Þjóðviljinn - 03.02.1988, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 03.02.1988, Blaðsíða 8
Laufey Sigurðardóttir, fiðluleikari Háskólatónleikar í dag Gítar og fiðla Fjórðu Háskólatónleikarnirá vormisseri verða haldnir í Norræna Húsinu í dag kl. 12:30- 13:00. Á tónleikunum munu Páll Eyjólfsson gítarleikari og Laufey Sigurðardóttir fiðluleikari flytja verk eftir Vivaldi, Paganini, Ibert og Takacs. Páll Eyjólfsson Iærði gítarleik hjá Eyþóri Þorlákssyni og á Spáni hjá Jose Luis Gonzales. Hann kennir nú gítarleik í Reykjavík. Laufey Sigurðardóttir er Reykvíkingur. Þetta eru fyrstu tónleikamir sem þau halda sam- an. Tónleikanefnd Háskólans Konur, karlar, fuglar og fiskar Harpa Björnsdótti sýnir í Gallerí Borg Á morgun kl. 17:00 opnar Harpa Björnsdóttirsýningu í Gallerí Borg Pósthússtræti 9. Harpa Björnsdóttir er fædd 1955 og lauk námi frá Nýlista- deild Myndlista- og handíðaskóla íslands 1981. Hún málar og vinn- ur í grafík myndir af konum og körlum, fuglum og fiskum, sem stundum renna saman við mann- skepnuna. Harpa hefur tekið þátt í fjölda samsýninga og einnig haldið einkasýningar bæði hérlendis og erlendis, síðast hér í Gallerí Borg í september 1966 Sýning Hörpu nú er 5. einka- sýning hennar. Á sýningunni eru að mestum hluta einþrykk og önnur verk, unnin með blandaðri tækni á pappír. Síðastliðið sumar dvaldist Harpa í Kjarvalsstofu í París, listamannaíbúð í eigu Reykjavík- urborgar og íslenska ríkisins. Hluti myndanna cr frá þeirri dvöl. Sýningin er opin virka daga frá kl. 10:00-18.00 og um helgar fra kl. 14:00-18:00. Henni lýkur 16. febrúar. Myndlist Hvað er sjálfsmynd? Sjálfsmyndir hafa verið meðal algengari viðfangsefnum myndlistarmanna allt frá lok- um miðalda. En eryfirleitt hægt að lýsa sjálfum sér, hvort sem er í orðum eða í myndum? Og ef ekki, hvað er þásjálfsmynd? Þessadag- ana er opin á Kjarvalsstöðum sýning þar sem fólki með til- hneigingu til að spyrja sjálft sig heimspekiiegra spurninga af þessu tagi gefst færi á að njótasín, ásamtöllum hinum sem bara vilja láta sér nægja að skoða sýnishorn af þeim sjálfsmyndum sem íslenskir myndlistarmenn hafa málað, allt frá nítjándu öld fram á okk- ar dag. Flestir listamenn í listasögu íslands hafa ein- hvern tímann málað eða dregið eigið andlit á blað, og hér er um að ræða úrdrátt úr þeim hluta íslenskrarlista- sögu. Sýningin erhvorki hugsuð sem fræðileg úttekt eðasögulegtyfirlit, heldur hefur við val myndanna verið lögð áhersla á að velja margbreytilegar og góðar myndir, fólki til skemmtunar og yndisauka. Saga sjálfsmyndanna hefst fyrir alvöru í lok miðalda, og er útbreiðsla spegla talin vera ein af mikilvægustu forsendum þeirrar þróunar. í byrjun 20. aldar, fékk sjálfsmyndin endurnýjað gildi með útbreiðslu kenninga Freuds um undirmeðvitundina og hinn falda innri mann. Þar með var tilgangur listamannanna ekki lengur eingöngu að gera mynd sem líkasta sjálfum sér, heldur að túlka og myndgera þær kenndir sem bærðust innra með þeim. Menn máluðu nú ekki lengur það sem þeir sáu eða virtust sjá, held- ur máluðu þeir á dýptina og buðu áhorfendum þar með upp á raun- verulegan myndlestur. Þegar ab- straktmálverkið og formalisminn varð ríkjandi um miðbik aldar- innar, minnkaði áhuginn á sjálfs- myndinni nokkuð, en með endurkomu manneskjunnar inn í málverkið á síðastliðnum tveimur áratugum er aftur farið að bera á sjálfsmyndum lista- manna og þá sérstaklega í con- ceptlistinni.og performance þar sem listamaðurinn er oft í senn formræn stoð og megin mynd- efni. En hvort sem listamaðurinn hugsar sjálfsmynd sína sem túlk- Sýning sjálfs- mynda Islenskra listamanna á Kjarvalsstöðum Jón Stefánsson 1962 Mynd - E.ÓI. Guðrún Arndís Tryggvadóttir 1987 My.nd - E.ÓI. un á sínu innra eða ytra sjálfi, þá hlýtur hún að vera hans hug- arsmíð sem hann færir yfir á tví- víða flötinn. Og ef til vill sleppur raunveruleikinn alltaf úr greipum þess sem málar, það er að segja ef það er yfirleitt mögulegt að benda á einhverja ákveðna skoðun eða umsögn um mann- eskju sem raunverulega lýsingu á viðkomandi - eða segja að ein ákveðin mynd af henni sé sannari en önnur. Eða er yfirleitt til nokkuð sem heitir sannleikur í listum? Það má kannski segja að sú mynd sem listamaðurinn dreg- ur upp af sjálfum sér sé sönn á þeim tíma sem hann gerir hana, þannig kýs hann að Iýsa sjálfum sér og hlýtur að lýsingu á þeirri þekkingu og þeirri skoðun sem hann hefur á eigin persónu. Byggt á texta Gunnars B. Kvaran / LG Mokka James Francis Kwiecinski opnar sýningu Á morgun opnar James Fran- cis Kwiecinski málverkasýn- ingu á Mokka. Kwiecinski er Bandaríkjamaður, og lærði við Ball State University í Indi- ana. Hann er nú búsettur í Ein af myndunum á Mokka er „Skíðaóhapp" máluð 1985. Reykjavík. Hann hefurhaldið sýningar bæði í Bandaríkjun- um og Evrópu, og verk eftir hann eru nú á sýningum bæði íNew York ogMílanó. Verkin sem Kwiecinski sýnir á Mokka eru meðal annars unnin í olíu, guass, vatnsliti og steinprent. Sýningin stendur í þrjár vikur. LG James Francis Kwiecinski. Sinfónían Jón Leifs, Brahms og Rachmaninoff Tónleikar helgaðir byggingu tónlistarhúss Annað kvöld klukkan 20:30 verða fyrstu tónleikar Sinfón- íuhljómsveitar íslands á síðara misseri. Á efnisskránni eru þrjú verk, Landsýn eftir Jón Leifs (var síðast flutt 1962), Rapsódía eftir Rac- hmaninoff um stef eftir Pag- anini, og að lokum Sinfónía nr. 1 eftirBrahms. Stjórnandi Sinfóníunnar að þessu sinni er Bandaríkjamaður- inn George Cleve. Hann á að baki litríkan feril, hefur um ára- tuga skeið stjórnað öllum helstu sinfóníuhljómsveitum heims. Hann er snillingur í tónlist Moz- arts og hefur í mörg ár stjórnað flestum Mozart hátíðum í New York og San Fransisco. Hann stjórnaði hér á tónleikum vetur- inn 1971 - 1972. Einleikari á tónleikunum er Bandaríski píanóleikarinn Rand- all Hodgkinson. Hann vakti fyrst alþjóðaathygli 1981, þegar hann vann fyrstu verðlaun í tónlistar- keppni fyrir píanista, sem Rocke- feller stofnunin og Carnegie Hall gengust fyrir. Síðan hefur hann hlotið margháttaðar viðurkenn- ingar og leikið einleik austan hafs og vestan. Það er amma Hodgkinsons, Leedice Kissane sem hefur gengist fyrir komu hans til ís- lands. Hún var sendikennari George Cleve stjórnar Sinfóníunni á tónleikunum annað kvöld. Einleikari á tónleikunum verður Randall Hodgkinson píanóleikari. Fullbright stofnunarinnar við Háskóla íslands um tveggja vetra skeið, tók miklu ástfóstri við landið, og sýndi fslensku tón- listarlífi mikinn áhuga. Með því að bjóða fram dótturson sinn til tónleikahalds hér á landi vill hún leggja sitt að mörkum til bygging- ar tónlistarhússins. Auk þess að leika með Sinfón- íuhljómsveitinni á tónleikunum annað kvöld, mun Hodgkinson leika á einleikstónleikum í Lista- safni íslands á föstudagskvöldið kl. 20:30, og verða það fyrstu tón- leikamir sem haldnir verða í húsakynnum Listasafnsins. LG

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.