Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.1997, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.1997, Blaðsíða 8
28 MÁNUDAGUR 30. JÚNÍ 1997 íþróttir DV Tyson og Holyfíeld Lceknar ætla með lýtaaðgerð að reyna að græða bitann, sem Tyson beit af Holyfield, i eyra hans aftur en ræstingafólkið í hnefaleikahöllinni fann hann á gólfinu þegar það mætti til vinnu sinnar! Þetta mjög svo sögulega skamm- hlaup i toppstykkinu á Tyson verður honum eflaust mjög dýrkeypt þvi aö hann fékk ekki greidda þá rúmlega 2 milljarða sem hann átti að fá eftir bardagann en það mál er í nánari skoðun. Tyson á jafnvel líka yfir höfði sér keppnisbann eftir átökin um helgina og þá er liklegt að ferill hans sé á enda. Holyfield verður ekki á flæðiskeri staddur á næstunni því hann fékk sína 2,5 milljarða greidda. Eftir að dómarinn stöðvaði bardag- ann urðu Tyson og hans lið alveg æf og ætluðu að hjóla í Holyfteld og fé- laga en lögreglan og öryggisverðir náðu að komast á milli. Adstoðarmenn Tysons létu öllum illum látum líkt og hann sjálfur, létu aðfinnslur áhorfenda fara í taugarnar á sér og reyndu að lumbra á þeim lika en voru stöðvaðir í tæka tíð. Tyson og Holyfield sökuðu hvor annan um gunguskap eftir bardagann og voru kokhraustir, þó hvor á sinn hátt. „Ég held að þú sért hræddur. Ef þú heldur að þú getir unnið mig þá skaltu reyna að gera það meö hönsk- unum, þú fékkst tækifæri til þess en af hverju beistu mig?“ spurði Holyfield, alveg bit, eftir allan at- ganginn. „Holyfield er ekki sá stríðsmaður sem hann þykist vera. Hann fékk skurð á eyrað en vildi ekki halda áfram en ég er orðinn eineygöur og get haldið áfram," sagði Tyson og var ekki enn runnin reiðin. Lane dómari var alveg harður á sínu og viss í sinni sök. „Hversu oft á eiginlega að láta bita mann. Það eru nú takmörk fyrir öllu og þ.m.t. bitum. Ég aðvaraöi TVson eftir fýrra bitið en hann beit aftur og slíkt gengur ekki.“ Don King, hinn hárprúði umboðs- maður Tysons, sagðist ekki átta sig á þvi af hverju hans maður var dæmd- ur úr leik. „Ég verð að skoða þetta í sjónvarpinu aftur." Tyson mistókst þvi hrapallega að verða fjórði boxarinn til að ná heimsmeistaratitlinum í annarri tilraun af manni sem vann hann fyrst. Patterson, Ali og Holyfield hafa hins vegar náð því. -ÖB ## Arctic Open golfmótiö: Orn kunni vel við sig á gamla heimavellinum - 140 kylfingar tóku þátt og þar af voru 40 erlendir DV, Akureyri: Örn Arnarson úr Golfklúbbi Reykjavíkur sigraði í Arctic Open goifmótinu sem fram fór á Akureyri um og fyrir helgina. Öm, sem er Akureyringur og hefur lengst af verið félagi í Golfklúbbi Akureyrar, kunni greinilega vel við sig á gamla heimavellinum sinum og þegar upp var staðið var hann með 5 högga betri útkomu en þeir sem voru í næstu sætunum. Nú tóku um 140 manns þátt i mót- inu, þar af voru 40 erlendir kylflng- ar sem komu víðs vegar að úr heim- inum. Ekki er hægt að segja annað en að veðrið hafi leikið við keppend- ur, þeir fengu miðnætursól í báðum hringjunum sem leiknir voru og gleymdu sumir að einbeita sér að golfinu á meðan á því stóð. Örn Arnarson lék 36 holumar á 72-74 höggum eða samtals 146 högg- um og vann ömggan sigur. Þrír urðu jafnir i næstu þremur sætum; heimamaðurinn Birgir Haraldsson og Bandaríkjamennirnir Rick Rem- ers og Tyler Erickson, en Remers komst í þann hóp með því að leika tvær síðustu holumar á þremur höggum undir pari. Þrír fóru í bráöabana um verðlaunasæti Þessir þrír fóru í bráðabana mn verðlaunasæti og þá sigraði Birgir. Hann hlaut því annað sætið, Rem- ers þriðja og Erickson fjórða. í keppninni með forgjöf sigraði Allen Yeo Peng frá Singapúr en hann var á því furðulega „skori“, 125 höggum nettó. Tveir heima- menn komu næstir, Hjalti Þórólfs- son á 130 höggum og Ari Jón Bald- ursson á 138. -GK Orn Anarsson lék vel á heimaslóðum í Arctic Open um helgina og sigraði, Evrópumeistaramót golflandsliða á írlandi: Besti árangurinn hjá íslensku liði til þessa - íslendingar lentu í sjöunda sæti í liðakeppni ísland er komið í A-riðiI á Evr- ópumóti áhugamanna í golfi. ís- lenska sveitin lenti 1 sjöunda sæti en átta efstu þjóðirnar tryggði sér sæti í A-riðlinum. Árangur ís- lensku sveitarinnar er mun betri en bjartsýnustu menn þorðu að vona fyrir keppnina. Lengstum hafa ís- lendingar leikið í B-riðli en em núna komnir í hóp bestu áhuga- manna í Evrópu. írar urðu í fyrsta sæti á 759 högg- um, Skotar í öðru á 783 höggum, Svíar þriðju á 784 höggum, Spán- verjar fjórðu á 785 höggum, Þjóð- verjar fimmtu á 793 höggum, Danir sjöttu á 794 höggum, íslendingar sjö- undu á 798 höggum og Hollendingar áttundu á 800 höggum. Sveitina skipuðu þeir Björgvin Sigurbergsson, Björgvin Þorsteins- son, Kristinn Bjamason, Þorsteinn Hallgrímsson, Þórður Ólafsson og Öm Ævar Hjartarson. Þórður lék á alls 155 höggum og Björgvin Sigur- bergsson á 156 höggum. í holukeppni beið íslenska sveit- in lægri hlut fyrir Skotinn, 5-2, og í keppni um 5.-8. sætið tapaði ísland fyrir Dönum, 4-3, og Þjóðverjum í gær, 5-2, og lenti í áttimda sæti þeg- ar upp var staðið. -JKS Úrtökumót: Birgir Leifur í öðru sæti í Vesterás Birgir Leifur Hafþórsson, at- vinnumaður í golfi, náði góðum árangri á úrtökumóti fyrir síðari hluta sænsku mótaraðarinnar. Birgir Leifur lék síðasta hring- inn í Vesterás á 68 höggum eða á fjórum höggum undir pari hans en alls lék hann á 215 högg- um. Hann hafnaði í fyrsta til öðru sæti sem verður að teljast mjög góður árangur. Þessi frammistaða Birgis Leifs sýnir umfram allt að hann er í góöu formi og til alls líkleg- ur í sumar. -JKS Tyson hleypur á eftir Holyfield og hrindir honum eftir að Holyfield víkur undan eftir seinna bitið en Lane dómari fylgist grannt með gangi mála. Mike Tyson var líkt viö óþroskaðan strákling í götubardaga í þessari sögulegu viðureign. Símamynd-Reuter Tyson eins og óargadýr: Hneyksli - beit Holyfield í tvígang Viðureign Evanders Holyfields og Mikes Tysons í hnefaleikum, sem fram fór í Las Vegas aðfaranótt sunnudags, var í meira lagi söguleg og verður eflaust skrifuð stórum stöfum á spjöld sögunnar. Það var ekki vegna gæða bardagans, sem allir höfðu beðið eftir, að áhorfend- ur urðu forviða heldur vegna ótrú- legrar framkomu Mikes Tysons í hringnum. Þessi fyrrum heims- meistari í þungavigt sýndi ótrúleg- an hrottaskap í garð andstæðings síns og gerði sér lítið fyrir og beit hann í eyrað, ekki bara einu sinni heldur tvisvar, svo að stórsá á honum. Gífurlegur fjöldi áhuga- manna um hnefaleika var búinn að bíða eftir þessari viðureign i langan tíma og því vonbrigðin gífurleg þeg- ar dómarinn stöðvaði bardagann og dæmdi Tyson úr leik. Bardaginn, sem varð tæpar þrjár lotur, byrjaði nokkuð fjörlega þar sem Holyfield virkaði sterkari og náði nokkrum góðum höggum. Fljótlega fékk Tyson skurð á hægri augabrún og kvartaði undan því við dómarann að Holyfield hefði skallað sig viljandi en dómarinn kvað það allt eins hafa verið óviljandi og dæmdi ekki stig af Holyfield. Við þetta missti Tyson gjörsamlega stjórn á skapi sínu og tók til þessara furðulegu örþrifaráða sem lengi verða í minnum höíð. Þegar bardag- inn var stöðvaður stóðu stigin 29-26 Holyfield í vil. „Þetta er eitthvað sem menn gera þegar þeir eru hræddir og ég þakka guði fyrir að hafa þó eitthvað af eyr- anu á mér ennþá,“ sagði heims- meistarinn Holyfield, svekktur með gang mála, í lokin. „Burt séð frá því hvað ég gerði þá skallaði hann mig tvisvar. Hvað átti ég að gera, ég er að berjast fyrir ferli mínum og hef tvö börn á fram- færi,“ sagði Tyson sem sannaði það nú endanlega að hann er hjálpar- þurfi og hefur ekkert í hringinn að gera á meðan svo er. -ÖB

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.