Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1997, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1997, Blaðsíða 18
ennmg 18 1 X ~K MÁNUDAGUR 8. DESEMBER 1997 ÍjV Að mæta draumi sínum Pétur Gunnarsson. Forvftni um Ástralfufara var ein kveikjan aö Heimkomu. DV-mynd E.ÓI. Pétur Gunnarsson á skáld- söguna Heimkomu á jóla- bókamarkaöi, stutta, spenn- andi sögu um mann á miðj- um aldri sem kemur heim til íslands eftir aldarfjórð- ungsdvöl meðal andfætlinga en þangað fluttist hann ung- lingur. Það ísland sem mæt- ir honum kemur honum á óvart - og reyndar okkur lesendum líka. Hvaðan kem- ur þessi saga? „Það er erfitt að setja fing- ur nákvæmlega á það hvenær eöa hvernig maður fær hugmynd að svona sögu,“ segir Pétur, „en samt man ég eftir því að ég hyrj- aði á henni árið 1981. Síðan hef ég veriö með hana í mín- um pjönkum, lagt hana til hliðar og unnið í öðru en alltaf tekið hana upp aftur. Margt kemur þar til sögu, til dæmis þónokkur forvitni um fólkiö sem fluttist úr landi þegar maöur var sjálf- ur á viökvæmum aldri. 1968, þegar ég var um tvítugt, þá var þetta mikla útstreymi til Ástralíu. Hver einasta fjölskylda þekkti til fólks sem fór. Og það var ekki verið að fara yfir bæjarlækinn til Evrópu heldur var eins og fólk væri að fara yfir í aðra veröld. Væri að deyja og fara handan yfir. Maður hafði spurnir af þessu fólki en maöur sá það kannski ekkert aftur. Sumt hefur aldrei kom- ið aftur. Þó heldur það alltaf einhveijum hangikjötstengslum við ísland. Ég hef oft hugsaö um örlög þessa fólks og það er einn þráöur í þessari sögu. Á þessum 16 árum hef ég prófað eitt og annað með þessa sögu og reynt að leiöa hana í aörar áttir, en þaö er einhver framvinda í henni sem eiginlega býður upp á einmitt þetta form. Og hún hefur hrint frá sér öðru efni sem ég hef reynt aö prófa með henni. Þaö sem tekur oft lengstan tíma í skriftum er að prófa tilgátur. Þá er maöur kannski þrjá mánuöi að skrifa einhvem útúrdúr en svo kemur í ljós að tilgátan gengur ekki upp. Þannig er þessi saga, hún hefur hrint heil- miklu efni frá sér.“ - Maður tekur til þess hvað ísland tekur illa á móti þessum útlaga sínum... „Þaö er nú bæði og. Gestinum verður einmitt starsýnt á hvað fólk er elskulegt, per- sónulegt, strax tollaramir í Leifsstöð. Svo er bara oft eins og er í lífinu: Maður á einhvem draum sem mann dreymir um að hitta í raunveruleikanum, en þá passa draumurinn og veruleikinn ekki endilega saman. Þessi maður er með ýmsar hugmyndir um landiö, sumt passar og annað ekki, sumt kemur hon- um óþægilega á óvart og annað þægilega. Hann uppgötvar til dæmis landiö upp á nýtt, nýjar víddir. ísland í dag gæti einmitt horft svona við manni sem kemur að því saklaus og dreymir um að taka landslagsmyndir og gera bók um það. Með þessu landslagi sem orkar svona lifandi og sterkt á hann. En smátt og smátt kemst hann að því að þetta er ekki bara landslag heldur partur af einhverju öðru reikningsdæmi - sem er í þessu tilfelli stóriðjan. Það er verið að möndla ýmislegt með þetta land sem hann er að mynda. Landið er ekki bara passíft mótíf heldur sprelllifandi mótíf sem alls konar hagsmunir togast á um.“ - Ertu að segja eitthvað um íslenskt samfélag í þessari sögu? „Frumkraftur sögu er bara ánægjan að segja hana þannig að af minni hálfu er engin dulin meining með Heimkomu. En það að segja sögu er flókið ferli sem hefur í sér undirtóna og yfirtóna þó að ég sé ekki reiðubúinn til að greina hvað þarna býr að baki. Enda er ekki til neins að ég fari að segja það ef það er ekki í vitund lesandans. Hingað til hefur ekki verið ofarlega á baugi í mínum verkum að segja sögu. Númer eitt tvö og þrjú hafa þær ein- kennst af lýsingum og stemningum. Sögu- þráðurinn sem hefur gengiö í gegnum þær hefúr ekki alltaf verið eins Ijós og í þessari sögu, þær hafa verið drifnar áfram með öör- um meöulum - til dæmis húmor. En þarna er stuðst við sjálfa framvinduna." - Ef við segjum að þetta sé fyrsta spennu- bókin þín þá er spumingin: Em fleiri vænt- anlegar? „Það kemur í ljós jafnóðum. Maður hefur kannski ákveðnar meiningar um það sem maður ætlar að gera, en það er ekki hægt að þvinga fram sögur. Þær koma af einhveijum öðrum hvötum. Og þessi saga gefur ekkert upp um næstu bók.“ Skáldsaga Péturs kemur út hjá Máli og menningu. Tllraunin tókst víst Skáldsaga Diddu, Erta, virðist vera að fá heldur önuga umfjöllun hjá gagnrýnendum blaðanna. Þröstur Helgason hjá Morgunblað- inu kallaði hana „hnoð“ í samnefndum ritdómi og ritdómur Geirlaugs Magnússonar í þessu blaði hét Heiðarleg tilraun. Tilraunin mistókst að hans mati. Á þessu em minnst tvær skoðan- ir. Skáldsaga Diddu er skrifuð í dagbókarformi sem er jafngamalt skáldsöguforminu. Við þekkjum þetta form vel og sum okkar eru meira að segja dagbókarskáld sjálf. Formið ein- kennist af trúnaöi og einlægni, en dagbók Ertu hefst ekki á orðunum „Kæra dagbók. Ég verð að segja þér svolítið sem gerðist í dag....“ Dag- bók Ertu hefst á þessum orðum: „get kannski átt í samskiptum við þessa bók. sé til.“ Þessi Bókmenntir Dagný Kristjánsdóttir dagbók er sem sagt ekki „vinkona", hún er bók og trúnaður er ekkert á dagskrá. Næst mikilvægasti tilgangur venjulegrar dagbókar er að setja reynslu þess sem skrifar niður í tíma. En í dagbók Ertu er ekkert ártal, engin árstiðaskipti, engin dagsetning eða tíma- setning. Færslurnar em merktar dagaheitum, hring eftir hring, fimmtíu og tvisvar sinnum. Dagbókarformið er sem sagt kirfilega afbyggt. Erta virðist ekki vera í vinnu eða skóla, enginn bíður hennar heima, ekkert utanað- komandi afl virðist skipta tíma hennar niður - dagamir bara líða við að horfa á líf annarra, oftast á kaffi- húsum. Sumar athug- anirnar minna ekki lítið á elstu bækur Thors Vilhjálmssonar. Ef ég man rétt vissu menn ekki heldur al- veg hvernig átti að taka þeim bókum. Gott ef þær voru ekki lesn- ar sem einlægar dag- bókarfærslur undar- legs íslendings á sjötta áratug þessarar aldar. Inni í dagbókarformi Ertu er að finna ljóð eða réttara sagt söngtexta: blúsa, rokktexta, smásögur, erótískar sögur, spakmæli, auglýs- ingatexta og vangaveltur af ýmsu tagi. Bók- menntagreinum og stíltegundum er blandað saman og það er ægilegur kjaftur á sögu- manninum, Ertu. Samforum af ýmsu tagi er stungiö inn hér og þar og Erta fróar sér næst- um eins mikið og Hlynur Bjöm í sögunni 101 Reykjavík eftir Haflgrím Helgason (og synd að skuli ekki vera hægt aö stefna þeim tveimur saman í eina bók). Erta skrifar mikið um þrá og erótík af því að hana skortir hvort tveggja og hún þráir það sem hún hefúr ekki. Erótískar fantasíur Ertu em af- bygging á klámsögum ef eitthvað er; þær eru vélrænar og yfir þeim liggur nistandi einmanaleiki. Hún er alltaf ein, áhorfandi, sem er stuggað til og frá á veitingahúsum af pörum eða hópum af fólki sem tekur borðið hennar. Það má vel leiða rök að því að viðhorf hennar séu and-félagsleg, full af tortryggni, árásargirni og „ein- dregnum brotavilja". Einnig má vel sjá tengsl Diddu við starfssystur hennar í austri og vestri, reiðar konur, óþekkar eða slæmar stelpur sem komið hafa fram á ritvöllinn með nýja, ögrandi og ægilega texta þar sem „kvenleg- ar dygðir" eru með öllu afskrif- aðar. Þær gera ekki einu sinni heiðarlegar tilraunir til að hnoða saman hefðbundnum sög- um heldur bíta og slá - og það er vel. Mér finnst það fúlt ef veru- lega róttækar ungar tilrauna- bókmenntir eru flattar út í hrað- lestrarkeppni jólabókaflóðsins. Ég las Ertu í heila viku með úrvalshópi ís- lenskunema í nóvemberlok og þó að þar kæmi fram hörð gagnrýni kom líka fram mikil hrifn- ing og ég staðhæfi (gegn staðhæfingum) að Erta er tilraun - sem tekst. Bókatíðindi komin Eins og landsmenn s ættu allir að hafa orðið varir við eru Bókatíð- indi 1997 komin út og i hefur þeim verið dreift inn á hvert heimili. Þar | fást upplýsingar i máh og myndum um flestar i bækur sem út koma á þessu ári, og aftan á hveiju eintaki er :: happdrættismiði. Á hveijum degi er i dreginn út vinningur og númerið birt í i dagbókum dagblaðanna. Vinningarnir : eru bókaúttekt fyrir 10 þúsund krónur. Samkvæmt Bókatíðindum koma út 45 j nýjar frumsamdar barnabækur í ár en ; þær þýddu eru á að giska tvöfalt fleiri. • Svo skemmtilega vill til að nýjar íslensk- ! ar skáldsögur eru 32 talsins en þær þýddu 33. Þarna virðist komið á jafn- ; vægi, en auðvitað eru hér engar sjoppu- ! bókmenntir sýndar sem aöallega eru : þýddar sögur. Ljóðabækur eru taldar 20 ; frumortar en 13 þýddar, en hér vantar margar bækur sem höfundar gefa út ; sjálfir. Bækur almenns efhis eru 92, ævi- sögur þýddar og frumsamdar 34 og hand- ! bækur 42. Alls eru taldir með endurút- ! gáfum nokkuð á fimmta hundrað titla. Þetta er ámóta og verið hefur undanfar- in ár, ívið færri titlar en í fyrra. Gyðjan Díana Bókaútgáfan Vöxtur j hefur gefið út gullfal- j lega bók um Díönu ; prinsessu, Díana - ævi j hennarogarfleifðeftir hinn kunna blaða- j mann Anthony i Holden. Hún kom út ; fyrir nokkrum vik- um í Bretlandi og er þessa dagana að koma út í Bandaríkjunum, Ástraiíu og víða um Asíu og Evrópu. Anthony Holden ritar um bemsku Díönu, stormasamt hjónaband hennar og breska ríkisarfans, umtalaðan skilnað i þeirra og átökin við konungsfjölskyld- una. Einnig fjallar hann um störf hennar j í þágu bágstaddra. Þýöandi er Torfi Geir Jónsson. Aðalprýði bókarinnar eru um 160 Ijós- myndir af þessari „mynduðustu" konu aldarinnar, teknar af mörgum þekktustu ljósmyndurum heims og fagurlega prent- ' aðar af prentsmiðjunni Odda. Hluti af söluverði bókarinnar rennur til styrktar Barnaspítala Hringsins. Broddflugur Siðfræðistofnun og Háskólaútgáfan hafa ; gefið út ritiö Broddflug- ur, safn þrjátíu greina j eftir Vilhjálm Áma- l son heimspekipró- ; fessor. Hann hefur i áður sent frá sér 1 Þætti úr sögu sið- í fræðinnar og Sið- ; fræði lífs og dauða, sem tilnefnd var til íslensku bókmenntaverðlaunanna 1993 og varð ! umtöluð. Gpeinar þessar fela í sér siðferðilegar j ádeilur og samfélagsgagnrýni, sem bein- ; ist einkum að þeim þáttum í samtíman- ; um sem ógna mennskunni, frelsi og ábyrgð einstaklinga. Meðal viðfangsefna ; Vilhjálms em menntun og heilbrigði, trú j og sfjómmál, hamingja og dauði, frelsi ! og mannlegt eðli. Tært drýp- ur vatnið Valdimar Láms- ; son hefur sent frá sér bókina Tært drýpur vatnið. Þetta : er þriðja ljóðabók ! hans og hann gefur hana út sjálfur. Hér er : ort á hefðbundinn hátt um margt sem manninum er kært, ást- , vini, bh-tu og gleði í dagsins önn, fagr- j ar minningar og sýnir til betri heima, en líka sorg og ama. Eða eins og segir í lok kvæðisins „Það er“: Já, lífið hefur mörgum reynst erfið sorgarsaga, í sárri neyð og fátækt var gangan þymum stráð. En sumir þáðu gæfuna alla ævidaga, þó oft vær’ekki uppskorið líkt og til var sáð.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.