Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1995, Blaðsíða 23
JjV LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 1995
23
„Úlfabræðurnir" líka loðnir um lófana:
Eru
vinsælir
meðal
kvenna
- sýna hárfínar listir í háloftunum
Victor og Gabriel Gomez, sem
fæddir eru með sjaldgæfan erfða-
sjúkdóm sem veldur of örum hár-
vexti á líkama þeirra og andliti,
þurfa ekki lengur að óttast þung-
lyndi þegar þeir eru kallaðir ónefn-
um. Nú ýlfra úlfabræðurnir, eins og
þeir eru kallaðir, af gleði.
„í gær vorum við afbrigðilegir en
í dag eru við hetjur," segja bræð-
urnir sem eru 13 og 17 ára. Að sögn
erlendra fjölmiðla þjást mexíkósku
bræðurnir og fleiri í fjölskyldu
þeirra af þessum óvenjulega sjúk-
dómi sem gerir það að verkum að
þeir líta út eins og varúlfar í hryll-
ingsmynd.
í áraraðir máttu bræðurnir þola
ónefni af ýmsu tagi, eins og „úlfa-
drengirnir". Fyrir vikið grétu bræð-
urnir sig í svefn og hættu í skóla og
héldu sig heima til að mæta ekki
hæðnisglósum jafnaldra sinna.
Útlitið var svart þegar fjölleika-
húseigandinn Robert Campa kom
að máli við þá.
„Við vorum með sýningu í nær-
liggjandi bæ þegar amma þeirra
kom að máli við okkur og spurði
hvort við vildum ráða þá. Ég hitti
þá og komst að raun um að á bak
við flókann voru tveir greindir ung-
ir menn,“ segir Robert.
Með leyfi foreldra sinna fóru
Gabriel og Vicktor með fjölleika-
húsinu fyrir fimm árum. Á þeim
tíma hefur Robert þjálfað þá í loft-
fimleikum og séð þeim fyrir mennt-
un sem þeir hefðu annars misst af.
„Seinustu ár hafa verið þau
ánægjulegustu í lífi mínu,‘, segir
Gabriel. „Sjálfstraust okkar jókst,
við lærðum nýja hluti og síðast en
ekki síst höfum við getað sent pen-
inga heim.“
Bræðurnir eru einnig vinsælir
meðal kvenfólks, segir Róbert.
Reyndar segir hann þá svo vinsæla
að þeir njóta meiri athygli en
vöðvabúntin hjá ungum stúlkum og
konum sem sæki sýningar og starfi
með fjölleikahúsinu.
Gabriel, sem er eldri, á sér kær-
ustu en segist ekki reiðubúinn að
giftast. Hann segir líf þeirra ævin-
týri líkast i dag. Þótt þeir séu enn
þá kallaðir úlfadrengirnir þá greini
þeir aðdáun í rödd þeirra sem kalla
þetta en ekki hæðni.
-PP
„Ulfabræð-
urnir“ sýna
nú loftfim-
leika í fjöl-
leikahúsi og
eru ánægðir
með lífið og
tilveruna.
nýjum umboðsaðila á íslandi
Þýzk-íslenzka hf tók við sölu og dreifingu á
framleiSsluvörum Norgips á Islandi þann
1. október 1995.
EINN HELSTI FRAMLEIÐANDI A
GIFSPLÖTUM í EVRÓPU
IÞYZK-ISLENZKA HF.
LYNGHÁLSI 10 - SÍMI 5675600 - FAX 587 7914
Norgips gifsplötur eru
sterkar, hljóSeinangrandi
og óbrennanlegar
og því hentugasta efnið til
ýmissa klæðninga í byggingum.
Gifs er náttúrulegt efni sem
gefur ekki frá sér skaðlegar
lofttegundir eða lykt.
KASTARADAGAR
frá 23. október
til 4. nóvember
Rafkaup
ARMULA 24 - S: 568 1518
AFSLÁTTUR AF ÖLLUM KÖSTURUM + STORAFSLATTUR AF AKVEÐNUM TEGUMDUM