Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.1996, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.1996, Blaðsíða 18
18 FIMMTUDAGUR 2. MAÍ 1996 íþróttir Knattspyrna: Bröndby vill ekki frændann Menn veröa frægir fyrir ýmis- legt í íþróttunum. Nú er frændi George Weah hjá AC Milan kom- inn í sviðsljósið og talið að danskt félag muni semja við hann innan skamms. Forráðamenn Bröndby harð- neituðu því í gær að hafa áhuga á frændanum sem heitir Benmadi Muhammed. Sjálfur hefur Weah, knattspyrnumaður ársins í heim- inum, mælt eindregið með frænda sínum. -SK Asprilla fékk vægan dóm Dæmt hefur verið í máli sem spannst eftir skrautleg viðskipti Faustinos Asprillas í Newcastle og Keiths Curles, fyrirliða Man, City, en þeim lenti tvívegis sam- an í leik liðanna fyrir nokkrum vikum. Aspriila sló Curle með olnbog- anum í andlitiö og skallaði hann síðan í höfuðið siðar í umrædd- um leik. Þrátt fyrir þessa rudda- legu framkomu var Asprilla að- eins dæmdur í eins leiks bann og gert að greiða um eina milljón króna í sekt. Fannst mörgum að Kólumbíumaðurinn slyppi ótrú- iega vel frá málinu. -SK Brolin fer í uppskurð Svíinn Tomas Brolin endaði veru sína hjá Leeds United á tímabilinu eins og hann hóf hana. Brolin er farinn heim til Sví- þjóðar þar sem hann verður skor- inn upp vegna meiðsla á ökkla. Fyrirhugað var að Brolin færi í uppskurðinn eftir tímabiiið en Howard Wilkinson ákvað að senda Brolin heim í gær. Svíinn hefur ekkert getað frá því hann kom til Leeds og er Wilkinson kennt um getuleysi Svíans. -SK Dortmund fékk stóran skell Borussia Dortmund, toppliðið í þýsku úrvaisdeiidinni í knatt- spymu, fékk heldur betur skell í leik sínum gegn Karlsruhe. Dortmund tapaði 5-0 en heldur efsta sætinu á markatölu þar sem Bayem Múnchen lék ekki. Úrslit í öðrum leikjum í gær og fyrra- kvöld: Rostock-Freiburg...............1-0 Uerdingen-Leverkusen...........3-0 Schalke-Stuttgart..............2-0 DUsseldorf-St. Pauli ..........2-0 Hamburger SV-Gladbach..........2-1 Köln-Frankfurt.................3-0 Dortmund og Bayerm eru í fyrsta og öðru sæti með 58 stig en Gladbach vermir þriðja sætið með 50 stig. Frankfurt er á barmi falls í 2. deild í fyrsta skipti eftir skell í Köln í gær. -SK/VS Bebeto til Flamengo Brasilíska knattspyrnufélagið Flamengo festi í gær kaup á hin- um snjalia Bebeto frá Deportivo Coruna á Spáni. Bebeto leikur við hlið Romarios, félaga síns úr brasilíska landsliðinu, hjá Fla- mengo. Capello til Spánar Fabio Capello hættir sem þjálf- ari ítölsku meistaranna ACMil- an í vor og tekur við spænska stórliðinu Real Madrid. Tyrkir sigruöu Tyrkir, sem eru að búa sig undir úrslitakeppni EM í knatt- spymu, sigruöu Úkraínu, 3-2, í vináttulandsleik í gær. Pólland og Hvíta-Rússland skildu jöfn, 1-1. -VS Sænska knattspyrnan: Arnór skoraði fyrsta markið - Örebro nýtti ekki tvö víti DV Svíþjóð: Arnór Guðjohnsen skoraði fyrsta mark Örebro í úrvals- deildinni á þessu tímabili þegar liðið gerði jafntefli, 1-1, við Umeá á heimavelli í gær. Arnór kom Örebro yfir á 63. mínútu en nýliðarnir jöfnuðu sex mínútum síðar. Örebro nýtti ekki tvær víta- spyrnur í leiknum, Lars Zett- erlund skaut í þverslá og Tommy Stáhl fram hjá marki Umeá. Örebro hefur þar með fengið þrjár vítaspyrnur í fyrstu þremur umferðunum og ekki skorað úr neinni þeirra! Helsingborg vann Degerfors, 4-1, og er efst með 9 stig eftir þrjá leiki. Örebro er í fjórða neðsta sætinu með 1 stig. Aðrir leikir í 3. umferðinni eru í kvöld. -EH UEFA-bikarinn: Bayern stendur vel að vígi - vann fyrri leikinn viö Bordeaux Bayern Múnchen á góða möguleika á sínum fyrsta Evr- óputitli í knattspyrnu í 20 ár eftir 2-0 sigur á Bordeaux frá Frakklandi í fyrri úrslitaleik liðanna um UEFA-bikarinn sem fram fór í Múnchen í gær. Thomas Helmer kom Bayern yfir á 35. mínútu og Mehmet Scholl bætti öðru við á 60. mín- útu. Bordeaux var óheppið að skora ekki i leiknum því liðið sótti oft grimmt og Oliver Kahn, markvörður Bayern, bjargaði oft glæsilega. Liðin mætast aftur 1 Bor- deaux þann 15. maí. -VS Enska knattspyrnan: Jafnt á Highbury Arsenal og Liverpool gerðu markalaust jafntefli í ensku úr- valsdeildinni í gærkvöldi. Ars- enal þarf því enn að berjast fyr- ir UEFA-sætinu í lokaumferð- inni á. sunnudaginn. Þorvaldur Örlygsson og félag- ar í Oldham björguðu sér frá falli í 2. deild með 2-0 sigri gegn Lárusi Orra Sigurðssyni og félögum í Stoke í fyrradag. Önn- ur úrslit í 1. deild í gær og fyrradag: Barnsley-W.B.A..............1-1 Charlton-Tranmere...........0-0 Luton-Port Vale.............3-2 Reading-Wolves..............3-0 Ipswich-Huddersfield........2-1 Ipswich vann mjög mikilvæg- an sigur í gærkvöldi en gífur- lega hörð keppni verður í síð- ustu umferð um hvaða þrjú lið fylgja Crystal Palace í auka- keppnina um sæti í úrvalsdeild. Þar er nú Stoke með 70 stig, Charlton 70, Ipswich 68 og Leicester 68. Huddersfield er með 63 stig og á ekki lengur möguleika. Fallslagur 1. deildar er á milli Millwall, Portsmouth og Watford en tvö þessara liða fylgja Luton niður í 2. deild. -VS Heimsmeistaramótið í íshokkí: Tékkar og Rússar áfram Tékkar og Rússar komust í gær f undanúrslitin á heims- meistaramótinu í íshokkí sem nú stendur yfir í Vínarborg. Tékkar sigruðu Þjóðverja, 6-1, og Rússar lögðu ítali að velli, 5-2. Tékkar mæta Bandaríkja- mönnum sem sigruðu Svía í fyrradag, 3-2. Rússar leika við Kanadamenn sem lögðu Finna að velli, 3-1. -VS Toni Kukoc og félagar í Chicago mæta New York i 2. umferð úrslitakeppni NBA-deildarinnar. Chicago vann f nótt öruggan sigur á Miami og vann samanlagt, 3-0, og New York vann þriðja sigur sinn á Cleveland. Fyrsti leikur Chicago og New York fer fram í Chicago á sunnudaginn. Taka Hoddle og Gullit við enska landsliðinu? - röflið í Qölmiðlum ekki annað en sannleikurinn sjálfur Glenn Hoddle, framkvæmdastjóri enska liðsins Chelsea, sagði fyrir nokkrum dögum að það væri bara röfl í fjölmiðlum að hann væri hugs- anlega að taka við landsliðinu. í dag er þessi sami Hoddle að íhuga tilboð frá enska knattspyrnusambandinu og mun svara því á næstu dögum hvort hann treystir sér í starfið. „Það er margt sem ég þarf að hugsa um þessa dagana og ég þarf að taka margar ákvarðanir. Ég hef hins vegar ekki gert upp hug minn enn þá,“ sagði Hoddle í gær. Hoddle er 38 ára gamall og ef hann tekur við af Terry Venables verður hann yngsti landsliðsþjálfari Englendinga frá upphafi. Talið er líklegt að Hollendingurinn Ruud Gullit verði aðstoðarmaður Hoddles ef hann tekur starfið að sér. Forráðamenn Chelsea eru ekki mjög hrifnir yfir vinnubrögðum enska knattspyrnusambandsins í málinu. Ken Bates, stjórnarformað- ur Chelsea, sagði í gær að það væru forkastanleg vinnubrögð hjá sam- bandinu að hafa fyrst samband við Hoddle og svo Chelsea. Þessu ætti, ef farið væri eftir settum reglum, auðvitað að vera öfugt farið. Bates er mikill stuðningsmaður Hoddles og hefur boðið honum um 45 milljónir króna í árslaun ef hann verður áfram hjá Chelsea. Það er því ekki skrítið að Hoddle þurfi tíma til að hugsa sig um og íhuga tilboðið frá enska knattspyrnusam- bandinu sém hann fékk í hendur í fyrradag, þrátt fyrir allt „röflið“ og allan „hugarburðinn“' í fjölmiölum síðustu dagana. Hoddle mun svara tilboðinu í þessari viku. Þegar er farið að ræða um eftirmann Hoddíes hjá Chelsea og þar er nafn George Graham, fyrrum stjóra Arsenal, efst á blaði. Hann er sem stendur í banni eftir að upp komst að hann hafði þegið ólöglegar greiðslur. -SK FIMMTUDAGUR 2. MAÍ 1996 31 DV NBA-körfuboltinn: Chicago og New York eru komin áfram - Portland jafnaði gegn Utah og Phoenix minnkaði muninn gegn Spurs Chicago Bulls og New York tryggðu sér í nótt sæti í 2. umferð úrslitakeppni NBA. Portland jafnaði í 2-2 í einvígi sínu gegn Utah Jazz og Phoenix náði að minnka muninn í 2-1 gegn San Antonio Spurs. Úr- slitin í nótt: New York-Cleveland . . 81-76 (3-0) Starks 22, Ewing 16 - Brandon 19, Majerle 16 Miaml-Chicago.........91-112 (0-3) Mourning 30 - Jordan 26, Pippen 22. Portland-Utah......... 98-90 (2-2) Strickland 27, Sabonis 25 - Hornacek 30, Malone 15. Phoenix-SA Spurs ..... 94-93 (1-2) Barkley 25, Manning 14 - Robin- son 22, Elliot 20. Chicago átti ekki í vandræðum með að leggja Miami að velli þrátt fyrir að Michael Jordan hvíldi sig síðasta leikhlutann vegna bak- meiðsla sem hann hlaut í öðrum leiknum. „Ég var mjög ánægður með að við skyldum klára þetta og nú get ég hvílt mig í þrjá daga og náð mér í bakinu,” sagði Jordan eftir leikinn en Chicago mætir New York í næstu umferð. New York virtist ætla að valta yfir Cleveland. Liðið náði mest 19 stiga forystu, 44-25, en leikmenn Cleveland neituðu að gefast upp og náðu að jafna metin í 70-70 þegar tæpar 5 mínútur voru eftir. New York skoraði þá næstu 7 stig og seig fram úr á ný. Arvydas Sabonis og Rod Strickland voru mennirnir á bak við sigur Portlands gegn Utah, Strickland með 27 stig og Sabonis 25, og honum tókst að halda Karli Malone í skefjum enda skoraði hann aðeins 15 stig. Portland hafði undirtökin og náði mest 19 stiga forskoti í síðari hálfleik. Stórleikur Dannys Mannings í síðasta leikhlutanum færði Phoenix öðru fremur sigur á SA Spurs. Manning skoraði þá 12 af 14 stigum sínum í leiknum. Charles Barkley tókst að skora 25 stig og komu þau öll í 2. og 3. leikhluta. Spurs fékk gullið tækifæri til að tryggja sér sig- ur en tvö skot geiguðu hjá liðinu á síðustu 10 sekúndunum. Orlando áfram Orlando Magic komst í fyrrinótt áfram í úrslitakeppni NBA. Orlando vann nauman sigur gegn Detroit Pi- stons og samanlagt 3-0. Þetta er í fyrsta skipti sem Orlando vinnur andstæðing sinn 3-0 í úrslitakeppn- inni. Lokatölur urðu 101-98 og það var Horace Grant sem tryggði Orlando sigurinn með körfu 11 sekúndum fyrir leikslok. „Ég veit að mínir menn eru orðnir þreyttir og það var gott að klára þetta í þremur leikjum fyrst möguleiki var á því,“ sagði Brian Hill, þjálfari Orlando eftir leikinn. Penny Hardaway var allt í öllu hjá Orlando og skoraði 24 stig. Nick Anderson skoraði 22 stig og Dennis Scott 18. Shaquille O’Neal hafði frekar hægt um sig að þessu sinni og skoraði aðeins 13 stig. „Penny gerði gæfumuninn fyrir okkur í þessum leik. Hann átti stórkostleg- an leik í þriðja leikhluta þegar O’Neal var á bekknum," sagði Hill enn fremur. „Ég var þreyttur en það var ekki þess vegna sem ég hitti ekki úr 8 skotum af 9 í fyrri hálfleik," sagði O’Neal og var sáttur við lífið. Allan Houston skoraði 33 stig fyr- ir Detroit og Grant Hill 17. Góð staða Houston Houston náði góðri stöðu gegn Lakers með sigri í þriðja leik lið- anna í fyrrinótt, 104-98, og staðan er nú 2-1 fyrir Houston sem getur komist áfram með því að sigra Lakers í Houston í nótt. Hakeem Olajuwon átti stórleik og skoraði 30 stig fyrir Houston, Clyde Drexler 16 og Robert Horry 15. Elden Campbell skoraði 18 stig fyrir Lakers og Cedric Caballos 16. „Annað hvort hittum við ekki eða misstum boltann klaufalega og þá skoruðu þeir alltaf. Það er annars dapurt að annað liðið skuli þurfa að detta út úr keppninni," sagði Magic Johnson eftir tap Lakers en Magic skoraði aðeins 7 stig og átti ekki svar við grimmri vörn Houston. Seattle áfram? Allt útlit er fyrir að Seattle fari áfram í 8-liða úrslitin eftir sigur gegn Sacramento í fyrrinótt, 89-96. Staðan er 2-1 fyrir Seattle. Sam Perkins skoraði 17 stig fyrir Seattle, Detlef Schrempf 16 og Gary Payton 15. Mitch Richmond skoraði 24 stig fyrir Sacramento og Olden Polynice 18. „Þetta er ekki búið og það er mikil vinna fram undan í næsta leik,“ sagði George Karl, þjálfari Seattle. -SK/GH Deildabikarkeppnin i knattspyrnu: Framarar skelltu Val - fimm 1. deildar lið eftir í keppninni ásamt Fram ÍA, ÍBV, Grindavík, Fylkir, Fram og Breiðablik komust í gær í sex liða úrslit deildabikarkeppninnar í knattspyrnu. Fimm af leikjunum sex fóru fram á grasvöllum, sem er hreint ótrúlegt þann 1. maí, en Reykjavíkurfélögin Fram og Valur þurftu að leika á gervigrasvelli Hauka í Hafnarfirði. ÍA, ÍBV og Fram leika saman í riðli í undanúrslitunum og í hinum riðlinum eru Grindavík, Fylkir og Breiðablik. Fyrstu leikirnir eru á laugardag en þá mætast íA og ÍBV á Akranesi og Grindavík og Fylkir í Grindavík. Tvö mörk Þórhalls Fylkir vann Stjörnuna í líflegum leik á nýjum grasvelli við Hofs- staðaskóla í Garðabæ, 3-2. Ómar Valdimarsson og Þórhallur Dan Jó- hannsson komu Fylki í 2-0 en Valdi- mar Kristófersson og Goran Micic jöfnuðu. Þórhallur skoraði síðan sigurmark Árbæinga. Sumarliði með tvö ÍBV vann Keflavík auðveldlega, 3-0, á grasvellinum við Helgafell í Eyjum. Mörkin komu á 10 mínútna kafla í fyrri hálfleik, Sumarliði Árnason skoraði tvö þeirra og Tryggvi Guðmundsson eitt. Sigurmark frá Ljubicic Grindvíkingar sigruðu 2. deildar lið FH, 1-0, á æfingasvæði FH-inga í Kaplakrika. Zoran Ljubicic skoraði sigurmarkið á 29. mínútu og Grind- víkingar voru með undirtökin mest- allan tímann. Átta mörk í Kópavogi Það voru skoruð 8 mörk á gras- vellinum í Smárahvammi þegar Breiðablik lenti í óvæntu basli með ÍR. Staðan var 2-2 eftir venjulegan leiktíma en Blikar náðu að sigra, 5-3, eftir framlengingu. Arnar Grét- arsson skoraði 2 marka Breiðabliks, Hreiðar Bjcirnason, Kjartan Einars- son og ívar Sigurjónsson eitt hver. Guðjón Þorvarðarson, Brynjólfur Bjarnason og Pálmi Guðmundsson skoruðu fyrir ÍR-inga sem komust þrisvar yfir í leiknum. Stórslgur Skagamanna ÍA fór merkilega létt með Leiftur á æfmgasvæði sínu á Akranesi, 6-2. Bjarki Pétursson og Mihajlo Bibercic skoruðu 2 mörk hvor fyrir ÍA og Bjami Guðjónsson og Ólafur Þórðarson eitt hvor. Rastislav Lazorik og Daði Dervic svöruðu fyr- ir Leiftur. Staðan var 3-1 í hálfleik. Þorbjörn skoraði og var rekinn út af Fram er eina 2. deildar liðið sem eftir er í keppninni en Framarar lögðu Valsmenn, 1-0, í framlengd- um leik í Hafnarfirði. Þorbjörn Atli Sveinsson skoraði sigurmarkið beint úr aukaspyrnu þegar 6 mínút- ur voru eftir af framlengingunni en var síðan rekinn af leikvelli rétt á eftir. -DG/ÞoGu/VS Mulamuhic leikur með HK Bosníumaðurinn Alen Mulamu- hic er genginn til liðs við 3. deildar lið HK í knattspyrnu og leikur með því í sumar. Mulamuhic er 25 ára sóknarmað- ur og hefur leikið með ÍR síðustu árin og þar á undan með Haukum. -VS Sýnt beint á Stöð 3 í kvöld Margir bíða spenntir eftir leik Newcastle og Nottingham Forest í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Newcastle þarf á sigri að halda í einvíginu við Manchester United um meistaratitilinn. Leikurinn verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 3 og hefst útsend- ingin kl. 18.45. -SK Anna María og Teitur leik- menn ársins Anna María Sveinsdóttir úr Keflavík og Teitur Örlygsson úr Njarðvík voru útnefnd leikmenn ársins í meistaraflokkum kvenna og karla á lokahófi KKÍ í fyrrakvöld. Skagamenn sigruðu tvöfalt í kjörinu um bestu nýliðana því Bjarni Magnússon var val- inn í karlaflokki og Sóley Sigurþórsdóttir í kvennaflokki. Jason Williford, Haukum, og Betsy Harris, Breiðabliki, voru valin bestu útlendingarnir. Birgir Guðbjömsson, Breiðabliki, var út- nefndur þjálfari ársins í úrvalsdeildinni og Suzette Sargeant, Njarðvík, i 1. deild kvenna. Kristinn Óskarsson var útnefndur dómari ársins og Sigmundur Már Herbertsson efni- legasti dómarinn. Anna María Sveinsdóttir og Teitur Örlygsson með verðlaunagripi sína í lokahófinu í fyrra- kvöld. DV-mynd Brynjar Gauti íþróttir Shaq var og er öskuillur Shaquille O’Neal, miðherji Or- lando Magic, er öskuillur yfir þeirri meðferð sem hann fær hjá andstæðingunum í NBA-deild- inni og svo hefur raunar lengi verið. O’Neal kvartaði hástöfum eftir sigur Orlando gegn Detroit í fyrrinótt: „Þaö er stanslaust ver- ið að brjóta á mér en dómararnir dæma bara aldrei. Eftir 80 leiki á tímabilinu er ég alveg undrandi á því hvað ég fæ lítið af vítaskot- um. Þaö hefur ekkert breyst,“ segir O’Neal sem hefur lengi haldið því fram að andstæðingar hans hafi komist upp með gróf brot á honum. „Það er ekki til í dæminu aö Mark West geti ýtt mér eins og hann gerði allan leikinn nema að nota til þess tvær hendur og ýta með þeim á bakið á mér,“ sagði O’Neal. -SK Golf: Sigurjón náði tíunda sæti Sigurjón Arnarsson, kylfingur í GR, heldur áfram að keppa á Tommy Armour mótaröö at- vinnumanna í golfi á Florída. Á þremur mótum undanfarið náði hann bestum árangri í eins dags móti sem fram fór á Heat- hrow-vellinum. Þar lék Sigurjón á 71 höggi, einu höggi undir pari vallarins, og hafhaði í 10. sæti af 95 keppendum. Sigurjón varð síðan í 20. sæti af 70 keppendum á Harbour Hills og lék á 74 höggum. Loks keppti Sigurjón á Ridgewood Lakes vell- inum á þriggja daga móti og lék á 80, 72 og 70 höggum og varð í 35. sæti af 92 keppendum. -SK Frjálsar íþróttir: Jón Arnar fremstur í Skagafirði DV, Fljótum: Jón Arnar Magnússon, tug- þrautarmaður í Tindastóli á Sauðárkróki, var á dögunum út- nefndur iþróttamaður ársins í Skagafirði. Útnefningin var tilkynnt á árs- þingi Ungmennasambands Skagafjarðar um síðustu helgi. Á þinginu voru einnig heiðraðir þeir íþróttamenn sambandsins sem settu 10 héraðsmet eða fleiri á síðasta ári. Þeir voru þessir: Jón Arnar Magnússon, Birgir Óli Sigmundsson, Björn Margeirs- son, Theódór Karlsson og Þórunn Erlingsdóttir. Enn fremur voru veitt verðlaun stigahæstu ein- staklingum á grunnskólamóti vetrarins. Þeir voru: Þórunn Er- lingsdóttir, 988 stig, Helgi Traustason, 960 stig, og Ólafur Margeirsson, 870 stig. -ÖÞ Jafnt hjá Brann Brann gerði 1-1 jafntefli gegn Viking í norsku 1. deildinni í knattspyrnu í gær. Birkir Krist- insson og Ágúst Gylfason áttu báðir góðan leik með Brann sem er í 7. sæti með 5 stig eftir þrjá leiki. Strömgodset gerði einnig 1-1 jafntefli þegar liðið sótti Bodö/Glimt heim. Marko Tanasic lagði upp mark Strömgodset. Lilleström er efst en liðið vann stórsigur á Kongs- vinger, 1-5. -DÓ/GH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.