Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.1997, Blaðsíða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.1997, Blaðsíða 1
Marion Jones tryggir sér sigur í 100 m hlaupi kvenna á heimsmeistaramót- inu í Aþenu. Símamynd Reuter allt um HM í frjálsum á bls. 20-21 Eyjólfur gegn Evrópumeisturunum Eyjólfur Sverrisson og félagar í Herthu Berlín geröu jafntefli viö Evrópumeistara Borussia Dortmund i fyrstu umferö þýsku úrvalsdeildarinnar á laugardag. Eyjólfur er hér til hægri í baráttu viö Wolfgang Feiersinger, leikmann Dortmund. Sjá nánar á bls. 22. Símamynd Reuter KR-ingar fa ofl- ugan miðherja Ólafur Gottskálksson: Kevin Tucxon frá Missouri-háskóla Ólafur Gottskálksson fékk óskabyrjun í JMHm skosku knattspymunni á sunnudag þegar lið .JT?P^K hans, Hibernian, vann óvæntan sigur á Celt- ONÉll ic, 2-1, í fyrstu umferð úrvalsdeildarinnar. „Þetta var mjög þægileg byrjun. Ég fékk bara þrjú umtalsverð skot á mig og markið þeirra var með óveijandi skalla eftir hom- .R spyrnu. Áhorfendur studdu vel við bakið á mér, tóku mér mjög vel þegar ég kom inn á völlinn og lögðu sig greinilega fram við að hjálpa mér í þessum fyrsta leik,“ sagði Ólafur við DV. --------------------- Mikið var Ijallað um Ólaf í skoskum blöðum fyrir leikinn, mest á jákvæðum nótum, en þó var nokkuð Qallað um þá umdeildu ákvörðun Jims Duffys fram- kvæmdastjóra að taka Ólaf fram yfir varamarkvörð Hibs til margra ára, Chris Reid. „Þetta setti talsverða pressu á mig, ég varð að standa mig, og sem betur fór gekk þetta allt vel. Ég er mjög bjartsýnn á framhaldið," sagði Ólafur Gottskálks- son. -VS Bandaríkjamaðurinn Kevin Tucxon, frá Missouri-háskóla í St. Louis, mun leika með liði KR í DHL-deiIdinni í körfubolta í vetur. Tucxon, sem er rúmir tveir metrar á hæð, leikur stöðu framherja og mið- herja. Hann skoraði 17 stig og tók 11 fráköst í leik fyrir skólalið sitt á liðnu keppnistímabili. Tucxon var annar í vali á besta leikmanni riðilsins. Miss- ouri-skólinn leikur í 2. deild banda- riska háskólakörfuboltans. Tucxon er væntanlegur til landsins eftir næstu helgi. -BL Jónafan Bow til Bayeruth? Olafur til KFÍ Ólafur Jón Ormsson, fyrrum unglingalandsliðs- maður úr KR, hefur ákveðið að leika með ís- fírðingum í DHL-deildinni í körfubolta í vetur. Ólaf- ur hefur ekkert leikið með KR-ingum í langan tíma vegna meiðsla. -BL Jónatan Bow, landsliðsmaður úr KR, æfir með einu sterkasta liði Þýskalands, Bayeruth þessa dagana. Samkvæmt heimildum DV mun koma í ljós í vikunni hvort þýska liðið vill fá Jónatan til liðs við sig fyrir komandi keppnistímabii. Komi ekki til þess mun hann áfram leika með KR. -BL Jón Arnar og Guðrún hófu keppni í morgun Jón Amar Magnússon og Guð- rún Arnardóttir hófu keppni á heimsmeistaramótinu í Aþenu i morgun. Jón Arnar átti að byrja í tugþrautinni klukkan 5 að ís- lenskum tíma en keppni þar lýk- ur síðdegis á morgun. Um klukk- an 5.30 var síðan 400 m grinda- hlaupið á dagskrá hjá Guðrúnu. Hafi það farið að óskum hjá henni keppir hún í undanúrslit- um síðdegis á morgun. -VS Shearer ætlar að mæta tví- efldur til leiks Alan Shearer, fyrirliði enska landsliðsins í knattspyrnu, ætlar ekki að leggja árar í bát þótt hann þurfi að hvíla sig fram yfir áramót og jafnvel í heila átta mánuði. Shearar, sem sleit liðbönd og braut bein í ökkla fyrir rúmri viku, sagði í viðtali við News of the World um helgina að hann myndi snúa aftur tvíefldur eftir áramótin og hjálpa Newcastle til að vinna titla. „Síðan ætla ég að verða markakóngur heimsmeist- arakeppninnar í Frakklandi næsta sumar. Við eigum nógu góða leikmenn til að komast í lokakeppnina en þegar þangað kemur mun ég hirða aftur peysu númer níu. Hún verður aðeins í láni þangað til,“ sagði Shearer. -VS Valdimar var í sigurliði Valdimar Grímsson skoraði eitt mark fyrir heimsliðið í handknattleik þegar það vann danska landsliðið, 29-26, í Odense á sunnudag. Leikið var í tilefni af 100 ára afmæli íþróttar- innar. Mörk heimsliðsins gerðu Dujsjebajev 5, Cavar 5, Perkovac 4, Kudinov 4, Eles 3, Smajlagic 3, Kervadec 2, Valdimar 1, Gopin 1 og Yoon 1. Lars Christiansen skoraði 6 mörk fyrir Dani. -VS Dinamo tapaði Leikmenn Dinamo Búkarest eru greinilega ekki búnir að jafna sig eftir ófarimar gegn KR. Deildakeppnin í rúmensku knattspyrnunni hófst um helg- ina og Dinamo beið lægri hlut fyrir Craiova, 2-1. -VS Tap gegn Dönum íslenska stúlknalandsliðið, skipað leikmönnum 20 ára og yngri, tapaði fyrsta leik sínum á Norðurlandamótinu í Danmörku 1 gær. Það var gegn gestgjöfun- um, 3-0. Staðan var 1-0 í hálf- leik. ísland mætir Bandarikjun- um í dag. -VS Gunnar skoraði Gunnar Einarsson skoraði eitt marka hollenska úrvalsdeildar- liðsins MW Maastricht um helgina þegar það gerði jafntefli, 3-3, við Genk frá Belgíu, lið Þórðar Guðjónssonar, um helg- ina. Leikurinn var liður í bikar- keppni Limburgarhéraðs sem liggur í báðum löndunum. Gunn- ar, sem er 21 árs, skoraði þarna fyrsta meistaraflokksmark sitt á ferlinum. Þórður lék mjög vel með Genk. -VS Lottó: 13 22 23 28 38 B: 10 Sænski boltinn: xll 111 1x2 lxx2

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.