Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1996, Blaðsíða 3
MÁNUDAGUR 25. NÓVEMBER 1996
27
DV
Iþróttir
Lengjubikarinn í körfuknattleik - úrslit:
Stórleikur
hjá Fal
- tryggði Keflavík sigur gegn KR, 101-107
Kraftur, seigla og leikreynsla
Keflvíkinga í úrslitaleikjum vó
þungt þegar liðið mætti KR í úrslit-
um Lengjubikarsins á laugardag.
KR-ingar byrjuðu leikinn betur,
léku hratt og agað, og áttu Keflvík-
ingar í stökustu vandræðum með að
verjast sóknum þeirra. KR hafði
forystu allan fyrri hálfleikinn og
náði mest 13 stiga forskoti, 43-30.
Um miðjan hálfleikinn tók Sigurður
Ingimundarson, þjálfari Keflavíkur
.leikhlé og stappaði stálinu í sína
menn. Keflvíkingar söxuðu eftir
það á forskot KRog voru aðeins
einu stigi undir, 55-54, í hálfleik.
Keflvíkingar léku í síðari hálfleik
eins og þeir sem valdið hafa. Þeir
náðu forystu með fyrstu körfu hálf-
leiksins og létu forystuna ekki af
hendi það sem eftir lifði leiks.
KR-ingar gáfúst þó ekki upp, jöfh-
uðu leikinn um miðjan hálfleikinn,
77-77. En undir lok leiksins tók
Damon Johnson „sóló“, skoraði 18
stig síðustu 5 mínútur leiksins og
tryggði Keflvíkingum sigur, 101-107.
Leikurinn var bráðfjörugur allan
tímann og áttu allir sínar stóru
stundir jafiit leikmenn, dómarar og
áhorfendur, sem skemmtu sér kon-
unglega og tóku virkan þátt í leikn-
um.
Töpuöum á vörninni
„Þetta er svekkjandi að tapa þess-
um leik. En við töpuðum þessum
leik á vöminni. Það er ekki hægt
að vinna leik þegar maður fær á sig
107 stig. En Keflvíkingar kimna að
spila svona þýðingarmikla leiki en
við ekki og þessi leikur verður góð
reynsla fyrir okkur,“ sagði Benedikt
Guðmundsson, þjálfari KR.
Hægðum á leiknum
„Byrjunin var ekki eins og við
vildum hafa hana og við ætluðum
að gera of mikið í einu. Við þurft-
um smátíma til að ná okkur niður
og það er óvenjulegt fyrir okkur að
við þurftum að hægja mikið á leikn-
um, en við erum nógu góðir til
þess,“ sagði Sigurðúr Ingimundar-
son, þjálfari Keflavíkur
Hermann og Falur frábærir
í liði KR var Hermann Hauksson
funheitur og David Edwards er frá-
bær leikmaður. En liðiö skortir
leikreynslu til að standast spennu-
leiki eins og þennan og það varð því
fyrst og fremst að falli.
Falur Harðarson er maðurinn á
bak við sigur Keflvíkinga. Hann
kom liði sínu inn í leikinn að nýju
eftir slaka byrjun og síðan fylgdu
hinir á eftir.
Dómarar leiksins vom Helgi
Bragason og Leifur Garðarsson.
Þeir hafa oft gert betur en i þessum
leik.
Stig KR: Hermann Hauksson 32, Dav-
id Edwards 25, Ingvar Ormarsson 22,
Jonatan Bow 12, Hinrik Gunnarsson 10
og Óskar Kristjánsson 2.
Stig Keflavíkur: Falur Harðarson 31,
Damon Johnson 26, Guðjón Skúlason 22,
Albert Óskarsson 12, Kristinn Friðriks-
son 10, Elentínus Margeirsson 3 og Krist-
ján Guðlaugsson 3.
-ih
Guðjón Skúlason hampar fyrsta alvörubikar vetrarins i körfuknattleiknum,
Lengjubikarnum, sem Keflavík vann eftir snarpa viðureign gegn KR.
DV-mynd Brynjar Gauti
Nissandeildin í handknattleik um helgina:
„Dómarar eru hræddir
að dæma í KA-húsinu"
- Stjarnan veitti KA mikla mótspyrnu. KA komiö í annað sætið
DV, Akureyri:
„Þetta small allt saman hjá okkur
í síðari hálfleik eftir köflóttan fyrri
hálfleik. Ég verð að viðurkenna að
ég reiknaði ekki með því að leika 60
mínútur með liðinu í vetur. Það var
um að gera að grípa gæsina þegar
hún gafst og éta hana í sósunni,"
sagði Sævar Ámason við DV eftir
sigur KA á Sfjömunni, 28-27, á ís-
landsmótinu í handknattleik norður
á Akureyri á laugardaginn var. Með
sigrinum fóra KA-menn upp í ann-
að sætið í 1. deild.
Leikur liðanna var nokkuð góður
svona á heildina litið. Það gekk að
vísu á ýmsu en úrslit leiksins réð-
ust á síðustu tíu minútum hans. Það
sem gerði útslagið er að KA þétti
vöm sína í síðari hálfleik. Það kom
einnig berlega í ljós í þessum leik að
KA hefúr yfir meiri breidd að ráða
en Sfjaman. Leikurinn var í jafn-
vægi fram eftir síðari hálfleik, leik-
ar stóðu jafnir, 19-19 og 21-21, en síð-
an sigu KA-menn fram úr og sigr-
uðu með eins marks mun. Stjaman
hafði frumkvæðið framan af og náði
mest þriggja marka forystu.
„Dómarar hræddir aö dæma
í KA-húsinu“
„Bæðin liðin vora að leika vel og
ég óska KA til hamingju með sigur-
inn. Ég verð að segja að það er erf-
iöara að leika í KA-húsinu hvað
varðar dómgæsluna en í útileikjum
í Evrópukeppninni. Dómarar eru
hræddir að dæma í KA-húsinu og
öll vafaatriði falla yfirleitt KA-lið-
inu í hag,“ sagði Valdimar Gríms-
son, þjálfari og leikmaður Stjöm-
unnar, við DV eftir leikinn.
Sævar Ámason átti frábæran leik
fyrir KA. Hann lék í hægra horninu
þegar Jóhann G. Jóhannsson var í
hanni og er síðan fluttur í það
vinstra þegar Jóhann kom úr bann-
inu. Robert Duranona átti einnig
mjög góðan leik, sérstalega í síðari
hálfleik, og er greinilega kominn í
sitt sterkasta form.
Valdimar Grimsson, Ingvar Ragn-
arsson og Sigurður Viðarsson vora
bestir hjá Stjömunni. Hilmar Þór-
lindsson náði sér ekki á strik og var
lítil sem engin ógnun af honum.
-GN/GK
Jóhann G. Jóhannsson lék á ný með KA eftir aö hafa tekiö út fjögurra leikja bann. Jóhann stóö sig ágætlega í
leiknum, sem og aörir leikmenn KA-liðsins. DV-mynd JAK
KA
(13) 28
Stjaman (16) 27
3-1, 3-5, 7-10, 10-13, 12-14 (13-16).
16-16, 16-19, 19-19, 21-21, 25-22, 27-24,
27-26, 28-26, 28-27.
Mörk KA: Robert Duranona 10,
Sævar Ámason 8, Sergei Ziza 4, Jak-
ob Jónsson 2, Jóhann G. Jóhansson 2.
Leó Öm Þorleiisson 2, Erlingur Krist-
jánsson 1, Björgvin Björgvinsson 1.
Varin skot: Guðmundur Amar
Jónsson 18.
Mörk Stjörnunnar: Valdimar
Grímsson 11/5, Jón Þórðarson 4, Sig-
urður Viðarsson 3, Konráð Olavsson
2, Hilmar Þórlindsson 2/1, Rögnvald-
ur Johnson 2, Viðar Erlingsson 2,
Magnús Magnússon 1.
Varin skot: Ingvar Ragnarsson 16.
Brottvísanir: KA 4 mín., Stjaman
16 mln.
Dómarar: Stefán Amaldsson og
Rögnvald Erlingsson. Hafa oft virkað
ömggari en sjáifúm sér samkvæmir.
Ahorfendur: 723.
Maöur leiksins: Sævar Árnason,
KA.
Staðan
Aftureld. 9 8
KA 8 6
Fram 9 5
Haukar 8 4
ÍBV 9 5
Stjaman 8 4
FH 9 4
Selfoss 9 3
Grótta
Valur
ÍR
HK
0 1 241-223 16
0 2 226-208 12
1 3 212-197 11
2 2 199-193 10
0 4 216-211 10
0 4 212-201 8
0 5 211-237 8
1 5 236-250 7
8224 188-187 6
9225 198-208 6
9216 216-224 5
9216 204-220 5
Hlé veröur gert í 1. deild vegna lands-
leika við Dani í undankeppni heims-
meistarakeppninnar nú 1 vikunni.
Fyrri leikurinn við Dani veröur í
Laugardalshöll á miðvikudagskvöld-
ið en sá siöari i Álaborg á sunnudag-
inn kemur.
Næsta umferð í 1. deild verður 4. des-
ember og leika þá Stjarnan-HK,
Haukar-Fram, FH-Afturelding, Sel-
foss-Grótta, ÍBV-KA og hefjast þeir
allír klukkan 20. Umferðinni lýkur
síðan með leik Vals og ÍR 5. desem-
ber, klukkan 20.