Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1997, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1997, Blaðsíða 4
Stúlkurnar í Grindavík fóru alla leið og unnu titilinn - í körfuknattleik kvenna eftir úrslitaleiki viö KR ~. ........~... ;..... t ; • ' ; ...~r .... — 20 ÞRIÐJUDAGUR 1. APRÍL 1997 : ÞRIÐJUDAGUR 1. APRÍL 1997 21 Daníel vann fjórfalt - og Dagný Linda Kristjánsdóttir vann svig kvenna DVi Ólafsfirði og Dalvlk: DV-myndir HJ Daníel Jakobsson, Ólafsfirði, vann fem gullverðlaun á landsmótinu, 15 km göngu, boðgöngu, 30 km og göngutví- keppni. Þetta var í 5. skiptið í röð sem Daníel virrnur 30 km gönguna og er hann fyrsti íslendingurinn sem nær því tak- marki. „Þetta var eiginlega auðveldara en ég bjóst við,“ sagði Daníel en telur að mesta ögrunin hafa verið í 3x10 km boð- göngu. „Þegar ég sá hvernig tveir fyrstu hringirnir þróuð- ust bjóst ég við að vinna forskotið upp eftir 7-8 km. Akur- eyringar höfðu þá 2,5 min. forskot en þegar ég fór af stað fann ég strax hvað ég var sprækur og gaf allt í þetta. Ég held satt að segja að þetta sé einhver albesta ganga mín á öllum ferlinum," sagði Daníel Jakobsson við DV. Keppnin í boðgöngu karla var ótrúlega skemmtileg. Fjöl- margir bæjarbúar voru mættir til að fygjast með á fóstudag- inn langa í fögru veðri. Einar Ólafsson náði 3,5 mínútna for- skoti fyrir Akyreyringa eftir fyrsta sprett. Ámi G. Gunnars- son gekk fyrsta sprett fvrir Ólafsfiröinga, en hann var veik- ur. Ólafur BfÖmsspnrtók 'við af Áma og vann upp rúma eina mínútu á 10 km. Uá:for Daníe! Jakobsson af stað og þurfti að vinna upp 2.5 minúiur á 10 km. Áhorfendur gældu við þann möguleika aó honum tækist það ef til vill á síðustu metrunum. Daníel vann þetta forskot upp á 5 km og fór fram úr þriðja manni Akureyringa við markið. Dagný Linda Kristjánsdóttir frá Akureyri tók sigrinum á laugardag með jafnaðargeði en sagði aðspurð að hún hefði alls ekki átti von á sigri. „Satt að segja gerði ég mér engar stórar vonir um að kom- ast á verðlaunapall yfirleitt. Auðvitað vonaðist ég til að ná góðum árangri en mér fannst ég ekki eiga eins inikla mögu- leika og þær bestu. Kannski var ég heppin því margar féllu úr keppni. En mér gekk bara vel og hinum ekki eins vel. Færið var mjög erfitt en þetta var ánægjulegt," sagði Dagný Linda við DV sem er aðeins 16 ára gömul. Hún hélt síðan áfram á sigurbraut og sýndi að sigurinn í svigi á laugardeg- inum var engin tilviljun. -HJ íþróttir Grindvíkingar urðu í fyrsta sinn í sögunni íslandsmeistarar kvenna í körfuknattleik þegar þeir lögðu KR-inga að velli í úr- slitaviðureign í íþróttahúsi Haga- skólans á miðvikudag fyrir skír- dag. Þetta var þriðja viðureign lið- anna sem lauk með sigri Grind- víkinga, 55-62. Leikurinn var æsispennandi og í venjulegum leiktíma virtist allt ætla að stefna í sigur KR-stúlkna en stúlkumar úr Grindavík vom ekki búnar að segja sitt síðasta orð. KR hafði átta stiga forystu þegar skammt var til leiksloka en Grindavlk tókst að jafna metin, 49-49, áður en yfir lauk og fram- lenging var því óumflýjanleg. í henni sýndu stúlkumar úr Grindavík óhemjustyrk og unnu öruggan sigur. Góð stígandi hefur verið hjá Grindavík á síðustu vik- um. Þegar deildarkeppninni lauk var Grindavík í fjórða sæti. Fyrsta hindmn liðsins í undanúr- slitum var Keflavík en henni var ýtt úr vegi á sannfærandi hátt. Síðan vann Grindavík fyrstu þrjá leikina við KR í úrslitunum sem nægðu til sigurs á mótinu. Liðið fór sem sagt í gegnum úrslita- keppnina taplaust, vann alls fimm leiki. Stúlkmmar úr Grindavík eru vel að þessum sigri komnar og er árangur þeirra í vetur svo sannar- lega glæsilegur. Liðið er blanda af eldri og yngri stúlkum með minni reynslu. Þess má geta að húsfyllir var í Hagaskóla og kom mikill fjöldi frá Grindavík til að styðja sitt lið. Sá stuðningur hafði mikið að segja þegar upp var staðið. „Átti ekki von á því að vinna titilinn" „Ég verð að viðurkenna það að við stelpumar áttum ekki von á því að vinna titilinn þegar mótið hófst og raunar ekki heldur lengi vel vetrar. Við duttum niður und- ir lok deildarkeppninnar en sett- umst þá niður og endurskoðuðum okkar stöðu. í kjölfarið batnaði liðsandinn og baráttan blossaði upp. Niðurstaðan varð íslands- meistararatitllinn. Á síðustu árum hefur átt sér stað góð upp- bygging á yngri flokkum kvenna hér í Grindavík með þeim árangri sem við sjáum í dag. Áhorfendur hafa enn fremur stutt frábærlega við bakið á okkur í allan vetur og það hefur haft mikla þýðingu fyr- ir okkur. Það var meiri háttar að vinna sigur á íslandsmótinu og við erum enn þá að fagna sigri. Ég sé kannski fyrir einhverja breyt- ingu á liðinu fyrir næsta tímabil og við erum alveg staðráðnar í því að halda íslandsbikarnum hér í Grindavík á næstum árum,“ sagði hin 16 ára gamla og efnilega Stef- anía Ásmundsdóttir úr liði Grindvíkinga í samtali við DV. -JKS Stúlkurnar úr Grindavík komu gífurlega á óvart í úrslitakeppni kvenna í körfuknattleik. Þær byrjuöu á því aö henda íslandsmeisturum Keflavíkur út úr keppninni og um páskana tryggöu þær sér íslandsmeistaratitilinn meö þriöja sigrinum í röö gegn KR-stúlkum. DV-mynd BG Iþróttir r. ■ Daníel Jakobsson, fjórfaldur íslandsmeistari. Lína Gunnarsdóttir meö bronsið. Hjúkrunarforstjórinn var elsti keppandinn - harður trimmari og körfuboltahetja á árum áður DV, Ólafsfirði: Lína Gunnarsdóttir var elsti keppandinn í kvennaflokki á skíða- landsmótinu að þessu sinni, 49 ára. Lína segist hafa tekið þátt í mótinu vegna þess að stutt hafi verið að fara en hún starfar sem hjúkrunarforstjóri á Dal- vík þar sem hún hefur verið búsett síðustu 20 árin. „Það var reglulega gaman að taka þátt í þessu móti sem var mjög skemmtilegt," sagði Lína í samtali við DV eftir að hún hafði tekið við verð- launum sínum en hún varð þriðja í 5 km göngu kvenna. Lína var að von- um ánægð með brons- verðlaun sín enda ekki á hverjum degi sem kepp- andi á hennar aldri vinn- ur til verðlauna á skíða- landsmóti. Lína er Reykvíkingur í húð og hár, öflugur trimmari og margfaldur íslandsmeistari í körfu- bolta á árum áður. -HJ Mjög sáttir - sagði Þorsteinn Skaftason í framkvæmdastjórn skíðalandsmótsins DV, Dalvík: Eg get sagt að við erum mjög sáttir við útkomuna. Mótshaldið gekk nánast eftir áætlun og við vorum yfirleitt heppin með veður og færi,“ sagði Þorsteinn Skafta- son í mótsstjórn skíðalandsmóts- ins í samtali við DV að mótinu loknu. „Það voru þóokkuð erfiðar að- stæður í svigkeppninni í Ólafs- firði, rigning, en ekkert við því að gera. Það ræður víst enginn við veðurguðina. Keppendur voru yfir- leitt mjög ánægðir og viö sluppum alveg við slys og meiðsl," sagði Þorsteinn enn fremur. Aðspurður hvort eitthvað sér- stakt stæði upp úr sagði hann: „Að öðru ólöstuðu má nefna risasvigið. Þetta er í fyrsta skipti sem keppt er í þessari grein á landsmóti hér og eina alþjóðlega viðurkennda brautin fyrir risasvig á landinu er á Dalvík." Taka má undir orð Þorsteins. Landsmótið tókst vonum framar að þessu sinni og þeim til mikils sóma sem að undirbúningi þess komu. íslenskir keppendur á mótinu voru að þessu sinni 100 en 12 er- lendir gestir kepptu. Keppendur komu víðast hvar af landinu og þess má geta að Strandamenn tóku nú þátt í keppninni í fyrsta skipti. Keppni var spennandi í mörgum greinum og mikill fjöldi fólks fylgdist með skemmtilegri keppni í góðu veðri. Árangur var góður í mörgum greinum og margir keppendur unnu sigra í fleiri en einni grein. Þar má nefna Daníel Jakobsson frá Ólafsfirði en hann varð fjórfaldur Islandsmeistari og sannaði yfir- burði sina í göngubrautinni. -HJÁ Jón Garöar Steingrímsson, þrefaldur meistari í göngu karla 17-19 ára. Jón Garðar er e inn sá besti DV, Ólafsfirði: „Ég varð reyndar íslandsmeistari í styttri göngunni í fyrra en ég hef aldrei áður unnið báðar greinarnar. Ég er enn að bæta mig og á mikið inni. Ég er rosalega ánægður með árangur minn á þessu móti,“ sagði Jón Garðar Steingrímsson, Siglufirði, en hann vann í öllum sínum göngugreinum með miklum yfirburðum og varð þrefaldur íslandsmeistari. Jón Garðar er geysilegt efni og hefur þegar sannað að hann er kominn í fremstu röð hér á landi. -HJ „Svo kemur maður heim að æfa og vinnur titil“ - Haukur vann svigið og Kristinn stórsvigið Kristinn Björnsson, Ólafsfirði, náöi góðum árangri á skíöalandsmótinu. Hann vann tvenn gullverölaun og ein silfurverölaun. DV-mynd HJ DV, Ólafsfirði og Dalvík: „Ég er alveg rosalega ánægður með þennan sigur. Þetta er hins veg- ar svolítið skrýtið og ég er alveg í sjöunda himni,“ sagði Haukur Arnórsson, Ármanni, í samtali við DV skömmu eftir að hann hafði tryggt sér íslandsmeist- aratitilinn í svigi karla á skíðalandsmótinu. Haukur hefur oft áður gert atlögu að meist- aratitlinum en ekki tek- ist að innbyrða hann fyrr en nú. „Óneitanlega skrýtið" „Þetta er óneitanlega skrýtið. Ég er búinn að æfa í útlöndum í mörg ár og ekkert gekk. Svo fer maður heim til Islands að æfa og þá vinnur maður íslands- meistaratitil. Þetta er toppurinn," sagði Hauk- ur Arnórsson. Kristinn Björnsson, Ólafsfirði, varð íslands- meistari i stórsvigi og risasvigi. Hann hreppti silfrið í sviginu en vann síðan alpatvíkeppnina. „Nokkuð sáttur" „Ég fer nokkuð sáttur heim á Hlíðarveginn," sagði Kristinn í samtali við DV eftir mótið. „Þetta var hins vegar ekki nægilega gott hjá mér í sviginu. Ég er auð- vitað sáttur við annað sætið þegar mið er tekið af því hvemig mér gekk í fyrri ferðinni. Færið var mjög erfitt og það bauð hættunni heim og það þurfti lítið út af að bera til að menn gerðu mistök. Og margir gerðu mistök," sagði Kristinn Björnsson. Hann getur vel við sinn hluta unað, þrenn gullverðlaun og ein silf- urverðlaun á skíðalands- móti er góður árangur. -HJ/-HJÁ Haukur Arnórsson, Armanni, sló í gegn í svigi karia og kom f mark sem íslandsmeistari í fyrsta skipti. DV-myndir HJ Skíðalandsmót: Stuttar fréttir DV, Ólafsfirði og Dalvík: Skidalandsmótiö var haldið á Dalvík og Ólafsfirði í annað sinn. Síðast var það á þessum stööum árið 1992, snjólausa vet- urinn mikla. Björn Þór Ólafsson frá Ólafs- firði var að keppa í 36. sinn á skíðalandsmóti. Hann fékk brons í göngu 35 ára og eldri. Björn Þór er 55 ára. Elsta konan sem keppti á mótinu var Lína Gunnarsdóttir frá Dalvík. Hún er 49 ára og keppti í 5 km göngu. Frœnkurnar Brynja Þor- steinsdóttir og Dagný Linda Kristjánsdóttir frá Akureyri gerðu það gott á mótinu. Þær frænkur eru dætur Þorsteins og Kristjáns Samherjafélaga á Ak- ureyri. Tveir keppendur mættu til mótsins frá Seyðisfirði og voru án þjálfara og fararstjóra. Kol- brún Rúnarsdóttir vann til verð- launa. Alls kepptu 112 skíðamenn á þessu móti, þar af 12 erlendir keppendur. Sterkustu erlendu keppendumir komu frá Austur- ríki og Finnlandi. Haukar Arnórsson, Ár- manni, vann fyrsta íslandsmeist- aratitil sinn á þessu móti. Hann hefur æft erlendis undanfarin ár. Svigkeppnin var æsispenn- andi. Arnór Gunnarsson, ísa- firði, var með besta tímann eftir fyrri ferð en Kristni Bjömssyni hafði hlekkst á. í síðari umferð- inni náði Haukur mjög góðum tíma og skaust í efsta sætið. Ólafsfirðingar einokuðu göngu kvenna nær algjörlega. í 7,5 km göngunni kepptu fimm stúlkur, aUar frá Ólafsfirði. Talsverður erill var hjá lög- reglu á Dalvík og Ólafsfirði, þó sérstaklega á Dalvík, á skírdag. Margir lögðu leið sína á skíða- svæðið í frábæm veðri og náði bUaröðin næstum niður í bæinn. Jón Garóar Steingrímsson frá Siglufirði vann mikið afrek á mótinu. Hann varð tvöfaldur meistari í göngu, vann síðan alpatvíkeppnina og var útnefnd- ur bikarmeistari SKÍ í flokki 17-19 ára pilta. Yfirburöir Daníels Jakobs- sonar, Ólafsfirði, í göngu karla vom fáheyrðir. Enginn komst svo mikið sem nálægt honum. Hann vann aUar sínar greinar með yfirburðum. Engin boðganga var hjá kvenþjóðinni á þessu landsmóti. Aðeins ein sveit tilkynnti þátt- töku, sveit Ólafsfirðinga. Ekki var heldur keppt í skíðastökki, annað landsmótið í röð. Skíðastökk virðist vera deyjandi íþróttagrein, í það minnsta sem keppnisgrein á landsmótinu. Nokkrir keppend- ur ætluðu þó að vera með en þeir komu aUir frá Ólafsfirði og því var keppnin felld niður. Heimur versnandi fer. Benedikt Geirsson, formaður Skíðasambands íslands, hélt ræðu við mótsslit og þakkaði skipuleggjendum fyrir frábært landsmót. Strandamenn tóku þátt í landsmótinu í fyrsta skipti í sögu þess. Þeir kepptu í boð- göngu karla og stóðu sig með sóma. Laila Nilson, sænsk stúlká sem þjálfað hefur á Ólafsfirði í vetur, vann aUar göngugreinar kvenna á mótinu en hún keppti sem gestur. Unnusti Lailu, sem er ein- eygður og heitir Mattias Berg- lund, keppti sem gestur í svigi og stórsvigi og stóð sig mjög vel í báðum greinum. -HJ/-HJÁ Úrslitiná Skíða- móti íslands um páskana 15 km ganga karla 1. Daníel Jakobsson, Ólafsf. . . . 40:06 2. Ólafur Bjömsson, Ólafsf. . . . 43:28 3. Einar Ólafsson, Ak.........44:04 30 km ganga korla, 20 ára og eldri 1. Daníel Jakobsson, Ólafsf. . . 1:24,48 2. Rögnvaldur Ingþórss., Fljót. 1:30,17 3. Einar Ólafsson, Ak.....1:30,24 10 km ganga pilta, 17-19 ára 1. Jón G. Steingrímsson, Sigluf. 29:20 2. Gísli Haröarson, Ak......31:18 3. Ingólfur Magnússon, Sigluf. . 31:24 15 km ganga pilta, 17-19 ára 1. Jón G. Steingrímsson, Sigluf. 47,19 2. Þóroddur Ingvarsson, Ak . .. 47,57 3. Ingólfur Magnússon, Sigluf. . 48,09 15 km ganga karla, 35 ára og eldri 1. Magnús Eiríksson, Sigluf. . . 49,24 2. Kristján Guðmundss., ísaf. . . 53,03 3. Siguröur Gunnarsson, ísaf. . 54,20 5 km ganga kvenna, 16 ára og eldri 1. Lísebet Hauksdóttir, Ólafsf. . 18:30 2. Hanna D. Maronsdóttir, Ól. . 23:25 3. Lina Gunnarsdóttir, Dalvík . 27:53 7,5 km ganga kvenna, eldri en 16 ára 1. Lísebet Hauksdóttir, Ólafsf. . 29,49 2. Hanna D. Maronsdóttir, Ói. . 30,50 3. Hólmfríöur Svavarsd. Ól. .. . 30,59 3x10 km boóganga karla, 17 ára og eldri 1. Ólafsfjörður...........1:29,59 (Ámi Gunnarsson, Ólafur Bjömsson, Daníel Jakobsson) 2. Akureyri, A-sveit .....1:31.31 3. Akureyri, B-sveit .....1:33,01 Svig karla 1. Haukur Amórsson, Árm. . . 1:28,44 2. Kristinn Bjömsson, Ólafsf. 1:29,00 3. Amór Gunnarsson, ísaf. .. 1:29,46 Svig kvenna 1. Dagný Kristjánsdóttir, Ak. . 1:30,43 2. Kolbrún Rúnarsdóttir, Sey. 1:30,97 3. Helga Halldórsdóttir, Árm. 1:31,71 Stórsvig karla 1. Kristinn Bjömsson, Ólafsf. 2:06,06 2. Arnór Gunnarsson, ísaf. .. 2:07,36 3. Björgvin Björgvinsson, Dal. 2:07,54 Stórsvig kvenna 1. Brynja Þorsteinsdóttir, Ak. 2:06,06 2. Theodóra Matthiesen, KR. . 2:06,14 3. Dagný Kristjánsdóttir, Ak. . 2:08,07 Risasvig kvenna 1. Brynja Þorsteinsdóttir, AK. 1:19,58 2. Theodóra Matthiesen, KR. . 1:25,30 3. Dagný Kristjánsdóttir, Ak. . 1:27,62 Risasvig karla 1. Kristinn Bjömsson, Ólafsf. 1:17,50 2. Jóhann H. Hafstein, Árm. . 1:17,76 3. Haukur Amórsson, Árm. .. 1:19,33 Alpatvikeppni karla 1. Kristinn Bjömsson .... Ólafsfirði 2. Haukur Amórsson . . . Reykjavík 3. Amór Gunnarsson .......ísafirði Alpatvikeppni kvenna 1. Dagný L. Kristjánsdóttir. Akureyri 2. Helga Halldórsdóttir . . Reykjavik 3. Stefanía Steinsdóttir .. . Akureyri Göngutvíkeppni kvenna 1. Lísebet Hauksdóttir .. . Ólafsfirði 2. Hanna Dögg Maronsdóttir . Ólafsf. Göngutvíkeppnl karla, 17-19 ára 1. Jón G. Steingrímsson . . Siglufirði 2. Ingólfur Magnússon . . . Siglufirði 3. Þóroddur Ingvarsson . . . Akureyri Göngutvíkeppni karla, 20 ára og eldri 1. Daníel Jakobsson....Ólafsflrði 2. Einar Ólafsson .......Akureyri 3. Ólafur Björnsson ....Ólafsfirði t

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.