LAUGARDAGUR 5. APRIL 1997 lönd 23 » i Fjöldi hneykslismála skekur breska íhaldsflokkinn: Þriggja barna faíir í ástarsambandi vii annan karl Páskavikan var ömurleg hjá breskum íhaldsmönnum. Á mánu- deginum dró fyrrum ráðherrann AUan Stewart sig í hlé úr kosninga- baráttunni eftir að hafa viðurkennt að eiga við ofdrykkjuvandamál að striða og hafa átt í ástarsambandi með blondínu sem hann hitti á með- ferðarstöð. Á miðvikudeginum sagði þing- maðurinn og fyrrum ráðherrann Tim Smith af sér. Hann viður- kenndi að hafa þegið fé fyrir að bera upp fyrirspurnir i þinginu fyrir eig- anda Harrods-vöruhússins. Farið var að hitna undir Smith og hann kaus að verða fyrri til áður en menn á toppnum bæðu hann að fara frá. Á skírdag birtu bresk blöð fréttir af ástarsambandi þingmannsins Pi- ers Merchants, sem er kvæntur maður, og 17 ára gamallar fram- reiðslustúlku, Önnu Cox. Á föstu- daginn langa neitaði Merchant að segja af sér þrátt fyrir þrýsting frá áhrifamönnum I flokknum og vísaði ásökununum á bug. Leiddur í gildru með kossi Anna Cox kallaði hann lygara. Merchant hélt því fram að hann hefði aðeins þekkt Önnu í skamman tíma og að hún hefði endilega viljað fara um með honum og safna at- kvæðum. Hún hefði síðan kysst hann opinberlega og hann hefði leyft það. Hins vegar hefði ekki ver- Erlent fréttaljós á laugardegi ið um neitt kynferðislegt samband að ræða. Merchant fullyrðir að hann hafi verið leiddur í gildru. Viðbrögð Johns-Majors forsætis- ráðherra voru þessi: Ætla þeir aldrei að læra? Gera þeir sér ekki grein fyrir þvi að það er ljósmynd- ari á bak við hvern einasta runna?" í kjölfar þessara atburða jókst þrýstingurinn á þingmanninn Neil Hamilton að víkja vegna ásakana um að hafa þegið fé fyrir að bera upp spurningar á þingi. Dapurlegur afmælisdag- ur forsætisráðherrans John Major forsætisráðherra varð 54 ára síðastliðinn laugardag. Dagurinn varð ekkert sérstaklega ánægjulegur. Frambjóðandinn Sir Michael Hirst, sem er kvæntur þriggja barna faðir, viðurkenndi að ¦ hafa átt í ástarsambandi við annan karlmann. Hann fór síðan í felur með eiginkonu sína og börnin þrjú. Major er sagður hafa verið æfur yfir því að kosningabarátta hans skyldi enn einu sinni hefjast með hryllilegum hneykslismálum íhalds- manna. Þingmönnum hafði verið fyrirlagt að haga sér ekki einungis vel meðan á kosningabaráttunni stæði heldur þyrftu þeir einnig að láta það sjást að þeir höguðu sér vel. Fyrirlitinn Egypti hefnír sín Með því að rjúfa þing næstum sex vikum fyrir kosningarnar, sem fara fram 1. maí næstkomandi, tókst Major að minnsta kosti að komast hjá umfjöllun um viðamikla skýrslu þar sem fjallað er um mútuþægni tiu þingmanna. Aðalmaðurinn í mútumálinu er kaupsýslumaðurinn Mohamed Al Fayed sem er Egypti. Áhrifamenn í bresku viðskiptalífi fyrirlíta hann þar sem hann keypti Harrods-vöru- húsið i London beint fyrir framan nefið á breskum keppinautum sín- um. Al Fayed dreymir um að verða breskur rikisborgari og afhenti reglulega nokkrum þingmönnum neðri deildar breska þingsins um- slög með þúsund punda seðli gegn því að þeir bæru fram hinar og þessar fyrirspurnir á þinginu. Þegar umsókn hans um að verða breskur ríkisborgari var hafnað reiddist hann bresku ríkisstjórn- inni svo heiftarlega að hann greindi fjölmiðlum frá fjárhagsstuðningi sínum við þingmenn neðri deildar- innar en þeir höfðu haldið launa- greiðslunum" frá honum leynileg- um. Ekkert ólöglegt Þingmaðurinn Tim Smith, sem var upprennandi stjarna í breska íhaldsflokknum eins og Neil Hamilton, viðurkennir að hafa þeg- ið allt að 25 þúsund pund frá Al Fayed. Hann kveðst hins vegar ekki hafa framið neitt ólöglegt. Hamilton vísar harðlega á bug ásökunum Als Fayeds um að hafa þegið enn meira fé auk gistingar oftar en einu sinni á Ritz hótelinu í París sem Fayed á. Hamilton er einnig sakaður um að hafa haldið leynilegum greiðslum frá öðrum sérhagsmunapoturum. Hvað vissi Major? Major, sem hingað til hefur ekki tengst fyrri spillingarmálum stjórn- arflokksins, er í þetta sinn sakaður um að hafa i tíu daga vitað um ólög- Breskir fjölmiölar birtu þessa mynd af Piers Merchant, þingmanni breska íhaldsflokksins, og Önnu Cox, 17 ára framrei&slustúlku. Merchant kve&st hafa verið leiddur í gildru. legar greiðslur Als Fayeds til Tims Smiths án þess að hafa gripið inn í. Smith sté úr stóli aðstoðarráðherra eftir að dagblaðið The Guardian hafði haustið 1994 skrifað um ásak- anir Als Fayeds. Major hefur lagt áherslu á að Smith hafi vikið eins fljótt og auðið var úr embætti eftir að Major frétti af málinu. Verkamannaflokkurinn hefur krafist þess að þing verði kallað saman á ný fyrir kosningarnar til þess að fjalla um skýrsluna. Major hefur vísað kröfunni á bug og segir hana pólitískt bragð. Reyndar eru kjósendur þeirrar skoðunar að stjórn- málamenn í öllum flokkum hreiðri vel um sig. En skipu- leggjendur kosningabaráttu Verkamannaflokksins eru vissir um að spillingarmálin kyndi undir þeim skoðunum að kominn sé tími til breyt- inga og komi i veg fyrir að ihaldsmenn, sem þegar hafa yfirgefið flokkinn, skipti aft- ur um skoðun. Breska þjóð- in er búin að fá nóg," segja menn í Verkamannaflokkn- um. Og íhaldsmenn sjá sjálfir um vinnuna fyrir okkur. Spillingin loðir við þá eins og drulla." Sunday Times, Jyllands- Posten og News of the World. Piers Merchant, þingma&ur íhaldsflokksins f Bretlandi, ásamt Helen eiginkonu sinni. Merchant var valinn frambjóöandi flokksins (kjördæmi sínu þrátt fyrir háværar kröf- ur um a& hann segoi af sér vegna ástarsambands vi& 17 ára framrei&slustúlku. Símamynd Reuter IPPf^JWSftift-ö, Nýjatækið Gamlatækið Samtals 6.000,- 8.000,- 10.000,- 44.000,- 42-67.000,- 65.000,- PFAFF 6RENSASVEGI 13 SllVlt 533 2222