Þjóðviljinn - 24.12.1988, Blaðsíða 4
_______MINNING________
Gunnar Össurarson
F. 1.12. 1912 - D. 16.12. 1988
msm Afb. á Vextir Greiðsla Visi- Greiðsla Eft.st. Eft.st. nafnv. nafnv. nafnv. tölur m/verðb. nafnv. m/verðb.
1984: 1985: 40.000 10.000 = 50.000 x 903/690= 65.435 160.000 209.391 40.000 8.000 = 48.000 X 1178/690 = 81.984 120.000 204.870
|H|H||HHHHHHHHHHHHHHHHH^H^H^^H^^HHHHHHH|HHHH|H||^^^^^^^^^^^^H^^^^^^^^^^^^HHH 40.000 6.000 46.000 X 1463/690 = 97.533 80.000 169.623
Nýjar bækur Nýjar bækur
Er& Böstfwp
LÆKNIWCA
Það voru ekki sérlega óvænt
tíðindi er andlát Gunnars Össur-
arsonar frá Kollsvík var tilkynnt
nú nýverið. Hann hafði verið
sjúkur um nokkurra ára skeið og
auðsætt að hverju dró, enda
aldurinn orðinn hár.
Vegna þess að Gunnar Öss-
urarson skipar nokkuð annan
sess í huga mínum en aðrir menn,
ýmissa hluta vegna, þá set ég hér
nokkur orð á blað, til minningar
um öðling sem fallinn er frá.
Gunnari kynntist ég fyrst er
hann var kominn á efri ár, enda
aldursmunur nokkur. Hann ólst
upp í Kollsvík í Rauðasands-
hreppi vestur, en hvarf ungur
þaðan út í heiminn, til menntunar
og starfa. Hann starfaði í Reykja-
vík sem meistari í trésmíðum
stærsta hlutann af starfsævi sinni.
Á fullorðins árum, þegar honum
þótti þrekið vera farið að dvína,
fluttist hann vestur í Rauðasands-
hrepp aftur, reisti trésmíðaverk-
stæði í samvinnu við aðra og hóf
atvinnurekstur, byggði nýjar
byggingar og endurbætti húsa-
kost bænda, bæði innan sveitar
og utan. Því eins og Thor Vil-
hjálmsson rithöfundur sagði í sjö-
tugsafmæli Gunnars, að hann
hefði ungur farið út í heim og vilj-
að bjarga honum. Þegar hann sá
að ekki var svo auðhlaupið að
því, þá flutti hann heim aftur, því
hann gæti þó allavega lagt sitt
drjúga lóð á vogarskálina til að
halda við búsetu í hreppnum og
eru það orð að sönnu.
Ég minnist þess þegar ég sá
Gunnar fyrst að tvennt í fari hans
vakti athygli fyrst og fremst.
Heimsborgaralegt fas hans og
djarfleg framganga svo og vin-
gjarnlegt viðmót, ekki síður við
unglinga en fullorðið fólk.
Gunnar var hraustmenni og
vafalaust verið ramur að afli á
sínum betri árum. Það henti t.d.
eitt sinn fyrir ca. 10 árum að hann
síðubrotnaði við húsasmíðar og
þurfti að leggjast á sjúkrahús um
tíma. Læknirinn á Patreksfirði
kvaðst hafa verið í vandræðum
með að röntgenmynda hann eins
og þurfti vegna þess hve hann var
þykkur undir hönd, vöðvamass-
inn var slíkur.
Gunnar var eindreginn sósíal-
isti og hvikaði aldrei frá sinni pól-
itísku sannfæringu. Afstaða hans
í stjórnmálum byggðist ekki á
utanbók^rlærdómi eða aðfengn-
um kennisetningum á þeim tíma
sem okkar kynni stóðu, heldur á
raunsæi og réttlætiskennd.
Glöggskyggni hans á samhengi
hlutanna og rökhyggja gerði það
að verkum að við hann var flest-
um mönnum skemmtilegra að
ræða um pólitík. Hann var einnig
sögumaður á við hvern annan, og
er sterkur hlátur hans kvað við að
sögulokum, reyndist flestum
ómögulegt annað en að hrífast
með.
Hann missti heilsuna fyrir
nokkrum árum, en þar áður hafði
hann orðið fyrir slysi, sem gerði
það að verkum að hann varð að
mestu að hætta líkamlegri vinnu.
Sfðustu ár ævinnar dvaldi hann á
sjúkraheimili uns yfir lauk.
Með Gunnari er genginn mað-
ur sem gott er að hafa kynnst.
Mættu fleiri vera honum líkir.
Gunnlaugur Júlíusson
Meðan Tjamargatan var í
gamla daga og kaffistofan Mið-
garður að Þórsgötu 1, sátu þar
oftast skáld, stjórnmálamenn og
ýmsir spekingar. Þarna var
Gunnar Össurarson oftast ná-
lægur. Ég á margar minningar frá
þessum tíma, og flestar ánægju-
legar. Ég ætla ekki að skrifa hefð-
bundna minningargrein um
Gunnar, enda vom samskipti
okkar mest á almennum stöðum.
En ég sakna þess sem var á þeim
stöðum og Gunnars einnig. Kær
kveðja til vina og ættingja.
Jón frá Pálmholti
(Gunnar var jarðsettur í gær. Á
fimmtudag birtist í Þjóðviljanum
minningargrein Kjartans Ólafssonar
um Gunnar.)
1987: 40.000 4.000 = 44.000 x 1721/690= 109.745 40.000 99.768
1988: 40.000 2.000 = 42.000 x 2154/690 = 131.113 0 0
Við óskum landsmönnum gleðilegra jóla,
árs og friðar og þökkum samstarfið
á árinu sem er að líða.
BRunnBómF&flG ísuhids
Bl
LÍFTRYGGING
GAGNKVíMT TRYGGINGAFELAG
Lífeyrislán
Rétt tðlvitnuð tafla
Með grein Sigurðar Björgvins-
sonar í Þjóðviljanum á
fimmtudag, sem bar yfirskriftina
„Stórfurðuíegur bæklingur, birt-
ist röng mynd þar sem vísað var
til nýútkomins bæklings Land-
sambands Lífeyrissjóða.
í þeim kafla greinarinnar sem
heitir „Reikningskúnstir“ er vís-
að til töflunnar sem birtist hér að
ofan. Með töflunni er eftirfarandi
texti: Fjármálastofnanir hér á
landi nota tvær aðferðir við að
reikna verðbætur, sem báðar
gefa nákvæmlega sömu niður-
stöðu. Önnur felst í því að upp-
reikna höfuðstólinn, (eftirstöðv-
ar fyrra árs) og reikna svo afborg-
un og vexti út frá þeirri upphæð.
Með hinni aðferðinni er afborgun
og vextir ávallt reiknaðir eins og
upphæðin sé óverðtryggð og
verðbætur á greiðsluna síðan
reiknaðir eftir á. Sú aðferð er
sýnd í töflunni. Þessar fullyrðing-
ar hrekur Sigurður í grein sinni.
Þjóðviljinn biðst velvirðingar á
þessum mistökum.
Mammútaþjóöin
komin út
Vaka-Helgafell hefur sent frá
sér þriðju skáldsögu bandaríska
rithöfundarins Jean M. Auel.
Bókin nefnist Mammútaþjóðin
og er sjálfstætt framhald af met-
sölubókunum Þjóð bjarnarins
mikla og Dalur hestanna sem not-
ið hafa mikilla vinsqlda hjá ís-
lenskum lesendum.
Jean M. Auel hefur vakið
mikla athygli fyrir þessi skáld-
verk sín og hefur meðal annars
ferðast um heiminn til að kynna
þau, en hingað til lands kom hún
haustið 1987.
í nýju skáldsögunni Mammút-
aþjóðinni er yrkisefnið sem fyrr
líf og örlög fortíðarstúlkunnar
Aylu sem er af kynstofni nútíma-
mannsins en hlaut uppeldi á með-
al Neanderdalsmanna fyrir
35.000 árum.
Ásgeir Ingólfsson og Bjarni
Gunnarsson þýddu bókina sem
er 618 blaðsíður. Bókin kostar
2.890 krónur með söluskatti.
Handbók um
lækningar
„Það sem er nýmæli við þessa
bók er uppbygging hennar og
framsetning efnis. f stað þess að
fjalla skipulega um einstaka sjúk-
dóma eftir eðii þeirra eða stað-
setningu eru efnisatriði bókar-
innar í stafrófsröð. Þetta
auðveldar leit að svörum við
spurningum og gerir þann fróð-
leik sem bókin hefur að geyma
vel aðgengilegan með uppflett-
ingum.“
Þannig kemst Guðjón
Magnússon aðstoðarlandlæknir
að orði í formála nýrrar Lækn-
ingahandbókar eftir Erik Bost-
rup sem Bókaútgáfan Örn og Ör-
lygur sendir á markað um þessar
mundir.