Þjóðviljinn - 22.10.1988, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 22.10.1988, Blaðsíða 8
y Kjarvalsstaðir Ahrif náttúmnnar máluð og ofin Guðrún Gunnarsdóttir og Sigrún Eldjárn: Er það ekki einmitt þannig í raunveruleikanum? Guðrún Gunnarsdóttir: „Ég er ánægð með að hafa gert eitthvað sem fólk tekur afstöðu til“. se: Alþingi ÍSLENDINGA Skrifstofa Alþingis óskar að ráða starfsmann til að annast reikningshald og hafa umsjón með starfs- mannamálum skrifstofunnar. Háskóla- menntun æskileg. Framtíðarstaða. Umsóknir sendist til skrifstofu Alþingis fyrir 1. nóvember n.k. AlíÍngi ÍSLENDINGA Skrifstofa Alþingis óskar að ráða starfsmann til að vinna fyrir nefndir þingsins. Háskólamennt- un æskileg. Framtíðarstarf. Um- sóknarfrestur er til 1. nóvember nk. Útboð Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, fyrir hönd Hitaveitu Reykjavíkur, óskar eftir tilboðum í ryð- frítt stálefni fyrir Nesjavallavirkjun. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri að Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík. Tilboðin verða opnuð á sama stað miðvikudaginn 23. nóvember nk. kl. 14.00. Nú um helgina er síðasta tækifærið að sjá sýningarnar þrjár sem verið hafa á Kjar- valsstöðum undanfarinn hálf- an mánuð, sýningu Sverris Ólafssonar myndhöggvara í Austursalnum, og sýningar Sigrúnar Eldjárn og Guðrúnar Gunnarsdóttur í Vestursaln- um. Öðru megin í Vestursalnum eru málverk Sigrúnar Eldjárn, sem heldur sína fyrstu „eigin- legu“ málverkasýningu. - Ég hef aldrei sýnt svona stórar myndir, - segir hún, ég hef áður sýnt málverk og teikningar, en ekkert sem lík- ist þessu. - Ég hef svosem ekkert annað um þessi málverk að segja, þetta er bara svona, og hverjum frjálst að túlka þessar myndir á sinn hátt. Þetta eru myndir unnar undir áhrifum frá lands- lagsformum, aðallega frá klett- unum á Sveaborg í Finnlandi þar sem ég byrjaði að vinna þessar myndir, og dröngunum við Arn- arstapa á Snæfellsnesi. En þetta er alls ekki Iandslagið þaðan, heldur formin eins og þau birtast mér. - Svo hef ég málað þetta pínu- litla fólk inn í formin á myndun- um, og er það ekki einmitt þannig í raunveruleikanum? Lítið fólk í stórum heimi. Ég vildi gera textilverkin nútímalegri - Ég vinn aðallega með liti og form, - segir Guðrún, sem sýnir textilverk í hinum hluta salarins. - í þessum verkum reyni ég að gera þessi hefðbundnu form text- ilverksins víðari með papp- írsformum til hliðar og fyrir aftan verkin. - Ég geri þetta vegna þess að ég er orðin þreytt á þessum fer- köntuðu formum. Ég vildi gera téxtilverkin nútímalegri því mér finnst þau bjóða upp á svo tak- markað frjálsræði eins og þau eru. Getur vefurinn ekki verið öðruvísi en ferkantaður? - Jú, að vísu, en það sem gerist mjög oft þegar reynt er að vefa í öðrum formum er að verkið verð- ur hreinlega ljótt. Virkar viðvan- ingslegt. Þannig áhrif hefur það að minnsta kosti á mig, því mér finnst vera mjög mjótt bil á milli þess sem virkar viðvaningslegt og verks sem er greinilega verk at- vinnuvefara, og er þess vegna mjög viðkvæm fyrir því. - í þessum verkum er ég að leitast við að ná fram því ein- falda, það er að segja að verkin virðist einföld þó þau séu það alls ekki í raun og veru. Þessi einfald- leiki sem virðist blasa við í fjar- lægð er eiginlega bara blekking, þegar komið er nær kemur í ljós að verkið er mjög flókið. Samlíkingin sést oft eftir á - Ég get tekið undir það með Sigrúnu að áhrif frá náttúrunni séu ráðandi í mínum verkum, þó ég sé ekki endilega að reyna að lýsa henni eða hugsi um eitthvað ákveðið mótíf í byrjun. - Maður sér samlíkinguna oft eftir á, - segir Sigrún, - ég er kannski byrjuð á einhverju og allt í einu fer ég að taka eftir svipuð- um formum út um allt. Eftir að ég fór að mála þetta litla fólk í lands- lagsformin sá ég til dæmis mótífið út um allt þegar ég ferðaðist um landið í sumar. - Ég er mjög hrifin af söndun- um, - segir Guðrún, - og eftir að ég fór að gera þessi verk tók ég meira og meira eftir þeim, þess- um víðáttumiklu svörtu auðnum þar sem nokkur grasstrá á stangli berjast fyrir tilveru sinni. Nú sýnist sitt hverjum um sýn- inguna. Hvað flnnst þér um við- brögðin? - Ég er mjög ánægð með þau, því mér hefur greinilega tekist að gera eitthvað sem fólk tekur af- stöðu til og vekur upp spurning- ar. Mér finnst mjög spennandi að hafa gert eitthvað sem vekur til- finningar. - Það var alls ekki ætlun mín að hneyksla, en ég var sem sagt að reyna að komast frá hefðbundn- um textíl og gera tilraunir með formin, og viðbrögðin sanna að mér hefur þó tekist að gera eitthvað sem er öðruvísi. Hvort sú breyting er góð eða hvort ná- kvæmlega þessi leið hentar mér á svo tíminn eftir að Ieiða í Ijós. Ég er ekki viss um að ég haldi endi- lega áfram með þennan stíl þó ég haldi örugglega áfram að gera til- raunir með formin. - Það sem hefur ráðið mestu um að ég geri þetta núna er bæði það að ég hef aldrei haft eins góð- an tíma til að vinna eins og núna, og eins hef ég haft mjög góða vinnustofu undanfarið ár. Við það að hafa góðan tíma til að sinna hlutunum verður þróunin hraðari, hlutirnir gerast hægar þegar maður hefur lítinn tíma. - Þeir möguleikar sem ég hef fengið með vinnustofunni skipta líka miklu máli. Ég hefði aldrei getað gert þessar tilraunir án þessarar góðu aðstöðu, þar er hátt til lofts svo ég get gert stærri verk og svo hef ég heilan vegg þar sem ég get hengt verkin upp til að skoða þau og ákveða hvað ég vilji gera við þau. Breytt vinnuað- staða hefur sömu áhrif og nýtt umhverfi, maður sér hlutina í öðru ljósi og það fæðast nýjar hugmyndir. Sýningum þeirra Sigrúnar, Guðrúnar og Sverris lýkur á sunnudagskvöld. í Austur- og Vestur- forsal er sýning á verkum barna frá 61 dagvistunarheimili í Reykjavík, og stendur hún til þriðjudags. Kjarvalsstaðir eru opnir daglega kl. 14-22. LG INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800 8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 22. október 1988

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.