Þjóðviljinn - 27.09.1987, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 27.09.1987, Blaðsíða 3
Denni - von mannkynsins? Dílararnir vildu engan díl Dægurmála- deild Eitt ónefnt vikublaö - gjarnan bendlað viö æsifrétta- mennsku hefur átt frekar erfitt uppdráttarundanfarið: Frétta- flutningurinn þykir ekki mikið spennandi, „gömlu haukarn- ir“ hverfa á brott hver á fætur öðrum og þar f ram eftir götun- um. Semsagt: Harðlífisfrétta- mennskan hefur verið alls ráðandi. En nú stóð til að hrista af sér slenið: fara ofan í saumana á eiturlyfjamarkað- inumíeittskipti fyriröll. Ekkert skyldi til sparað því nú áttu lesendurnir að taka við sér aftur. Og þess vegna þurfti nátt- úrlega viðtal við einhvern af háköllunum í þessum bransa - viðtal við einhvern hinna stóru sem standa í inn- kaupum og dreifingu. Útsendarar vikublaðsins ónefnda brugðu sér m.a. á einn ágætan veitingastað í borginni sem hefur það orð á sér að þangað komi margir af helstu kaupsýslumönnum á þessu sviði. Okkar menn létu mannalega eins og hæfði og gáfu sig á eintal við nokkra kaupahéðna. Viðtal, sögðu þeir, við viljum krassandi við- tal. Dílararnir hristu hausinn yfir þessari málaleitan og kom fyrir ekki þótt þeim byðist dá- goð summa: 350.000 krónur fyrir viðtalið! Engin alminlegur díler, sagði einn dílerinn, lætur hafa sig útí sona lagað... Og, bætti hann við með óljóst bros á vör, - þá myndi hann bara gera það til að ræna ykk- ur... Útsendarar vikublaðsins hurfu frekar rislágir á braut og úttektin um eitrið er ekki kom- in ennþá.B Ríkisútvarpið ætlar ekkert að gefa eftir í útvarpsstöðvastríð- inu. I vetur verður bryddað upp á ýmsum nýjungum, einkum á Rás 2. Búið er að ákveða að stofna „Dægurmáladeild“ sem á aö hafa umsjón meö morgunútvarpi Rásarinnar og sérstöku síðdegisútvarpi, ekki ósvipað því sem Hallgrímur Thorsteinsson hefur stýrt af myndugleik á Bylgjunni. Til þess að stjórna þessum breytingum á Rásinni og halda utan um dægurmála- deildina er enginn annar mætturtil leiks á ný hjá gömlu gufunni en Stefán Jón Haf- stein sem alið hefur manninn i Bandaríkjunum undanfarin misseri.B Njóttu ferðarinnar! Aktu eins og þú vilt að aðrir aki Góðaferð! tf|$FERÐAR Myndlist Sigurður Örlygsson í galleríinu SigurðurÖrlygsson hefur opnað sýningu í Gallerí Svart á hvítu við Óðinstorg. Sigurð- ursýnirað þessu sinni 12 olíu- og akrílmálverk. Sigurðurer fæddur í Reykjavík árið 1946, og stundaði nám við MHÍ á árunum 1967-71, og héltsíð- an utantilnáms. Hann sótti Det Kongelige Danske Kunstakademi hjá pró- fessor Richard Mortensen. Eftir það fór hann til Ameríku og nam við Art Student Leauge of New York árin 1974-75. Sigurður hef- ur verið meðlimur í FÍM síðan 1973 og var formaður í eitt ár. Hann var einn af stofnendum og eigendum Gallerí Sólon íslandus og Gallerí Gangskör. Þá var hann kennari við Myndlista- og hand- íðaskóla fslands árin 1980-86. Helstu sýningar hans í Reykjavík eru Unuhús (71), Norræna húsið (72 og 76), Gallerí Sólon íslandus (72), Kjarvalsstaðir (78), Djúpið (81), Asmundarsalur (84) og Kjarvalsstaðir (86). Hann hefur einnig tekið þátt í fjölda samsýn- sýnir inga. Þetta er því í fyrsta skipti sem Sigurður Orlygsson sýnir í Gallerí Svart á hvítu og fróðlegt að sjá, hvað hann hefur að segja veggjunum þeim. Gallerí Svart á hvítu er opið frá 14-18 alla daga, nema mánudaga. Síðasti sýningardagur er 11. okt- óber. -ekj. Síðan Indriði G. Þorsteins- son kom á Tímann til að leggja línuna hafa verið tekin þar upp vinnubrögð sem um margt eru skondin. En það sem einkennir blaðið þó mest er hin yfirgengilega foringja- dýrkun. Þeir Steingrímur og Halidór mega varla ganga yfir götu eða hnerra í þriggja manna hópi öðruvísi en að allt heila klabbið sé komið á for- síðu Tímans daginn eftir og oftast í leiðarann líka. En sjaldan hefur Indriði hneigt sig jafn rækilega fyrir Denna og einn daginn nú í vik- unni þegar leiðari Tímans hét: „Von mannkynsins" og hófst á orðunum: „Stein- grímur Hermannsson fiutti ræðu...“B Tími/Lystiskáli, gert í Malmö, 1985. Myndlist HMI Rúrí sýnir á Kjarvalsstöðum Tími - heitir myndlistarsýning sem Rúrí opnar nú um helgina að Kjarvalsstöðum. Þar er um að ræða tvö umhverfisverk, grafískar dókúmentasjónir, Ijósmyndir og teikningar. Jafnframt hefur Rúrí látið prenta 40 síðna bók með lit- myndum, sem geymir heim- ildir um þau verk sem hún hef- ur verið að vinna að heima og erlendis á undanförnum árum. Tími, sem sýningin dregur nafn sitt af, byggist á fimm verkum, sem öll hafa verið áður á sýning- um erlendis, í Malnrö, Kaup- mannahöfn og Helsinki. Ekkert þeirra hefur áður verið sýnt hér heima fyrr en nú. En Rúrí fékk boð um að taka þátt í stórum sýn- ingum, þar sem áherslan var lögð á umhverfislist. Þetta er sjöunda einkasýning Rúríar, hún hefur að auki tekið þátt í yfir 50 samsýningum í ellefu þjóðlöndum. Að loknu námi í Myndlista- og handíðaskóla ís- lands, stundaði hún framhalds- nám í Hollandi, þar sem hún m.a. stóð að rekstri gallerís LÓU í Amsterdam. Einnig hefur hún starfað að félagsmálum mynd- listarmanna, var t.d. ein af stofn- endum Nýlistasafnsins, tók þátt í skipulagningu sýningarinnar Experimental-environment, sem haldin var á Korpúlfsstöðum 1980. Er núverandi formaður Myndhöggvarafélagsins í Reykjavík. Sýningin að Kjarvals- stöðum stendur til 11. október. Hún er opin alla daga frá kl. 14- 22. -ekj. Rúst, gert í Kaupmannahöfn 1984. Listamaðurinn er með á myndinni. Sunnudagur 27. september 1987 JÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.