Þjóðviljinn - 12.07.1987, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 12.07.1987, Blaðsíða 15
Hrossagaukurinn syngur / tilefni sumarsýningar Kjarvais að Kjan/aisstöðum Það var á sunnudagsmorgni vorið 1953. Ég var 10 ára og ný- búinn að eignast mitt fýrsta reiðhjól. Prófin í Austurbæjar- skólanum voru nýafstaðin, sól skein í heiði og það var eins og ekkert gæti skyggt á þessa fögru veröld þegar ég hjólaði niður Sól- eyjargötuna í áttina að Tjörninni. En skyndilega sá ég hvar mó- rauður fugl skreið undan birki- þykkninu við Hljómskálann og dró á eftir sér vænginn. Hann var kominn út á götuna þegar ég náði að handsama hann og hjarta hans barðist í lófa mér og hann stakk löngu og beinu nefinu út á milli fingra mér eins og hann væri að fela sig. Þetta var vængbrotinn hrossa- gaukur. - Hvað er þetta strákur, láttu mig sjá fuglinn, hefur orðið slys? - var kallað úr nærliggjandi leigu- bíl. - Kondu strax, hér þarf að bregðast skjótt við, við förum með fuglinn á Slysavarðstofuna á stundinni! Þetta var meistari Kjarval. Hann var goðsögn í borginni, ég hafði séð hann í Austurstrætinu og farið á eina sýningu hjá honum í gamla Listamannaskálanum og bar takmarkalausa virðingu fyrir manninum. Og fyrr en varði hafði ég gleymt nýja hjólinu og var sestur uppí leigubíl með meistara Kjarval á leiðinni á slys- avarðstofuna. Fuglshjartað barðist um í lófa mér og meistaranum var mikið niðri fyrir á leiðinni: - Þetta er þjóðarskömm, sagði hann. - Hingað koma fuglarnir um langan veg og strangan yfir hafið til þess að færa okkur söng sinn og sumar, og hvað bíður þeirra svo? Kettir sem hafa verið stríðaldir yfir veturinn en fara á flakk á vorin og sitja í launsátri fyrir hverjum nýkomnum fugli. Og hugsaðu þér, hélt hann áfram. - I stað þess að taka hér fagnandi á móti þessum góðu gestum eru íbúar landsins farnir að flýja land á vorin: heilu flug- farmamir fara nú með Loft- leiðum til Mallorca til að flýja hið íslenska vor á meðan fuglarnir koma og bjóða okkur söng sinn. Nei. Það eru kettimir sem ættu að fara til Mallorca á vorin. Það ætti að skylda Loftleiðir til þess að flytja alla ketti á íslandi til Mallorca á hverju vori. Þá ættu fuglarnir það ekki á hættu eftir stranga ferð yfir hafið að lenda í gini kattarins en gætu óáreittir sungið lífinu dýrðarsöngva sína á hverri skógargrein... Við vomm komnir á Slysa- varðstofuna: - Því miður, því miður, sögðu læknarnir í hvítum sloppum með hvítar kollhúfur, gúmmíhanska og grisju fyrir vit- unum. - Ég vil tala við yfirlækninn, sagði Kjarval og gaf í skyn að hér væri ekki um neitt venjulegt slys að ræða um leið og hann benti á hrossagaukinn sem kúrði í lófa mínum. - Farið með fuglinn til Finns fuglafræðings, sagði yfirlæknir- inn, - hann veit best hvemig meðhöndla á fugla... Hér varð engu tauti við komið og við sáum ekki annað ráð en að taka stefnuna upp í Lönguhlíð til Finns. En Finnur var uppi í Þrastaskógi, og þá vom góð ráð dýr. - Við fömm með fuglinn í Þrastaskóg og finnum Finn, sagði Kjarval, og virtist hvorki hafa áhyggjur af tímanum né tifinu í mæli leigubflstjórans. En þá varð mér hugsað til nýja reiðhjólsins á Sóleyjargötunni, og eftir nokkurt hik tjáði ég meistaranum að ég gæti ómögulega komið með í Þrastaskóg. Var þá hætt við skógarferðina, og mér var falið það vandasama verkefni að bjarga þjóðinni frá smán sinni og koma fuglinum til heilsu. Við ókum upp á Leifsgötu og Kjarval gaf mér ríkulegar Ieiðbeiningar um það hvernig ég ætti að fóðra fuglinn á ormum og flugum og vernda hann fyrir öllum illum köttum. Sómi íslands var í veði, og ég veit ekki hvort hjartsláttur minn eða fuglsins var örari þegar ég kom með hann inn á stofugólf til mömmu og heimtaði besta viðurgjörning. Ég tíndi orma og flugur og gerði allt hvað ég mátti, en smánin var þegar yfir okkur: á öðrum degi var hrossagaukurinn dáinn. Þessi saga af fyrstu kynnum mínum af Jóhannesi Kjarval kom mér í hug þegar ég sá sýningu þá á verkum hans, sem nú hangir uppi á Kjarvalsstöðum. Nærri 100 verk, þar af 43 teikningar og skissur, sem ekki hafa verið sýnd- ar áður opinberlega. Sjaldan hef ég skynjað náttúrubamið Kjarval betur en á þessari sýningu, og það kraftaverk sem hann gerði þjóð sinni. Hann var eins og hrossag- aukurinn sem leggur á sig erfitt flug yfir hafið til að færa okkur söng sinn, og samkennd Kjarvals með fuglinum á Sóleyjargötunni var engin uppgerð: Hann skynj- aði þetta sinnuleysi mannanna betur en ég skildi þá af eigin reynslu: að láta kettina leika lausum hala á meðan fólkið flúði fuglasönginn til framandi landa á hinum nýju flaggskipum lýðveld- isins, Gullfaxa og Skinfaxa. Kjarval var í list sinni fyrst og fremst náttúrubarn, og því hefur Sunnudagur1 fræðimönnum gengið erfiðlega að koma honum í flokk og kerfi samkvæmt hefðbundnum aðferð- um. Hann var mun skyldari hrossagauknum en kúbistunum og symbolistunum og rætur listar hans liggja allar í djúpri náttúru- upplifun hins óskólagengna barns. Samkennd hans með náttúrunni kemur ekki bara fram í myndum hans, heldur einnig í skrifum hans, og það þarf enginn að spyrja að því, hvaða augum Kjarval hefði litið þau náttúru- spjöll sem hér er nú verið að vinna á hvölum og selum í nafni vafasamra vísinda. Því eins og segir í Hvalasögu Kjarvals, þá gerðust hvalir verndarar báta fyrir illfiskum eftir að Bakkab- ræður og þeirra kyn ákváðu að gefa hvalavöðunni líf. Og í veiði- sögu þeirra Hvalreks kóngs frá Ljóshæringjalandi og Málara konungs í Fymafurðu var móral- linn fólginn í orðum Hvalreks eftir að veiðibráðinni hafði verið forðað undan veiðimönnunum: „Allvel hefur veiðiförsjá tekist, er vér fórum í dag, og hefim vjer veitt með góðum árangri - hefim vjer veitt þat et stóra óþekta dýr í okkar eigin náttúru -þat er alt vill drepa og undir sig leggja um ger- valla jörð, -þat er engu vill hlífa - og ekki kann að sjá gleði og gagn annarra lifandi skepna utan sjálfs sín. “ (úr Fornmannasögu Kjarvals) Á meðan kettirnir leika laus- um hala eiga hrossagaukarnir undir högg að sækja. En þeir syngja samt. -ólg júlí 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.