60^ frikmyndir LAUGARDAGUR 5. APRIL 1997 PFCMonr.lMM Sími 551 9000 Sýnd kl. 3 og 5. Sýnd kl. 4.30, 6.45, 9 og 11.20. THE CRUCIBLE B.i-12 ára. sýnd kl. 4.30, 6.50, 9 og 11.20. i3 £ J J\ il J íJ 3 J31 3 í U StarWars rAödráttarafliö er enn fyrir hendi, og enn er Star Wars serían mesta geimævintýri sem kvikmyndað hefur verið. Glöggir Stjörnusrríðsaðdáendur taka eftir atriðum sem urðu skærum að bráð en hefur nú veriö bætt við og þar sem tölvugrafik hefur komiö í stað módela. Mikil skemmtun fyrir alla aldurshópa.-HK Innrásin frá Mars kirkk Tim Burton sérhæfir sig í endursköpun tímabila, og vinnur hér með geim- og skrímslaæði það sem gekk yfir Bandarikin á 6. áratugnum. Handbragð meistarans leynir sér ekki, og há- punkturinn er Lisa Maria sem Marsbúi í ekta kynbombu-drag- i, sem smyglar sér inn í Hvíta húsið til að ganga frá forsetahjón- unum. -UD Kolya kkkri. Hlý, vel leikin og mannleg kvikmynd sem blandast stjórn- málaástandinu i Tékkóslóvakíu stuttu áður en landið slapp úr járngreipum sovéska hrammsins. Leikur drengsins Andrej Cnalimon í titilhlutverkinu er einstakur og á hann hug áhorf- enda frá því hann birtist fyrst i myndinni. -HK Englendingurinn Stórbrotin epísk kvikmynd sem minnir um margt á best heppnuðu stórmyndir fyrri tima. Anthony Mingella á hrðs skil- ið bæði fyrir innihaldsrikt handrit og leikstjórn þar sem skipt- ingar í tíma eru mjög vel útfærðar. Útgeislun leikaranna er mjög mikil. -HK Undrið irkirk Frábær áströlsk kvikmynd sem lýsir á áhrifamikinn hátt falli og endurkomu píanósnillings, sem brotnar undan álaginu og eyð- ir mörgum árum á geðsjúkrahúsi. Leikur er mjög goður en eng- inn er betri en Geofrey Rush, sem er einkar sannfærandi i túlk- un sinni á manni, sem er algjört flak titfinningalega séð. -HK Leyndarmál og lygar kkki. Mike Leigh hefur með Leyndarmálum og lygum skapað sína bestu kvikmynd og er þá af góðu að taka, kvikmynd sem fyrst og fremst er um persónur og tilfinningar, ákaflega lifandi og skýrar persónur sem eru túlkaðar af frábærum leikhópL -HK Kostuleg kvikindi kkkk Barátta dýragarðsstarfsmanna um tilverurétt dýragarðs. Dýra- lífsbrandarar eru í hverju búri. Dýraverðirnir líkjast dýrunum sínum og allir misskilja alla að hætti góðra grínmynda. Dýrin eru dýrslega sæt, leikurinn góður og húmorinn góður. -ÚD Evha kkk Ópera Andrews Lloyds Webbers nýtur sín vel í meöforum Alan Parkers, hvort sem það eru fámenn söngatriði eða stór kóratriði og hin glæsilega tónlist og útsjónarsamir textar eru í frábærum flutningi leikhóps sem í fyrstu hefði mátt ætla að ætti lítið sameiginlegt. . -HK Málið gegn Larry Flynt kkk Myndin segir frá klámkóngnum Larry Flynt og baráttu hans fyrir réttinum til að klæmast. Woody Harrelson leikur kónginn sjálfan og Courtney Love Altheu konu hans, og eru bæði frábær. Það sem upp úr stendur er lokasenan, þar sem allar fegurstu og hátíölegustu hugmyndir Bandaríkjamanna um frelsi og réttlæti eru dregnar niður á plan klámsins. -UD Múgsefjun kirk Meitlaður texti i einu þekktasta leikriti á þessari öld, 1 deigl- unni, nýtur sin vel í öruggri leikstjórn Nicholas Hytner. Hann fer aldrei út í nein ævintýri í kvikmyndatöku til að dreifa at- hyglinni frá textanum heldur sníður á skynsaman hátt stakk utan um dramað sem mest er í töluðu máli. Leikmyndin er drungaleg eins og tilefni er til og lýsing i takt við efhið. -HK Star Trek: Fyrstu kynni kirk Skemmtileg ævintýramynd þar sem tæknibrellur eru sérlega góðar og leikur allur til fyrirmyndar. Sagan sem slík skilur ekki mikið eftir sig nema fyrir harða Star Trek aðdáendur, sem eru vist orðnir nokkuð margir hér á landi. -HK TOPP 20 í Bandarikjunum ¦ aösókn dagana 21.-23.mars. Tekjur í mllljónum dollara.- Devils Own beint í annað sæti Áhorfendur taka nýjustu mynd Jims Carrey, Liar, Liar, og er það mál manna að hún sé hans besta mynd til þéssa. Myndin er aðra helgina I röð mest sótta kvikmyndin í Banda- ríkjunum. Innkoman var rúmlega 30 þúsund dollara fyrstu helgina og núna rúmlega 25. Heildarinnkoma er um 71 þúsund dollarar. The Devil's Own, meö Brad Pitt og Harrison Ford í aðalhlutverkum, fer beint í annað sætið og á örugglega eftir aö njóta mikillar hylli. Selena dettur niður í 3. sætið og þriöja Star Wars-myndin, Return of the Jedi, fer t það fjóröa. Fjórar aörar myndir koma beint inn í Topp 20, The 6th Man fer I 6. sæti, Turbo: A Power Rangers Movie fer í þaö 7., B.A.P.S. fer í 9. sæti og Cats don't Dance fer beint í 15. sæti. 1.(1) 2.(-) 3.(2) 4.(3) 5.(4) 6.(-) 7.(-) 8.(10) 9.(-) 10.(5) 11.(7) 12.(6) 13.(11) 14.(8) 15.(-) 16.(9) 17.(14) 18.(12) 19.(34) 20.(22) Tekjur Heildartekjur Llar, Llar 25.377 70.954 The Devil's Own 14.274 18.063 Selena 6.138 21.738 Return of the Jedl 4.451 298.527 Jungle 2 Jungle 4.132 42.095 The 6th Man 4.128 4.128 Turbo: A Power Rangers Movle 3.301 3.301 The Engllsh Patient 3.019 67.599 B.A.P.S. 2.742 2.742 Prlvate Parts 2.411 38.158 Sling Blade 2.172 15.879 Donnie Brasco 1.760 39.102 Jerry Magulre 1.647 145.443 Love Jones 1.099 9.343 Cats don't Dance 0,940 1.212 The Emplre Strlkes Back 0,928 287.904 Shlne 0,797 33.691 Michael 0,783 92.215 Kolya 0,445 2.232 101 Dalmatlans 0,411 134.943 HVERNIG VAR MYNDIN? Spurt á sýningu myndar- innar Metro Sighvatur Jónsson: Hún var ágæt. Mér leist vel á hana. Helga Baldvinsdóttir: Mér fannst hún mjög góð. Spennandi og fyndin. Gyða Valdls Guðmundsdóttir: Mjög góð. Rosalega spennandi. 4 4 4