Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1997, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1997, Blaðsíða 16
MÁNUDAGUR 10. MARS 1997 jLlV i6 menning ■ ■ ■ 1 - x lir Ráðgátur málverksins Á yfirgrips- mikilli sýningu franska málar- ans Jacques Monory á Kjar- valsstöðum sjá- um við olíumál- verk máluð í köldum bláum tónaskala þar sem ólíkum að- fóngum er stefnt saman í eina heild án þess að samhengið sé okkur að fullu skiljanlegt. Heimurinn, sem Monory birtir, er eins og séður í gegnum bláa filmu eða skjá. Þetta er mynd- mál ljósmyndar- innar og sjón- varpsins, yfir- Monory: Ráðgáta nr. 17. fært í efni og langa hefð olíu- málverksins. Heimur Monorys er þannig tilbúinn í tvennum skilningi: sem máluð olíumynd af sýndarveru- leika ljósmyndarinnar og sjónvarpsskjásins. Fyr- irbærin í þessum myndheimi eru tiltölulega fá og hafa gegnumgangandi skírskotun í goðsagnaheim nútímafjölmiðlunar þar sem ofbeldið birtist okk- ur í dulargervi byssunnar, tæknibúnaðarins, gullsins, tækniumhverfisins og hins kynferðis- lega valds sem þessi búnaöur færir karlímynd- inni á bak við dökk sólgleraugu undir barðastór- um og skuggsælum hatti. Myndir sínar kallar Monory ráðgátur en sýn- ingin hefúr yfirskriftina Kuldi og má hvort tveggja til sanns vegar færa: málverkin eru ráð- gátur sem hafa enga augljósa merkingu og lita- skalinn er kaldur, eins og andrúmsloftið sem málverkin miðla. Það er haft eftir málaranum í inngangsorðum í sýningarskrá aö merking þess- ara mynda sé honum sjálfúm ráðgáta ekki síður en okkur sem á horfum og vill greinarhöfundur meina að áhugi málarans beinist einkum að alls- heijarmerkingarkreppu í samtímanum og viö- leitni hans sé meðal annars að losa málverkið við ákveðna merkingu og breyta þessari tilraun í grunnmerkingu listar sinnar. Þessi þversögn skilar okkur reyndar skammt í að nálgast þessar myndir en væntanlega er tilgangurinn með því að rjúfa það rökrétta orsakasamhengi 1 mynd- Myndlist Olafur Gíslason rænni framsetningu, sem Ijósmyndin býður til dæmis upp á, sá að leiða í Ijós annað samhengi sem kannski er mikilvægara. Samhengið, sem kemur í Ijós þegar búið er aö tæma málverkiö af augljósri merkingu, hefúr meöal annars með sálræna virkni myndmiðilsins •aö gera og samspilið á milli myndmáls og tungu- máls. Þegar við mætum fyrirbænnn eins og byssu, hátæknibúnaði, tækniandrúmslofti og kaldri birtu neonljósanna sem umgjörð um glæp- inn, morðið og hetjukossinn frá Hollywood, þá erum við öll á heimavelli: allt þetta þekkjum við úr fjölmiðlaheimi og umhverfi samtímans. Þetta er heimur sem við getrnn líka kennt við viljann til valds, eins og Nietzsche orðaði það, þar sem sagan er túlkuð út frá frumspekilegri kennisetn- sam- felld martröð sem manninum beri nauðsyn til að frelsa sig und- an. En mynd- heimur Monor- ys er ekki heim- ur beinnar eft- irlíkingar held- ur heimur lík- inga í öðru veldi og sem slíkur er hann viðfangsefni til túlkunar. Af honum verður ekki dregin nein ályktun um söguspeki eða aðra frumspeki, þvert á móti getum viö lesið út úr þessari notkun táknmálsins ákveðna losim þess við frumspekilega lík- ingu við algildan sannleika eða al- gilt sjónarhom. Með því að losa myndmálið undan hinu beina og augljósa orsakasamhengi og hinu eina og algilda sjónarhomi sem hefð- bundin fjarvíddarframsetning rýmis- ins byggir á, getur myndheimur Monor- ys orðið tilefni til að koma auga á dulið samhengi, til dæmis á milli ofbeldis og vissrar notkunar myndmáls í víðasta skilningi þess orös. Eða á milli ofbeldis og tækni- hyggju, ofbeldis og vissrar tegundar iðnhönnunar og umhverfismótunar. Þessi myndheimur er eins og ráðgátm- sem hafa í sér innbyggðar mótsagnir þar sem orsakalögmál, tungumál og myndmál rekast á. Ráðgátur Monorys á Kjarvalsstöðum era verö- ugt umhugsunarefni þeirra sem hafa áhuga á að kryfja það sjónræna áreiti sem umlykur okkur alls staðar og getur hæglega gert okkur blind ef ekkert er að gert. Syning Monorys stendur til 31. mars á Kjarvals- stööum. Smásagnameistarinn Um helgina var á íslandi góður gestur sem áður hefur heimsótt okkur: norski rithöfundurinn Kjell Askildsen. Hann hefur verið kallað- ur meistari smásögunnar, og margt ósannara hefur verið sagt eins og þeir vita sem hafa lesið hann á norsku eða þýðingu Hannesar Sig- fússonar á nokkrum smásögum hans í bókinni Síöustu minnisblöö Tómasar F. fyrir almennings sjónir (Mál og menning 1995). Hann þykir einstaklega sparsamur á orð, segir sjálfur að gagnrýnendur saki hann um orðafátækt. En texti sem segir allt segir of mikið, segir hann, „og það er líka hægt að orða það svo að texti sem segir allt segi of lítið.“ í ritdómi í Information um nýj- ustu bók Kjells Askildsens, Hund- amir í Þessaloníku, segir Erik Sky- um- Nielsen að nýtt hugtak hafi orð- ið til í bókmenntaumræðu haustsins í Noregi: Askildsen-syndrómið. Það var rithöfundurinn Jan Kjærstad sem bjó það til í tilefni af deilum um nýjustu bók Peters Hoegs, Konan og apinn. „Hann var síður en svo að tala niðrandi um stórmeistara smá- sögunnar, Kjell Askildsen, heldur fór það í skapið á honum hvað norsídr gagnrýnendur em fljótir að klappa saman litlu lófunum sinum í hvert sinn sem prósahöfundur skrif- ar „knappt" og „málefnalega“ og beitir „stilltum“, „hófsömum“ stíl sem „gefur meira í skyn“ en sagt er fullum fetum.“ Erik Skyum-Nielsen minnir kurt- eislega á að tímamótaverk skáldsög- unnar hafi oftar en ekki verið skrif- uð af höfundum sem hneigðust til að ýkja og nefnir Rabelais og Cervantes sem dæmi. En það komi ekki mál Kjell Askildsen - segir frekar minna en meira. við sögur Askildsens sem ráði íjarskalega vel við sinn knappa stíl. „Hin ögrandi þversögn í smásögum hans er fólgin í því að þrátt fyrir - eða ef til vill vegna þess hvað hann er knappur þá tekst honum að segja svo ótrúlega mikið. Minimalisminn, hreinræktaður af snillingi, rúmar sálfræðilegan hita og kraft.“ Kjell Askildsen skrifar um afar einmana manneskjur sem ekki geta orðað hugsanir sínar og náð sam- bandi við aðra. Heimili lítur hann á eins og fangelsi og um leið verða þau smækkaðar myndir af samfélag- inu í sögum hans. Hann lítur ekki á það sem sitt verk að fegra veruleik- ann heldur sé skylda listarinnar að vekja óróa. „Ég geng inn aðstæður þar sem ástin hefur búið en er farin. En það er ekki það sama og að segja að ástin sé ekki til,“ segir hann í viðtali við Linn Ullmann i Dagblaðinu norska í nóvember. Þar segist hann heldur aldrei segja meira en nauðsyn krefur í sögum sínum heldur reyni hann í staðinn að búa til ríkulegan undirtexta: „Ég reyni að gera lesandann órólegan og óöruggan, láta hann hætta að lesa og fara aö hugsa. ... Auðvitað verður maöur að hafa eitthvað að segja, en ég er að skrifa um efni sem hefur verið skrifað um frá upphafi bók- menntanna. Fingrafórin era í form- inu.“ Þessi undirtexti kom fjarskalega vel fram í upplestri höfundar á laugardaginn í Norræna húsinu; húmorinn naut sín til fullnustu en örvæntingin kom líka skýrt fram í frábærri túlkun hans. Nýja smásagnasafniö hans Kjells Askildsens er væntanlegt á ís- lensku snemma á næsta ári. Þjóðlegur fróðleikur Mannlíf og saga í Þingeyrar- og Auðkúluhreppum hinum fomu er komiö út í annað sinn hjá Vest- firska forlaginu. Fjölmargar grein- ar eftir marga höfúnda era í heft- inu. Þær helstu eru Minnispunkt- ar úr mannlífi í Hokinsdal í Am- arfirði og nágrannabæjum, eftir Þorleif Kr. Guðlaugsson, og Hvenær vora elstu húsin byggð og af hverjum, þáttur úr húsasögu Þingeyrar, eftir Gunnar Hvammdal. Nokkur kveðskapur er lika í ritinu, meðal annars vísa sem Elí- as M. V. Þórarinsson frá Hravmi orti þegar hann kom að luktum dyrum í Höfri eftir aö Kristján Jakobsson og fiölskylda fluttu þaðan 1943: Örlögjn spá engu góðu andinn stendur kyrr. Áður fyrr mér ávallt stóðu opnar þessar dyr. Skríkjur Unnur Halldórsdóttir, kennari og formaður Landssamtaka foreldra, Heimili og skóli, hefur árum saman tekið að sér að semja gamanvísur og annað skemmtiefiii fyrir fólk. Nú hefur hún gefið út á bók úrval gam- anvísna um sitthvað í þjóðlífinu, bændur og búskaparbasl, hesta- mennsku, böm og uppeldi, fram- sóknarmenn, ráðherra, snyrti- fræðinga, úrsmiði og ýmsar fleiri manntegimdir. Bókin heitir Skríkjur og hefúr að einkunnarorðum ummæli ljóskunnar Mae West „Það er skemmtilegra að vera glaður!“ Þessar hæfilega ábyrgu gamanvísur era geysihag- lega ortar og kímnigáfa er í góðu lagi. Því miður era bragimir of langir til að birta hér, en ein staka er i bókinni um kvennaskokk (með sínu lagi!): Sérhver kona eldri og yngri út fer skokkandi. Er það ekki, ekki, ekki, ekki lokkandi? Tímaritið um myndlist í nýju hefti Tímarits Máls og menningar (1 1997) eru birt þrjú er- indi sem haldin voru á ráðstefnu um myndlistargagnrýni í Norræna hús- inu í haust sem leið, hvert öðru merkilegra og skemmtilegra. Gunnar J. Ámason heimspekingur rekur þróun myndlistargagnrýni á íslandi á þessari öld í greininni „Á báðum áttum. Um aðstöðu gagnrýnenda á jaðarsvæðum", og má heimfæra margt sem hann segir upp á gagn- rýni um aðrar listgreinar. Hann skýrir óvissu gagnrýnenda og grein- ir hlutverkið sem þeir tóku sér: „Annars vegar ... að kynna almenn- ingi hina ungu listgrein og yfirvinna fáfræði og fordóma hinna óupplýstu ... Hins vegar ... að greina verðuga frá óverðugum, góða list frá lélegri, standa á varðbergi gagnvart óeðlileg- um erlendum áhrifúm, gegn loddur- um og falsspámönnum, sem vora heilaþvegnir fylgis- menn erlendrar hugmynda- fræði og tísku." En gátu þeir treyst dómgreind sinni - og hvemig gátu þeir breitt yfir vanþekk- ingu á liststraumum er- lendis? Það gerðu þeir með því að rækta hina „persónulegu sýn“ sem er svo algeng í á jaðarsvæðum og fúll- komlega eðlileg - hún dugar bara : ekki ein og sér. í „Einu letters bréfi til útkjálkak- rítikers" sýnir Aðalsteinn Ingólfsson svo ástandið núna frá kómísku sjón- arhomi, en grein Jóns Proppé, „Frummvndin sem hvarf”, tekur út- gangspunktinn í merkri grein Walt- ers Benjamins um listaverkið á tím- um fjöldaframleiðslu sinnar. Merk framlög sem gott er að fá á prent. Meðal annars efiiis í TMM er grein Dagnýjar Kristjánsdóttur um | skáldsögur Jakobínu Sigurðardóttur, ljóð eftir Sigurð Pálsson og fleiri, minningarorð Þorsteins frá Hamri um Sigfús Daðason, ritdómar og margt fleira. L—WIHIWWWW

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.