Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.1997, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.1997, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 3. DESEMBER 1997 9 r»v Stuttar fréttir Útlönd 800 fastir í snjó Um 800 vörubílar festust í snjó í norðurausturhluta Frakklands 1 gær. Rauði krossinn færði bílstjór- unum heita drykki og brauð. Þús- undir annarra Frakka lentu í vandræðum. Snjókoma olli einnig röskun á umferð í Englandi. Tugir létust í námuslysi Að minnsta kosti 63 létust í gas- sprengingu i kolanámu í Síberíu í gærmorgun. Talið er að 130 kunni að hafa verið i námunni. í gær höfðu aðeins sex fundist á lifi. Hafnar rannsókn Dómsmálaráðherra Bandaríkj- anna, Janet Reno, sagði i gær að ekki væru nægar sannanir fyrir hendi til að hefja óháða rannsókn á hvort Bill Clint- on Bandaríkja- forseti og A1 Gore varaforseti hefðu brotið lög um fjármögnun stjórnmálaflokka. Sprengjutilræði á Spáni Þrír lögreglumenn særðust þeg- ar sprengja sprakk í héraði Baska í gær. Augljóst þykir að ETA-sam- tökin hafi verið að hefna fyrir dóma yfir leiðtogum stjómmála- vængs þeirra. Þrælahald Hundruð þúsunda manna lifa og deyja eins og þrælar, að því er Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sam- einuðu þjóðanna, sagði í gær. Frestur að renna út Talið er að ríkissaksóknari í Sví- þjóð tilkynni á fóstudaginn hvort ný gögn í Palmemálinu nægi til að málið verði tekið upp á ný. Frestur til að taka ákvörðun rennur út á mánudag. Friðarfundir Madeleine Albright, utanríkis- ráðherra Banda- ríkjanna, ætlar að hitta ísra- elska og palest- ínska leiðtoga í Evrópu um helg- ina. Verður þetta önnur tilraun á þremur vikum til að koma friðarferlinu í gang á ný. Á hraðri niðurleið Gjaldmiðill Tallands hrapaði niður úr öUu valdi í morgun og sérfræðingar spáðu enn frekara gengishruni á næstunni. Hættur við loftbelgsflug Bandaríski loftbelgjaflugmaður- inn Richard Abruzzo er hættur við að reyna hnattflug án viðkomu þar sem kona hans á von á fyrsta bami þeirra. Skilnaður i dag Hugsanlegt er að Spencer jarl og eiginkona hans gangi endanlega frá skilnaði sín- um fyrir rétti í Suður-Afríku í dag. Þau komust að leynilegu samkomulagi um skilnaðinn í fyrrinótt eftir tíu tíma samninga- þóf. Lán undirritað í dag Fjármálaráðherra Suður-Kóreu sagði í morgun að lánveiting Al- þjóðagjaldeyrissjóðsins yrði undir- rituð í dag. Vantar 65 milljónir Carlos Menem Argentínuforseti sagði i gær að pláss væri fyrir 65 milljónir ibúa í landinu tU viðbót- ar þeim 35 miUjónum sem þegar búa þar. Heimur á uppleið Alan Greenspan, seðlabanka- stjóri Bandaríkjanna, sagði að efnahagur heimsins yrði sterkari þegar Asíuríki heföu leyst fjár- hagsvandræði sín. Reuter Meirihluti færeysku landstjórnarinnar í hættu: Samgönguráðherr- ann rekinn í gær Edmund Joensen, lögmaður Fær- eyja, rak Sámal Petur í Grund í Sjálfstjórnarflokknum úr embætti samgönguráðherra landstjórnarinn- ar í gær og tók brottreksturinn þeg- ar gUdi. í danska blaðinu Aktuelt segir að brottreksturinn komi á sama tíma og færeyska landstjórnin standi frammi fyrir mörgum mikUvægum ákvörðunum í lögþinginu. Þar á meðal er samþykkt fjárlagafrum- varpsins fyrir næsta ár. Svo kann að fara að ákvörðun Joensen verði tU þess að stjórnin missi meirihluta sinn á þinginu. Ástæðumar fyrir brottvikningu Sámals Peturs eru vinnuaðferðir hans, að því er Joensen lögmaður segir. Samgönguráðherrann fyrr- verandi hefur lengi verið talsmaður þess að rykið verði dustað af áform- um um að grafa jarðgöng mUli Vá- geyjar, þar sem flugvöUurinn er, og Straumeyjar, þar sem höfuðstaður- inn Þórshöfn er. Sámal Petur í Grund segir að fjár- magna eigi jarðgöngin með vega- toUi, auk þess sem hann viU stofna opinbert hlutafélag með eigið fé upp á rúmar 400 milljónir íslenskra króna. Þá sagðist Sámal Petur ætla að nota tekjuafgang á fjárlögum til verkefnisins. Það varð tU þess að fjármálaráðherrann, Anfinn KaUs- berg, mótmælti hástöfum. Sámal Petur hefur lýst því yflr að hann ætli að leita liðsinnis stjómar- andstöðunnar með jarðgangaáform sín. Edmund Joensen segir að vinnu- aðferðir Sámals Peturs stríði gegn stjómarsáttmálanum. Jóannes Eidesgaard, formaður Jafnaðarmannaflokksins, segir í viðtali við færeyska blaðið Sosialur- in í dag að það hafi ekki komið sér á óvart að lögmaðurinn skyldi reka Sámal Petur í Grund. Eidesgaard segir að stjórnarand- staðan hafi ekki enn rætt um hvort lagt verði fram vantraust á lög- manninn. Finnbogi ísakson úr Þjóðveldis- flokknum segist i samtali við Sosial- urin búast við aö boðað verði tU nýrra kosninga. Rudy Glancer, íbúi í Menai, einu úthverfi Sydney í Ástraiíu, viröir fyrir sér brunarústir heimilis síns í morgun. Skóg- areldar loga á mörg hundruö stöðum í suöausturhluta Ástralíu og er eldurinn kominn að suöurjaöri Sydney. Mikill fjöldi heimila hefur brunniö til kaldra kola og tveir slökkviliösmenn hafa látiö lífiö í baráttunni viö eldinn. Jeltsín boðar fækkun kjarnaodda: Rússlandsforseti virtist utangátta Borís Jeltsín Rússlandsforseti kom öUum að óvömm, meira að segja eigin samstarfsmönnum, þegar hann tUkynnti í Stokkhólmi í gær að Moskva væri reiðubúin að fækka einhliða kjarnaoddum sínum um þriðjung. Undrun manna varð enn meiri þegar biaðafuUtrúi Jeltsíns sagði nokkrum mínútum seinna að forsetinn hefði ekki meint aUt sem hann sagði. BlaðafuUtrúinn, Jastrzjembskij, sagði að það sem forsetinn hefði átt við hefði verið það sem hann og Bandaríkjaforseti ræddu síðastliðið vor. Þá hefðu forsetarnir náð samkomulagi um að eyðUeggja 2.000 tU 2.500 kjarnaodda. BlaðafuUtrúinn kvaðst ekki reiðubúinn að túlka yfirlýsingu forsetans sem að Moskva ætlaði að fækka einhliða þó forsetinn hefði sjálfur notað það orð. Fréttamenn, sem voru viðstadd- ir, sögðu að forsetinn hefði litið ein- kennilega út. Stundum hefði hann hvorki virst skynja tíma né rúm. Jeltsín Rússlandsforseti skoöar heiöursvörö í Stokkhólmi. Símamynd Reuter Kyoto-ráöstefnan: Skoðanir þátt- takenda enn mjög skiptar Enn er aUs óvíst hvort takist að ná samkomulagi um að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda á loftslagsráðstefnunni í Kyoto í Japan. Á þriðja degi ráðstefnunn- ar var enn mjög breitt bil mUli þátttökuríkjanna. FuUtrúar rúm- lega 160 ríkja sitja fundinn. FuUtrúar Bandaríkjanna voru engu að síður vongóðir í morgun um að þeim tækist að afla tUlög- um slnum stuðning. Tillögur þeirra gera meðal annars ráð fyr- ir að þróunarlöndin verði með í samkomulaginu og að þeim verði hjálpað með margvíslegri tækni- aðstoð. Ekki voru þó aUir sannfærðir um ágæti bandarísku tiUagn- anna, þar á meðal samninga- menn Evrópusambandsins, Kína og svokaUaðs G77 hóps þróunar- ríkjanna, svo og hópar umhverf- isverndarsinna. „Við viijum að Bandaríkja- menn grípi til aðgerða heima fyrir áður en þeir fara að hafa áhyggjur af okkur,“ sagði einn fulltrúi þróunarríkis. Reuter Norsk kristni: Morgunbænir konu bannaðar DV, Ósló: Marit Sletten sneri ekki morg- unbæn útvarpsins upp á djöful- inn og ekki bölvaði hún heldur, hvorki hátt né í hljóði. Því síður reyndi hún að hafa ljótt fyrir börnum þessa lands og hún, sem er guðfræðingur og starfandi prestur, boðaði enga villutrú. Séra Marit Sletten er kona og má þess vegna ekki að mati hreintrú- aðra Norðmanria boða guðs orð opinberlega. Það var norska útvarpsstöðin P4 sem réð Kristniboðshreyfing- una tU að flytja morgunbænir á rás sinni. Starfsmaður hreyfing- arinnar gleymdi að árið 1991 var samþykkt að konur mættu aldrei boða kristna trú á vegum hennar og réð séra Marit í fljótfærni. Mistökin voru þó leiðrétt áður en stórskaði hlaust af og konan rek- in. -GK Winnie Mandela í vitnastúkuna Winnie Madikizela-Mandela stígur í vitnastúkuna I dag hjá Sannleiks- og sáttanefnd Suður- Afriku sem Desmond Tutu, fyrr- verandi erki- biskup, stýrir. Winnie mun svara ásökun- um um mann- rán, árásir, misþyrmingar og morð. Hún hefur verið sökuð um aðUd að að minnsta kosti sex morðum. Þar á meðal á hún að hafa myrt með eig- in hendi 14 ára ungling í desember 1988. Mánuði síðar á Winnie að hafa fyrirskipað morð á lækni sem sagður er hafa getað bendlað hana við morðið á pUtinum. Vitnaleiðslur fyrir sannleiks- nefndinni hafa staðið i sjö daga. I gær var yngri dóttir Winnie, Zindzi, bendluð við misþyrming- ar á ungum blökkumönnum sem sakaðir voru um að hafa svikið baráttuna gegn kynþáttaaðskiln- aðarstefnunni. * Dufthylki 50% sparnaður • Gleislaprentarar • Faxtæki o.fl. • ISO-9002 gæði • Full ábyrgð J. ASTVflLDSSON €HF. Skipholti 33 105 Reykjovík Sími 533 3535 KBntnck Ahx/ík Armúla 1- Reykiavík, Sími 568 7222 - Fax 568 7295

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.