Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.1996, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.1996, Blaðsíða 7
FÖSTUDAGUR 12. JANÚAR 1996 23 DV Messur Árbæjarkirkja: Barnaguðsþjónusta kl. 11. Guðsjjjónusta kl. 14. Organleikari Sigrún Steingrímsdóttir. Prestarnir. Áskirkja: Barnaguðsþjónusta kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Kaffi eftir messu. Árni Bergur Sigurbjömsson. Breiðholtskirkja: Barnaguðsþjónusta kl. 11. Guðsþjónusta kl. 11. Samkoma ungs fólks með hlutverk kl. 20. Gísli Jónasson. Bústaðakirkja: Barnaguðsþjónusta kl. 11. Foreldrar hvattir til þátttöku með börn- unum. Guðsþjónusta kl. 14. Organisti Guðni Þ. Guðmundsson. Pálmi Matthías- son. Digraneskirkja: Messa kl. 11. Altaris- ganga. Organisti Smári Ólason. Sunnu- dagaskóli kl. 11. Gunnar Sigurjónsson. Dómkirkjan: Messa kl. 11. Prestur sr. Hjalti Guðmundsson. Dómkórinn syngur. Organleikari Marteinn H. Friðriksson. Barnastarf í safnaðarheimilinu á sama tíma og í Vesturbæjarskóla kl. 13. Fjöl- skylduguðsþjónusta kl. 14. Prestur sr. Jakob A. Hjálmarsson. Fundurfermingar- barna og foreldra þeirra að messu lok- inni. Eyrabakkakirkja: Bamaguðsþjónusta kl. 11. Fella- og Hólakirkja: Messa kl. 11. Prestur sr. Hreinn Hjartarson. Organisti Lenka Mátéová. Barnaguðsþjónusta á sama tíma í umsjón Ragnars Schram. Prestarnir. Fríkirkjusöfnuðurinn í Reykjavík: í dag, laugardag, kl. 11 flautuskólinn í Safnaðar- heimilinu. Sunnudag barnaguðsþjónusta kl. 11.15. Guðsþjónusta kl. 14. Órganisti Pavel Smid. Cecil Haraldsson. Grafarvogskirkja: Barnaguðsþjónusta kl. 11. Umsjón hafa Hjörtur og Rúna. Barnaguðsþjónusta í Rimaskóla kl. 12.30 í umsjón Jóhönnu og, Ólafs. Guðsþjón- usta kl. 14. Organisti Ágúst Ármann Þor- láksson. Prestarnir. Grensáskirkja: Barnasamkoma kl. 11. Messa kl. 14. Prestur sr. Halldór S. Grön- dal. Organisti Árni Arinbjarnarson. Hallgrimskirkja: Barnasamkoma og messa kl. 11. Sr. Ragnar Fjalar Lárusson. Háteigskirkja: Barnaguðsþjónusta kl, 11. Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir. Messa kl. 14. Sr. Tómas Sveinsson. Hjallakirkja: Messa kl. 11. Altarisganga. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédikar. Fermingarbörn aðstoða. Barnaguðsþjón- usta kl. 13 í umsjá sr. Bryndísar Möllu og Dóru Guðrúnar. Foreldrar eru hvattir til þátttöku með börnum sínum. Organisti Oddný Þorsteinsdóttir. Kristján Einar Þor- varðarson. Keflavíkurkirkja: Sunnudagaskóli kl. 11 árd. í umsjá Málfríðar og Ragnars, Lauf- eyjar og sr. Sigfúsar. Verið með á nýju ári. Munið skójabílinn. Guðsþjónusta kl. 14. Prestur: Ólafur Oddur Jónsson. Kór Keflavíkurkirkju syngur. Organisti: Einar Örn Einarsson. Prestarnir. Kópavogskirkja: Barnastarf í safnaðar- heimilinu Borgum kl. 11. Guðsþjónusta í Kópavogskirkju kl. 11. Dr. Sigurjón Ámi 'Eyjólfsson héraðsprestur prédikar og þjónar fyrir altari. Órganisti Öm Falkner. Ægir Fr. Sigurgeirsson. Kvennakirkjan: Janúarmessa Kvenna- kirkjunnar verður í Laugarneskirkju sunnudaginn ,14. janúar kl. 20.30. Séra Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédikar. Kór Kvennakirkjunnar leiðir almennan söng undir stjórn Bjarneyjar Ingibjargar Gunn- laugsdóttur við undirleik Aðalheiðar Þor- steinsdóttur. Kaffi á eftir í safnaðarheimil- inu. Landspítalinn: Messa kl. 10. Sr. Jón Bjarman. Langholtskirkja, Kirkja Guðbrans bisk- ups: Messa kl. 11. Prestur sr. Flóki Krist- insson. Almennur safnaðarsöngur. Sunnudagaskóli á sama tíma í umsjá Báru Friðriksdóttur og Sóleyjar Stefáns- dóttur. Kaffisopi eftir messu. Laugarneskirkja: Messa kl. 11. Hólm- fríður Friðjónsdóttir syngur einsöng. Fé- lagar úr kór Laugarneskirkju syngjá. Org- anisti Gunnar Gunnarsson. Barnastarf á sama tíma. Guðsþjónusta kl. 14 í Sjálfs- bjargarhúsinu, Hátúni 12. Ólafur Jó- hannsson. Lágafellskirkja: Guðsþjónusta kl. 14. Barnastarf í safnaðarheimili kl. 11. Jón Þorsteinsson. Neskirkja: Barnasamkoma kl. 11. Opið hús frá kl. 10. Munið kirkjubílinn. Messa kl. 14. Sr. Frank M. Halldórsson. Innri-Njarðvíkurkirkja: Sunnudagaskóli sunnudaginn 14. jan. kl. 13. Ytri-Njarðvíkurkirkja: Sunnudagaskóli sunnudaginn 14. jan. kl. 11. Baldur Rafn Sigurðsson. Óháði söfnuðurinn: Messa kl. 14. Barnastarf á sama tíma. Lofgerðarsveit Fíladelfíukirkjunnar syngur. Kaffi og maul eftir messu. Seljakirkja: Barnaguðsþjónusta kl.,11. Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Irma Sjöfn Ósk- arsdóttir prédikar. Organisti Kjartan Sig- urjónsson. Sóknarprestur. Seltjarnarneskirkja: Messa kl. 11. Prest- ur sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir. Org- anisti Vera Gulasciova. Barnastarf á sama tíma. Stokkseyrarkirkja: Messa kl. 14. Villingaholtskirkja í Flóa: Messa nk. sunnudag kl. • 13.30. Vænst er þátttöku fermingarbarna. Kristinn Á. Friðfinnsson. Hörkuleikir í körfuboltanum: Undanúrslit í bikarkeppninni „Leikurinn leggst vel í mig og við eigum góða mögu- leika. Að sjáifsögðu kemur ekkert annað en sigur til greina. Það eru orðin allt of mörg ár síðan við lékum til úrslita í bikarkeppninni. Þá töpuðum við stórt en ég gleymi því ekki í bráð. Núna á auðvitað að gera betur en til þess þurfum við að sigra Þór. Þetta verður spurn- ing um dagsformið en pressan er meiri á okkur því það ætlast allir til þess að við vinnum leikinn," segir Reyn- ir Kristjánsson, þjálfari Hauka, um viðureign sinna manna gegn Þór i undan- úrslitum bikar- keppni KKÍ sem fram fara á sunnudaginn kl. 16. „Undirbúningur fyrir þennan leik er óvenjulegur að því leyti að við höfum haft viku til umráða en yfirleitt er spilað mjög þétt i deild- inni. Núna hefur verið tími til að skerpa á ýmsum hlutum,“ segir Reynir sem spáir sínum mönnum sigri en vill þó ekki nefna nein- ar tölur og telur það óraunhæft. Þjálfarinn segir samt að leikurinn verði erfíður, ekki síst vegna þess að Fred Williams komi nú aftur í lið Þórs eftir tveggja leikja bann. En hvað segir Reynir um hinn leikinn í undanúrslit- unum, leik ÍA og KR? „Ég held aö það skipti mjög miklu máli hvort Bow verður með KR-ingum eða ekki en hann hefur átt við meiðsli að stríða. Annars er voðalega erfítt að spá fyrir um úrslitin," segir þjálfarinn sem viður- kennir þó að gaman væri að mæta ÍA í úrslitunum en Reynir var um tíma liðsstjóri Akurnesinga og segist hafa nokkuð sterkar taugar til þeirra. Undanúrslit í bikarkeppni KKÍ fara fram á sunnudaginn og þá mætast Haukar og Þór í Hafnarfirði og ÍA og KR á Akranesi. í þessum tveimur leikjum verður örugglega hart barist enda mikið í húfi. Á myndinni er Skagamað- urinn Milton Beil í baráttu við nokkra KR-inga í leik iið- anna fyrr í vetur. DV-myndir Brynjar Gauti Reynir Kristjánsson, þjálfari Hauka, er staðráðinn í að leiða sína menn tii sigurs í leiknum gegn Þór. Fjórar sýningar verða opnaðar á Kjarvalsstöðum á morgun en á myndinni er eitt þeirra verka sem sýnd eru þar austursalnum. DV-mynd G! Fjórar sýningar á Kj arvalsstöðum Fjórar sýningar verða opnaðar á Kjarvalsstöðum á morgun. í vestur- sal er yfirlitssýning á verkum eftir franska abstraktmálarann Olivler Debré, sýning Komar og Melamid (Val fólksins) er í vesturforsal, í austursal eru sýnd verk Kjarvals og ný verk Ingólfs Amarssonar eru í miðsal en um síðasttalda listamann- inn er fjallað sérstaklega annars staðar i blaðinu. Olivler Debré er einn af merkari abstraktmálurum Frakka sem komu fram og endurnýjuðu mál- verkið eftir seinna strið. Hann sýndi fyrst árið 1940 expressionísk- ar abstraktmyndir en eftir Í960 verður afgerandi endurnýjun í verkum listamannsins þegar hann stækkar myndirnar og einfaldar formin. Komar og Melamid eru rússnesk- ir myndlistarmenn sem störfuðu um árabil að list sinni undir oki Sovétstjómarinnar þar sem þeir skipulögðu m.a. hina þekktu jarö- ýtusýningu árið 1974. Fjómm árið síðar fluttust þeir til Bandaríkjanna þar sem þeir búa og vinna að list sinni. List þeirra er framsækin hug- myndalist þar sem meginviðfangs- efnið er menningar-félagsleg um- fjöllun um listina og samfélagið. í Kjarvalssal hefur Helga Þorgils Friðjónssyni verið boðið að setja saman sýningu á verkum Kjarvals. Helgi Þorgils hefur valið á þriðja hundrað teikninga sem ekki hafa verið sýndar áður opinberlega. íþróttir Landsliðsmarkvörðurinn Berg- sveinn Bergsveinsson verður í eldlínunni þegar félag hans, Aft- urelding, fær KA í heimsókn í Mosfellsbæinn á sunnudaginn. Handbolti Nissan - deildin: Afturelding - KA Su kl. 16.30 FH - KR Su kl.20 Selfoss - Grótta Su kl.20 ÍR - ÍBV Su kl. 20 Víkingur-Haukar Su kl.20 1. deild kvenna: Fylkir-FH Lau kl.16 ÍBA-Fram Lau kl.16 Haukar - ÍBV Lau kl.16.30 Valur - Stjarnan Su kl.18.15 Víkingur - KR Su kl.18.30 Körfuknattleikur Undanúrslit í bikarkeppni karla: Haukar-Þór Sukl.16 Akranes-KR Sukl.16 1. deild kvenna: Tindastóll - ÍA Lau kl.14 Breiðablik - ÍS Lau kl.16.30 Knattspyrna íslandsmótið innanhúss 1. deild karla verður leikin á laugardag frá klukkan 10 - 19.30 og úrslitakeppnin hefst klukkan 14 á sunnudag og lýkur með úr- slitaleik klukkan 17.30. 1. deild kvenna verður leikin á laugar- dag og sunnudag og lýkur með úrslitaleik klukkan 17. Leikið er í Laugardalshöll. 2. deild karla verður leikin í Austurbergi á sunnudaginn og 3. deildin á sama stað á laugardeginum. Ferðafélag íslands: Vetrarganga um skógarstíga Á sunriudaginn veröur Ferðafélag íslands með vetrargöngu um skóg- arstíga en farið verður í Vifllsstaða- hlíð kl. 11. Þetta er létt og þægileg gönguleið fyrir alla fjölskylduna. Ekið er að Maríuvöllum og gengið sem leið liggur með fram hlíðinni. Komið er til baka um kl. 16. Brottfór er frá Umferðarmiðstöð- inni og Mörkinni 6. Útivist: Póstleiðin 1790 Á morgun eru fimm ár liðin síðan farinn var fyrsti áfangi Póstgöng- unnar, raðgöngu Útivistar 1991. Áfangamir urðu þrjátíu og þeim síðasta lauk 29. desember á sama ári. Til að rifja upp þessa lengstu rað- göngu, sem Útivist hefur staðið fyr- ir, verður farið með Akraborginni kl. 9.30 í fyrramálið og ekið með rútu frá Akranesi upp að Leirá. Það- an verður gengin póstleiðin sem far- in var 1790 á milli Leirár og Innra- Hólms. Síðan verður ekið aftur að Akraborg og komið til Reykjavíkur um kl. 18. Fararstjóri verður Einar Egils- son. Ferð um Búrfellsgjá Á sunnudag er lagt af staö á veg- um Útivistar kl. 10.30 í ferð um Búr- fellsgjá og nágrenni. Ekiö veröur að Veghjöllum í Vífilsstaðahlíð og það- an gengið um gjána að Búrfelli. Komið verður viö i Valabóli og gengið um Kaldársel. Gera má ráð fyrir um 3 klst. göngutíma. Fararstjóri verður Helga Jörgen- sen.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.