Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1996, Blaðsíða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1996, Blaðsíða 37
JL>V LAUGARDAGUR 9. MARS 1996 45 Ásdís Björk Pátursdóttir, íslandsmeistari kvenna í þolfimi: „Mér finnst þolfimi mjög skemmtileg. Ég var ung þegar ég hætti að keppa í fimleikum en fann að ég átti mikið eftir og hafði metn- að fyrir því að komast lengra. Þess vegna fór ég í þolfimi. Reynsla mín úr flmleikum nýtist mér líka mjög vel - styrkurinn, liðleikinn og ag- inn. Þótt ég hafi stefnt að sigri á ís- landsmótinu kom mér það samt á óvart því mér fannst sem ég hefði klúðrað þessu. Ég gerði alls ekki mitt besta og get miklu meira. Ég slapp samt fyrir horn,“ segir Ásdís Björk Pétursdóttir sem um síðustu helgi varð íslandsmeistari kvenna í þolfími. Ásdís Björk er 22 ára og hefur æft þolfimi í eitt ár. Þótt hún hafi að- eins æft svona skamman tíma þarf ekki að undrast árangur hennar því hún æfði fimleika um árabil og hef- ur seinustu ár starfað sem fimleika- kennari hjá fimleikafélaginu Ár- manni. „Ég byrjaði 11 ára að æfa fim- leika. Svo hætti ég þegar ég var 18 ára þegar ég fór út sem skiptinemi til Þýskalands. Ég hef ekkert keppt eftir það enda þýðir það ekkert eftir að maður hefur tekið sér svona langt frí. Ég hef hins vegar verið að þjálfa og haldið mér í formi þannig og farið í þolfimi svona með,“ segir Ásdís Björk. Óhætt er að fullyrða að Ásdís sit- ur ekki auðum höndum því auk þess að kenna fimleika þrisvar i viku, fimm til sex tíma í senn, stunda þolfimi af kappi og dansa, þá er hún í þýskunámi í Háskóla ís- lands. Þýskaland er greinilega draumalandið hennar Ásdísar „Mér finnst þolfimi mjög skemmtileg. Ég var ung þegar ég hætti að keppa í fimleikum en fann að ég átti mikið eftir og hafði metnað til að komast lengra. Þess vegna fór ég í þolfimi," segir Ásdís Björk. DV-myndir JAK Olga Bjarnadóttir, Ásdís Björk og Guðrún Gísladóttir á verðlaunapalli á ís- landsmótinu. Utsölustaðir: Versl. Joss, Kringlunni Snyrtivöruversl. Brá, Laugavegi Snyrtivöruversl. Sandra, Laugavegi Græna línan, Laugavegi Versl. Daman, Laugavegi Kjötbúr Péturs, Austurstræti Snyrtivöruversl. Dísella, Austurstræti Snyrtihöllin, Glæsibæ Videoljónið, Dunhaga Hárgreiðslust. Manda, Hofsvallagötu Hárgreiðslust. Rögnu, Mýraseli Hárgreiðslust. Brúskur, Höfðabakka Hárgreiðslust. Dóra, Langholtsvegi Apotek Árbæjar Nes Apótek, Olafsvík Apótek, Dalvík Apótek, Húsavík Apótek Akureyrar Stjörnu Apótek, Akureyri Klettur Vestmannaeyjum Versl. Ynja, Akureyri Versl. Esar, Húsavík Verslunin Lónið, Hornarfirði Versl. Mai, Selfossi Versl. Heimahornið, Stykkishólmi Bjarkar því að loknu námi í Há- skólanum hygg- ur hún á fram- haldsnám í stjórn- un þár í landi en samhliða þýskunám- inu hér tekur hún kúrsa í viðskiptafræði. I framhaldsnám til Þýskalands „Eg hugsa að ég fari til Þýska- lands i nám seinna meir en það fer hins vegar allt eftir því hvað maður er að fara að gera í þolfiminni. Núna stefni ég á mót erlendis. Það er heimsmeistaramót í haust og ég þarf líklega að fara á úrtökumót fyr- ir það þannig að ég þarf að halda mér i formi þangað til og æfa mig vel. Ég er annars búin að takast of mikið á hendur núna og verð þvi að skipuleggja mig aðeins betur.“ Þolfimi er orðin viðurkennd íþróttagrein hér á landi og heyrir undir Fimleikasamband Islands. Þótt iðkendur þolfimi hér á landi séu fjölmargir hafa þátttakendur í mótum ekki verið jafn margir að tíma í senn. „Svo þarf að finna spor og tónlist sem getur verið mjög erfitt. Það er líka mjög erfitt að æfa einn eins og ég gerði. Ég fékk hins vegar mjög góða hjálp frá Hrafni í Stúdíói Ágústu og Hrafns og á honum mik- ið að þakka.“ Ásdís Björk stefnir nú á heims- meistaramótið í haust. Þótt hún hafi þurft að æfa mikið fyrir íslandsmót- ið veit hún að það var aðeins byrj- unin. Nóg er eftir. PP „Ég hugsa að ég fari til Þýskalands í nám seinna meir en það fer hins vegar allt eftir því hvað maður er að fara að gera ■ þol- fiminni. Núna stefni ég á mót erlendis." sama skapi. Þetta er þó að breytast og hafa aldrei verið jafn margir keppendur í íslandsmóti og nú. Til dæmis eru fimleikafélögin að stofna sérstaka þolfimihópa innan sinna vébanda. „Kvennaflokkurinn var til dæmis mjög jafn núna - hann hefur reynd- ar aldrei verið eins jafn. Það gat hver sem var unnið.“ Ásdís Björk segir samkeppnina harða meðal þolfimifólks - mun meiri en í fimleikum. Sumt þolfimi- fólk hafi heldur ekki mikið álit á fimleikum og þeim sem koma úr því umhverfi. Sjálf segist hún ekki hlusta á þessa gagnrýni. Hins vegar standi þeir sem æft hafi fimleika af einhverju viti. mjög vel að vígi í þolfiminni því i fimleikunum öðlist fólk mikinn styrk, sjálfsaga, þrek og tækni. Undirbúningur fyrir mót eins og það sem fram fór um síðustu helgi er talsverður. Ásdis Björk segist sjáif alltaf vera að gera styrktaræf- ingar. Tveimur mánuðum fyrir þetta mót hafi hún síðan farið að æfa markvisst með því að mæta á morgnana og aftur á kvöldin til æfinga. Þetta þarf hún að halda áfram að gera þar til kemur að heimsmeistaramót- inu í haust og í lengri iIiipi CLASSIC Sokkabuxurnar FYRIR ÞIGI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.