Þjóðviljinn - 23.12.1989, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 23.12.1989, Blaðsíða 2
FRÉTTIR Fiskvinnsla Rekin með hagnaði Þjóðhagsstofnun: Afkoma atvinnugreina verður betri í ár en ífyrra en þá var almennt halli á atvinnurekstri Afkoma botnfiskvinnslu hefur batnað mikið frá því í fyrra en þá var vinnslan rekin með tæp- lega 5% halla. Miðað við rekstr- arskilyrði í nóvember var reiknað með að botnfiskvinnslan væri rekin með 2%-3% hagnaði. Að mati Þjóðhagsstofnunar er rekstur frystingar taiin skila 5% hagnaði en saltfiskverkun hins vegar með tæplega 3% tapi. í þessum afkomutölum er reiknað með 3% verðbótum úr Verð- jöfnunarsjóði til frystingar en 5% til söltunar. Verðbætur á frystar afurðir falla niður nú um ára- mótin. Afkomubati fiskvinnslunnar stafar einkum af því að almenn rekstrarskilyrði hafa batnað með lækkandi raungengi krónunnar. Alþingi Stoimasamt þing í frí Alþingi kemur aftur saman þann 22. janúar Forsætisráðherra Steingrímur Hermansson frestaði 112. þingi Alþingis í gær og kemur þing aft- ur saman að loknu jólaieyfi þann 22. janúar. Síðasta mál á dagskrá þingsins var afgreiðsla fjárlaga þar sem fram fóru atkvæða- greiðslur um einstakar breyting- artillögur. Það var bæði grín og alvara sem einkenndi þennan lokafund Al- þingis fyrir Jól. Þegar kom að at- kvæðagreiðslu um kaup ríkisins á dagblöðum brugðust margir sjálfstæðismenn ókvæða við þeirri tillögu að ríkið keypti 500 eintök af hverju blaði til viðbótar við þau 250 eintök sem keypt hafa verið hingað til. Tillagan var dálítið ruglingslega orðuð. Þann- ig sagðist Matthías Bjarnason Sjálfstæðisflokki skilja tillöguna þannig að ríkið ætlaði einungis að kaupa 500 eintök af blöðunum yfir allt árið og hann sæti því hjá við atkvæðagreiðsluna. Fannst mörgum þingmönnum afstaða Matthíasar nokkuð fyndin en enn fyndnari þótti þeim túlkun Páls Péturssonar sem sagði að tillagan gerði ráð fyrir að ríkið keypti 500 árganga af blöðunum. Eftir þau orð breytti Matthías atkvæði sínu í nei. Afstaða hans breytti þó engu þar sem tillagan var sam- þykkt. Þegar kom að atkvæðagreiðslu um hækkun framlags til Kvenna- athvarfs, greiddi Hjörleifur Gutt- ormsson einn stjórnarliða at- kvæði með henni. -hmp Rekstrarskilyrði botnfiskveiða hafa hins vegar vernsað frá síð- asta ári og miðað við skilyrði í nóvember var reiknað með að veiðarnar væru reknar með tæp- lega 4% halla í stað l%-2% halla á árinu 1988. Botnfiskveiðar og vinnsla að meðtöldum frysti- skipum var talin rekin með tæp- lega 1% hagnaði en til saman- burðar var hallinn tæplega 3% á árinu 1988. Þjóðhagsstofnun telur að raun- gengislækkun krónunnar sem tal- in er verða 7%-8% lægri á þessu ári en í fyrra miðað við verðlag hafi einnig komið öðrum atvinnugreinum en sjávarútvegi til góða og þá fyrst og fremst iðn- greinum sem eiga í samkeppni við innfluttar vörur. Hins vegar benda veltutölur samkvæmt sölu- skattsframtölum til þess að um nokkra framleiðsluminnkun sé að ræða. Þetta á jafnt við um verslun, iðnað og þjónustu, þó samdrátturinn sé nokkuð misjafn innan greinanna. Til viðbótar raungengislækkun hafa raun- vextir lækkað í ár frá fyrra ári. í heild má þannig gera ráð fyrir að afkomaatvinnugreina verði betri á þessu ári en á árinu.1988 en það ár var almennt halli á atvinnu- rekstri. -grh Enn verslar fólk mest í gamla miðbænum í Reykjavík en hann á þó í harðri samkeppni við Kringluna, og hefur verslun þar dregist saman um 24%. Mynd-Jim Smart Verslun Kringlan sækir á Verslun ígamla miðbænum hefur dregistsaman um 24% á tíu árum. Kringlan með um 20% af heildarveltunni Velta verslana í gamla miðbæn- um dróst saman um 24% á árunum 1979 til 1989 og verslun við Ármúlann og í Skeifunni dróst saman um rúmlega 13% á sama tíma. Mest af versluninni hefur færst yfir í Kringluna, sem á síð- asta ári velti um 20% af heildar- veltu verslana í Reykjavík en önnur verslunarhverfi hafa einn- ig aukið sína veltu. Þetta kemur fram í nýútkom- inni skýrslu sem unnin var á veg- um Borgarskipulags Reykjavíkur um veltu smávöruverslana í Reykjavík 1988 eftir hverfum. I skýrslunni kemur fram að þrátt fyrir samdrátt í verslun í gamla miðbænum fer enn stærsti hluti verslunar fram þar, eða um 31% á móti 20% í Kringlunni. í gamla miðbænum eru hins vegar mun fleiri verslanir þannig að velta hverrar verslunar er minni en í Kringlunni. Að meðaltali var velta verslana í gamla miðbænum á síðasta ári 16 miljónir en 67 miljónir í Kringlunni og munar þar líklega mestu um nokkrar stórverslanir. 13 fyrirtæki eru með útsölu- staði bæði í Kringlunni og gamla miðbænum. í öllum tilfellum er veltan meiri í Kringlunni, eða um 55% á móti 45% í gamla bænum. í öðrum borgarhlutum hefur verslun aukist nokkuð, sérstak- Jón Baldvin Hannibalsson utanrikisráðherra hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna síðustu atburða í Panama þar sem ítrek- uð er sú stefna íslenskra stjórnvalda, að leysa beri alþjóð- leg deilumál með friðsamlegum hætti í samræmi við sáttmála sameinuðu þjóðanna. „Á grund- velli þessarar meginreglu þjóð- arréttar er ástæða til að harma að bandarísk stjórnvöld hafí talið sig knúin til að beita vopnavaldi í lega í austurhluta borgarinnar en samt sem áður fer um 90% af smávöruverslun fram vestan Ell- iðavogar þrátt fyrir að um 38% af íbúum borgarinnar búi austan Reykjanesbrautar. -iþ samskiptum sínum við Panama,“ segir í yfirlýsingunni. Enn fremur segir í yfirlýsing- unni: „Það ástand, sem nú ríkir í Panama verður hins vegar að skrifast að stórum hluta til á ábyrgð Noriegas. Þingmennirnir Hjörleifur Guttormsson og Svav- ar Gestsson sögðu á Alþingi í gær að viðbrögð utanríkisráðherra væru alltof linkindarleg og sagði Hjörleifur þau raunar fela í sér ákveðna réttlætingu á innrás Bandaríkjamanna. -ólg. Utanríkisráðherra Haimar hemaðaríhlutun Bandaríkjamanna 2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 23. desember 1989 Byggingariðnaður Almennt nóg að gera Samdrátturinn á þessu ári mun minni en búist var við samkvœmt bygg- ingakönnun. Gertráð fyrir verkefnaskorti í upphafi nœsta árs með 14% fœkkun starfs- manna. Aðallega verka- manna Verkefnastaða fyrirtækja í byggingariðnaði hefur almennt verið góð á þessu ári og mun betri en gert var ráð fyrir um síðustu áramót, þótt engan veginn sé hægt að segja að ástandið sé eins og best verður á kosið. Samdrátt- urinn á þessu ári er því mun minni en búist var við. Þetta er meðal þeirra niður- staðna sem fram komu í könnun á ástandi og horfum í byggingar- iðnaði sem gerð var í október af Landssambandi iðnaðarmanna í samvinnu við Meistara- og verk- takasamband byggingarmanna. Alls tóku þátt í könnuninni sjötíu og sjö fyrirtæki sem hjá unnu í haust um 1.777 manns. Það sam- svarar um 20% af heildarstarfs- mannafjölda þeirra fyrirtækja í byggingariðnaði sem rekin eru af einkaaðilum. Á einu ári frá september 1988 til október 1989 fækkaði starfs- mönnum í byggingariðnaði um 3,4% og þar af voru iðnaðar- menn um 50%. Fram til janúar 1990 gera fyrirtækin hins vegar ráð fyrir 14% fækkun starfs- manna til viðbótar og er þar aðal- lega um verkamenn að ræða. Varðandi verkefnastöðu fyrir- tækjanna á árinu 1989 kom í ljós að um 11% þeirra hafa búið við verkaefnaskort einhvern hluta ársins og 29% þeirra gera ráð fyrir að hafa ekki næg verkefni fram í janúar á næsta ári. í at- hugasemdum aðstandenda könnunarinnar er tekið fram að á þessum árstíma sé alltaf erfitt að meta horfur á verkefnum í bygg- ingariðnaði og menn oft svartsýnni en efni standa til. Þó sé ljóst að nokkurs verkefnaskorts á eftir að gæta á fyrstu vetrarmán- uðum árins 1990 með tilsvarandi uppsögnum. Samkvæmt verkefnaskiptingu fyrirtækjanna kemur í ljós að á árinu 1988 voru 30% verkefna þeirra við íbúðabyggingar og 35% á þessu ári. Þá hafa verkefni við byggingu atvinnuhúsnæðis dregist stórlega saman; voru 15% af verkefnum ársins 1988 en að- eins 10% í ár. Hins vegar nam þessi verkþáttur í byggingariðn- aðinum um 25% í góðærinu 1987. Þá var í könnuninni spurt hvort fyrirtæki væru farin að semja beint við starfsmenn um undir- verktöku og reyndist svo vera hjá 18 fyrirtækjum af 65 sem svör- uðu. Hjá 9 þeirra hafði þessi þátt- ur í starfseminni aukist frá síð- ustu áramótum. „rh JÓl Óbreytt ástand Samkværnt spá Veðurstofu ís- lands verður nokkuð hvöss norð- austanátt norð-vestanlands á að- fangadag og jóladag. Frost verð- ur vægt og snjókoma víðast hvar. Suð-austanlands verður hæg austanátt, lítilsháttar skúrir og hiti á bilinu 1-5 stig. Hitinn getur þó farið niður fyrir frostmark, með tilheyrandi snjókomu. Ætli það verði ekki bara á aðfanga- dagskvöld! _þóm

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.