Þjóðviljinn - 15.09.1990, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 15.09.1990, Blaðsíða 12
■n SPURNINGIN i Hverjir verða íslands- meistarar í knattspymu? Stefán Baldursson nemi: Fram, er það ekki? Siguröur Halldórsson nemi: Ætli það verði ekki Fram. Jón Ingi Guðmundsson mjólkurfræðingur: Ætli það verði ekki KR. Guðbjörg Jónsdóttir sölumaður: KR. Tómas Tómasson verkfræðingur: Hmm. Ætli það verði ekki Valur. SÍMI 68 13 33 SÍMFAX 6819 35 Sæmundur Valdimarsson við Móðurgleði. Segir hann verkið sýna hversu stolt móðirin er af bömunum sínum tveimur. Geirvörtur hinnar stoltu móður em úr þurrkuðum morgunfrúm. Myndir: Jim Smart. Kiarvalsstaðir Oxin er áhrifamesta verkfærið Sæmundur Valdimarsson opnar sýningu í dag á skúlptúrum úr rekaviði Sæmundur Valdimarsson listamaður opnar í dag í vesturforsal Kjarvalsstaða sýn- ingu á skúlptúrum úr rekaviði. Margir kannast eflaust við mannverur Sæmundar. Hann hef- ur unnið stærri skúlptúra úr reka- viði síðan um miðjan áttunda ára- tuginn. Fyrstu einkasýningu sína hélt Sæmundur árið 1983, en þær eru nú orðnar átta talsins. Fyrir ári hélt hann sýningu í Osló, og ófáir lögðu leið sina til Hafnarfjarðar á sýningu Hafnarborgar á nævum listamönnum í sumar, þar sem Sæmundur átti nokkur verk. Sæmundur tekur á móti blaðamanni Þjóðviljans á Kjar- valsstöðum og gengur með hon- um milli verkanna. Hann bendir á ungan mann með þijá rauða vængi í skýlu úr fiskroði. - Þetta verk kallast Sólþrá. Hann flygi til sólarinnar ef ekki vantaði á hann einn væng. Flesta vantar eitthvað til að geta orðið það sem þá langar til. Þessa þama hárprúðu nefni ég Sú var tíðin. Þegar gamlar konur minntust æskunnar hér áður fyrr sögðu þær ofl: Sú var tíðin ég hafði hár. Hár- ið gerði ég úr þangi. Ég vinn mest með efni úr náttúrunni; þara, trjá- lauf, blóm og fiskroð. Spýtimum safna ég á Reykjanesi og á Suður- landi, auk þess fæ ég stundum efni sent austan af ströndum. Öx- in er áhrifamesta verkfærið, spor- jám og raspa nota ég einnig, en allt em þetta handverkfæri. Reka- viðurinn er maðksmoginn, og sjiringur allur þegar hann þomar. Eg þarf að gera við hann jafhóð- um, og reka í hann fleyga til að halda honum heilum. Að baki þessari sýningu liggur tveggja ára vinna. Á sýningunni er fjöldi karla og kvenna, og kynjavera ýmiss konar: Drottningin af Saba, Rósa Ingólfsdóttir, Friðmey, sem er í eigu frú Vigdísar Finnbogadóttur, arabar, dansmeyjar og íjörufólk. Þar hitta gestir líka fyrir spengil- egan ungan mann sem Sæmundur kallar Draum daladætra og haf- mey að stíga upp úr sjónum. Sýning Sæmundar verður opnuð í dag kl. 14, og stendur til 30. þessa mánaðar. Kjarvalsstaðir em opnir daglega frá kl. 11-18. BE fÍP*lllÍÍfp Fyrsta ballið kallast þetta verk al ungri stúlku, sem er að stlga sín fyrstu skref I samkvæmisllfinu. Þessi sérkennilega vera með hjarta- lagaðan rauðan hjálm er geimfari. Hann er að sögn Sæmundar ekki mennskur, eins og sjá má á fúrðu- legu andliti hans.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.