að ekki er enn búið að taka hann út af skrá. Tveir aðrir fornlegir slökkvibfl- ar eru í skemmunni, annar í eigu Þjóðminjasafnsins. Ragnheiður segir okkur að setja verði alla bí- lana í gang einu sinni til tvisvar á ári til að halda mótorunum í lagi, en þeir eru allir í toppstandi, upp- gerðir og fínir. í skemmunni er líka slökkvi- dæla stór og mikil, sem Reykjavík keypti eftir Hótel íslandsbrunann. „Ágúst Flygenring átti dæluna og vildi selja borginni hana, en borg- in vildi ekki kaupa vegna þess að hún þótti of afkastamikil, það var ekki talin þörf á svo stórri dælu. En um það leyti sem Hótel ísland brann var hún í geymslu í slökkvi- stöðinni í Tjarnargötu og þá var brotist þar inn og dælan tekin traustataki og notuð við slökkvi- starfið. Eftir það keypti borgin hana.“ Þarna í skemmunni eru ýmsir smærri hiutir sem tengjast slökkvi- starfi í borginni í gegnum tíðina, hjálmar af ýmsum gerðum, lúður sem notaður var til að kalla út slökkvilið, gaskútur sem sprungið hefur í bruna, rifinn upp úr og níður úr eins og hismi. Ragn- heiður segir allt hér vera tækni- minjar úr eigu borgarinnar nema einn slökkvibfllinn. „Það er komið nokkuð af tækj um hingað, þetta er orðinn svolítill vísir að tækjasafni, enda erum við hér í safninu farin að kalla skemmuna „Vélasalinn“ svona í daglegu tali.“ Allan hringinn í skemmunni hanga ljósmyndir og Ragnheiður segir sýninguna vera setta upp í fjórum þáttum. Fyrsti þátturinn nefnist „Inn úr kuldanum" og eru það myndir af eimreiðinni og götuvaltaranum Bríeti frá því að þær standa ryðgaðar og niðurnídd- ar úti. á túni og þar til þær eru komnar glampandi og fínar inn á safnið. Annar þátturinn nefnist „Gatnagerð" og eru þar ljósmynd- ir frá þeim tíma þegar farið var að taka gatnagerð í Reykjavík föstum tökum fyrir alvöru, eða upp úr 1912. Okkur leikur forvitni á að vita nánar af hverju götuvaltarinn heitir Bríet og Ragnheiður segir okkur að Knútur Siemsen sem á þeim tíma var í svokallaðri vega- nefnd hafi barist fyrir að auka tækni í gatnagerð og viljað kaupa götuvaltara. En hann hlaut bara stuðning eins nefndarmanna, og það var Bríet Bjarnhéðinsdóttir. Þegar valtarinn var svo keyptur þá gekk hann meðal almennings undir þessu nafni, og var jafnvel Knútsdóttir bætt við. Þegar svo var keyptur annar minni í viðbót þá var sá kallaður Laufey í höfuðið á dóttur Bríetar Bjarnhéðinsdótt- Ur. Þriðji þátturinn heitir „Járn- braut á íslandi" og eru þarna myndir og greinargerðir, ásamt kortum og áætlunum sem gerðar voru um járnbraut á suðurlands- undirlendinu. Átti að leggja járnbraut til Selfoss, og um Þrengslin og víðar. „Þetta voru mikil plön,“ segir Ragnheiður. „Það var komin nákvæm kostnað- aráætlun um járnbrautina, en hún var aldrei ætluð fyrir farþegaflutn- inga heldur einungis fyrir þungafl- utninga. En þetta tók allt svo langan tíma, og bflarnir komu í millitíðinni. Þar með var úti um járnbrautina." Síðasti þátturinn á þessari ljósmyndasýningu í skemmunni er svo „Hafnargerð" og eru þar myndir frá byggingu hafnargarða og þar skipar eimreiðin að sjálf- sögðu stóran sess. Smiðjan „Fjórða sýningin sem við höfum opnað í vor er svo smiðjan við Ár- bæinn. Þessi smiðja hefur verið iokuð fram til þessa og að hluta til notuð til að geyma muni sem ekki hafa verið til sýnis, en nú er búið að gera smiðjuna þannig úr garði að við getum opnað hana til sýnis. Þarna er sem sagt smiðja í gömlum stfl, verkfæri og aðstaða eins og gerðist fyrr á tímum. Það má reyndar segja að þetta sé lítil sýn- ing, en hún er mikilvæg að því leyti að hún fyllir upp í myndina af Ar- bænurn." Suðurgata 7 Þegar við komum til baka upp að Líkn, sem er hús það sem skrif- stofur Árbæjarsafns eru í, er kom- inn fjöldi barna inn á flötina og farin að hlaupa í skarðið í sólinni. Þar til hliðar stendur hús innpakkað í bárujárn og Ragn- heiður upplýsir að þetta sé Suður- gata 7, sem flutt var í Árbæjarsafn fyrir nokkru. Enn er ekkert farið að gera við húsið en það er komið nokkurn veginn á sinn stað í safn- inu. „Það þýðir ekkert að taka utan af því fyrr en allsherjarvið- gerð hefst,“ segir Ragnheiður, „þótt auðvitað sé frekar leiðinlegt að hafa það standandi svona hér rétt við innganginn. En það verður fallegt þegar það verður búið að gera það upp. Það á að standa hér í þyrpingunni, vegna þess að við erum að reyna að fá fram hér í safninu andstæðurnar dreifbýli/ þéttbýli. Árbærinn og kirkjan standa sér með túnum í kring yfir í brekkunni, en húsin sem flutt eru hingað koma í þyrpingu hér uppf- rá. Suðurgata 7 er reyndar ekki ný- jasta húsið sem við höfum fengið hér uppeftir, heldur er það braggi sem var fluttur hingað ofan af Hólmsheiði og var notaður til bátaviðgerða. Svo dreymir okkur um að koma upp íbúðabragga, og eigum reyndar grind og innan úr einum slíkum. En það er spurning hvenær hægt verður að koma hon- um upp.“ Við látum sólina skína á okkur innan um gömul húsin og grasið virðist grænna hér en niðri í borg- inni. Ragnheiður sýnir okkur ný Barnagull frá fyrri tíð. Það hefur líklega ekki verið amalegt að eiga dúkkuvagn eins og þennan fremst á myndinni. R 30007, módel 1932 og hefur verið í notkun allt fram á þennan dag. Þessi slökkvibíll fór síðast í útkall 1983 og hefur verið varaslökkvibíll síðan þar til hann fékk hvíldina nú fyrir skömmu. Bak við hann standa eimreiðin og annar forn slökkvibíll en í Árbæjarsafni er nú sýning á gömlum slökkvibílum og öðru sem viðkemur brunavörnum. Þingholtsstræti 9. Þar er nú sýning á munum og myndum frá fornleifauppgreftr- um í Reykjavík. Nýr tími og gamall tími. Æskan kemur i Árbæjarsafn til að leika sér á flötinni í sólskininu. Til vinstri er Suðurgata 7, ennþá pökkuð inn í bárujárn. tré sem búið er að planta innan safnmarkanna, bletti sem verið er að tyrfa og segist leggja mikið upp úr því að allt umhverfið í safninu sé snyrtilegt og hreint. „Okkur skortir að vísu fjármagn til að gera allt hér sem þyrfti að gera, bæði í umhverfinu og eins hvað varðar húsin sjálf, en meðan umhverfið er eins snyrtilegt og mögulegt er þá er vel.“ Vin innan borgarinnar Sem hún fylgir okkur að innganginum til að kveðja bendir hún okkur á innréttinguna í innganginum, en það er nýbúið að ganga frá henni og oðra hana. Þetta merkilega orð þýðir að mála viðaráferð á húsgögn og innréttingar og var mikið gert áður fyrr. Skáparnir í innganginum virðast oðraðir af mikilli list. „Eitt er í viðbót sem mætti nefna af nýjungum hér í safninu í sumar,“ bætir hún við áður en við kveðjum, „og það er að um helgar munum við sýna hér Reykjavíkur- mynd Lofts Guðmundssonar frá 1944. Eintakið sem við höfum er kannske ekki í hæsta gæðaflokki miðað við það sem nú tíðkast, en þessi mynd er mjög sérstök, þarna eru skemmtileg sýnishorn af bæjarlífinu og atvinnulífi í borg- inni. Einnig stefnum við að því í framtíðinni að sýna hér myndbönd sem tengjast Reykjavíkurborg og ýmsum þáttum þjóðlífsins.“ -ing 8 SÍÐA - ÞJÓÐVIUINN Miðvikudagur 17. júní 1987 Miðvikudagur 17. júní 1987 ÞJÓÐVIUiNN - SÍÐA 9

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.