Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Dagblašiš Vķsir - DV

og  
S M Þ M F F L
. . 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 . . .
Smelltu hér til aš fį meiri upplżsingar um 77. tölublaš - Helgarblaš 
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Dagblašiš Vķsir - DV

						58

ikmyndir

LAUGARDAGUR 5. APRÍL 1997

lj±\\j   J j   JJ

Y ÍLD A

Kringlubíó - Jói og risaferskjan:

**i

Siglt í ferskju til New York

Roald Dahl er minnst sem frábærs rithöfundar og mikils

sagnameistara sem var jafnvígur á sögur fyrir börn og

fullorðna. Það eru sjálfsagt hinar frábæru barnasögur

hans sem munu halda merki hans á lofti um ókomna

framtíð. Á stuttum tíma hafa verið gerðar tvær ólíkar

kvikmyndir eftir tveimur þekktum barnasögum hans,

Matthilda og Jói og risaferskjan. Matthildur, sem sýnd

var fyrir stuttu, var mjög vel heppnuð leikin mynd en í

Jói og risaferskjan (James and the Giant Peach) er

blandað saman á dálítið sérstakan máta leiknum og

teiknuðum atriðum. Þegar þeir sem stóðu að gerð ein-

hverrar bestu teiknimyndar síðari ára, The Nightmare

Before Christmas, með þá Tim Burton og Henry Selick í broddi fylkingar, taka fyrir eina

af frægustu sögum Roalds Dahls þá er búist við miklu. Þeir félagar standa undir vænting-

unum að mörgu leyti þótt Jói og risaferskjan sé alls ekki eins vel heppnuð og jólaævin-

týri þeirra.

Sagan um hinn munaðarlausa Jóa, sem býr hjá vondum frænkum sínum og ferðast í risa-

ferskju ásamt skondnum félögum, frá Englandi til New York, er vel kunn og hin

skemmtilegasta og vel til þess fallin að kvikmynda. Það er líka margt vel gert í myndinni,

skipting milli leikinna atriða og teiknaðra er vel heppnað og vel er farið með texta en

meðal þeirra sem lesta fyrir ferðafélaga Jóa eru Richard Dreyfuss, David Thewlis og Sus-

an Sarandon. Það virðist þó vanta einhvern neista í myndina. Hinar kúnstugu aukaper-

sónur ná aldrei almennilega til áhorfendans, nema helst frænkurnar illu sem falla vel inn

i þann teiknimyndaramma sem er umgjörðin í kringum myndina, þá hefur Randy Newm-

an (Toy Story) gert betri lög en hann gerir hér.

Lcikstjóri: Henry Selick. Handrit: Kartey Kirkpatrick og Jonathan Roberts. Kvikmyndataka:

Pete Kozachik og Hiro Narita. Tónlist og lög: Randy Newman.

Aðalleikarar: Paul Terry, Pete Postlethwaite, Joanna Lumley og Miriam Margolyes. Raddir:

Richard Dreyfuss, Simon Callow, Susan Sarandon og David Thewlis.      Hilmar Karlsson

101 dalmatíuhundur

•*i

Doppóttur tískuheimur

101 doppóttur hvolpur eru tilvaldir til að

halda 1001 barni heilluðu í sæti sínu.

Doppur eru jú í tísku þetta árið, segir

Cruella De Vil (Glenn Close). Þaö er hins

vegar dálítið erfitt að átta sig á því hvort

101 dalmatíuhundur sé aðallega ætluð

börnum, líkt og athugasemdin um doppu-

tískuna gefur til kynna. Söguþráðurinn er

sá að tískudrottningin Cruella er afskap-

lega hrifin af því að klæða sig í dýrahúðir

og kýs helst feldi dýra í útrýmingarhættu.

Þó 101 dalmatíuhundur geti varla talist

neðri hættumörk flokkast hvolparnir und-

ir dýr sem ekki þykir siðlegt að klæðast. Eigendur hundaforeldranna Pongós og Perdýar

viha ekki selja Cruellu hvolpa og því tekur hún til sinna ráða og stelur þeim. Eitt vanda-

málið hér er úrræðaleysi og einfeldni hundaeigendanna Rogers (Jeff Daniels) og Anitu

(Joely Richardson), hverra hlutverk eru með öllu litlaus og leiðinleg og falla gersamlega í

skuggann fyrir Cruellu, stórskemmtilegri og vel leikinni, og aðstoðarbófa hennar Jaspers

(Hugh Laurie) og Horace (Mark Williams). Þó að dýrunum sé stillt upp sem aðalbjarg-

vættunum - það eru samtök dýra sem bjarga hundahernum - er skorturinn á hinni

mannlegu mótstöðu fáránlegur og tilheyrir heimi teiknimyndarinnar en gengur ekki upp

í leikinni mynd. Hins vegar er það undirstrikað að það er illmennið sem selur myndina,

líkt og illmennið selur tölvuleik Rogers, þannig að kannski á þetta bara að vera svona?

Myndin ber þess öll merki að eiga rætur sínar að rekja til teiknimyndar, og tekst að

skapa sannfærandi fantasíuheim líkt og í teiknimyndum, en síðan vantar úrvinnslu,

þannig að út kemur heldur fblleit (ef ekki doppótt) eftirmynd. En þrátt fyrir þessa galla

eru hundarnir hundrað og einn vel þess virði að berja augum, þó ekki væri nema fyrir

illkvendið Cruellu.                                                                                                    -úd

Stjörnubíó/Laugarásbíó/Bíóhöllin - Undir fölsku flaggi:

**i

Úlfur í sauðargæru

Undir fölsku flaggi (The Devil's Own)

fjallar um tvo menn af írskum ættum,

annar er skæruliði IRA sem horfði

átta ára gamall á fóður sinn myrtan af

grímuklæddum manni. Líf hans hefur

frá því andartaki verið ofbeldisfullt.

Þegar Francis McGuire (Brad Pitt) er

sendur til New York á vegum IRA fer

þar ungur maður með sakleysislegt

yfirbragð en hefur á samviskunni tugi

mannslífa. í New York er honum kom-

ið fyrir hjá írskættaða lögreglumann-

inum Tom O'Meara (Harrison Ford)

og fjölskyldu hans. O'Meara hefur ver-

ið lógreglumaður í 23 ár en aðeins

hleypt af byssu fjórum sinnum á ferli

sínum. Hann er maður, sem hefur heiðarleikann að leiðarljósi. Þessum tveimur mönnum

verður vel til vina, McGuire finnur loks fjölskyldu sem hann dáir, en þegar á reynir er of

seint fyrir hann að snúa við.

Undir fölsku flaggi er að mörgu leyti áhugaverð. í myndinni er fjallað um IRA-skæruliða

á mannlegan máta, eitthvað sem sjaldan sést í Hollywoodmyndum og hann á samúð

áhorfenda. í þessu viðhorfi liggur einnig helsti galli myndarinnar, þar sem McGuire á

einnig að vera sá vondi í myndinni og þetta gengur einfaldlega ekki upp og jafnreyndur

leikstjóri og Alan J. Pakula hefði átt að sjá það. Kannski er ekki við hann að sakast. Það

er greinilegt að lagt cr upp með að hafa jafnræði á milli þeirra Harrison Ford og Brad

Pitt og má því segja að markaðslögmálið vinni gegn myndinni, sem hefur margt gott við

sig, en ristir ekki nógu djúpt til að hægt sé að tala um að hún sé vel heppnað drama og

sem spennumynd nær hún sér heldur ekki almennilega á flug.

Brad Pitt (með ágætan írskan hreim) og Harrison Ford hafa báðir gert betur enda eru

þeir alls ekki að leika heilsteyptar persónur heldur mótsagnakenndar.

Leikstjóri: Alan J. Pakula. Handrit: David Aaron Cohen, Vincent Patrick og Kevin Jarre. Kvik-

myndataka: Gordon Willis. Tónlist: James Horner.

Aöalleikarar: Harrison Ford, Brad Pitt, Treat Williams, Margaret Colin og Ruben Blades.

Hilniar Karlsson

Liam Neeson leikur Michael Collins í mynd þar sem fólk skyggnist inn í líf og dauða á írlandi, bar-

áttu manna fyrir sjálfstæöi og pólitíkina og baktjaldamakkiö í kringum persónurnar.

Michael Collins frumsýnd í Sambíóunum í gærkvöld:

Líf og dauði upp-

reisnarmannsins

í fjóra áratugi hafa kvikmyndagerðarmenn ver-

ið að velta vöngum yfir sögu þessa þekkta

irska uppreisnarmanns og lýðveldissinna. John

Ford og John Huston, menn með írskt blóð í

æðum, hafa báðir gælt við hugmyndina, Robert

Redford íhugaði að gera mynd um Collins og á

9. áratugnum heimsóttu Michael Cimino og

Kevin Costner eyjuna grænu til þess að skoða

aðstæður, báð-

ir með uppkast

að   handritum

um frelsishetj-

una.

Ekkert    hefur

orðið úr gerð

kvikmyndar

um     Michael

Collins fyrr en

nú    að    írski

leikstjórinn  ¦•-

Neil     Jordan,

sem   þekktast-

ur er fyrir The

Crying   Game

og    Interview

with           the

Vampire, lauk

myndinni á 14

vikum   í   okt-

óber síðastliðn-

um.

Stjórnaði

IRA

Collins         er

kannski    ekki

mjög   þekktur

utan     Irlands

en hann srjórn-

aði      sveitum

IRA  á  sínum

tíma og skipti

miklu í sambandið við stríð írlands fyrir frelsi

1919. Hann stjórnaði samningnum við Breta

árið 1922 um þátttöku Bretanna á írlandi. Sá

samningur hefur verið við lýði allt fram á

þennan dag. Suðurhluti landsins stjórnar sér

sjálfur en Norður-írland er hluti af Bretlandi.

Borgarastríð braust út 1922 þegar menn vildu

sameina landið og gera það sjálfstætt og óháð

Englandi. í því stríði var Collins myrtur, að-

eins 31 árs.

Þekktir leikarar

Umdeilt líf, og ekki síður dauði, þessa merka

uppreisnarmanns og eins mikilvægasta manns

í írskri pólitík á þessari öld, sem reyndar er oft

litið framhjá, tryggði leikstjóranum, Neil Jord-

an, Gultna ljónið á kvikmyndahátíðinni í Fen-

eyjum fyrir bestu mynd ársins 1996. Leikarinn

Liam Neeson fékk verðlaun fyrir bestan leik.

Auk Liams stendur hópur stórleikara að gerð

þessarar myndar. Aidan Qinn (Legends of the

Fall), leikur Harry Boland, besta vin Collins en

þeir berjast um ástir Kitty Kiernan (Juhu Ro-

berts, Pretty Woman), Alan Rickman (Die

Hard, Sense anda Sensibility) er Eamon De

Valera, leiðtogi írsku þjóðernissinnanna og

lærifaðir Collins þangað til valdabarátta stíar

þeim í sundur. Stephen Rea (The Crying Game,

Interview with

the Vampire)

leikur heim-

ildamann Coll-

ins, Ned Broy.

Andvaka

yfir

myndinni

Michael Collins og besti vinur hans berjast um ástir Kitty Ki

ernan. Hún er leikin af Juliu Roberts.

„Eg hef aldrei

verið eins and-

vaka yfir nokk-

urri mynd eins

og ég var yfir

Michael Coll-

ins en ég á

ekkí eftir að

gera eins mik-

ilvæga mynd,"

segir leikstjóri

myndarinnar,

Neil Jordan.

Hann segir að

þótt aðeins séu

um 75 ár síðan

Collins lifði sé

fjölmargt í lífi

hans afskap-

lega dulið. Jor-

dan segist sjálf-

ur hafa rann-

sakað ræður og

skjöl Collins og

valið úr þeim það helsta og markmiðið hafi

verið að gefa eins sannferðuga mynd af Collins

og kostur væri án þess að ofgera í dramatík-

inni. Hann segir að hér sé mjög sönn mynd á

ferðinni.

„Með hliðsjón af ýmsu sem óljóst er í tengslum

við dauða Collins varð ég að draga ákveðnar

ályktanir. Ein er sú að Eamon De Valera hafi

verið í nágrenninu þegar morðið var framið, og

það er rétt. Annað er að Collins hafi verið að

reyna að koma friðarfundi milli andstæðra

fylkinga í borgarastríðinu, og það er líka rétt.

Það þriðja er að Collins hafi verið skotinn úr

launsátri af liðhlaupum á leið á fund, og það tel

ég vera rétt. Úr þessum hlutum hef ég búið til

dramatíkina á lokamínútum myndarinnar, til-

raun Collins til þess að hitta De Valera, van-

geta De Valera til þess að takast á við málið og

loks hinn ungi nafnlausi maður sem skipulegg-

ur fyrirsátina og drepur Collins," segir leik-

srjórinn.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64