Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1996, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1996, Blaðsíða 4
LAUGARDAGUR 11. MAÍ 1996 UV - fréttir *★* Enn hækkuðu olíufélögin bensínið upp á sömu auratölu: Ólöglegt og óþolandi virkt verðsamráð „Þegar við erum með samkeppn- isaðila sem hækka allir á sama degi um sömu tölu upp á eyri þá eru hlutimir ekki í lagi. Þetta sýnir hvernig fákeppnismarkaðurinn virkar, menn eru búnir að koma sér saman um verð. Þannig að sam- keppnin er engin um verð til neyt- andans hjá þessu þremur olíurisum. Þetta er ekki hægt að sætta sig við,“ sagði Jón Magnússon, varaformað- ur Neytendasamtakanna, í samtali við DV í gær í tilefni af bensíns- verðshækkun Skeljungs, Olíufélags- - segir varaformaður Neytendasamtakanna ins og Olís í gær um 1,90 krónur lítrann. Um leið lækkaði ríkið bens- íngjald um 82 aura lítrann. Þetta er þriðja hækkun olíufélag- anna frá því í byrjun apríl. Ástæðan hefur verið sögð hækkun á heims- markaði. Nú síðustu daga hefur verðið hins vegar verið á niðurleið, eins og sjá má nánar á bls. 6 í blað- inu í dag. Jón sagði að veturinn í Evrópu og Ameríku hafi verið óvenju kaldur. Því hafi eftirspurn eftir bensíni ver- ið mikil. Sú eftirspum væri hins vegar að dvína núna í kjölfar hlý- inda. „Þeir sem þekkja olíumarkaðinn eiga að vita þetta. Að hækka með þessum hætti sýnir hversu óeðliieg verðmyndun er í gangi á íslenskum olíumarkaði. Samkeppnin er eins og viðureign tveggja kappa í wrestling- glímu sem lemja hvem annan. Þeir sýnast vera að slást í alvöru en þetta er bara grín. Það gengur ekki upp að samkeppnisaðilar séu að hækka upp á nákvæmlega sömu krónutölu. Þarna er virkt verðsam- ráð, sem er óþolandi og að auki bannað í samkeppnislögum,“ sagði Jón. í tilkynningu frá Skeljungi segir að verðhækkim félagsins hefði orð- ið meiri ef ekki komið til afskipta fjármáiaráðuneytisins, með lækkun bensíngjaldsins, og Féiags islenskra bifreiðaeigenda, FÍB. Runólfur Ólafsson, framkvæmda- stjóri FÍB, sagði við DV að ríkið hefði fengið dágóðan arð af þeim hækkunum sem orðið hafa á heims- markaði á árinu. Hann sagði fyrir- sjáanlegt að verðið myndi lækki á næstunni. Eftir hækkunina kostar lítrinn af 95 oktana bensíni 75,30 krónur hjá oliufélögunum þremur og 98 oktana bensín 80 krónur. Orkan hefur hins vegar ekki hækkað bensínið en Gunnar Skaftason sagði við DV í gær að hækkun lægi í loftinu. Lítr- inn yrði þó aldrei meira en 4-5 krón- um lægri en hjá hinum félögunum. Lítrinn hjá Orkunni er 69,40 krónur af 95 oktana og 73,80 krónur af 98 oktana. -bjb Óvenjuleg afmæliskveðja Mismunandi aðferðir til koma af- mælisóskum og ástarjátningum á framfæri. Hann Ragnar Magnússon bóndi tók tæknina í sínar hendur þegar konan hans, Marta Jónsdóttir, varð þrítug í gær. Hann fór þá leið að setja afmælisósk og ástarjátningu á flettiskilti við Lækjargötu. Mörtu rak í rogastans og hélt að verið væri að grínast þegar DV færði henni fréttirnar af þessu um miðjan dag í gær. Hún hafði ekki hugmynd um þetta uppátæki bónda síns en þau voru að koma til Reykjavíkur austan frá Flúðum í Hrunamannahreppi, þar sem búa, til þess að halda upp á afmæli Mörtu. „Hún á aftnæli í dag,“ sagði Ragn- ar af mestu hógværð eins og ekkert væri eðlilegra þegar hann var spurður um ástæðuna fyrir því að hann óskaði henni til hamingju með þessum óvenjulega hætti en mót- mælti því ekki að þetta væri hans leið til þess að tjá henni ást sína. Hins vegar vildi hann ekki viður- kenna að ástæðan væri sú að hann þyrfti að bæta fyrir eitthvað. -ÞK Myndirnar á fiettiskiltinu við Lækjargötu tala sínu máli. DV-myndir S Stimpilklukka Internet tílboð Tulip vision Líne Pentium 100 Vonduð Stromberg stimpilklukka Einföld í notkun 2ja mánaða Internetáskrift 28.800 Baud mótald Námskeið í notkun Internetsins 8 MB minm - 850 MB diskur 4 hraða geislaspilari SoundBlaster 16 hljóðkort 15W hátalarar - Windows 95 MS Home heimapakkinn Megapak 3 I12 geisladiskar) kr. 29.900 kr. 18.900 Réttverd: 34.900 Renverð : 36.900 Við tokum gamla Nmi Canon BJC-4100 Litableksprautuprentari 2ja hylkja kerfi - 4.5 bls/mín 720 dpi upplausn 100 blaða arkamatari prentarann pmn upp í nýjan! WfiM ■TiTTFF® Pressworks umbrotslorríi fylgir á CD kr. 29.950 Nu getur hu notað gamla prentarann piun sem grelðslu upp í nýlan prentara í Nýherlabúðinnl. Þetta frðbæra tilboð gildlr aðeins I eina vlku og bvi er eins gon að hafa hraðar hendur. kr. 159.900 Ikr. 169.900 Rénverð: 42.900 Iflð tðkum gamla prentarann uppi ð kr. m/14" SVGA litaskiá m/la KGA litaskjá Opid laugardaga 10-14 NYHERjA SKAFTAHLÍÐ 24 ... . .. . , . sími 569 7800 http://www.nyherp.is/vorur/ OLL VERO ERU STGR. VERÐ M/VSK
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.