Þjóðviljinn - 25.11.1989, Blaðsíða 2
ERLENDAR FRETTIR
Fjöldafundur í Prag.
Dubcek í Prag
Lýsir yfir stuðningi
við andófssamtök
Alexander Dubcek, leiðtogi
tékkóslóvakíska kommúnista-
flokksins á Pragvori, kom til Prag
í gær og ávarpaði um 250,000
manna útifund á Venseslásstorgi.
Er litið á komuna til Prag sem
sigurför Dubceks, sem frá innrás
Varsjárbandalagsins í ágúst 1968
hefur lengst af verið í pólitískri
útskúfun og undir lögreglueftir-
liti.
Eitt merkja þess að síðustu
dagana hefur mjög slaknað á
hörkunni af hálfu yfirvalda þar-
lendis er að Dubcek skyldi vera
leyft að koma til höfuðborgarinn-
ar. Honum var ákaft fagnað af
mannfjöldanum og klifruðu
sumir upp á þök til að geta séð
hann. Dubcek talaði í þrjár mín-
útur og var orðvar, fagnaði því að
mega á ný skipa sér í fremstu röð
fólksins og lýsti yfir fylgi við
Borgaralegan vettvang, tengi-
samtök ýmissa andófshópa.
Hann skoraði á lögreglu og her
að sýna samstöðu með alþýðu
manna, eins og fyrrmeir á Prag-
vori, og taka undir réttmætar
kröfur almennings.
Niðurstöður skyndikannana á
skoðunum manna í Prag benda til
þess að margir vilji fela Dubcek
forustu landsins á ný, en næstum
eins margir tilnefndu Vaclav Ha-
vel leikritahöfund. Dubcek hefur
aldrei hvikað frá því að hann sé
kommúnisti og er talið að sumir í
stjórnarandstöðuhreyfingunni
séu þessvegna beggja blands
gagnvart honum.
Reuter/-dþ.
Suður-Afríkuher
frá Namibíu
Allar suðurafrískar hersveitir
eru nú farnar frá Namibíu, en í
því landi hefur Suður-Afríka haft
her frá því í heimsstyrjöldinni
fyrri. Einhverjarhereininga þess-
ara fóru þó ekki lengra en til Wal-
vis Bay, skika á strönd landsins
þar sem langbesta höfn þess er.
Walvis Bay er áfram undir suður-
afrískum yfirráðum, þar eð Bret-
ar höfðu slegið eign sinni á
skikann er Þjóðverjar lögðu
undir sig héruðin í kring, og er
suðurafríska ríkið var stofnað
fylgdi skikinn því.
Herstöðvaandstaða
prests
Faðir Shay Cullen, kaþólskur
prestur írskur sem starfar á Fil-
ippseyjum, hefur krafist þess að
Bandaríkin leggi niður herstöðv-
ar sínar þarlendis, flotastöð við
Subicflóa og flugstöðina á Clark-
flugvelli. Segir prestur að af her-
stöðvunum hafi hlotist vændi,
eiturlyfjaneysla og kynferðisleg
misnotkun á börnum. 17 máls-
metandi menn í borg einni, sem
hefur mikil viðskipti við her-
stöðvarnar, kalla föður Cullen
óæskilegan útlending og óvin Fil-
ippseyjaþjóðar. Hefur ríkissak-
sóknari nú höfðað mál á prestinn
í þeim tilgangi að honum sé vísað
úr landi, en 23 aðrir prestar þar-
lendis hafa tekið upp þráðinn
fyrir hann og lofa hann fyrir að
beita sér gegn spillingunni út frá
herstöðvunum.
Vilja losna við
forustuhlutverk
Egon Krenz, aðalritari Sósíal-
íska einingarflokksins í Austur-
Þýskalandi og forseti þess, segir í
viðtali sem birtist í fyrradag í dag-
blaðinu Neues Deutschland að
flokkurinn vilji losna við forustu-
hlutverk það, sem það hefur í
stjórnmálum ríkisins samkvæmt
stjórnarskrá. í fyrstu grein
stjórnarskrárinnar, sem verið
hefur óbreytt frá 1974, stendur að
Austur-Þýskaland sé sósíalískt
ríki undir stjórn verkamanna-
stéttarinnar og marxlenínsks
flokks hennar. Krenz segir enn-
fremur í viðtalinu að flokkur hans
vilji að stjórnarskráin sé öll tekin
til gagngerrar endurskoðunar.
Líbanonsforseti
kjörinn
Líbanskir þingmenn kusu í gær
Elias Hrawi, sextugan Maroníta,
forseta landsins í stað Renes Mu-
avad, sem myrtur var á miðviku-
dag. Hrawi er frá Bekaadal
austanvert í landinu og sagður
hlynntur Sýrlendingum líkt og
fyrirrennari hans.
Nafnbreyting
kommunistaflokks
samþykkt
Miðnefnd Kommúnistaflokks
Ítalíu, stærsta kommúnistaflokks
Vesturlanda, samþykkti í gær til-
lögu Achille Occhetto flokksleið-
toga þess efnis, að flokkurinn
skuli taka upp nýtt nafn, afleggja
hamars og sigðarmerkið og að-
laga sig stefnu vestrænna jafnað-
armanna. Tillagan var samþykkt
með 219 atkvæðum gegn 73.
Ungverjar í jafnað-
armannasamband
Jafnaðarmannaflokkurinn
ungverski, sem til skamms tíma
var kommúnistaflokkur, var í gær
samþykktur inn í Alþjóðasam-
band jafnaðarmanna sem auka-
aðili. Er flokkurinn sá fyrsti
austurevrópski, sem hlýtur aðild
að sambandinu. Umsókn flokks-
ins um fulla aðild verður tekin
fyrir síðar.
Litháar í
sjálfstæðishug
Æðstaráð (þing) Litháens sam-
þykkti í fyrradag skipun nefndar,
sem á að taka til athugunar
hvernig því verði komið til leiðar
að landið verði sjálfstætt á ný, að
sögn blaðamanna í Vilnu, höftið-
borg Litháens. Er þetta djarfleg-
asta ráðstöfun Litháa til þessa í
þá átt að endurheimta sjálfstæði.
Nefndinni er m.a. ætlað að
kanna möguleika á samningavið-
ræðum við miðstjórnina í
Moskvu og þjóðaratkvæða-
greiðslu um sjálfstæðistöku. Til-
löguna um skipun nefndarinnar
lagði fram Alfonsas Macaitis,
leiðtogi æskulýðssamtaka lithá-
íska kommúnistaflokksins, en
þau slitu fyrr á árinu tengsl við
Komsomol, æskulýðssamtök so-
véska kommúnistaflokksins.
Alexander Dubcek
Leiðtogi á ný?
Dubcek (t.v.) á Pragvori með Smrkovský, þáverandi forsætisráðherra.
Síðasta undrið sem frést hcfur
frá Austur-Evrópu er upprisa
Alexanders Dubcek frá tveggja
áratuga pólitískri útskúfun.
Hann er nú kominn til Prag til
liðsinnis við hundruð þúsunda
höfuðborgarbúa, sem krefjast
lýðræðis, og tekur undir kröfur
þeirra um að íhaldssöm forusta
kommúnistaflokks og ríkis fari
frá.
Þessi síðustu tilþrif sögugyðj-
unnar í Austur-Evrópu vekja
áreiðanlega upp í mörgum hug
endurminningar frá því sérstaka
ári 1968, er öldurót kennda, hug-
mynda og hugsjóna af fjölbreyti-
legum toga gekk yfir mörg lönd.
Margir höfðu þá á tilfinningunni
að heimurinn væri kominn að
tímahvörfum, að apókalyptísk
umskipti væru að eiga sér stað og
að von væri á allt annarri tíð og
betri. Margir misjafnlega gæfu-
legir leiðtogar og „lausnarar"
urðu þá tímanna tákn í augum
stærri eða minni aðdáendaskara.
Dubcek var einn af þeim, og
sennilega varð hann fremur en
nokkur hinna tákn vona og von-
brigða sem tengjast árinu 1968 og
þeim næstu á eftir.
Andspyrnugarpur
Eftir að skriðdrekar Varsjár-
bandalagsins mörðu Pragvorið
undir beltum öðlaðist þessi
vörpulegi, fremur hlédrægi, ljúf-
mannlegi maður með dapurlega
brosið, sem sumir kölluðu trúðs-
legt (ekki í niðrandi merkingu),
píslarvættisins kórónu í augum
þeirra mörgu, Tékkóslóvaka og
annarra, sem bundið höfðu mikl-
ar vonir við sósíalisma hans og
þeirra félaga með mannúðarand-
lit, eins og það var orðað.
Alexander Dubcek hefur verið
kommúnisti frá því að hann man
eftir sér og leggur áherslu á að
það sé hann enn. Hann fæddist
27. nóv. 1921 í Uhrovek í Slóvak-
íu og verður sem sé 68 ára á
mánudaginn. Fjölskylda hans
flutti til Sovétríkjanna er hann
var aðeins fjögurra ára, þar ólst
hann upp og kom ekki aftur til
föðurlandsins fyrr en 1938, árið
sem Múnchenarsamningur var
gerður. Hann gekk í kommún-
istaflokk lands síns 1939, var með
í andspyrnuhreyfingu gegn Þjóð-
verjum og leppstjórn þeirra í Sló-
vakíu og tók þátt í uppreisn gegn
þessum aðilum skömmu fyrir lok
PRÓFÍLL
heimsstyrjaldarinnar síðari. í
þeirri uppreisn féll bróðir hans og
sjálfur hlaut hann áverka. Du-
bcek var í fullu starfi hjá flokkn-
um frá 1949 og í flokksskóla í
Moskvu 1955-58. Hann var á
þeim árum talinn eindreginn fylg-
ismaður Khrústsjovs og varð
heimkominn aðalritari kommún-
istaflokksins í Slóvakíu.
Leiðtogi
í krafti
málamiðlunar
Næsta áratuginn lét hann í ljós
samúð með hugmyndum um
aukið frjálsræði, en hafði sig ekki
mjög í frammi í andófinu gegn
íhaldssamri forustu kommúnista-
flokks og ríkis í kringum Novotný
flokksaðalritara og forseta. f
flokknum var því Iitið á hann sem
miðjumann og varð það til þess
að jafnt íhaldssamir sem frjáls-
lyndir flokksmenn féllust á hann
sem eftirmann Novotnýs. Kosn-
ing hans í stöðu aðalritara flokks-
ins (sem fram fór 5. jan. 1968) var
einnig meðvitaður greiði við
Slóvaka, sem aldrei hafa verið
fullkomlega hressir með sinn hag
í tékkóslóvakíska ríkinu.
Undir leiðsögn Dubceks hófst
ný forusta kommúnistaflokks og
ríkis handa við framkvæmd víð-
tækrar umbótaáætlunar við mikla
hrifningu og vongleði landslýðs.
Dubcek varð óhemju vinsæll af
almenningi og á alþjóðavettvangi
dáður sem frumkvöðull nýrri og
betri tíma austantjalds. Sjálfur
mun hann ekki hafa ætlast til að
kommúnistaflokkurinn sleppti
forræði sínu, en Pragvorið var
eigi að síður gagnger bylting í
margra augum og háskalegt sem
slíkt að áliti þáverandi forustu
Sovétríkjanna og íhaldssamra
framámanna í Austur-
Evrópuríkjum, einkum Ulbrichts
gamla í Austur-Þýskalandi. Sá
uggur leiddi sem alkunna er til
innrásar Varsjárbandalagsins í
Tékkóslóvakíu 20.-21. ág. 1968.
Þar með var Pragvorið á enda.
í sviðsljósið
á ný
Dubcek og aðrir helstu menn
tékkóslóvakísku forustunnar
voru fluttir fangnir til Moskvu.
Hann var þá þegar sviptur völd-
um að mestu, enda þótt honum
væri ekki vikið úr stöðu flokksað-
alritara fyrr en í aprfl árið eftir. f
júní 1970 var hann gerður flokks-
rækur. Síðan hefur hann búið í
Bratislava, höfuðborg Slóvakíu,
og starfaði við skógarvörslu uns
hann fór á eftirlaun. Hann var
undir allströngu lögreglueftirliti
þangað til eftir heimsókn Gor-
batsjovs til Tékkóslóvakíu 1987.
Nýskipan Gorbatsjovs vakti
óhjákvæmilega mikla athygli þar-
lendis, enda urðu margir til að
líkja perestrojku hans við Prag-
vorið, og ekki að ástæðulausu.
Eftir að Dubcek var laus við eftir-
lit lögreglunnar tók hann fljólega
að láta í sér heyra á ný. í byrjun
s.l. árs fordæmdi hann innrás
Varsjárbandalagsins opinberlega
og hvatti valdahafa lands síns til
að fylgja fordæmi Gorbatsjovs.
Af tilefni þess að 20 ár voru liðin
frá innrásinni höfðu vestrænir
fjölmiðlar tal af Dubcek og Rude
Pravo, dagblað flokksins, brást
reitt við og kvað Dubcek hafa
verið og vera enn „afturhalds-
peð.“ Um 10,000 manns, sem
fóru í mótmælagöngu um Prag á
sjálfan afmælisdag innrásarinnar,
hylltu Dubcek.
Þau tíuþúsund eru lítið hjá
þeim fimmtíu þúsundum, sem
hylltu Dubcek í Bratislava í fyrra-
dag, hvað þá þeim þrjúhundruð
þúsundum sem sama dag
kröfðust lýðræðis í Prag. Atburð-
irnir gerast nú svo hratt austur
þar að aldrei er að vita nema Du-
bcek verði aftur orðinn leiðtogi
Tékkóslóvakíu eftir nokkra
daga. En Pragvorið var ekki
mikið hjá þeim umskiptum, sem
á þessu ári hafa átt sér stað í
austantjaldslöndum, og óvíst er
hvernig Dubcek, eftir langa ein-
angrun og nú komnum undir
sjötugt, farnast við þær kringum-
stæður.
Kvæntur er Alexander Dubcek
og á þrjá syni. Hann reykir ekki
og er ötull íþrótta- og veiðimað-
ur- -dþ.
2 SÍÐA - ÞJÖÐVILJINN Laugardagur 25. nóvember 1989