Þjóðviljinn - 20.03.1988, Blaðsíða 3
Stefnumót í óbyggðum
Sigurður Örlygsson sýnir að Kjarvalsstöðum
Það eru undarleg og heillandi
stefnumót sem Sigurður Ör-
lygsson býður okkur til í Vest-
ursal Kjarvalsstaða um þess-
ar mundir. [ óskilgreindu villtu
og ósnortnu landslagi í mótun
sjáum við torkennilegar vélar
velta fram og kaðla sveiflast
um sviðið eins og í þyngdar-
leysi berandi undarlegar
keilulagafötur. Stigarog
bönd, tól og tæki minna okkur
á tilvist mannsins, en við ger-
um okkur þó ekki fyllilega
grein fyrir því hvort hann er
ókominn eðafarinn. Það ríkir
eitthvert undarlegt og
ógnvekjandi stjórnleysi yfir
þessu öllu saman, en engu að
síður bera tólin sem þarna
tróna með sér að í þeim býr
ákveðinn tilgangur sem helg-
arform þeirra. Sú spurning
verðuráleitin hvarvið erum
stödd, hvort við höfum verið
hér áður eða hvort þetta sé
hið fyrirheitna helvíti þar sem
yfirskilvitlegurog innbyggður
tilgangur vélarinnar hefur
tekið við stjórninni eftir að
maðurinn hefur tortímt sjálf-
um sér með tæknibrellum sín-
um og ofstjórnaráráttu. Og
stundum vaxa tólin og tækin
út úr myndunum eins og
skúlptúrar sem verða okkur
þeim mun ágengari og
áþreifanlegri sem djöfullegar
vélar vegna þess að við
skiljumþærekki.
Það er mikið sem Sigurður Ör-
lygsson hefur færst í fang með
þessari sýningu. Þótt verkin séu
aðeins sjö talsins, þá fylla þau
Vestursalinn á Kjarvalsstöðum
vel og njóta sín um leið til fulls,
þar sem sýningin myndar eina
heild og virðist fyrirfram hugsuð
fyrir þennan sal. Myndirnar eru
beint framhald þeirrar sýningar
sem Sigurður hélt fyrir rúmu ári í
sama sal, en nú eru vinnubrögðin
markvissari, myndmálið og skila-
boðin skýrari.
Myndlist Sigurðar hefur tekið
afgerandi breytingum á nokkrum
\
árum. Hann mótaðist sem ab-
straktmálari á skólaárum sínum á
listaakademíunni í Kaupmanna-
höfn þar sem hann var nemandi
Richard Mortensen, meistara
danska strangflatarmálverksins.
En þótt myndir Sigurðar væru
mótaðar af óhlutbundnu strang-
flatarmálverki þá voru þær alltaf
fullar af frásögn og gáska, og Sig-
urður sótti óhræddur form í um-
hverfi sitt sem hann nýtti í ab-
straktmyndir sínar, stundum sem
óbeinar og tvíræðar tilvitnanir.
Frásagan og tilvísunin í hið hlut-
bundna hefur því í raun og veru
alltaf verið til staðar í verkum
hans. En fyrir rúmu ári síðan
sýndi hann í fyrsta skipti verk sem
mörkuðu þáttaskil á ferli hans:
mónúmental málverk þar sem
áfastir tréskúlptúrar í formi tor-
kennilegra tóla, lóða og
jafnvægisstanga líkt og uxu út úr
myndunum. Á þessari sýningu
sjáum við sömu hugmyndir út-
færðar á mun markvissari hátt.
Einkum á það við í myndunum
þar sem villt og ósnortið lands-
lagið undirstrikar ógnvekjandi
tilvist þessara undarlegu tóla og
tækja með sínum innbyggða en
torráðna tilgangi. í þeim mynd-
um þar sem bakgrunnurinn er
óhlutbundinn og óræður verður
spennan á milli vélar og baksviðs
fyrst og fremst formræn, en þegar
tólin eru komin út í hina víðu og
óbeisluðu náttúru fær hin form-
ræna spenna nýtt innihald, sem
gefur þessu undarlega stefnumóti
í senn framandlegan og kunnug-
legan blæ. Við finnum að spenn-
an í myndinni á sér samsvörun í
einhverju sem við þekkjum innra
með okkur og birtist okkur þarna
í nýrri og óvæntri mynd.
Þessi sýning Sigurðar er fjórða
einkasýningin sem hann heldur á
16 mánuðum, alltaf með nýjum
verkum. Það er greinilegt að
árangurinn af þessari miklu vinnu
er nú að skila sér í markvissari
vinnubrögðum og auknu tækni-
legu valdi á viðfangsefninu. Enn
sem fyrr finnst mér þó sem hreinu
málverkin skili sér betur og að
eitthvað skorti á að tengsl
skúlptúranna við málverkið virki
fullkomlega eðlileg. Hins vegar
væri fróðlegt að sjá Sigurð fást
við frístandandi skúlptúra, því
hann hefur greinilega tilfinningu
fyrir skúlptúr og kann að nýta sér
form úr okkar tilbúna heimi til
frjórrar og frumlegrar tjáningar.
Sú spurning hvarflar óneitan-
lega að manni hvað verði af verk-
um sem þessum eftir sýninguna á
Kjarvalsstöðum. Það er ekki um
mörg húsakynni að ræða sem
bera mónúmental verk á borð við
þessi. Jafnvel ekki listasafns-
byggingin nýja svo vel fari. Það
hefur reyndar sýnt sig að nýja
listasafnsbyggingin með öllum
sínum glæsileik hentar ekki sem
sýningarstaður fyrir alla list. Hún
hentar ágætlega hinu hefðbund-
na málverki, en þegar kemur að
nýlistinni verður umhverfið kæf-
andi eins og sést best í salnum
sem nú er hafður undir myndlist
yngstu kynslóðarinnar á sýning-
unni Aldarspegill. Við því var
kannski aldrei að búast að nýja
listasafnsbyggingin gæti þjónað
svo ólíkum kröfum innan þess-
þrönga ramma sem henni var
settur. En sú staðreynd að Lista-
safn íslands getur illa þjónað nýj-
ustu straumum í myndlist okkar
er í raun aðeins enn ein röksemd
fyrir þeirri knýjandi nauðsyn að
leyst verði úr húsnæðisvanda Ný-
listasafnsins með einhverju til-
tölulega ódýru en rúmgóðu húsn-
æði þar sem hátt er til lofts og vítt
er til veggja og þar sem spara má
bæði parkett, marmara og
flosmjúkt veggfóður.
Hin augljósu takmörk nýju
listasafnsbyggingarinnar bjóða
óhjákvæmilega annarri hættu
heim: að safnráðið takmarki list-
averkakaupin við það sem hentar
í húsakynni safnsins. Það liggur í
augum uppi hvaða hættu það fel-
ur í sér, ef listamenn okkar þurfa
að miða verk sín við þann ramma
sem safnbyggingin setur, til þess
að fá náð fyrir augum safnráðs-
ins. Hér þarf því að koma til sam-
vinna og gagnkvæmur skilningur,
þar sem opinberir aðilar komi til
móts við það merka frumkvæði
sem ungir listamenn hafa átt með
stofnun og rekstri Nýlistas-
afnsins. Þessar stofnanir eiga að
geta unnið saman að því sam-
eiginlega markmiði sem þær
hafa: að efla vöxt og viðgang ís-
lenskrar myndlistar. Nýja Lista-
safnið er vissulega mikilsverður
áfangi á þeirri leið, en hann má
ekki verða til þess að menn horfi
framhjá þeirri knýjandi nauðsyn
að nýsköpun í íslenskri myndlist
verði skapað viðunandi umhverfi
og starfsvettvangur. Það er orðið
eitt brýnasta hagsmunamál ís-
lenskra myndlistarmanna að Ný-
listasafnið fái það húsnæði sem
það á skilið og að verkum á borð
við þau sem Sigurður Örlygsson
sýnir okkur nú að Kjarvalsstöð-
um verði haldið til haga og höfð
til sýnis í húsnæði við hæfi. Má
ekki finna einhverja gamla og ón-
othæfa verksmiðju eða skemmu
sem hægt væri að breyta í safn og
miðstöð fyrir skapandi list með
litlum tilkostnaði? Slíkar bygg-
ingar eru til og fáum til gagns.
Hugmyndirnar eru til staðar og
viljinn hjá listamönnunum. Það
sem vantar er skilningur opin-
berra aðila og formlegur vett-
vangur til þess að hrinda hug-
myndunum íframkvæmd. Tillaga
mín er sú að ríkið, sveitarfélögin
á höfuðborgarsvæðinu og Ný-
listasafnið ásamt samtökum lista-
manna myndi með sér hlutafélag
eða standi að myndun sjál-
fseignarstofnunar er tekið gæti
við hlutverki Nýlistasafnsins við
viðunandi aðstæður og í húsnæði
sem hentaði starfsemi þess sem
safnhús, sýningarsalur og listam-
iðstöð. Það þarf enginn að efast
um að slík framkvæmd mundi
auðga höfuðborgina eða nág-
rannasveitarfélögin af lífi og
verða nýsköpun í íslenskri mynd-
list sú lyftistöng, sem hún á skilið.
-ólg
Sunnudagur 20. mars 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3
Núið
Svífa nœtur
svífa myrkar nœtur
sofa frómir menn
jörðin grœtur
heitum tárum grœtur
jörðin enn
dansa fœtur
dansa hvítir fœtur
drepnir liggja menn
B.H.
/