Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1997, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1997, Blaðsíða 16
16 25 íþróttir „Sá besti í sumar“ - Breiöablik eftir sigur á Grindavík John Toschak var í gær ráðinn þjálfari hjá tyrkneska félaginu Besiktas. Hann var síðast þjálfari hjá spænska liðinu Deportivo Coruna en sagði þar upp störfum í febrúar sl. Roberto Baggio sagði í gær að hann væri á förum frá AC. Hann sagði þetta við komuna úr fríi frá Argentínu. Fabio Capello telur sig ekki þurfa á kröftum hans að halda. Sögusagnir hafa veriö á kreiki um að hann langi til að leika á Bretlandseyjum. Nigeríski knattspymumaðurinn Taribo West er á leiðinni til Inter Milan. Samningar þar að lútandi eru á lokastigi og hefur kappinn samþykkt nú þegar uppkast að samningi sem gildir til 2001. Jan Sörensen, fyrrverandi landsliðsþjálfari Dana, verður næsti framkvæmdasijóri enska 2. deildar liðsins Walsall. Sörensen, sem ekki hefur komið nálægt fótbolta i átta ár, vonast til aö koma liðinu upp í 1. deild á samningstímanum sem er tvö ár. Spamska liðið Celta Vigo vék í gær Femando Castro úr starfi sem þjálfara aðeins þremur dögum eftir sigur liðsins á Real Madrid. Celta slapp með naumindum viö fall. San Antonio, sem átti fyrsta valréttinn í háskólavalinu valdi Tim Duncan frá Wake Forest en stráksi þykir mikið efni og bindur San Antonio miklar vonir við hann. -JKS íkvöld Coca-Cola bikar karla KA-ÍBV ....................20.00 FH-Skallagrimur ...........20.00 Keflavík-Fram .............20.00 Stjaman-KR ................20.00 2. deild karla KVA-Þróttur N..............20.00 Ægir-Leiknir R.............20.00 3. deild karla C Emir 1-Bolungarvik ........20.00 DV, Suðurnesjum: Breiðablik, sem leikur í 1. deild, gerði sér lítið fyrir og sló út Grind- víkinga í 16-liöa úrslitunum bikar- keppninnar í Grindavík í gærkvöld. Eina mark leiksins gerði Þórhallur Hinriksson með hörkuskoti úr víta- teignum þegar tólf mínútur voru liðnar af síðari hálfleik. Grindvíkingar voru daprir og sköpuðu sér fá tækifæri og vora allt of seinir í öllum sínum aðgerðum fyrir framan mark Breiðabliks. Gestimir þurftu engan stórleik til að leggja Grindvíkinga að velli. Blikarnir fóru langt á baráttimni sem leikmenn Grindavíkur skorti og hugur þeirra til að leika knatt- spymu var víðs fjarri. Það var áfall fyrir Grindvikinga að falla svona snemma út út bikamum. Leikmenn náðu sér einfaldlega ekki á strik í leiknum og ollu stuðn- ingsmönnum sínum miklum von- 1- 0 Einar Öm Birgisson (69.), skoraði af öryggi úr vítaspymu. 2- 0 Heiðar Sigurjónsson (75.), fékk góða sendingu frá Einari Emi inn fyrir vöm Þórsara og skoraði af öryggi. Það var svo sem ekki sérstakur bolti sem sýndur var í Laugardaln- um i gærkvöld í leik Þróttar og Þórs frá Akureyri en færin létu samt ekki á sér standa og leikurinn var í heild sinni nokkuð fjöragur. Heimamenn í Þrótti byrjuðu af meiri krafti en gustirnir komu meir inn í leikinn sem á leið. Fyrstu fær- in féllu Þrótturam í skaut en Þórs- arar fengu þó líka sín færi en með ótrúlegum klaufaskap fóru þau öll í súginn hjá báðum liðum og því var markalaust í hálfleik. í síðari hálfleik héldu færin áfram að koma á færibandi og held- brigðum. Það var greinileg dagskip- un Sigurðar Halldórssonar, þjálfara Breiðabliks, að leika sterka vöm og beita síðan skyndisóknum. Þetta herbragð heppnaðist mjög vel og komust Grindvíkingar lítið áleiðis gegn sterkri vörn Blika. „Þetta var áfangasigur. Við vor- um að leika mjög vel og þá sérstak- lega í fyrri hálfleik. Það var komin ákveðin pressa á okkur þegar við skoraðum markið. Vömin vann vel og á henni forum við langt. Þetta var einn besti leikur okkar í sum- ar,“ sagði Sigurður Halldórsson, þjálfari Breiðabliks, viö DV eftir leikinn. „Það er ekki gaman að detta svona út úr bikarnum. Við vorum að leika ágætlega en það kom lítið út úr því. Markið sem við fáum á okkur er óheppni. Heppnin var hins vegar með þeim,“ sagði Albert Sæv- arsson, markvörður Grindvíkinga, við DV i leikslok. -ÆMK ur meiri harka færðist í leikinn. Þórsarar fengu sannkölluð dauöa- færi til að komast yfir og fékk Hreinn Hringsson líklega það besta þegar hann komst einn inn fyrir vörn Þróttar en skot hans yfír Axel í markinu fór naumlega fram hjá. í stað þess að gestimir nýttu sín færi vora það Þróttarar sem komust yfir með marki úr vítaspyrnu eftir að brotið var á Heiðari Sigurjónssyni. Þeir bættu skömmu seinna við öðru marki og gulltryggðu þar með sigur sinn. Þegar hér var komið við sögu datt leikurinn nokkuð niður en það verða því Þróttarar úr Reykjavík sem verða með í 8-liða úrslitunum. -BB Barátta í Laugardalnum: Þróttarar höfðu betur gegn Þórsurum - Þórsarar klaufar aö skora ekki Stjarnan fær góðan liöstyrk: „Bibercic verður með okkur gegn KR“ Það gengur mikið á í herbúðum knattspymuliðs Stjömunnar í Garðabæ þessa dagana. Liðið sem nýlega rak þjálfara sinn hefur nú gert samning við framherjann Mihaljo Bibercic sem áður hefur gert það gott með Skagamönnum. „Viö höfum gert samning við Bibercic um að hann spili með okkur að minnsta kosti út þetta tímabil. Hann er þegar orðinn lög- legur og verður i liðinu í kvöld gegn KR í bikamum. Við vitum hvaö hann getur og vonandi getur hann hjálpað okkur í því að koma liðinu aftur á beinu brautina,“ sagði Lúðvík Öm Steinarsson, for- maður knattspymudeildar Stjöm- unnar, viö DV í gærkvöld. „Við eram hins vegar enn að leita fyrir okkur meö nýjan þjálf- ara og ekki tímabært aö gefa út neitt nánara um það mál eins og stendur," bætti Lúðvik við. -ÖB „ Markalaust hjá Örebro og Örgryte DV, Sviþjóö: Örgryte og Örebro geröu markalaust jafntefli í sænsku úr- valsdeildinni í knattspyrnu í gærkvöldi. Rúnar Kristinsson lék allan leikinn hjá Örgryte og þeir Sigui’ður Jónsson og Hlynur Birgisson vora með Örebro. Am- ór Guðjohnsen var í leikbanni. Úrslit í öðrum leikjum urðu þau að Norrköping sigraði Öster, 1-0, og Halmstad sigraði Vesterás, 2-1. -EH Winter hjá Chicago heldur námskeið Einn frægasti körfuknattleiks- þjálfari allra tíma, Tex Winter, sóknarþjálfari Chicago Bulls, mun koma til íslands 9. júli og halda námskeið í Keflavik. Það stendur yfir 11.-13. júlí í veit- ingahúsinu Glóðinni. Nám- skeiðsgjaldiö er 6000 kr. en allar nánari upplýsingar veitir Tómas Tómasson í síma 421-5530 og 899- 0525. -JKS Sigur gegn Finnum íslenska kvennalandsliðið í knattspymu, skipað stúlkum 17 ára og yngri, sigraði Finna, 2-1, á Norðurlandamótinu. Hrefna Jóhannesdóttir skoraði bæði mörk íslenska liðsins í leiknum. -JKS SJÓVÁ-ALMENNAR OPIÐ verður haldið á Hamarsvelli, Borgarnesi, laugard. 28. júní nk. Leikinn verður 18 holu höggleikur með og án forgjafar. Mjög vegleg verðlaun verða veitt fyrir 3 fyrstu sætin með og án forgjafar, nándarverðlaun á 2 brautum og dregið úr skorkortum. Mótagjald er kr. 2000,- Ræst verður út frá kl. 9.00 og hefst skráning fimmtudaginn 26. júní í síma 437-1663, fax 447-2063 eöa e-mail gb@aknet.is FIMMTUDAGUR 26. JÚNÍ 1997 FIMMTUDAGUR 26. JÚNÍ 1997 DV DV íþróttir Höröur Magnússon kom Valsmönnum á bragöiö gegn Fylki í gærkvöld aö Hlíöarenda. Hér hefur Höröur betur í skallaeinvígi en á morgun kemur í ijós hverjir veröa mótherjar Valsmanna í 8-liöa úrslitum en þaö veröur dregiö í keppninni. DV-mynd Brynjar Gauti Skaginn ver ekki bikarinn DV, Ólafsfirði: 1-0 Amar Grétarsson (9.) Bikarmeistarar Skagamanna eru úr leik í bikarkeppninni. Þeir sóttu Leiftursmenn norður á Ólafsfjörð í gærkvöldi og töpuðu á marki sem skorað var í byrjun leiks. Markið skoraði Arnar Grétarsson og var val að því staðið, þramaði boltanum glæsilega í vinstra homið. Það var reyndar enginn meistara- bragur á meisturunum og verður að segjast eins og er að sigur Leifturs- manna var sanngjam. Heimamenn voru grimmari lengst af og sóknir Skagamanna langt frá því að vera sannfærandi. Leikurinn var ekki sérlega áferðarfallegur, enda ef til vill ekki til þess ætlast. Hann var fyrst og fremst baráttuleikur tveggja öflugra liða. Og það var ekkert gefið eftir. Leiftur byrjaöi betur og skoraði markið snemma. Heimamenn vora miklu ákveðnari í fyrri hálfleik og áttu nokkur þokkaleg færi og hefðu hæglega getað bætt við tveim-þrem mörkum ef heppnin hefði verið með. Skagamenn voru mun beittari í síðari hálfleik, enda bökkuðu Leift- ursmenn og beittu skyndisóknum. Skagamenn fengu fjölmargar auka- spymur, sumar á stórhættulegum stað rétt utan vitateigs, en ekkert varð úr þeim. Haraldur Ingólfsson tók þær flestar en hann var lang- bestur Skagamanna. Gestimir náðu upp mikilli pressu um miðjan síðari hálfleik og Leiftursmenn lentu í nokkrum sinnum í nauðvörn. Hættulegasta sóknin var þegar Al- exander Högnason náði hörkuskoti sem fór í vömina og Steinar Adolfs- son fylgdi vel á eftir með annað skot en vörnin hreinsaði á síðustu stundu. En vörn Leifturs stóðst ásóknina. Leikurinn var fast spilaður, án þess að vera grófur. Mikið var í húfi og menn lögðu sig alla í leikinn. Bragi Bergmann dómari hafði í nógu að snúast og spjaldaði menn hiklaust fyrir nöldur. Og eins og alltaf þegar Leiftur og ÍA spila fer leikurinn langt fram yfir. Fyrri hálf- leikur var 50 mínútur og sá síðari 52 mínútur, enda margir taugaveiklað- ir utan vallar sem innan. Kristinn Bjömsson, þjálfari Leift- urs, var að vonum kampakátur í leikslok. Hann sagðist hafa búist við hörkuleik, sem kom á daginn. Hann var ánægður með baráttuna í sínum mönnum. Ólafur Þórðarson, fyrirliði ÍA, var hins vegar ákaflega óhress í leikslok, ekki bara út í eigið lið, heldur líka Braga Bergmann dóm- ara. „Við fengum á okkur klaufamark strax í byrjun, sem þeim tókst að hanga á út leikinn. Mér finnst að dómarinn ætti að fara í endurhæf- ingu. Hann var ótrúlegur. Lét mig hafa gult spjald fyrir að segja Jesus Christ eftir að ég hafði verið dreg- inn niður í bullandi sókn.“ -HJ föj) ENOLANP Howard Kendall, sem sagður er vera að taka við liði Everton, er þeg- ar farinn aö leggja á ráðin um að styrkja liðiö og er sagður þar efstur á blaði enginn annar en Paul Ince. Juninho og Ravanelli, leikmenn Middlesbrough, hafa verið boðaðir á æfmgu hjá liðinu en undirbúnings- tímabil enskra fer nú brátt að hefjast. Þeir félagar hafa sagst vilja fara frá liðinu eftir að það féll úr úrvalsdeild- inni en Steve Gibson, stjómarfonnað- ur félagsins, segir þá eins og hverja aöra leikmenn sem veröi að standa við gerða samninga. Peter Beardsley, leikmaður Newcastle, viil nú fá fund með fram- kvæmdastjóranum, Kenny Dalglish, þar sem hann ætlar að óska eftir nýj- um samningi viö félagið. Beardsley, sem orðinn er 36 ára gamall, hefur af- þakkað öll tilboð frá öðrum liðum og vill vera áfram á St. Jame's Park þar sem hann á eftir 12 mánuði af núver- andi samningi sínum. Sheffield Wednesday hefur keypt franska leikmanninn Patrick Blondeau. Blondeau þessi var áður hjá Monaco þaðan sem hann var rek- inn af þáverandi þjálfara liðsins, Arsene Wenger. Blacburn Rovers heldur áfram að styrkja lið sitt fyrir komandi tímabil. Roy Hodgson, nýr framkvæmdastjóri liösins, hefur nú gert samning við 27 ára gamlan Frakka sem heitir Pat- rick Valery og kemur frá Bastia. Forráöamönnum Arsenal hefur verið skipaö að mæta fyrir aganefhd úrvalsdeildarinnar i næsta mánuði vegna fjölda rauöra- og gulra spjalda sem liöið fékk á síðustu leiktíö sem og vegna agavandamála Ians Wright leikmanns liðsins. Lið Middles- brough hefur einnig verið sektað um 2,9 milljónir vegna agaleysis i liðinu við upphaf síðustu leiktíðar. -ÖB Valsmenn komnir áfram: Bragðdauft að Hlíðarenda 1- 0 Hörður Magnússon (60.), fékk boltann einn og óvaldaður í markteig Fylkis eftir aukaspymu og afgreiddi boltann auðveldlega í netið. 2- 0 Arnar Hrafn Jóhannsson (68.), fékk góða sendingu frá Ólafi Brynjólfssyni inn fyrir vöm gestanna og skoraði af miklu öryggi. Leikur úrvalsdeildarliðs Vals og 1. deildarliðs Fylkis í 16-liða úrslit- um bikarkeppninnar í gærkvöld var ekki upp á marga fiska. Mikið var um ónákvæmar sendingar, liðunum hélst illa á boltanum og því fór ekki mikið fyrir fallegum samleik en bar- áttan var því meiri. Fyrri hálfleikur verður sennilega að teljast með því lélegra sem sést hefur lengi. Boltinn barst fram og aftur um miðjan völlinn með litlum sem engum árangri beggja liða og má í raun segja að það hafi ná- kvæmlega ekkert markvert gerst í fyrri hálfleik og því markalaust þeg- ar Eyjólfur Ólafsson, ágætur dómari leiksins, flautaði til leikhlés. Bæði lið höfðu greinilega gert sér það fyllilega ljóst í leikhléinu að þau næðu litlum árangri með spila- mennsku sem þessari og mættu til síðari hálfleiks að mun meiri ákveðni og skynsemi. Skömmu eftir að Fylkismenn höfðu fengið dauða- færi settu Valsmenn tvö mörk sem tryggði þeim sigurinn og sýndu loks hvort liðið er í efstu deild. Fylkis- menn gerðu þó sitt ýtrasta til að minnka muninn allt til síðustu min- útu en höfðu ekki erindi sem erfiði. „Þetta var dauft allan tímann, við spiluðum illa en höfðum þó yfir- burði og unnum leikinn," sagði Sig- urður Grétarsson, þjálfari Vals, við DV eftir leikinn. „Mínir menn voru að sýna sitt besta hingað til. Valsmenn óðu ekk- ert í færum en þegar maður gefur svona mörk þá er alltaf á brattann að sækja. Með svona leik er bjart fram undan í deildinni og ég hef séð það miklu svartara,“ sagði Atli Eð- valdsson, þjálfari Fylkis, ánægður með sína menn þrátt fyrir tap að Hlíðarenda. -ÖB Evrópumót landsliða í golfi: íslendingar í 10. sæti eftir fyrsta keppnisdag í gær hófst á írlandi Evrópu- inn Bjamason og Þórður Ólafsson keppni landsliða í golfi en í mótinu taka þátt 22 þjóðir. Eftir fyrr keppnisdag í höggleik eru íslend- ingar í 10. sæti og veröur það að teljast bara góður árangur en vind- ur var allnokkur á mótinu í gær. Eftir keppni í dag ræðst í hvaða riðli íslenska liðið lendir en skor fimm efstu manna telur. Björgvin Sigurbergsson lék best í gær eða alls á 75 höggum. Krist- léku á 78 höggum, Öm Ævar Hjart- arson á 82 höggum og Þorsteinn Hallgrímsson á 83 höggum. Björg- vin Þorsteinsson lék á 88 höggum. Skor fimm efstu er alls 396 högg. Veðurspáin var ekki glæsileg fyrir daginn í dag en hún hljóðaði upp á rigningu og tíu vindstig. Sannkallað íslenskt verðurfar sem landsliðsmennirnir kannast vel við. Opna LANDLISTAR 3olfmotið verður haldið að Hlíðarvelli, Mosfellsbæ, lau3arda3inn 28. júní. Skránin3 er hafin í síma 566 7415. Glæsileg verðlaun: 1.-2.-3. verðlaun án for3jafar 1.-2.-3. verðlaun með for3jöf Næstur holu á 9/18 Aukaverðlaun fyrir konur Allir fá LANDLISTARBOL t

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.