Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1997, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1997, Side 10
LAUGARDAGUR 1. FEBRÚAR 1997 Blaðamannafálags íslands 100 ára: „Ég festist í þessum sérstæða heimi og losnaði ekki aftur fyrr en að hálfri öld liðinni," segir Þorbjöm Guðmundsson blaðamaður nr. 1, eða fyrstur á félagaskrá í Blaðamannafé- lagi íslands. Félagið heldur upp á 100 ára afmæli sitt á þessu ári. Af því til- efni hafði Helgarblaðið samband við fjóra elstu félaga Bl. Þorbjörn er hættur störfum en hann starfaði áður lengst af hjá Morgunblaðinu. „Tildrög þess að ég hóf blaða- mennsku voru þau að nokkru eftir að ég lauk stúdentsprófi frá Mennta- skólanum á Akureyri 1942 fékk ég bréf frá mági mínum, sem þá var blaðamaður á Morgunblaðinu. Tjáði hann mér að bráðlega vantaði þar blaðamann og spurðist fyrir um hvort ég hefði áhuga.“ Blaða- mennska hafði aldrei hvarflað að Þorbirni áður en hann kom til Reykjavíkur um haustið og innritað- ist í háskólann. Þá varð úr að hann hæfi störf hjá Morgunblaðinu og ten- ingunum var kastað. „Ég fékk pokann minn í skoplegri senu niörí Stjórnarráöi meö þáverandi forsætisráöherra á aöra hönd og utanríkisráðherra á hina,“ segir Gísli Ást- þórsson. DV-mynd ÞÖK Sverrir Þórðarson stóö yfir rústum þriöja ríkisins í Berlín, í kanslarahöllinni. DV-mynd GVA „Eitt af því sem mér er sérstaklega minnisstætt frá árdögum mínum í blaðamennskunni er fyrsta samtalið sem mér var falið að taka. Það var við Júlíus Havsteen, sýslumann Þingeyinga. Ég var mjög kvíðinn stráklingm- þegar sá virðulegi maður settist á móti mér við borðið. Ég ætl- aði að fara að stynja upp fyrstu spumingunni en Júlíus varð fyrri til og tók völdin: „Fyrst spyrjið þér - og þá svara ég,“ sagði hann. Þannig gekk það samtalið á enda. Hann bæði spurði og svaraði. Eftir þetta hugsaði ég alltaf hlýtt til Júlíusar. Brynjaðir blaðamenn Þorbimi eru einnig minnisstæð hin hörmulegu sjóslys sem voru alltof tíð og kostuðu líf margra. Hann var gjarna sendur heim til syrgjandi ættingja til þess að fá myndir af hinum látnu. „Blaðamenn þóttust yfirleitt all- vel brynjaðir en mjög reyndi á að standa þannig frammi fýrir sorg- inni í allri sinni mynd. Þar fann maður svo átakanlega til smæðar sinnar og vanmáttar. Einstök atvik frá þeim tíma gleymast seint. Stund- um hvarflaði þá að mér hvað ég væri eiginlega að gera í þessu starfi. En þetta er einn af þeim skólum sem blaðamaðurinn verður að ganga í gegnum og eykur þroska hans,“ segir Þorbjörn. Æskudraumurinn rættist Sverrir Þórðarson er félagi númer 2 í Blaðamannafélaginu en hann hætti störfum fyrir nokkrum árum. Æsku- draumur hans var að verða blaðamað- ur og rættist fyrir velvilja Valtýs Stef- ánssonar á Morgunblaðinu. „Valtýr er sá velgerðarmanna minna sem efstur er á blaði. Undir hans stjóm hóf ég störf á blaðinu haustið 1943. Góður vinur minn, Guðmundur heitinn Ásmundsson lögmaður, hafði lagt inn orð með mér við Valtý. Að sögn Sverris er nánast út í hött að ætla sér að taka einhverja einstaka atburði út úr á 50 ára starfsferli. Það er svo margt sem stendur upp úr af einstökum atburð- um og mönnum sem hann kynntist í sambandi við fréttamennskuna. „Þessir áratugir liðu svo fljótt að eiginlega gekk það ekki upp fyrir mér hvað vinnudagurinn var orð- inn langur fyrr en komið var að þeim degi að starfslokin voru á næsta leiti. Svona var nú starfið við blaðið og fréttamennskan skemmti- leg,“ segir Sverrir. Tveggja dálka á útsíðu Sverrir skrifaði fyrstu tveggja dálka fréttina á útsiðu skömmu eft- ir að hann byrjaði en um það leyti var daglegt upplag Morgunblaðsins 12.000 eintök. „Fréttin var samtal við síldar- kónginn síldveiðisumarið 1943 und- ir fyrirsögninni Erfiðasta síld- veiðisumarið í 25 ár,“ segir Ólafur Magnússon á Eldborg. Fyrsta blaðaviðtalið átti hann við sr. Bjarna Jónsson dómkirkjuprest fyrir jólablaðið 1943. Viðtalið fjall- aði um jólaminningar hans. Hann sagðist muna vel eftir jólum hér í Reykjavík fyrir 50 árum enda fædd- ur hér í bænum. Þá bjuggu í Reykja- vík 4000 manns, segir sr. Bjami í viðtalinu. Þórarinn heitinn „Mér er minnisstætt atvik frá op- inberri heimsókn Ásgeirs Ásgeirs7 sonar forseta til Kaupmannahafnar. Komst ég þá svo að orði í frétta- skeyti að meðal gesta við móttöku forsetahjónanna fyrir íslendinga þar hefði systir Þórarins heitins Guðmundssonar, hins kunna fíðlu- leikara, verið meðal gesta. Næsta dag birtist athugasemd undirrituð af honum sjálfum! þar sem hann sagði fregnir af láti sínu stórlega ýktar," segir Sverrir. Við rústir þriðja ríkisins Eftirminnilegasta ferðalagið fór hann í vorið 1946 til hins stríðs- hrjáða Þýskalands. Hann stóð þar Hallur viö tölvuna á DV. DV-mynd

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.