Þjóðviljinn - 02.11.1989, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 02.11.1989, Blaðsíða 11
Pennavinir Pjóðviljanum berst reglulega töluverður fjöldi óska um penna- vini erlendis frá. Jessica Gosby Miss Kilgore’s Class Nashville Elementary Box 157 Nashville Indiana 47448 Bandaríkjunum. Jessica biður lesendur Þjóð- viljans að senda sér póstkort af íslandi með upplýsingum um loftslag, menningu, íþróttir og annað sem snertir íslenskt þjóð- líf, en efni þetta ætlar hún að nota í landafræðiritgerð. Angelika Hertle Fruhlingstrasse 3 8850 Donauwörth V-Þýskalandi Angelika er að leita að penna- vini. Hún er 24 ára og hefur áhuga á ferðalögum, lestri, tón- list og fl. Hún segist lesa og skrifa ensku. Sonja Wachters Serijnenhof 12 2641 MZ Pijnacker Hollandi Sonja er 14 ára og hefur áhuga á íþróttum, teikningu, dýrum, poppi og matreiðslu. Hún skrifar á ensku og hollensku. Óskar eftir bréfaskriftum við íslenskan ung- ling á svipuðu reki eða eldri. Salka Sandin Norrakungsvagen 66 52200 Tidaholm Svíþjóð Salka er 15 ára og þarfnast hjálpar vegna verkefnis í skólan- um. Hún hefur ákveðið að fjalla um íslenska tónlist á tónlistar- brautinni í skólanum sínum en gengur erfiðlega að útvega sér hljómplötur með íslensku efni. Hún á upptökur með Sykurmol- unum en ekkert annað. Hún bið- ur því einhvern jafnaldra sinn að senda bréflega upplýsingar um ís- lensk dægurlög, hljómsveitir, greinastúfa eða annað sem kynni að hj álpa henni. Best væri ef hægt væri að senda henni upptökur af því framsæknasta í tónlistinni í dag. Dulmögnun í einföldum stórum formum Sýningu Stefáns Axels Vald- imarssonar á Kjarvalsstöðum er nýlega lokið. Margt mætti skrifa bæði til frægðar og ófrægðar þess- um unga manni er opinberaði myndverk sín öllum almenningi á dögunum. Hér voru á ferð gríðarstórar myndir, er héldu einföld form í samspili ástríðumettaðra lita. Meðferð hans á efniviðnum var misjöfn að gæðum einsog vænta mátti, en þar sem honum tókst best upp stóð áhorfandinn gagntekinn góða stund. Ef eitt verk á sýningu megnar að hræra svo upp í mönnum, liggur visst hugboð í loftinu, og séu þau fleiri er vissara að fara út og fá sér göngutúr um stund. Þeimer þessar línur ritar býð- ur í grun að hér sé á ferð ung- menni er hefur lagt metnað sinn í að draga fram dulmögnun í ein- földum stórum formum, gott ef hér er ekki sú spíra að festa rætur FRÁ LESENDUM sem, ef líf og heilsa endist, eigi eftir að ylja löndum sínum uin hjartarætur á komandi tímum, með metnaðarfullri myndsýn sinni í væntanlegum verkum. Hafi hann heila þökk. V. Ingiberg Einarsson, áhuga- maður um myndlist. Hvenær mun vitfirring- unni linna? Um þessar mundir eru liðlega fimmtíu ár frá upphafi síðari heimstyrjaldarinnar og eðlilega hefur farið mikið fyrir umræð- unni um þennan hroðalega hild- arleik. í framhaldi af öllu þessu í ræðu og riti þá bjóst maður við að menn gerðu úttekt á stöðu mann- heims í dag, en því miður fór lítið fyrir slíku. Það er hörmuleg staðreynd, að enn þann dag í dag er saklaust fólk drepið og það í hundraða þúsunda tali, það pyntað, kúgað og lítilsvirt á allan handa máta og ekkert lát virðist ætla að verða nema síður sé og kaldhæðnislegt er það, að það skuli vera gyðingar sem nú eru fremstir í flokki ofbeldismanna, en það voru ein- mitt gyðingar sem máttu þola ólýsanlegar hörmungar í seinni heimstyrjöldinni. Meðferð gyð- inganna í ísrael á palestínu- fólkinu á Vesturbakka Jórdanár- innar og á Gahazasvæðinu svo og Jerúsalem er í einu orði sagt hroðaleg, en eins og allir vita, sem á annað borð fylgjast með gangi heimsmála, þá hafa aðflutt- ir gyðingar tekið Palestínu af þeim er fyrir voru í landinu,- þ.á m. Palestínuaröbum með ofbeldi og nefna nú landið ísrael og þessi seinustu landsvæði er Palestínu- menn enn byggja munu ísra- elsmenn senn innlima og flæma íbúana burt eða gera þá að annars flokks borgurum eða nánast vinnudýrum. Hinn vestræni heimur stendur hjá í hæfilegri fjarlægð og aðhefst ekkert. Nóg er talað um frelsi og mannréttindi, en þegar til á að taka og gera eitthvað til úrbóta, eins og til dæmis fyrir botni Miðjarðarhafsins, þá halda menn að sér höndum. Vitanlega gætu vestrænar þjóðir knúið ísraels- menn til að láta af þessu miskunnarlausu ofbeldi og ekki síður gætu þessar þjóðir séð til þess að Palestínumenn fengju að stofna sitt eigið ríki. Það sannast þarna eins og endranær, það eru annað orð en athafnir. Er nema von að spurt sé, mun vitfirringunni aldrei linna, er virkilega ekki von til þess að menn fari að lifa saman í sátt og samlyndi? Guðjón V. Guðmundsson Forseti fær firiðarverðlau: Frú Vigdísi Finnbogadótt- ur, forseta ís- lands, voru veitt friðarverðlaun kvenna fyrir árið 1988 er friðar- samtökin Toget- her for peace fo- undation veita. Raisa Gorbatsjov og Nancy Reagan hlutu verðlaui in einnig að þessu sinni. Reynt að blekkja Þessi úrklippa er úr Morgun- blaðinu 24. september sl. Sagt er frá þrem nafngreindum konum, sem fengu friðarverðlaun kvenna. Tvö nöfn eru feitletruð, það þriðja ekki, svo minna ber á því. Minnir þetta dálítið á al- genga verðmerkingu í verslunum þar sem talan 99 er óspart notuð til að villa um fyrir fólki. Lítið dregur vesælan. Lesandi I hugmyndakreppu Hagmæltur lesandi Þjóðviljans hafði samband við blaðið er hann hafði lesið fyrsta leiðara Ólafs H. Torfasonar. Yfir morgunkaffinu hrökk þá þessi vísustúfur út úr lesandanum: / hugmyndakreppu er hugmyndahönnun heillaráð fyrir skoðanaprang. Skoðanamyndandi skoðanakönnun við skulurn með hraði setja í gang. þJÓÐVILJINN FYRIR 50 ÁRUM Óttinn við nýlendukröfur Þjóð- verja er orsök styrjaldarinnar. Stjórnarnefnd ríkisspítalanna stefnirendurskoðendum lands- reikninganna fyrir meiðyrði. Bergmál styrjaldarinnar. Fregnir hafa borist frá Patereksfirði og Breiðuvíkum, að þangað hafi heyrst ákaf ir skotdynkir utan af hafisl.föstudag. I PAG 2. nóvember fimmtudagur. 306.dagur ársins. Allra sálna messa. Sólarupprás í Reykjavík kl. 9.14- sólarlag kl. 17.08. Viðburðir Skátastarf á Islandi hófst árið 1912. Morgunblaðið hóf göngu sína 1913. Sveinafélag húsa- smiða í Reykjavík stofnað árið 1933. APÓTEK Reykjavík. Helgar- og kvöldvarsla lyfj- abúðavikuna 27. okt.-2. nóv. er I Árbæjarapóteki og Laugarnesapóteki. Fyrrnef nda apótekið er opið um helgar og annast nasturvörslu alla daga 22-9 (til 10 frídaga). Síðarnefnda apótekið er opið á kvöldin 18-22 virka daga og á laugardögum 9-22 samhliða hinu fyrr- nefnda. LÖGGAN Reykjavík sími 1 11 66 Kópavogur 4 12 00 Seltj.nes sími 1 84 55 Hafnarfj sími 5 11 66 Garðabær sími 5 11 66 Slökkvilið og sjúkrabílar: Reykjavik 1 11 00 Kópavogur sími 1 11 00 Seltj.nes 1 11 00 Hafnarfj 5 11 00 Garðabær 5 11 00 LÆKNAR Læknavakt fyrir Reykjavík, Sel- tjarnarnes og Kópavog er í Heilsu- verndarstöð Reykjavíkur alla virka daga frá kl. 17 til 08, á laugardögum og helgi- dögum allan sólarhringinn. Vitj- anabeiðnir, símaráðleggingarog tíma- pantanir í síma 21230. Upplýsingar um lækna og lyfjaþjónustu eru gef nar I sím- svara 18888. Borgarspítalinn: Vakt virka daga kl. 8- 17 og fyrir þá sem ekki hafa heimilis- lækni eða ná ekki til hans. Landspít- alinn: Göngudeildin er opin 20-21. Slysadeild Borgarspítalans: opin allan sólahringinn sími 696600. Hafnarfjörður: Dagvakt, Heilsugæslan sími 53722. Næturvakt lækna sími 51100. Garðabær: Heilsugæslan Garðaflöts. 656066, upplýsingar um vaktlækna s. 51100. Akureyri: Dagvakt 8-17 á Læknamið- stöðinni s. 23222, hjá slökkviliðinu s. 22222, hjá Akureyrarapóteki s. 22445. Farsími vaktlæknis 985-23221. Kef lavi'k: Dagvakt. Upplýsingar s. 3360. Vestmannaeyjar: Neyðarvakt lækna s. 1966. SJÚKRAHÚS Heimsóknartímar: Landspitalinn: alla daga 15-16,19-20. Borgarspítalinn: virkadaga 18.30-19.30, helgar15-T8, og eftir samkomulagi. Fæðingardeild Landspítalans: 15-16. Feðratími 19.30- 20.30. Öldrunarlækningadeild Land- spítalans Hátúni 10 B. Alla daga 14-20 og eftir samkomulagi. Grensásdeild Borgarspítala:virkadaga 16-19, helgar 14-19.30. Heilsu verndarstöðin við Barónsstig opin alla daga 15-16 og 18.30-19.30. Landakotsspítali:alla daga 15-16 og 18.30-19. Barnadeild: heimsóknir annarra en foreldra kl. 16-17 daglega. St. Jósefsspftall Hafnarfirði: alla daga 15-16 og 19-19.30. Klepps- spítalinn-.alladaga 15-16 og 18.30-19. DAGBÓK Vestmannaeyjum: alla virka daga 15- 16 og 19-19.30 Sjúkrahús Akraness: alla daga 15.30-16 og 19-19.30. Sjúkra- húsið Húsavík: alla daga 15-16 og 19.30-20. ÝMISLEGT Hjálparstöð RKÍ. Neyðarathvarf fyrir ung- linga Tjarnargötu 35. Sími: 622266, opið allan sólarhringinn. Sálfræðistöðin. Ráðgjöf í sálfræðilegum efnum. Sími 687075. MS-félagið Álandi 13. Opið virka dagafrá kl. 8-17. Síminn er 688620. Kvennaráðgjötin Hlaövarpanum Vestur- götu 3. Opið þriðjudaga kl.20-22, fimmtudaga 13.30-15.30 og kl. 20-22, sími21500, slmsvari, Sjálfshjálparhópar þeirra sem orðið hafa fyrir sifjasþellum, s. 21500, simsvari. Upplýsingar um eyðni. Simi 622280, beint samband við lækni/hjúkrunarfræðing ámiövikudögumkl. 18-19, annarssím- svari. Samtök um kvennaathvarf, sími 21205. Húsaskjól og aðstoð fyrir konursem beittar hafa verið ofbeldi eöa orðið fyrir nauögun. Samtökin '78. Svarað er í upplýsinga- og ráðgjafarsíma lélags lesbia og homma á mánudags- ogfimmtudagskvöldum kl. 21- 23. Símsvari á öðrum tímum. Síminn er 91-28539. Bilanavakt rafmagns- og hitaveitu: s. 27311. Raf magnsveita bilanavakt s. 686230. Vinnuhópur um sif jaspellamál. Sími 21260allavirkadagakl. 1-5. Lögfræðiaðstoð Orators, félags laga- nema, er veitt í síma 11012 milli kl. 19.30 og 22.00 á fimmtudagskvöldum. „Opið hús“ krabbameinssjúklinga Skógarhlið 8 er „Opið hús“ tyrir alla krabb- ameinssjúklinga og aðstandendur þeirra á fimmtudögumkl. 17.00-19.00. Samtök áhugafólks um alnæmisvand- ann sem vilja styðja við smitaða og sjúka og aðstandendur þeirra. Hringið I síma91 - 22400 alla virka daga. GENGIÐ 2. nóv. 1989 kl. 9.15. Sala Bandaríkjadollar............. 62.39000 Sterlingspund................ 98.17100 Kanadadollar................. 53.10000 Dönskkróna.................... 8.69850 Norskkróna.................... 9.01590 Sænskkróna.................... 9.70750 Finnsktmark.................. 14.64900 Franskurfranki................ 9,96250 Belgískurfranki............... 1.60900 Svissneskurfranki............ 38.48500 Hollensktgyllini............. 29.94120 Vesturþýskt mark............. 33.80660 (tölsklira.................... 0.04605 Austurrískursch............... 4.80290 Portúg. Escudo................ 0.39490 Spánskurpeseti................ 0.53370 Japansktyen................... 0,43482 Irsktpund.................... 89.77000 SDR-Serst.DDR................ 79.46740 ECU-Evrópumynt............... 69.27160 BelgískurFr.Fin............... 1.60700 KROSSGÁTA Lárétt: 1 rökkurs 4 hugur6tré7lán9 íburður 12 trufla 14 ger- ast15ótta16ófús19 brúki 20þekkt21 enn Lóðrétt: 2 vökva 3 flipa 4 hristi 5 hugaun 7 leti 5 gabba10jörð11 ánægður13eyða17 eyri 18stækkuðu Lausn á síðustu krossgátu Lárétt: 1 toll4þúst6eir 7 vist 9 ósár 12 kisan 14 fær15efi 16auðri 19 Iaun20áður21 tinna Lóðrétt:2oki3leti4 þróa 5 slá 7 Vífill 8 skraut10sneiða11 reiðri 13 sið 17 uni 18 rán Fimmtudagur 2. nóvember 1989 ÞJÓÐVILJINN - SÍOA 11

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.