I MÁNUDAGUR 22. JANÚAR 1996 11 Fréttir íslendingur í bréfaskriftum viö dönsku hiröina: Vill fá prinsinn hingað í leirl iii Steingrímur Sigurjónsson, húsa- smíðameistari í Danmörku, hefur um nokkurt skeið átt í hréfaskrift- um við dönsku hirðina og reynt að stuðla að því að Hinrik prins, eigin- maður Margrétar Þórhildar Dana- drottningar, komi til íslands til að stunda leirböð og heit hveraböð. Prinsinn hefur þjáðst af slæmu brjósklosi um nokkurra ára skeið og segist Steingrímur vita af eigin reynslu að slík meðferð myndi gera honum gott. Ég las grein í dönsku blaði um þjáningar Hinriks prins. Þær lýstu sér á sama hátt og þjáningar mínar eftir að ég varð fyrir vinnuslysi í Sundlaugunum í Laugardal fyrir rúmum 30 árum. Það sem bjargaði mér voru æfingar í heita vatninu í gömlu laugunum," segir Steingrím- ur. Steingrímur hefur fengið svarbréf frá dönsku hirðinni þar sem honum er þakkað fyrir bréfin og upplýsing- arnar. í einu bréfanna segir að prinsinum hafi verið kynnt erindið. Steingrímur Sigurösson, húsa- smíöameistari í Danmörku, hefur skrifað Hinriki prins, eiginmanni Margrétar Þórhildar Danadrottning- ar, og ráölagt honum að koma til ís- lands til að stunda leirböð og heita potta gegn brjósklosi og bakverkj- um. Steingrímur hefur fengið svar- bréf frá hirðinni þar sem segir að prinsinum hafi verið kynnt hug- myndin. DV-mynd BG Valdimar Grímsson: Ráðinn yf ir- maður Kaupáss - sem rekur 11-11 búðirnar Valdimar Grímsson handknatt- leiksmaður hefur verið ráðinn yfir- maður Kaupáss frá áramótum og tekur við starfi Arnar Ingólfssonar. Kaupás rekur 11-11 búðirnar, fimm talsins, á höfuðborgarsvæð- inu. Valdimar vann áður hjá KÁ á Selfossi en eins og kunnugt er keypti KÁ meirihluta í Kaupási sl. haust. Valdimar, sem er iðnaðartækni- fræðingur að mennt, sagði þetta spennandi verkefni sem hann hlakkaði til að fást við. Augh'óslega hefur Valdimar 1 nógu að snúast því að jafnframt þessu nýja starfi þjálfar hann fyrstu deildar liðið í handknattleik á Sel- fossi og leikur með því. Hann býr á höfuðborgarsvæðinu og ekur á milli. -ÞK Nýr prófastur Séra Björn Jónsson, sóknarprest- ur á Akranesi, hefur verið skipaður prófastur í Borgarfjarðarprófasts- dæmi frá 1. janúar 1996. Björn Jónsson er fæddur 7. októ- ber 1927. Hann lauk gagnfræðaprófi 1952 og stundaði framhaldsnám í kirkjusögu, trufræði og kennimann- legri guðfræði 1956-1957. Séra Björn hefur verið sóknarprestur frá árinu 1952, fyrst í Keflavík en á Akranesi frá árinu 1974. -ÞK viö brjósklosi Ekki séu uppi nein áform um ferð i heitu laugarnar á íslandi en hugs- anlega verði haft samband við Steingrím komi til slíkrar ferðar. Þá hefur danska blaðið Billed Bladet sagt frá ráðleggingum Steingríms. Steingrímur ætlar að halda áfram að yinna að því að fá Hinrik prins til íslands og hefur, að eigin sögn, rætt við Vigdísi Finnbogadóttur, forseta íslands, um þetta mál. -GHS FuTurA eykur orku og úthald Eitt hylki á dag og þú finnur muninn! Fæst í apótekinu 4.900,-, Skipholti 19 Sími: 552 9800