Þjóðviljinn - 20.09.1987, Blaðsíða 21

Þjóðviljinn - 20.09.1987, Blaðsíða 21
And rés Gunnarsson vélstjórttekinn tallen hann setti fyrstur mannafram hugmynd að smíði skut- togara fyrir rúmumfjörutíu drum, Líkanað skipinuernúd Sjóminjasafn- inu í Hafnarfirði sagt með þetta eins og Kólumb- usareggið. Hvenœr fórstu utan til að koma hugmyndinni á framfœri? Þegar það var ljóst að það var ekki nokkur leið að fá viðbrögð hér heima fór ég til Englands. Það var í febrúar 1946. Eg hitti Þórarin Olgeirsson í Grimsby þaðan sem hann gerði út marga togara. Hann vildi allt fyrir mig gera og sagði að þetta væri það sem koma skyldi, og mætti ég bera sig fyrir því. Hann hjálpaði mér við að koma hugmyndinni á framfæri. Það var sótt um einka- leyfi, en það var aldrei hægt að fá stafkrók um það síðan. En ekki löngu eftir þetta voru Englend- ingar komnir með skuttogara. Og sýndist þér útfœrslan vera svipuð og þín? Já, nema mér fannst hún verri í mörgum tilfellum. Til dæmis var allt galopið að aftan hjá þeim, og þar gat mannskapurinn runnið út. Samkvæmt minni hugmynd er rennunni lokað og unnið að fisk- inum undir dekki. Svo fóru þeir síðar að finna það út hjá Slysa- varnafélaginu að hafa mennina í spotta, en ekkert minnst á að hafa skipin yfirbyggð. Kjaftur fyrir boggingana Ég hugsaði mér að hlerinn væri lokaður nema rétt á meðan troll- ið er tekið, og það er sérstakur kjaftur sem gleypir boggingana þegar þeir koma, en síðan er híft úr trollinu fram yfir boggingana og inn á dekk. Það var nú mín meining. Þetta nefndi ég við skipstjórana á sínum tíma sem aukahugmynd, en auðvitað má líka hífa eins og gert var á síðu- togurunum, poka fyrir poka. Það er ekkert í veginum fyrir því, en náttúrlega er þetta miklu fljót- legra eins og ég hugsaði mér það. Og nú er módelið að skuttogar- anum komið á viðeigandi stað hér á Sjóminjasafninu? Já, ég kom því hingað 25. júní í ár, og má eiginlega segja að ég hafi gefið það Sjóminjasafninu. Hér verður það til frambúðar og kemur ekki í hendurnar á mér meir. Módelið er búið að vera á þessu formi síðan Sigurður Jóns- son módelsmiður gerði það fyrir rúmum fjörutíu árum, en Sigurð- ur gerði módel að mörgum skipum á sinni tíð. Meðal annars að töluverðum hluta Eimskipaf- élagsskipanna svo og varðskip- anna. Hann smíðaði skrokkinn á mínum skuttogara, en annað gerði ég, og þá fyrst og fremst það sem snýr að trollinu. HS „Skagfirskur kAmyndaleika Viðtal Halldórs Laxness við Bill Cody, Vestur- íslendinginn sem sumir telja að hafi verið faðir Ron- alds Reagans forseta M. Bill Coðy. Eftir Halldór Kiljan Laxness. Los Angeles 4. nóv. 1927. 1 þessum furðulega heimi kvik- myndanna, þar sem reglur virð- ast reikular fyrir því hvernig menn komist til frægðar, verður maður einatt dolfallinn. Rudolph Valentino var truck driver — ók vörubíl, Lon Chaney var snikk- ari. Aðrir flugu úr rakarastof- unni upp á stjörnuhimininn. Og svo framvegia. Hjer er fólk, sem stjórnar heiminum að meira eða -íninna leyti með kúnstum sínum. Ef menn bera gæfu til að ótta sig á því, að grundvallaratriðið í Ifol- lywood er ekki snildarandi, held- ur busincss, og að Iíollywood sjer ekki metnað sinn í því, að framleiða list, heldur vöru, þá geta menn lifað og dáið öruggir í vissu þess, að þeir lenda aldrei út úr samræmi við skrípaleikinn. — Jeg hefi ekiy orðið þess var að neitt hukl ætti sjer stað um þessa hluti hjer í Hollywood. List gildi kvikmyndarinnar hlýtur að standa í órjúfanlegu sambandi við uppeldi almennings. Það er uppeldi almennings, sem setur kvikmyndaframleiðslunni allar regiur. Mismunurinn á Banda- ríkja-filmunni og t. d. þýsku filmunni, er skýranlegur aðeins við athugun á mismun almennrar upþlýsingar þessara landa, og því, sem við hana er bundið Af öllu því merkilega fólki, sem jeg hefi kynst síðustu vik- urnar, varð mjer einna furðuleg- ast við að kynnast Bill Cody. Hann er heimsfrægasti kúreki Astranu, sem sarua nonum og biðja hann um stefnumót. Þegar við hittumst, var hann hvorki með langa keyrið sitt nje kúfinn, heldur klæddur eins og venjulegur Broadway-maður, glæsimenskan og kurteisin sjólf. Þegar honum var sagt, að jeg kæmi frá Islandi, þá varð hann allur að einu brosi og sagði: „Þaðan kem jeg líka". Jeg hjelt í fyrstu, að maður- mn væri einhvernveginn að draga dár að mjer, en jeg sann- færðist bráðlega um, að svo var ekki. Bill Cody er Islendingur. Af verslunarástæðum hefir hann löngu kastað hinu útlenda nafni sínu, og tekið sjer lista- mannsheitið Cody, sem hann notar einnig hversdagslega. Þeir eru tveir <ungir íslenskir þræður, komnir af bláfátæku fólki norður f Canada, og báðir hafa skapað sjer frægt nafn í hinu miskunnarlausasta sam- kepnislandi heimsins, innan við þrítugsaldur. Hinn bróðirinn er Emile Walters, hinn víðkunni listmálari, sem þegar er mörg- pm kunnur heima af blaðaum- mælum. Þeir eru allóllkir, bræðumir, Emile er dulur maður og djúp- ur, með rúnir á andlitinu, þótt ungur sje, enda átt manna bar- áttusamasta æsku og barist við Ameríku alla, eins og hún legg- ur sig, og haft sigur. Cody er Ijós, ljúfur og ör, og geislar af þessari notalegu bjartsýni Banda víkjamannsins. Fyrir nokkrum kvöldum var jeg heima hjá Cody, f hinum glæsilega bústað hans í Bur- banks, hæðunum fyrir ofan Hol- lywood. Eftir kvöldverðinn höfð um við langt samtal um ýms þugstæð efni. Mest var talað um Jcvikmyndalistina á íslandi. — Cody hefir samið og leikið milli ituttugu og þrjátíu myndir • ýmist á eigin reikning eða fyrir tilstilli Pathe-fjelagsins. Kann jeg að nefna þessar og hafa þær verið sýndar um allan heim: „Arizona Whirlwind", „King of the Saddle“, „Born to Battle“, „Galoping Cowboy“, „Fighting Smile“, „Riders of Mystery". Cody notar sem sagt óldrei ,vopn í myndum sinum, nema1 keyrið sitt; drekkur aldrei ij þeim nje reykir; og hefir þaðj Los Angeles 4. nóv. 1927. í þessum furðulega heimi kvik- myndanna, þar sem reglur virð- ast reikular fyrir því hvernig menn komist til frægðar, verður maðureinatt dolfallinn. Rudolph Valentino var truck driver - ók vörubfl. Lon Chaney var snikk- ari. Aðrir flugu úr rakarastofunni upp á stjörnuhimininn. Og svo framvegis. Hjer er fólk sem stjórnar heiminum að meira eða minna leyti með kúnstum sínum. Ef menn bera gæfu til að átta sig á því, að grundvallaratriðið í Hollywood er ekki snildarandi heldur business, og að Holly- wood sjer ekki metnað sinn í því, að framleiða list, heldur vöru, þá geta menn lifað og dáið öruggir í vissu þess að þeir lenda aldrei út úr samræmi við skrípaleikinn. - Jeg hefi ekki orðið þess var að neitt hukl ætti sjer stað um þessa hluti hjer í Hollywood. Listgildi kvikmyndarinnar hlýtur að standa í órjúfanlegu sambandi við uppeldi almennings. Það er uppeldi almennings sem setur kvikmyndaframleiðslunni allar reglur. Mismunurinn á Banda- ríkja-filmunni og t.d. þýsku fil- munni er skýranlegur aðeins við athugun á mismun almennrar upplýsingar þessara landa og því sem við hana er bundið. Af öllu því merkilega fólki sem jeg hefi kynnst síðustu vikurnar, varð mjer einna furðulegast við að kynnast Bill Cody. Hann er heimsfrægasti kúreki (Cowboy). Jeg minnist þess að hafa sjeð hann nokkrum sinnum á ljereft- inu með langa keyrið sitt og barð- astóra kúfinn, bæði í Evrópu og hjer í Ameríku. Hann er hár og grannur, ljóshærður og drengi- legur og bros hans mjög heil- landi. Hann ber ekki vopn; en er ræningi ætlar að skjóta hann með skammbyssu, þá slöngvar hann langa keyrinu sínu á dónann, svo að endinn á því vefur sig um hendina, sem byssunni heldur. Síðan á hann allskostar við ræn- ingjann. Allir drengir eru vinir hans, hvar sem er á hnattkúlunni; og jrað eru stúlkur í Ástralíu sem skrifa honum og biðja hann um stefnumót. Þegar við hittumst, var hann hvorki með langa keyrið sitt nje kúfinn, heldur klæddur eins og venjulegur Broadway-maður, glæsimenskan og kurteisin sjálf. Þegar honum var sagt að jeg kæmi frá íslandi, þá varð hann allur að einu brosi og sagði: „Þaðan kem ég líka.” Jeg hjelt í fyrstu að maðurinn væri einhvernveginn að draga dár að mjer, en jeg sannfærðist bráð- lega um að svo var ekki. Bill Cody er íslendingur. Af verslunarástæðum hefir hann fyrir löngu kastað hinu út- lenda nafni sfnu og tekið sjer list- amannsheitið Cody, sem hann notar einnig hversdagslega. Þeir eru tveir ungir íslenskir bræður, komnir af bláfátæku fólki norður í Canada, og báðir hafa skapað sjer frægt nafn í hinu miskunnarlausasta samkepnis- landi heimsins, innan við þrítugs- aldur. Hinn bróðirinn er Emile Walters, hinn víðkunni listmálari, sem þegar er mörgum kunnur heima af blaðaummæl- um. Þeir eru allólíkir bræðurnir. Emile er dulur maður og djúpur, með rúnir á andlitinu, þótt ungur sje, enda átt manna baráttusam- asta æsku og barist við Ameríku alla eins og hún leggur sig, og haft sigur. Cody er ljós, ljúfur og ör, og geislar af þessari notalegu bjartsýni Bandaríkjamannsins. Fyrir nokkrum kvöidum var jeg heima hjá Cody, í hinum glæsilega bústað hans í Bur- banks, hæðunum fyrir ofan Hollywood. Eftir kvöldverðinn höfðum við langt samtal um ýms hugstæð efni. Mest var talað um kvikmyndalistina á íslandi. - Cody hefur samið og leikið milli tuttugu og þrjátíu myndir - ýmist á eigin reikning eða fyrir tilstilli Pathe-fjelagsins. Kann jeg að nefna þessar og hafa þær verið sýndar um allan heim: „Arizona Whirlwind”, „King of the Sa- ddle”, „Born to Battle”, „Galop- ing Cowboy”, „Fighting Smiie”, „Riders of Mystery”. Cody notar sem sagt aldrei vopn í myndum sínum, nema keyrið sitt; drekkur aldrei í þeim nje reykir; og hefir það orðið geysilegt verslunaratriði, þannig, að myndir hans hafa hlotið með- mæli frá sterkum vígjum þeirra, sem vaka yfir siðum æskulýðsins. - Hann er þannig ímynd siðferði- lega fullkomins kúreka í augum klerkastjettarinnar og voldugra mæðrasambanda. Hann fær tugi brjefa daglega víðsvegar að úr heiminum, frá aðdáendum. Á hann fullar kistur af sendibrjefum, ýmist frá pilt- um, sem vilja verða karlar í krap- inu eða stúlkum sem játa honum ást sína; stundum slæðist með brjef frá sjervitrum ljósmynda- safnendum. Kona Codys annast brjefaskriftir hans; mörgum brjefum lætur hann svara og sendir áritaða einkamynd af sjer. Talið barst að fslandi. Cody hefir lagt stund á að kynna sjer bæði fornsögurnar og íslenskar þjóðsögur. Einkum er hann hrif- inn af þjóðsögum okkar og æfint- ýrum. Jeg er ákveðinn í því að skreppa til íslands innan skamms, til þess að safna mjer efniviði í nýjar myndir, sagði Cody. - Svo er mál með vexti, að jeg er um það bil að leggja kúrek- ahattinn á hilluna fyrir fult og allt, og fara að gefa mig við alvar- legri viðfangsefnum. Jeg get naumast hugsað mjer nokkurn stað á jörðunni, sem gæti blásið manni f brjóst frumlegri hug- myndum, en ísland, með hinni tröllauknu náttúru sinni og sjer- stæðu þjóð. Frá íslandi á jeg mín- ar skemtilegustu endurminning- ar. Það var þar, sem jeg lærði fyrst að sitja hest. Jeg var sendur til ættlands foreldra minna sjö vetra gamall drengur, munaðar- laus. Jeg dvaldi á íslandi á annað ár. Jeg er nú því miður búinn að týna íslenskunni minni alveg nið- ur - nema einu orði, og það er harðfiskur. En jeg er viss um, að jeg myndi læra hana á skömmum tíma aftur. Jeg spurði, hvar hann hefði dvalið á íslandi. - Jeg átti heima á Húsabakka við Sauðárkrók, sagði Bill Cody, og gaf mjer lýsingu af staðháttum kringum Sauðárkrók, svo að mig furðaði á nákvæmninni. - Um vorið var ég látinn smala á hest- baki upp um fjöll og firnindi. Og mjer var sagt, að jeg mætti eiga alla ullarlagða, sem jeg fyndi úti um hagana og leggja þá inn í kaupstaðinn og taka út á þá, hvað sem mig lysti. Og um sumarið fór jeg með hagalagðana mína í kaupstaðinn og fjekk nokkra aura út á þá. Og jeg rannsakaði allar vörurnar í búðinni, til þess að sjá, hvað jeg ætti helst að fá mjer fyrir aurana mína. Og loks- ins keypti jeg mjer grænan hatt með stórum börðum og dálítilli fjöður upp úr. Og þegar jeg kom heim, þá hlógu allir strákamir í sveitinni. Ef þessi endurminning er ekki íslensk, hugsaði jeg, þá veit jeg ekki, hvað íslenskt er. ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 21

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.