52 "* #a/< LAUGARDAGUR 5. APRIL 1997 Dorfman sparar ekki stóru orðin um yngsta stórmeistara heims: Efnilegri en Fischer og Kasparov Frakkanum unga, Etienne Bacrot, tókst ætlunarverkið - aö verða yngsti stórmeistari skáksög- unnar. Hann vann skák sína við kanadíska stórmeistarann Kevin Spraggett í síöustu umferð alþjóð- lega mótsins í Enghien í Frakklandi og þar með var markinu náð. Bacrot, sem er aöeins 14 ára gamall og Viktor Kortsnoj, 65 ára, deildu sigrinum á mótinu. Bacrot vann Kortsnoj í fyrstu umferð en aldurs- forseti mótsins beit í skjaldarrendur og leyfði aðeins þrjú jafntefli í þeim átta skákum sem hann átti eftir. Bacrot hefur verið nefndur Moz- art skákborðsins" en hann þykir gæddur óvenjulegum hæfileikum. Hann lærði mannganginn fjögurra Umsjón Jón L Árnason ára og var orðinn félagi í skák- klúbbi hálfu öðru ári síðar. Hann varð heimsmeistari barna, yngri en 12 ára, tefldi í landsliði Frakka í fyrra og er nú orðinn stórmeistari. Frá unga aldri hefur hann notið handleiðslu færustu stórmeistara, fyrst Lev Polugajevskys heitins, og síðan Josefs Dorfmans, fyrrverandi þjálfara og aðstoðarmanns Garrí Kasparovs. Dorfman sparar ekki stóru orðin þegar Etienne er annars Widge Sævar Bjarnason sigraði í ásknrendaflnkki á Skákþingi íslands vegar: Etienne er mun sterkari en Kasparov var á hans aldri," segir Dorfman og bætir við að Fischer hefði heldur ekki verið svo snjall á sama aldri. Etienne býr hjá foreldr- um sínum og 12 ára systur í smábæ fyrir norðan París og þykir frábær námsmaður. Hann er ári á undan í skóla, þó svo að mestur tími hans fari í skákrannsóknir. Foreldrar hans eru báðir menntaðir í raunvís- indum og hafa sérhæft sig í um- hverfisvernd. Bacrot nægöi jafntefii í fjórum síðustu skákunum á mðtinu til þess að ná síðasta áfanga að stórmeist- aratitli en lét sér það ekki nægja og fékk hálfum vinningi betur. Þar með hafa Frakkar fengið sinn ní- unda stórmeistara og eiga nú jafn- marga og íslendingar. Lokastaðan á mótinu varð þessi: 1.-2. Bacrot (Frakklandi) og Kortsnoj (Sviss) 6,5 v. 3. Dorfman (Frakklandi) 5,5 v. 4.-6. Rausis (Lettlandi),Nataf (Frakklandi) og Spraggett (Kanada) 5v. 7.-8. Chabanon (Frakklandi) og M. Ivanov (Rússlandi) 3,5 v. 9. Fontaine (Frakklandi) 2,5 v. 10. Anic (Frakklandi) 2 v. Hér er falleg skák frá mótinu, þar sem stórmeistarinn ungi leikur list- ir sínar. Hvítt: Etienne Bacrot Svart: Darko Anic Drottningarbragð. 1. d4 Rl'G 2. c4 e6 3. Rf3 d5 4. Rc3 Bb4 5. Bg5 Rbd7 6. e3 c5 7. cxd5 exd5 8. Dc2 Da5 9. Bd3 0-0 10. 0-0 c4 11. Bf5 He8 12. Rd2 g6 13. Bxd7 Rxd7 14. Hael Bxc3 15. bxc3 Rb6 16.13 Da4 Fram að þessu þekktir leikir en nú fer svartur út af sporinu. Betra er 16. - Bd7, eins og leikið var í skák Svíans Hillarp-Perssons og Sosonko (svart) á ólympíumótinu í Jerevan á liðnu ári. 17. Db2 Dc6 18. c4 Be6 19. He3 Ra4 20. Dcl 1)5 21. Del Rb6 22. Dh4 Rdd7 23. g4! Beittur leikur, sem undirbýr peðafok með e4-e5, ásamt f3-f4-f5 o.s.frv. ásamt því að opna mögu- leika fyrir hvítan hrók á h3. 23. -1)4 24. e5 bxc3 fórnina. 26. Re4!! f5 Enn er riddarinn friðhelgur. Ef 26. - dxe4 27. fxe4 með hótuninni 28. Hh3 og máta á h7; ekki gengur þá 27. - Bxg4 28. Hxf7, eða 27. - Hg8 28. Dxh7+! Kxh7 29. Hh3 mát. 27. exf6 fr.hl. Hg8 28. Rxc3 Haf8? Betra var 28. - Db6 strax. Nú kem- ur meistarinn ungi aftur auga á snotra leið. 29. Dh4! Db6 25. Dh6! Kh8 Hvitur hótaði 26. Bf6 RxfS 27. exf6 og óverjandi mát á g7, sem nú má bjarga með 27. - Hg8. Svartur hafði því ekki tima til að þiggja riddara- 30. Hxe6! Dxe6 31. Hel Hxf6 Ef drottningin víkur sér undan kemur 32. He7 og svartur er varnar- laus. 32. Hxe6 Hxe6 33. Rxd5 Hb8 34. Bf4 - og svartur gafst upp. Eftir að hafa skoðað þessa skák velkist eng- inn í vafa um það að tafiið leikur í höndum meistarans unga. Sævar og Arnar tefla í landsliðsflokki. Sævar Bjarnason tryggði sér sig- ur í áskorendaflokki á Skákþingi ís- lands um páskana, með jafntefli viö Braga Þorfinnsson I síðustu umferð. Sævar varð einn efstur með 7,5 v. og tryggði sér rétt til keppni í lands- liðsflokki, sem fram fer á Akureyri í september. Arnar Þorsteinsson varð einn í 2. sæti, hálfum vinningi á eftir Sævari og náði einnig að tryggja sér landsliðssæti með frammistöðu sinni. í þriðja sæti varð Sigurbjörn Björnsson með 6,5 v. Tómas Björns- son, Hrannar Baldursson og Bragi Þorfinnsson komu næstir með 6 v. og Magnús Örn Úlfarsson, Jóhann H. Ragnarsson, Arnar E. Gunnars- son, Björn Þorfinnsson og Baldur Möller fengu 5 v. í opnum flokki sigraði Einar Þor- grímsson með 8,5 v. af 9 möguleg- um. Grétar Áss Sigurðsson - faðir- inn í skákfjölskyldunni fræknu - varð í 2. sæti með 7,5 v. og tryggðu þeir sér keppnisrétt í áskorenda- flokki að ári. Guðjón H. Valgarðs- son varð í 3. sæti með 6,5 v. Guðni S. Pétursson hlaut 6 v. og Harpa Ing- ólfsdóttir og Ingi Þór Einarsson fengu 5,5 v. Alls tefldu 54 keppendur í áskorenda- og opnum flokki. Landsbankamótið í sveitakeppni 1997: Sveit Antons Haraldssonar íslandsmeistari Sveit Antons Haraldssonar frá Akureyri sigraði sveit Landsbréfa í hreinum úrslitaleik um íslands- meistaratitilinn í sveita- keppni í síöustu umferð mótsins. Sveit Landsbréfa hafði byrjað mótið mjög vel og allt stemmdi í sig- ur þeirra. En sveit Antons var aldrei langt undan og þegar Lands- bréf tópuðu illa í næstsíðustu um- ferð, þá var h'óst að síöasti leikur mótsins yröi hreinn úrslitaleikur um íslandsmeistaratitilinn. Reyndar dugði Antoni jafntefli, en þegar upp var staðið hafði hann unnið Landsbréf 16-14. Með Antoni spiluðu Sigurbjörn Haraldsson, Magnús Magnússon, Pétur Guðjónsson, Steinar Jónsson og Jónas P. Erlingsson. Þetta var annar íslandsmeist- aratitill Steinars í sveitakeppni, en hinir voru að vinna þennan eftir- sótta titil í fyrsta sinn. Sigurbjörn er aöeins 18 ára og er yngsti spilari sem heflr unnið titilinn. Sveit Ant- ons var í ööru sæti í íslandsmótinu í fyrra þannig að sigur þeirra er sið- ur en svo óvæntur. Röð og stig sveitanna var annars þessi : 1. Anton Haraldsson 168 2. Landsbréf 164 3. VÍB 152 4. Samvinnuferðir/Landsýn 152 5. Eurocard 149,5 6. Búlki 137 7. Hjólbarðahóllin 132 8. Málning ehf. 106 9. Sparisjóöur Mýrasýslu 92 lO.Símon Símonarson 86,5 Þegar sigurinn hangir á bláþræöi, þá er hvert einasta spil úrslitaspil og við skulum skoða eitt, sem hefði getað gert Landsbréf að íslands- meisturum. N/0 * G98 »G86 * DG72 * D64 * KD6 »95 * A7543 * A102 N * 32 » A73 * K986 * K985 * A10754 » KD1042 * - * G73 Þegar ofangreint spil kom á skjá- inn i opna salnum, fylgdi með út- koman úr lokaða salnum, en þar höfðu Björn Eysteinsson og Sverrir Ármannsson spilað fjðra tigla, sem Magnús Magnússon hafði doblað af miklu harðfylgi. Sagnhafi varð að gefa einn slag á hvem lit og varð einn niður. Það voru 100 til Akureyringanna. Sagnir í opna salnum voru heldur grimmari, en þar sátu n-s Jón Bald- ursson og Sævar Þorbjörnsson, en a-v Jón P. Erlingsson og Steinar Jónsson: Norður Austur Suður Vestur pass pass 1* 2-f pass 24 pass 2G pass 3G pass pass pass Óneitanlega hart geim, en þegar liklegt er að annar varnarspilarinn sé með þau háspil sem vantar, þá má oft vinna geim á færri púnkta, en venjulega þarf til þess. íslandsmeistaramir 1 sveitakeppni 1997: Taliö frá vinstri: Jónas P. Erlingsson, Pétur Guöjónsson, Anton Haraldsson fyrirliði, Magnús Magnússon, Sigurbjörn Haraldsson og Steinar Jónsson. Það var töluverð spenna hjá áhorfendum, því spilið er tapað með hjarta út, en virðist unnið með spaðaútspili. Reyndar þarf sagnhafi að verka tígulinn rétt, þannig að spilið hékk á bláþræöi. En Jón sér ekki í gegnum holt og hæðir, þótt hugmyndaríkur sé og hann spilaði eölilega út spaðaáttu. Lítið úr blindum, Sævar drap með ás og skipti yfir í hjartakóng. Stein- ar gaf, þá kom drottningin og aftur gaf Steinar. Sævar hélt áfram með hjartað og ásinn átti slaginn. Stein- ar fór nú heim á spaða og spilaði litlum tígli. Lítið frá Jóni og sexið úr blindum. Þar með var spilið unn- ið og Akureyringarnir bættu 400 við árangurinn í lokaða salnum. En glöggur áhorfandi taldi að Umsjón Stefán Guðjohnsen Sævar hefði ekki veriö sjálfum sér samkvæmur, þegar hann drap á spaðaásinn og skipti yfir í hjarta. Annað hvort á hann að spila meiri spaða í þeirri von að Jðn eigi kóng eða drottningu, eða að gefa fyrsta spaðaslaginn. Gefi hann fyrsta spaða, þá er spilið tapað, þegar Jón skiptir yfir í hjarta, þegar hann kemst inn á tígul. Reyndar er tígulíferðin ekki sjálf- sögð þá og óvíst að Steinar hefði fundið hana. Spennandi spil, sem gat farið á hvorn veginn sem var.