Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1996, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1996, Blaðsíða 25
FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 1996 37 DV Napoli, Ijósmynd eftir Stefan Rohner sem sýnir verk sín í Ný- listasafninu. Fjórir myndlist- armenn Listamennirnir Tumi Magn- ússon, Stefan Rohner, Magnea Þórunn Ásmundsdóttir og Illugi Eysteinsson (illur) eru öll með sýningar í Nýlistasafninu um þessar mundir. Tumi sýnir málverk í neðri sölum safnsins. Þar birtist fram- hald athugana listamannsins á fóstu og fljótandi efni, ýmist á striga eða beint á vegginn. Svissneski ljósmyndarinn Stefan Rohner sýnir á miðhæð safnsins. Stefan hefur unnið með ljósmyndir á ýmsa vegu. Ljósmyndir hans geta verið skúlptúrar, uppstillingar, sam- setningar eða mannlífslýsingar. Magnea Þórunn er meö sína Sýningar fyrstu einkasýningu á efstu hæð hússins. Sýnir hún verk unnin í blandaða tækni, eða innsetn- ingu. Viðfangsefni Magneu Þór- unnar er spegill samtímans og hin mótandi áhrif hans. Gestur í setustofu safnsins er umhverfislistamaðurinn og arkitektinn illur. Hefur hann komið fyrir innsetningu í setu- stofunni sem ber heitið: Eiríkur Smith og ég. Gítartón- leikar Gítardeild Tónskóla Sigur- sveins D. Kristinssonar heldur tónleika í Ráðhúsinu í kvöld kl. 20.30. Fram koma Anna Ellen Georgsdóttir, Arngeir Heiðar Hauksson, Helga Sif Guðmunds- dóttir, Jón Guðmundsson, Krist- ján Eldjárn og Pálmi Erlends- son. Dagvist barna 174. fundur stjórnar Dagvistar barna er opinn fyrir alla borg- arbúa og verður haldinn í Ráö- húsinu í dag kl. 17.00. Fjallað um ýmis mál. Samkomur Félagsvist Spiluð verður félagsvist á veg- um eldri borgara í Kópavogi að Gjábakka, Fannborg 8, í kvöld kl. 20.30. ErkiTíð '96 í kvöld kl. 20.00 verða kam- mertónleikar á Sóloni Islandusi, og hafa þeir yfirskriftina í and- lit sólar. Hálft í hvoru á Kaffi Reykjavík í kvöld skemmtir hljómsveit- in Hálft í hvoru á Kafii Reykja- vík. Astro: Páll Óskar og Jón Ólafsson Veitingahúsið Astro, sem er tfi húsa í hjarta Reykjavíkur að Austurstræti 22, er vinsæll veitingastaður sem hóf göngu sína fyrir tæpum tveimur árum. Staðurinn stendur fyrir mörgum uppá- komum og undanfarin fimmtudags- kvöld hefur verið boðið upp á tónlistar- atriði sem hafa heppnast mjög vel, enda listamennirnir sem komið hafa fram ekki af verri endanum, en meðal þeirra eru Emilíana Torrini, Egill Ólafsson, Jónas Þórir, Tamlasveitin og Skemmtanir Helgi Bjömsson. í kvöld verður enn einn tónlistarvið- burðurinn þegar hinn eini sanni Páll Óskar Hjálmtýsson treður upp og hon- um tU aðstoðar verður hljómborðsleik- arinn kunni, Jón Ólafsson. Er ekki að efa að PáU Óskar og Jón munu brydda upp á einhverju frumlegu og skemmti- legu fyrir gesti á veitingahúsinu. Páll Óskar skemmtir gestum.á veitingahúsinu Astro í kvöld. Lagfæring vega Þjóðvegir á landinu eru yfirleitt vel færir en sumar leiðir eru við- kvæmar fyrir umferð og víða eru hámarkstakmarkanir á öxulþunga þar sem vegir eru blautir og við- kvæmir. Á Vestfjörðum eru nokkr- ar leiðir takmarkaðar við 7 tonn og Færð á vegum það sama má segja um leiðir á Norð- austurlandi og Austurlandi. Vegavinnuflokkar eru að vinna við nokkrar leiðir, má nefna að á leiðinni Reykjavík-Akureyri er vegavinnuflokkur að störfum á leið- inni Varmahlíð-Norðurárdalur og er þar hraðatakmörkun, þá er verið að lagfæra leiðina Sandskeið-Blá- fjöll. Ástand vega 0 Hálka og snjór S Vegavinna-aögát @ Öxulþungatakmarkanir fokaörStÖÖU 13 Þungfært (g) Fært fjallabílum Systir Andreu Litla stúlkan, sem á myndinni sefur vært, fæddist á fæðingardeild Landspítalans 3. maí klukkan 15.40. Barn dagsins Hún var við fæðingu 4120 grömm að þyngd og 54 sentímetra löng. Foreldrar hennar eru Ingibjörg Gísladóttir og Guðmundur M. Jens- son. Hún á fyrir eina systur, Andreu, sem er fimm ára gömul. Sharon Stone leikur Cindy Lig- gett, sem dæmd hefur verið til dauða. Síðasti dansinn Bíóhöllin frumsýndi um síð- ustu helgi nýjustu kvikmynd Sharon Stone, Last Dance og var hún frumsýnd hér sama dag og hún var tekin til sýningar í Bandaríkjunum. Stone leikur Cindy Liggett, sem bíður dauða- dóms. Hún hefur í 12 ár barist fyrir því að fá dauðadómnum aflétt. Ungur lögfræðingur Rick Hayes (Rob Morrow) fær málið í sínar hendur þegar hún enn einu sinni áfrýjar og við rann- sókn málsins kemst hann að ýmsu sem ekki stenst en það sem þó hefur mest áhrif á hann er Cindy sjálf sem hefur breyst mikið og verður hann brátt ást- Kvikmyndir fanginn af henni. Leikstjóri er Bruce Beresford, sem er ástralskur og varð fyrst frægur fyrir Breakar Morant en í þeirri mynd er einnig fengist við dauðadóma. Eftir að hann kom til Bandaríkjanna hafa hon- um verið mislagðar hendur en þrjár kvikmynda hans, Driving Miss Daisy, Tender Mercies og Crimes of the Heart, hafa unnið til óskarsverðlauna. Nýjar myndir Háskólabíó:Sölumennirnir Laugarásbíó: Bráðabani Saga-bíó: Powder Bíóhöllin: Last Dance Bíóborgin: Dead Presidents Regnboginn: Endurreisn Stjörnubíó: Kviðdómandinn Gengið Almennt gen 9. maí i99l gi LÍ nr. 92 5 kl. 9.15 Eininq Kaup Sala Tollqengi Dollar 66,680 67,020 66,630 Pund 101,470 101,990 101,060 Kan. dollar 48,840 49,140 48,890 Dönsk kr. 11,3930 11,4530 11,6250 Norsk kr. 10,2210 10,2780 10,3260 Sænsk kr. 9,7770 9,8310 91,9790 Fi. mark 14,0520 14,1350 14,3190 Fra. franki 12,9930 13,0670 13,1530 Belg. franki 2,1397 2,1525 2,1854 Sviss. franki 54,0900 54,3900 55,5700 Holl. gyllini 39,3600 39,6000 40,1300 Þýskt mark 44,0100 44,2400 44,8700 ít. líra 0,04270 0,04296 0,04226 Aust. sch. 6,2510 6,2900 6,3850 Port. escudo 0,4272 0,4298 0,4346 Spá. peseti 0,5262 0,5294 0,5340 Jap. yen 0,63640 0,64020 0,62540 írskt pund 104,930 105,580 104,310 SDR/t 96,92000 97,50000 97,15000 ECll/t 82,4000 82,8900 83,3800 Símsvari vegna gengisskráningar 5623270 Krossgátan 1 2 3 ’T’ir" V f ö L. Jð II )Í IS iL rr ar F*“ I TT w J W Lárétt: 1 matvandur, 7 stutta, 8 lána, 10 hlass, 11 kjáni, 12 hryssuna, 15 innyfli, 17 klaka, 19 gabba, 20 borð- andi, 21 miskunn, 22 afkvæmi. Lóðrétt: 1 klúr, 2 rispa, 3 sjór, 4 átt, 5 vond, 6 nærri, 9 gælunafn, 11 fjar- stæðu, 13 ellegar, 14 spilið, 16 grjót, 18 fjölda. Lausn á síðustu krossgátu. Lárétt: 1 kvef, 5 ása, 8 löt, 9 álit, 10 ákall, 12 na, 13 rummung, 16 slæg, 18 kar, 19 mær, 21 auli, 23 árann, 24 óp. Lóðrétt: 1 klár, 2 vökul, 3 eta, 4 fálm, 5 ál, 6 sinna, 7 ata, 11 luku, 14 mæra, 15 grip, 16 smá, 17 gan, 20 ær, 22 ló.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.