LAUGARDAGUR 5. APRIL 1997 -i u i^nJbllHffihllÍii 41 Meinlausar dýraveiðar Veiöieðlið er ríkt í mannskepn- unni og alltaf er til nóg af mönnum sem vilja borga stórfé fyrir að fá út- rás fyrir veiðieðli sitt. í sumum til- fellum er það engum vandkvæðum bundið þar sem veiði á dýrategund- um hefur lítil áhrif á náttúruna. En oft beinist áhugi veiðimanna að dýr- um sem eru í útrýmingarhættu og það skapar mikil vandamál þegar veiðimenn láta sér ekki segjast. Veiðar á fjölmörgum dýrategund- um eru bannaðar vegna náttúru- verndarsjónarmiða en ákafir veiði- Pegar fillinn er kominn í skotfæri er baunao á hann með málningarbyssunni og afleiöingin er ekki banvænt sár heldur hressileg, bleik málningarklessa. menn láta sig oft reglur engu skipta og kæra sig kollótta. í þeim tilfellum er oft blóðug barátta milli dýra- verndunarsinna og veiðimanna. Al- þekkt eru dæmin frá Afríku um veiði á filum, nashyrningum, górill- um og fjöldamörgum öðrum tegund- um sem hafa verið í útrýmingar- hættu áratugum saman. Málning og byssur Nýverið var bryddað upp á skemmtilegri nýjung í Simbabve, á víðáttumiklum landsvæðum nálægt Viktoriufossunum, en þau eru heim- kynni margra stærstu villtu fíla- hjarða heims. Ágjarnir veiðimenn, eða öllu heldur veiðiþjófar, hafa lengi dundað sér við þann ljóta leik á þessu svæði að skjóta fíla sér til skemmtunar við litla hriftiingu yfir- valda og náttúruverndarsinna. Búgarðseiganda á þessu svæði, Adrian Read, datt í hug það snjall- ræði að bjóða áhugasömum veiði- mönnum upp á veiðitúra með byss- ur að vopni - og einnig myndavélar. í stað þess að byssurnar séu hlaðn- ar banvænum kúlum eru þær fyllt- ar bleikri málningu. Veiðimenn- irnir" haga sér á nákvæmlega sama hátt og veiðimenn í fyrndinni með sín banvænu vopn og fá alla þá spennu sem því fylgir. Þegar fíllinn er kominn í skotfæri er baunað á hann með málningar- byssunni og afleiðingin er ekki ban- vænt sár heldur hressileg bleik málningarklessa. Síðan er að reyna að ná mynd af skotinu" til að sanna að bráðin hafi náðst". í hverri veiðiferð eru með í för þraut- þjálfaðir veiðimenn sem hafa ban- vænar fílabyssur með sér. í þeim til- vikum þar sem fílarnir ráðast á fólk (sem er sjaldgæft) eru veiðimenn- irnir baktryggingin. Málningin í byssunum er þeim eiginleikum búin að hún hverfur á nokkrum klukkustundum með svit- anum frá skepnunni. Málningin pirrar fílana á engan hátt og ekki er hætta á að hún mengi vatnsból. Bú- garðseigandinn Adrian Read datt niður á þessa hugmynd þegar hann las um niðurstöður könnunar sem gerð var í Evrópu. í þeirri könnun kom fram að fjöldi fólks hefur áhuga á dýraveiðum en flestir láta þær ekki eftir sér vegna dýraverndunar- sjónarmiða. Náttúruverndarsinnar eru mjög hrifnir af uppátæki Reads, enda hef- ur dregið úr raunverulegum veiði- þjófnaði síðan þessar nýju veiðiað- ferðir voru teknar upp. Einfalt mál ætti að vera að uppfæra þessa veiði- aðferð á aðrar dýrategundir og mætti haga magni málningarinnar í sam- ræmi við stærð veiðidýrsins. ÍS 6 daga sigling um Malakkaflóann: Undur Asíu Óhefðbundnar slóðir þar sem möguleiki er að kynnast ólíkum menningarheimum og frábrugðnum lífsháttum njóta sífellt meiri vin- sælda hjá íslenskum ferðalöngum. íslenskar ferðaskrifstofur leggja sí- fellt meiri áherslu á sérferðir á staði sem hingað til hafa aðeins verið til í hugarheimi landans. í sérferðabæklingi Samvinnu- ferða-Landsýnar er getið um eina slíka, draumasiglingu um Malakkaflóann með heimsókn til eyjarinnar Balí í Indónesíu dagana 25. september til 9. október. Farar- stjóri í þeirri ferð er Friðrik Har- aldsson. Þeir eru nú orðnir nokkur hundruð íslendingarnir sem prófað hafa að fara í draumasiglingu á Karíbahafi en þessi draumasigling er á allt aðrar slóðir. Ólík þjóðarbrot Ferðatilhögun er þannig að flogið er frá Keflavík til London með Flug- leiðum 25. september og þaðan áfram til Singapúr með Singapore Airlines. SA hefor árum saman ver- ið talið meðal bestu flugfélaga í heiminum. Komið verður til Singap- úr kvöldið 26. september og gist á fjögurra stjörnu hóteli. Daginn eftir verður farið í hálfs dags skoðunarferð um borgina. Þar ægir saman ólíkum þjóðarbrotum sem hefur á aðdáunarverðan hátt tekist að lifa saman í sátt og sam- lyndi. Meðal þess sem heimsótt verður er dýragarður, Kínahverfið, veitingastaðir frá öllum heimshorn- um og fjölbreytt næturlíf. Sunnudaginn 28. september hefst síðan ævintýrasiglingin frá Singapúr með skemmtiferðaskipinu Superstar Gemini. Þar er aðbúnað- ur allur fyrsta flokks: veitingastað- ir, barir, setustofur, spilavíti, diskó- tek, karaoke, spilaherbergi, kabar- ett, verslanir, hlaupabraut, sund- laug, nuddpottur og margt fleira. Siglingin hefst á ferð norður Malakkaflóa. Daginn eftir er komið til Port Klang í Malasíu og þaðan er boðið upp á skoðunarferðir til höf- A milli þess aö siglt er á milli áhugaveröra staöa er upplagt aö slappa af í sólinni. uðborgarinnar Kuala Lumpur. Um nóttina er siglt norður með fram Malasíuskaganum. Fegursta eyjan Þriðjudagínn 30. september er komið til Langkawi-eyjanna sem liggja nyrst í Malasíu og eru frægar fyrir drifhvítar strendur sínar. Dag- inn eftir er komið til Phuket, feg- Óheföbundnar sló&ir þar sem möguleiki er a& kynnast ólíkum menningarheimum og frábrug&num lífsháttum njóta sifellt meiri vinsælda hjá íslenskum fer&alöngum. urstu eyjar Tailands, og næsta dag siglt í suður í átt til Singapúr. Um kvöldið er hátíöarkvöldverður í boði skipstjórans. Síðdegis 3. októ- ber er komið til Singapúr, flogið þaðan beint til Balí og Ient þar um kvöldmatarleytið. Dvalið verður þar næstu 6 næturnar á Sanur Beach, fyrsta flokks strandhóteli. Boðið verður upp á fjölda skoðunarferða á þeim tíma. Balí er fögur eldfjallaeyja austur af Jövu og menningin þar hefur ekki orðið fyrir miklum vestrænum áhrifum. Innfæddir geisla af hlýju viðmóti og listfengi þeirra er meira en menn eiga að venjast. Þar má sjá heilu byggðarlögin sem sérhæfa sig í hvers konar iðnaði: silfursmíði, tréútskurði, listmálun eða öðrum skemmtilegum listgreinum. Að sjálf- sögðu fá ferðalangarnir að kynnast morgunleikfimí" innfæddra, bar- ongdansinum, sem stiginn er af áköfum trúarhita. Fimmtudaginn 9. október, síðdeg- is, er flogið til Singapúr og áfram til London og komið þangað föstudag- inn 10. október. Flogið verður til Keflavíkur samdægurs. Verð á mann í tvíbýli er 194.900 krónur. Innifalið í því gjaldi er flug, akstur til og frá flugvelli erlendis, gist- ing/morgunverður á Balí, skemmti- siglingin með fullu fæði, hafnar- gjöld, hálfsdags skoðunarferð í Singapúr og íslensk fararstjórn. Flugvallarskattar og forfallagjald er ekki innifalið. -ÍS Tími til kominn Spánverjar hafa loksins látið undan kröfom fólks um að hætta ógeöfelldum dýraslátrunum sín- um sem hefð er fyrir í nokkrum héruðum landsins. Spánverjar hafa til dæmis slátrað geithafri á hverju ári með þvi að henda honum niður úr kirkjuturni. í öðru þorpi er asni dreginn nauð- ugur um stræti og líftóran murk- uð úr honum með því að hella hann fullan af léttvíni. Nú er búið að setja lög sem banna þessi óvinsælu dráp á dýrum og liggja háar sektir við því að brjóta gegn lögunum. Sökudólgar verða sektaðir um 1,4 milljónir króna ef þeir verða uppvísir að því að brjðta þessi lög. Ovinsæll skattur Viktoríufossar í Afríku hafa alla tíð dregíð að sér mikinn fjölda ferðamanna. Fossarnir eru á landamærum Simbabve og Zambíu. Þeir eru stórfengleg- ir mjög og sums staðar með yfir 100 metra vatnsfall Fossarnlr þykja tilkomumestir séðir frá Simbabve og yfirvöld í landinu sjá sér hag í því til að blóð- mjólka ferðamenn sem koma til að skoða þetta náttúruundur. Nýverið settu yfirvöld í Simbabve óvinsælan skatt á ferðamenn. Þeir sem koma þarna til skoðunar í nokkrar klukkustundir, án gistingar, eru látnir borga um 700 krðna skatt, þeir sem koma á eigin vegum með gistingu fyrir aug- um, eru látnir borga 3.500 krón- ur. Aðeins þeir sem koma í skipulögðum ferðum á vegum ferðaskrifstofa landsins sleppa við þennan óvinsæla skatt. Frakkarí London Frakkar hafa aukið mjög komur sínar yfir Ermarsundið síðan Eurostar-lestin hóf göngu sína og aukinn fjöldi franskra feröamanna kallar á sérhæfða þjónustu fyrir þá. í júní verður opnuð sérstök ferðaskrifstofa fyrir franska ferðamenn á Piccadilly-torgi í London þar sem hægt er að fá gjaldmiðli skipt, hvort heldur sem er í pund eða franska franka. Á skrifstofunni verður einnig veitt þjónusta um ferðir í Englandi fyrir alla frönskumæl- andi. V V